Dagblaðið Vísir - DV - 19.01.1991, Qupperneq 16
16
LAUGARDAGUR 19. JANÚAR 1991.
Skák
Yasser Seirawan lauk góðu skákári með öruggum sigri gegn Timman Jan Timman mætir Hiibner i fyrstu lotu áskorendaeinvígjanna sem hefj-
í æfingaeinvígi þeirra í Hilversum. ast nk. miðvikudag - þar duga engin vettlingatök.
Seirawan lék
sér að Timman
í æfingaeinvigi
- áskorendaeinvígin hefjast í næstu viku
Jan Timman hefur í lok undan-
farinna ára fengið góðan gest til
Hollands og teflt við hann æflnga-
einvígi. Nú síðast tók bandaríski
stórmeistarinn Yasser Seirawan
áskoruninni. Varla hefur Seirawan
verið sigurviss því að Timman hef-
ur jafnan barist vel í þessum ein-
vígjum og aðeins einu sinni beðið
lægri hlut - gegn sjálfum Kasparov.
En nú fór á annan veg. Er upp var
staðið hafði Seirawan gjörsigrað
Hollendinginn með fjórum vinn-
ingum gegn tveim!
Einvígið hófst með spennandi
jafnteflisskák en Timman náði síð-
an forystunni með sigri í 2. skák-
inni. Sú gleði stóð stutt því að
næstu þremur skákum tapaði
hann, öllum í innan við þrjátíu
leikjum! Þar með hafði Seirawan
sigrað en sjöttu skákina tefldu þeir
þó einnig og lauk henni með jafn-
tefli.
Þrátt fyrir afhroð Timmans er þó
engin ástæða fyrir hann að ör-
vænta fyrir áskorendaeinvígið við
Robert Hubner sem hefst í Sarajevo
í Júgóslavíu næstkomandi mið-
vikudag. Einvígi hans við Seirawan
var bersýnilega teflt í réttum anda
æfingaeinvígis. Ævintýramennsk-
an var í fyrirrúmi og taflmennskan
átti lítið skylt með skotgrafahern-
aði heimsmeistarakeppninnar.
Auk Timmans og Hubners tefla
Gelfand og Nikolic í Sarajevo og
byrja einnig á miðvikudag.
Kortsnoj og Sax annars vegar og
Dolmatov og Jusupov hins vegar,
hefja einvígi sín á sama tíma í Wijk
aan Zee í Hoflandi og Anand og
Dreev tefla í Madras á Indlandi. Þá
er fyrirhugað að Ivantsjúk og Jud-
asín tefli í Riga í Lettlandi en Short
og Speelman verða á heimavelli í
London frá 27. janúar.
Einvígi Timmans við Seirawan
var býsna fjörlega teflt eins og
meðfylgjandi skákir vitna um.
Seirawan beitti Caro-Kann vörn
með svörtu í tveimur skákanna og
urðu þær sviptingasamar. Þeirri
fyrri tapaði hann en endurbætti
taflmennsku sína og náði vinn-
ingnum aftur í þeirri seinni.
Með hvítu kom hann Timman í
opna skjöldu með óvenjulegu af-
brigði. Uppskeran þar varð fyrst
jafntefli en síðan tveir vinningar í
22 og 26 leikjum, þar sem Timman
sá aldrei til sólar.
Fjórða skákin
Hvítt: Jan Timman
Svart: ,Yasser Seirawan
Caro - Kann vörn
1. e4 c6 2. d4 d5 3. e5 Bf5 4. Rc3 e6
5. g4 Bg6 6. Rge2 c5 7. h4 h5!?
Endurbót Seirawans á 2. skákinni
(og raunar einnig skák þeirra fé-
laga frá Tilburg) er tefldist 7. - h6
8. Be3 Db6 (Seirawan lék 8. - cxd4
í Tilburg) 9. f4 Rc6 10. Í5 Bh7 11.
Dd2 0-0-0 12. 0-0-0 c4 13. Rf4 Og
Timman átti sterka stööu. Seiraw-
an reyndi 13. - Da6?! 14. fxe6 b5 15.
exf7 Rge7 en eftir 16. Re6 b4 17.
Rxd8 Kxd8 18. aS bxc3 19. Dxc3 var
sóknin runnin út í sandinn og Tim-
man vann í 34 leikjum.
Nýjung Seirawans lítur sannar-
lega ekki vel út en ýmislegt býr að
baki.
8. Rf4 Rc6 9. Rxg6 fxg6 10. Dd3?!
Timman reynir að hrekja nýjung
Seirawans með skyndisókn en í ljós
kemur að svarta staðan þolir
áhlaupið. Líklega er gæfulegra að
styrkja miöborðið með 10. Be3.
10. - cxd4! 11. Rb5
Ef 11. Dxg6+ Kd7 og 12. - Rxe5
liggur í loftinu.
11. - hxg4 12. Dxg6+ Kd7 13. Dxg4
Db6!
Hótar 13. - a6 og riddari hvíts á
engan góðan reit. Ekki verður séð
að hvítur eigi skynsamlega leið til
að mæta þessu. Tilraun Timmans
er þó athyglisverð.
14. c3 dxc3 15. Rxc3 Rh6 16. Bxh6
Ef drottningin víkur sér undan
hreiðrar riddarinn um sig á f5 og
svartur fær öruggt frumkvæöi.
16. - Dxb2!
Nú eru góð ráð dýr. Ef 17. Hbl
Dxc3 + 18. Bd2 Dxe5 og tvö peð eru
fallin.
17. Bd2!? Dxal+ 18. Ke2 Db219. Bh3
He8 20. Hbl Dc2 21. Hxb7+ Kc8 22.
Hbl Ba3!
Þessi snjafli leikur, sem hindrar
23. Hcl, gerir sókn hvíts harla mátt-
lausa Ef nú 23. Dxg7 Bb2! og svara
má 24. Bxe6+ Kb8 25. Rxd5 með 25.
- De4 +! 26. Be3 Rd4 + og vinnur.
23. Hdl Bb2 24. Rb5 Kb8 25. Rd6
Rd4+ 26. Ke3
26. - Hxh4! 27. Dxh4 Dxdl 28. Bg4
Hótunin var 28. - Df3 mát.
28. - Rc2+ 29. Kd3 Rel +
Og Timman gafst upp, því aö 30.
Ke3 Rg2+ 31. Kd3 Dbl+ kostar
drottninguna.
Fimmta skákin
Skák
Jón L. Árnason
Hvítt: Yasser Seirawan
Svart: Jan Timman
Nimzoindversk vörn
1. d4 RÍ6 2. c4 e6 3. RÍ3 b6 4. Rc3
Bb4 5. Db3 c5 6. a3 Ba5 7. Bg5
í fyrstu einvígisskákinni lék
Seirawan rólegri leik, 7. e3, sem gaf
honum lítið í aðra hönd. í þriðju
skákinni bætti hann um betur meö
biskupsleiknum og áfram tefldist:
7. - h6 8. Bh4 Rc6 9. 0-0-0 Bxc3 10.
Dxc3 cxd4 11. Rxd4 Re4 12. Dh3 Dc7
13. Rb5 De5 14. De3 Í5 15. f4 Db8 16.
g4 og Seirawan átti sigurstranglega
stöðu. Skákin varð aðeins 22 leikir
og lauk með 16. - 0-0 17. Bg2 d5 18.
gxf5 exf5 19. cxd5 Ba6 20. Rc3 Ra5
21. d6 Rc4 22. Dd4 og Timman gaf.
Nú hyggst Timman spara sér h7-h6
leikinn, svo hann geti skotið inn
Rf6-e4 síðar meö árangri. En aftur
bíður hans glaöningur.
7. - Rc6' 8. 0-0-0 Bxc3
Nú getur Timman svarað 9. Dxc3
með 9. - Re4! En Seirawan lumar á
nýrri hugmynd.
9. d5!?
Seirawan hirðir ekki um biskup-
inn á c3 en ógnar riddara svarts í
staðinn. Svartur hlýtur aö missa
annan hvor manninn og þá jafnast
liösaflinn. En ákvörðun svarts er
erfið. Hvernig teflir hann best úr
stöðunni?
Slæmt er 9. - Bxb2? 10. Dxb2 Ra5
11. e4! meö yfirburðatafli á hvítt.
Einnig eftir 9. - Rd4 10. Dxc3 Re4
11. Bxd8 Rxc3 12. bxc3 Rxf3 13. Bc7
Rg5 14. f3 á hvítur þægilegra tafl.
Leikurinn sem Timman velur næg-
ir heldur ekki til aö j’afna taflið.
Trúlega er 9. - Be5 10. dxc6 Dc7
besti möguleiki hans.
9. - exd5? 10. cxd5 Be5 11. dxc6 De7
12. cxd7+ Bxd7 13. e3
Eftir uppskiptin á d5 í 9. leik hef-
ur lifnað yfir hvítreita biskupi
hvíts og nú strandar 13. - 0-0? á 14.
Rxe5 Dxe5 15. Bxf6 með mann-
svinningi og 13. - Bc6 er svarað
með 14. Bb5.
13. - Hd8 14. Hxd7! Hxd7
Ekki 14. - Kxd7 15. Da4+ Kc8 16.
Ba6+ Kb8 17. Rxe5 Dxe5 18. Bf4 og
vinnur.
15. Bb5 Bd6
Enn má ekki hróka og 15. - Kd8
til að losna úr leppuninni er svarað
með 16. Bxd7 Kxd7 17. Rxe5 Dxe5
18. Dxf7 o.s.frv.
16. Hdl 0-0 17. Bxd7 Dxd7 18. Bf4 c4
19. Dc2 Re8 20. Rg5 f5 21. Dxc4+ Kh8
22. Bxd6 Rxd6 23. Dd5 Hd8 24. Re6!
En ekki 24. Dxd6 vegna 24. -
Dc8 + !
24. - Dc8+ 25. Kbl Hd7 26. Dxd6!
Og Timman gaf, því að eftir 26. -
Hxd6 27. Hxd6 á hann ekkert svar
við 28. Hd8+. .jl^