Dagblaðið Vísir - DV - 19.01.1991, Síða 12
12
LAUGARDAGUR 19. JANUAR 1991.
Sælkerinn
DV
Hótel Holt aðili að virtri hót-
elkeðju - Relais & Chateaux
Hótel Holt er nú oröiö hlekkur í einni
virtustu hótelkeöju í heiminum.'
Relais & Chateaux. Þetta eru góö tíð-
índi fyrir ísland sem feröamanna-
land því inngönguskilyröi í þessa
hótelkeðju eru afar ströng. í keöj-
unni eru nú 377 hótel og veitingahús
í 37 löndum, flest í Frakklandi.
Upphaf þessa máls má rekja til
þess tíma þogar sænski veitingamaö-
urinn og íslandsvinurinn Steiner
Öster var forseti Noröurlandadeildar
Relais & Chateaux. Hann og íslensk-
ur kunningi hans höföu hug á aö
finna hótel á íslandi sem uppfyllti
öll skilyröi til aö vera meö í keðj-
unni. Eftir þriggja ára leit töldu þeir
félagar aö eini staöurinn, sem kæmi
til greina. væri Hótel Holt.
Steiner Öster sendi skýrslu um
málið til aðalskrifstofunnar í París
og var þá sendur „njósnari" sem bjó
á Holti í nokkra daga og kannaði
málið. Steiner Öster kom svo í enn
eina heimsókn til íslands og kannaði
máliö frekar. Að lokum kom svo
varaforseti Relais & Chateaux til ís-
lands og eftir heimsókn hans ákvaö
stjórn samtakanna aö mæla meö inn-
göngu Hótel Holts.
En hvað er Relais & Chateaux? Jú,
forsaga samtakanna er sú aö áriö
1901 stofnuðu eigendur hallarhótela
og hótela, sem rekin voru í gömlum
klaustrum í Frakklandi, meö sér
sanitök. Hér var um aö ræöa lúxus-
hótel meö sterk séreinkenni. Relais
& Chateaux-samtökin voru svo form-
lega stofnuö í Frakklandi áriö-1954.
Frá 1972 var síðan veitingastöðum
gefmn kostur á aö ganga í samtökin.
Hvert hótel eða veitingahús er i
einkaeign. Þeir sem að samtökunum
standa skuldbinda sig til aö vinna
eftir sömu reglum og kynna hver
annan. Þeir sem aö samtökunum
standa hafa hin svokölluðu „Finim
C" aö leiðarljósi, sem eru frönsku
orðin Caracter, Courtoisie. Calme,
Uharme, Cuisine eöa í lauslegri þýö-
ingu: persónulegt, kurteisi, kyrrö,
töfrar og góður matur. í stuttu máli
verða hótelin að hafa einhver sérein-
kenni og vera á kyrrlátum staö.
Skúli Þorvaldsson hótelstjóri og starfsfólk hans eru orðin „hlekkur"
virtustu hótelkeóju heimsins.
Maturinn veröur aö vera í háum
gæðaflokki, starfsfólkiö veröur að
sýna lipurð og kurteisi. Gestinum á
aö líða cins vel og hann sé heima hjá
Umsjón:
Sigmar B. Hauksson
SÉRTILBOÐ
REIAIS &
CHATEAUX
8 nætur, 4.-12. febrúar
Langford Resort Hotel kr. 48.200.
Sheraton Flaza kr. 56.160.
Verð miðað við 2 í gistingu
sér. Af þessu leiðir aö flestöll hótel í
keðjunni eru frekar lítil eöa milli-
stór. Risahótel eöa svokallaðar „hót-
elverksmiöjur" hafa því enga mögu-
leika á aö vera meö af skiljanlegum
ástæöum.
Árlega er gefin út bók meö litmynd
af hverju hóteli eða veitingastaö og
öllum nauösynlegum uppíýsingum.
svo sem veröi á gistingu, mat og
tleira. Bók þessi er prentuö í einni
milljón eintaka. í hverju liótelher-
bergi í hótelum félagsmanna liggur
frammi eitt eintak sem gesturinn má
taka meö sér. Þúsundir ferðamanna
gista aðeins á hótelum sem tilheyra
Relais & Chateaux. Hvar sem þeir
eru staddir í heiminum jjarf ekki
annað en aö fletta upp í bókinni og
athuga hvort þar sé aö finna Relais
& Chateaux-hótel.
Nú orðið eru flestöll virtustu hótel
Evrópu í þessari hóteikeöju. Fimm
dönsk hótel og veitingastaðir eru nú
meö, fimm sænsk og eitt norskt. Enn
sem koniið er er ekkert finnskt hótel
meö.
Varaforseti Relais & Chateaux
sagöi í viðtali aö árlega bærust all-
margar umsóknir um inngöngu en
aöeins væru örfá hótei eða veitinga-
staöir teknir inn árlega og sum ár
hefur enginn komist í gegnum nálar-
augaö. Varaforsetinn sagði i viðtali
viö Sælkerasíöuna aö þaö væri
óþekkt aö þcir sem einu sinni væru
orðnir „hlekkir" i keöjunni segöu sig
úr henni. Hann sagöist aöeins niuna
eftir örfáum tilfellum og þá heföu þaö
veriö veitingahúsaeigendur sem lent
heföu í tjárhagsöröugleikum sem
heföu hætt.
En hvers vegna þessi ströngu inn-
gönguskilyrði? Jú. eitt slæmt hótel
kernur óoröi á öll hin. „Viö viíjum
standa vörö um nokkur grunnatriöi
og þau eru að hóteliö veröur aö hafa
sterk séreinkenni og veita persónu-
lega þjónustu. Þessu marki vcröur
ekki náö nema eigendurnir standi
sjálfir vörö um þessi gfldi.
Alþjóðlegum - hótelhringúm. sem
stjórnað er úr tjarlægö. tjölgar stöö-
ugt: j)essi hótel eru stööluö. steypt í
sama formiö. Hótelin eru eins hvort
sem þau eru í Japan eöa í Portúgal.
Auövitað eiga svona hótel rétt á sér.
En viö sem myndum Relais & Cliate-
aux teljum aö j)aö veröi æ meiri þörf
fyrir hótel seni hvert og eitt hefur sín
séreinkcnni og eins og ég sagöi áöan.
og veiti persónulega þjónustu."
En hvers vegna ísland og Hótel
Holt? „Viö höfum haft auga á íslandi
um tíma. ísland er spennandi land
og á mikla framtíö fyrir sér sem
ferðamannaland. Herra Öster er
mjög virtur innan okkar samtaka og
hann og íslenskur ráögjafl hans
mæltu mjög eindregiö meö Hótel
Holti. Við hjónin erum mjög ánægð
meö dvöl okkar hér á hótelinu og
erum sammála um aö Hótel Holt sé
„hlekkur" sem fellur einkar vel inn
í Relais & Chiateaux-keöjuna. Hér
starfar fagfólk og hótelið er mjög fall-
egt, svo ég tali nú ekki um hiö stór-
fenglega málverkasafn." Þetta sagöi
Jean-Pierre Köch. varaforseti Relais
& Chateaux. í viðtali viö Sælkerasíö-
una.
Hótel Holt er nú aö fmna á bls. 252
í bók samtakanna sem gefln er út í
milljón eintökum, eins og áöur sagöi.
Hótel Holt er j)ví komiö á biaö meö
helstu úrvalshótelum í Evrópu og
víöar, fyrst islenskra hótela. Sæl-
kerasíðan óskar Skúla Þorvaldssyni
og starfsfólki-hans til hamingju.
8. febrúar, 21 dagur, kr. 50.395.
1. mars, 28 dagar, kr. 59.080.
Verð miðað við 2 í gistingu
4 nætur frá kr. 31.810.
Miðað við 2 í gistingu
Sjáumst!
FARKC3RT
FERÐASKRIFSTOFA
'u - w\
REYKJAVÍKUR
Aðalstræti 16 - sími 62-14-90
Horfur eru á aö verö á pitsum muni lækka vegna þess aö til stendur að
fara að nota gerviost á pitsurnar.
Verður pitsuolcrinu aflétt?
Sem kunnugt er eru dýrustu pitsur
í Evrópu seldar hér á íslandi. Erlend-
ur ferðamaður, sem fær sér pitsu og
bjórglas hér á landi, hlýtur að fá
meiri háttar áfall. í nágrannalöndum
okkar eru pitsur og bjór einhverjar
þær ódýrustu veitingar sem völ er á.
Nú eru horfur á aö verð á pitsum
muni lækka. Ástæðan er sú að fariö
er að flytja inn gerviost sem kallast
ostlíki. Ekki vissi Sælkerasíðan aö
ostur hefði svona mikil áhrif á verö-
lag á pitsum. Þaö verður forvitnilegt
aö sjá hve þessi verðlækkun verður
mikil. Má ekki einnig fara aö nota
gervihveiti? Hver veit nema þá væri
hægt aö lækka verðið enn frekar.