Dagblaðið Vísir - DV - 19.01.1991, Blaðsíða 6

Dagblaðið Vísir - DV - 19.01.1991, Blaðsíða 6
6 ■1 H§AiMMÍM'GtJB?íiéPMÍ!9@A® I9öi. Utlönd Sókn gegn írak hert eftir árásina á ísrael - Sovétmenn segja að írakar haldi enn helmingi af loftvörnmn sínum Bandamenn hafa aukiö lofthernað sinn í írak aö mun frá því sem var fyrsta dag gagnsóknarinnar gegn ír- ak. Þá va sagt aö um eitt þúsnud árásarferðir hefðu verið farnar yfir landið og sprengjum einnig varpað á skotmörk í Kúvæt. í gær var enn hert á sókninni og sagt aö á þriðja þúsund ferðir hefðu veriö farnar til árása gegn íraksher. Þá gengu eldflaugar linnulaust yfir landið. íranar sögðU að tvær flaugar hefðu lent í olíuborginni Basra í írak og sprungið þar sem slíkum krafti að hús nötruðu í fjörutíu kílómetra fjarlægð í íran. Sovétmenn sögðu í gær að þeir hefðu vissu fyrir að írakar héldu enn helmingi loftvarna sinna óskertum I gagnsókn Bandaríkjamann á hendur írökum voru reyndar í fyrsta sinn svokallaðar Tomahawk stýri- flaugar. Þetta eru flaugar sem upp- haílega veoru gerðar til að flytja kjarnavopn og þóttu mestu ólíkinda- tól meöan kalda stríöið, var enn í al- geymingi. Nú þarf ekki lengur á þeim að halda til að viðhalda ógnarjafnvæg- inu í viðskipunum við Sovétríkin en í stríðinu við íraka hefur komið í ljós að þessar flaugar eru ekki bara til að sýnast. Talið er að í það minnsta 100 flaugum af þessari gerð hafi ver- ið skotið á írak síðustu daga og þær valdið gífurlegu tjóni. Stýriflaugarnar geta borið allt að 450 kílóa þungar sprengjur um 2400 kllómetra veg og hæft skotmark með um 95% nákvæmni. Þetta eru því ógnvænleg vopn sem hægt er aö hæfa með hvaða mannvirki sem er í írak. Flaugunum hefur verið komi fyrir á orrustuskipum sem voru upp á sitt besta í síðari heimsstyrjöldinni en hafa nú fengiö nýtt hlutverk. Ei'tt þessara skipa er Wisconsin sem nú er statt á Persaflóa. Hemaðarsérfræöingar segja aö Scud flaugamar, sem írakar skutu þrátt fyrir loftárásir bandamanna á herbækistöðvar og flugvelli. Heim- ildir fyrir þessu voru ekki tilgreindar nákvæmlega og ekki var ljóst hvaða áhrif stórsóknin í gær hefði á við- búnað íraka. Bandaríkjamenn láta engar fréttir frá sér fara um árangurinn af árás- unum en þeir hafa birt myndir frá fyrsta degi gagnsóknarinnar. Þar kemur fram að þeir náðu að vinna mikil spjöll á búnaði írakshers. Þó hafa þeir endurtekið árásir á marga flugvelli enda er búist við að írakar hafi þar enn bestu herþotur sínar í sprengjuheldum birgjum. Meðal skotmarkanna í gær voru sveitir þjóðvarðliða í norðvestur- hluta Kúvæts. Þetta eru úrvalssveitir í Irak. y að ísrael aðfaranótt fóstudagsins, séu eins og steinaldarverkfæri í saman- burði við stýriílaugamar. Fyrir utan Irakshers og þær sem mesta bar- dagareynslu hafa: Búist er við að landher bandamanna verði að mæta þeim ef til innrásar á landi kemur. Bandamenn segja að þeir hafi tekið enn fleiri þotur í notkun en áður. Sögur hafa verið um bardaga í lofti þar sem írakar hafa getað beitt þot- um til varnar. írakar hafa útvarpað stöðpgum áróðri í útvarpi og segjast hafa skotið niður nokkra tugi her- véla fyrir bandamönnum. Banda- ríkjamenn viðurkenna að hafa misst þijár þotur og Bretar og ítalir hafa einnig orið fyrir manntjóni. Norman Schwarzkopf, yfirmaður herafla Bandaríkjamanna við Persa- flóa, segir að flugherinn hafi náð að eyðileggja sex færanlega skotpalla að bera meira, draga lengra og hæfa með meiri nákvæmni er hægt að senda flaugarnar með yflrborði jarð- af sömu gerð og notaðir voru til að skjóta Scud-eldflaugum á ísrael. Þ'ó er óttast að írkar eigi fleiri slíka palla og kunni að nota þá þegar minnst varir. Schwarzkopf viðurkennir að írak- ar hafi á vissum stöðum yfir að ráða einhverjum öflugustu loftvörnum sem fyrirfinnast á jöröinni. Hann til- greindi ekki nánar um hvaða staði væri að ræða eða hvort ráðist heföi verið gegn þeim. Nú er viðurkennt að lítilsháttar skærur hafa oröið við landamærin að Saudi-Arabíu. Þar hafa tveir menn úr landgönguliði flotans særst. Þá hefur flotinn lent í skærum við varðbáta íraka á Persaflóa og sökkt þremur þeirra. Reuter ar þannig aö þær sjást ekki á ratsjám. Reuter Danirekki með í striðinu Danska korvettan Olfert Fisch- er heldur sig fyrir utan hættu- svæði á Persaflóanum og heldur vakt þar ásamt norska birgða- skipinu sem fylgir henni í stríð- inu. Sjóliðarnir hafa vetið í við- bragðsstöðu ailt frá þvi gagnsókn bandamanna hófst en ekki bland- ast í átökin. Uffe Ellemann-Jensen, utanrík- isráðherra Dana, vill þó að þjóð hans blandi sér meira í átökin og sýni í verki að þeir styðji aðferðir bandamanna heils hugar. Hann hefur þó tekið fram að breið póli- tísk samstaða verði að vera um beina aöild að átökunum. Ekkert bendir þó tíl að svo fari því jafnaðarmenn eru eindregið á móti hugmynd ráðherrans. Ritzau Peningamarkaður INNLÁNSVEXTIR (%) hæst Innlán óverðtryggð Sparisjóðsbækurób. - 3-3,5 Lb Sparireikningar 3ja mán. uppsógn 3 4 Lb.Sp 6mán. uppsögn 4-4,5 Sp 12 mán. uppsögn 5 Lb.lb 18mán. uppsögn 10 ib ' Tékkareikningar, alm. 0.5-1 Bb.Lb.Sp Sértékkareikningar 3-3,5 Lb Innlan verðtryggð Sparireikningar 3ja mán. uppsögn 1.5 Allir 6mán.uppsögn 2,5-3.0 Allirnema íb Innlán með sérkjörum 3 3,25 Íb Innlán gengistryggð Bandaríkjadalir 6 6.25 Bb Sterlingspund 12 12,6 Sp Vestur-þýskmörk 7,75-8 Bb.Sp Danskarkrónur 8,5-9 Sp ÚTLÁNSVEXTIR (%) lægst Útlán óverðtryggð Almennirvíxlar(forv) 13,75 Allir Viöskiptavíxlar(íorv-) (1) kaupgengi Almennskuldabréf 13,5-14.25 Lb Viðskiptaskuldabréf(1) kaupgengi Allir Hlaupareikningar(yfirdr.) 17.5 Allir Utlán verðtryggð Skuldabréf 7.75 8.75 Lb Utlán til framleiðslu Isl. krónur 13,25-14 Lb SDR 10,5-11,0 Lb Bandarikjadalir 9.5 10 Lb Sterlingspund 15.5-15,7 Allir nema Sp Vestur-þýsk mörk 10,75-11,1 Lb.íb Húsnæðislán 4.0 Lifeyrissjóðslán 5-9 Dráttarvextir 21,0 MEÐALVEXTIR Óverðtr. jan. 91 13.5 Verðtr. jan. 91 8.2 . VÍSITÖLUR Lánskjaravísitalajan. 2969 stig Lánskjaravisitalades. 2952 stig Byggingavisitala jan. 565 stig Byggingavísitala jan. 176,5 stig Framfærsluvísitala jan. 149,5 stig Húsaleiguvísitala 3% hækkun . jan. VERÐBRÉFASJÓÐIR Gengi bréfa verðbréfasjóða Einingabréf 1 5,292 Einingabréf 2 2,865 Einingabréf 3 3.479 Skammtímabréf 1,777 Kjarabréf 5,199 Markbréf 2,761 Tekjubréf 2,022 Skyndibréf 1,543 Fjölþjóðabréf 1,270 Sjóðsbréf 1 2,540 Sjóðsbréf 2 1,802 ‘ Sjóðsbréf 3 1,765 Sjóðsbréf 4 1,519 Sjóðsbréf 5 1,065 Vaxtarbréf 1,7897 Valbréf 1,6776 Islandsbréf 1,099 Fjórðungsbréf 1,052 Þingbréf 1,098 öndvegisbréf 1,088 Sýslubréf 1.106 Reiðubréf 1,079 HLUTABRÉF Sölu- og kaupgengi að lokinni jöfnun m.v. 100 nafnv.: KAUP SALA Sjóvá-Almennar hf. 6,55 6,88 Eimskip 5,57 5,85 Flugleiðir 2,43 2,55 Hampiðjan 1.72 1,80 Hlutabréfasjóðurinn 1.76 1,84 Eignfél. Iðnaðarb. 1,89 1.98 Eignfél. Alþýðub. 1,38 1,45 Skagstrendingur hf. 4,00 4,20 Islandsbanki hf. 1,38 1,45 Eignfél. Verslb. 1,36 1.43 Oliufélagið hf. 6,00 6,30 Grandi hf. 2,20 2,30 Tollvörugeymslan hf. 1,07 1.12 Skeljungur hf. 6,40 6,70 Ármannsfell hf. 2,35 2,45 Fjárfestingarfélagið 1,28 1,35 Otgerðarfélag Ak. 3,50 3,68 Olis 2,12 2,25 Hlutabréfasjóður VlB 0,95 1,00 Almenni hlutabréfasj. 1,01 1,05 Auðlindarbréf 0,96 1,01 islenski hlutabréfasj. 1,02 1,08 (1) Við kaup á viðskiptavíxlum og við- skiptaskuldabréfum, útgefnum af þriðja aðila, er miðað við sérstakt kaupgengi, kge. Skammstafanir: Bb = Búnaðarbankinn, lb = Islandsbanki Lb = Landsbankinn, Sb = Samvinnubankinn, Sp = Sparisjóð- irnir. Nánari upplýsingar um peningamarkað- inn birtast í DV á fimmtudögum. Fjórir köfnuðu í gasgrímum Mikil skelfing greip um sig í Israel þegar Scud-eldflaugar Iraka hæfðu ibúðarhús í Tel Aviv og Haifa. Fólk átti almennt von á efnavopnaárás og setti því upp gasgrimur. Simamynd Reuter Fjórir menn í ísrael létust í kjöl- far eldflaugaárásar íraka á borg- irnar Tel Aviv og Haifa aðfaranótt föstudagsins. í árásinni sjáflri særöust 12 menn en fólkið sem lést kafnaði í gasgrímum. í fyrstu var óttast að írakar væru að gera efnavopnaárás og því var útvarpað viðvörunum um að setja upp gasgrímur. Síðar kom í ljós að flaugarnar báru aðeins hefðbundn- ar sprengjur. Þau sem létust voru þrjár fullorn- ar konur og tveggja ára gömul stúlka af palestínskum uppruna. Stúlkan virðist hafa látist vegna þess að plasthlíf á loftinntaki grím- unnar var ekki fjarlægð. Eftir því sem næst verður komist létust tvær kvennanna af sömu orsökum en sú þriðja fékk hjartaá- fall. Talið var hún hefði ekki getað andað eðlilega með grímuna á höfð- mu. Langflestir ísraelsmenn fóru að tilmælum yfirvalda og bjuggu sig undir að mæta efnavopnaárás. Mikil skelfmg greip um sig eftir aö fréttist af fyrstu flaugunum. Alls urðu flaugarnar átta sem hæfðu íbúðarhús í Tel Aviv og Haifa. ísraelsmenn bjuggust við hinu versta enda haföi Saddan Hussein lofað að ísrael yrði fyrsta skotmark hans þegar hann svaraði fyrir sig. ísraelsmenn náðu ekki að stöðva flaugarnar eins og Bandaríkja- mönnum tókst þegar gerð var á sama tíma sams konar árás á her- stöð í Saudi-Arabíu. Bandaríkjamenn höfðu til varnar nýja gerð af eldflaugum sem ísra- elsmenn hafa einnig fengið fyrir skömmu. ísraelsmenn virðast hins vegar ekki hafa náð að beita flaug- unum í tæka tíð. Reuter Eldraun stýrif lauganna Tomahawk stýriflaug skotiö af orrustuskipinu Wisconsins á Persaflóa. Þaðan er haegt að haefa skotmörk hvar sem er Símamynd Reuter

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.