Dagblaðið Vísir - DV - 19.01.1991, Síða 4
Fréttir
Við rætur Heklu:
Það er alltaf gott
að fá frí í skólanum
- segja Sigrún Theódórsdóttir og Kristín Lárusdóttir
„Við stungum upp á þvi í eðlis-
fræðitíma í morgun við kennarann
okkar, hann Þorstein Egilsson, að
hann gæfi okkur frí en færi þess í
stað með okkur að skoða Heklugos-
ið,“ sögðu þær Sigrún Theódórsdótt-
ir og Kristín Lárusdóttir, nemar í
Menntaskólanum á Laugarvatni, er
þær voru á göngu ásamt tveimur
bekkjarbræðrum sínum og kennara
í átt til gosstöðvanna í sunnanverðri
Heklu í gær.
„Þorsteinn er jarðeðlisfræðingur
og okkur fannst því alveg kjörið að
hann færi með okkur hingað til að
fræöa okkur um eldgos á vettvangi.
Það er frekar leiðinlegt að það skuh
vera svona lélegt skyggni en við ætl-
um að ganga eins langt og við kom-
umst til aö vita hvort við sjáum ekki
eitthvað. Annars er ferðin búin að
vera svo skemmtileg það sem af er
að það er allt í lagi þó við sjáum ekk-
ert, svo er alltaf ágætt að fá frí í skó-
lanum.
Við komum kannski aftur hingað
um helgina ef þaö léttir til, til að
skoða gosið, við sáum síðasta Heklu-
gos og okkur langar til að sjá þetta
líka,“segjaþærstöllur. -J.Mar
Hressir menntskælingar frá Laugarvatni við Heklu i gær, þau Arnar Freyr Guðmundsson, Kristín Lárusdóttir,
Þorsteinn Egilsson, kennari hópsins, Sigrún Teódórsdóttir og Þórarinn Blöndal. DV-mynd GVA
Svekkelsi að sjá
alls ekkert
- segir Heiðar Jónsson
„Það er svekkelsi að sjá ekkert
fyrst maður er komiim á staðinn.
Við vorum tjórir sem fengum okk-
ur frí úr vinnunni í morgun til að
koma hingað austur til aö sjá gos-
iö,“ segir Heiðar Jónsson, pípu-
lagningameistari úr Reykjavík.
„Við ætlum að biða aðeins og vita
hvort það léttir ekki til því þá er
von til að maður grilli í eldinn
gegnum skýkjabakkana. Annars
fer maður bara í bæinn aftur og
bíður eftir að birti aftur. Maður
verður að treysta á aö ljóti karlinn
þama niðri sé ekki búinn aö segja
sitt síðasta orð.
Ég kom hingaö austur þegar
Hekla gaus 1981 og mig langar að
sjá gosið núna svo ég ég geti borið
þessi tvö gos saman,“ segir Heiðar.
-J.Mar
Heiðar Jónsson. DV-myndGVA
Milligosakúnm Heklu lógað á fimmtudag:
Eldfjallið vottaði
kúnni virðingu sína
- segirhúsfreyjanáÞríhymingiíEyjafirði
Mjólkurkúnni Heklu frá bænum
Þríhymingi í Eyjafirði var slátrað
um miðjan dag á fimmtudag. Síðar
sama dag lét nafna hennar, eldfjallið,
hressilega á sér kræla með eldgosi.
Heimilsfólkinu á Þríhyrningi datt
ekki annað í hug en að eldfjallið
væri þar með að votta kúnni virö-
ingu. Það var alls ekki að ástæðu-
lausu að heimilisfólkiö hélt þessu
fram, bæði í gamni og alvöru.
„Hekla fæddist tveimur dögum eft-
ir aö Heklugosið 1980 hófst. Hún var
látin lifa og reyndist allar götur síðan
hin besta mjólkurkýr. Þetta var
stólpagripur, kolsvört, og lifði góðu
lífi í Eyjafirðinum. En í vor ge'rðist
það að Hekla fékk stálma í júgrið.
Það varð mjög sítt og því erfitt að
mjólka hana. Nú í vikunni var svo
komið að við sáum okkur ekki annað"
fært en að láta slátra kúnni. Við
pöntuðum pláss í sláturhúsinu og á
fimmtudagsmorguninn var komið að
sækja hana. Ég geri ráö fyrir að hún
hafi verið komin inn í eilífðina um
miðjan dag, blessunin, og við hugs-
uöum ekki meira um það. Þegar við
síðan fréttum seinna um daginn að
Hekla væri farin að gjósa gátum við
ekki orða bundist," sagði Marta
Geirsdóttir, húsfreyja á Þríhyrningi,
í samtali við DV.
Marta sagði örlögin hafa skeytt
þessa atburði saman, Heklugosið
1980, fæðingu Heklu, Heklugosið nú
og það aö Heklu var lógað. Þama fór
því sannkölluð milligosakýr.
-hlh
LAUGÁRDAGUR 19. JANÚAR 1991:
Séð yfir vatnið þegar það flæddi yfir veginn. Eins og sjá má var þetta mik-
ið magn af vatni og niðurföll réðu engan veginn við þaö. Sogið sem sést
er eitt niðurfallið. DV-mynd Einar Sigurðsson
Vatnsflóð í Öræfum:
Lónið f læddi yf ir
veginn og braut
varnargarð
Lón, sem einangrast hefur frá aðal-
lóninu undir Svinafellsjökli á Öræf-
um, braut varnargarð og flæddi yfir
þjóðveginn á um það bfi tveggja kíló-
metra kafla og reif með sér um 200
metra af malbiki á miðvikudaginn.
Einar R. Sigurðsson í Hofsnesi í
Öræfum segir að venjulega renni
aðallónið beint í Svínafellsá en þetta
lón hafi einangrast og ekkert komist.
„Menn eru hræddir viö að ef það
lækkar mikið í þessu lóni komist
aðallónið þarna í gegn. Þá getur áin
komið þarna fram og myndi eyði-
leggja veginn."
Þegar vatnið í lóninu braut varnar-
garðinn rann flóöbylgja niður á þjóð-
veginn þar sem vatnið stöðvaðist að
einhverju leyti en flæddi svo yfir
veginn. „Þar sem varnargarðurinn
var er bara djúpt gil núna. Það hefur
verið aiveg gífurlegt vatnsmagn sem
flæddi úr lóninu. Fyrir tveimur árum
var þetta lítill pollur en síðan hefur
safnast mikið vatn og varnargarður-
inn gat ekki haldið því lengur,“ segir
Einar.
-ns
Guörún Brynjólfsdóttir á Hvolsvelli:
Hefurséðöll Heklu-
gosin á öldinni
„Það er ekki hægt að bera þetta
gos saman við gosið 1980 því það var
um sumar og þá sá maður ekki eld-
ana eins og nú. Við sjáum ekki mikið
til gossins héðan frá Hvolsvelli en ég
hef þó séð bjarmann skýrt öðru
hvoru. Mér sýnist samt á öllu að
þetta séu lík gos,“ segir Guðrún
Brynjólfsdóttir, 76 ára gömul kona á
Hvolsvelli og fyrrum bóndi í Land-
eyjum. Hún hefur séð öll Heklugosin
sem orðiö hafa á öldinni. ,—
Guörún segir að lítiö hafi sést fram-
an af kvöldi en um miönætti hafi
birt til.
„Þá sá ég yfir alla sprunguna. Mér
sýndist þetta vera beggja megin en
ég sá ekki ljós yfir hátoppnum. En
þetta virtist ná alveg þversum yfir,
bæöi austur yfir og vestur yfir. Það
hefur ekkert öskufall verið hérna,
vindurinn hefur verið suðlægur og
allt öskufallið farið norður.
Ég man þegar gosið hófst 1947. Þá
vöknuðum við klukkan hálfsjö við
drunurnar og þegar ég leit út sá ég
strókinn lengst upp í loft. En þá sá
ég ekki glampa eða mikil ljós, heldur
var alveg svartur öskustrókur. Og
þaö var skrýtiö aö fylgjast með
skepnunum þá, sérstaklega hrossun-
um. Þau vildu hnappa sig saman og
voru óróleg. Skepnur eru svo næmar
fyrir þessu og til.dæmis áður en það
gerir skrugguljósagang þá er eins og
kettir finni það á sér. Dýrin eru
miklu næmari en mennirnir, sagði
Guðrún." -ns
Heklugosiö:
Öskufallið truf laði f lug
Gylfi Kristjánsson, DV, Akureyri:
Flug Flugleiða til Akureyrar taíðist
í nokkum tíma í gærmorgun vegna
öskustróks úr Heklugosinu sem lá
yfir landið frá suðri til norðurs. Ein
vél Flugleiða flaug þó til Akureyrar
fyrir hádegi, en leið hennar lá suöur-
og austur fyrir öskustrókinn og
lengdist flugið við það um 25 minút-
ur.
Vélin gat þó farið venjulega leið
suður aftur og sömuleiöis var hægt
að fljúga venjujega flugleið til Sauð-
árkróks í gærmorgun.
Öskufalls vegna Heklugossins
gætti strax í fyrrakvöld, aöallega í
Reykjadal og Bárðardal í S-Þingeyj-
arsýslu en einnig framarlega í Eyja-
firði. í gær varð vindátt suðlægari
og gætti öskunnar þá meira á vestan-
verðu Norðurlandi, en öskumagnið
var þó aldrei mikið og fór minnkandi
er leið á daginn.