Dagblaðið Vísir - DV - 19.01.1991, Side 46
04
!. 'i a'D’í/.
LAUGARDAGUR 19. JANUAR 1991.
Laugardagur 19. janúar
SJÓNVARPIÐ
14.30 íþróttaþátturinn. 14.30 Úr einu í
annaö. 14.55 Enska knattspyrnan.
Bein útsending frá leik Leeds og
Luton. 16.45 íslenski handboltinn
- bein útsending. 17.50 Úrslit
dagsins.
17.50 Alfreð önd (14). Hollenskur
teiknimyndaflokkur. Leikraddir
Magnús Ólafsson. Þýðandi Ingi
Karl Jóhannesson.
18.15 Kalii krít (7) (Charlie Chalk).
Myndaflokkur um trúðinn Kalla.
Þýðandi Ásthildur Sveinsdóttir.
Leikraddir Sígrún Waage.
18.40 Svarta músin (7) (Souris noire).
Franskur myndaflokkur fyrir börn.
Þýðandi Ólöf Pétursdóttir.
18.55 Táknmálsfréttlr.
19.00 Poppkorn. Dægurlagaþáttur í
umsjón Björns Jr. Friðbjörnssonar.
19.25 Háskaslóðir (14) (Danger Bay).
Kanadískur myndaflokkur fyrir alla
fjölskylduna. Þýðandi Jóhanna
Jóhannsdóttir.
20.00 Fréttir og veður.
20.35 Lottó.
20.40 ’91 á stööinni. Æsifréttamenn
stöðvarinnar kryfja málefni samtíð-
arinnar til mergjar. Dagskrárgerð
Kristín Erna Arnardóttir.
21.00 Fyrirmyndarfaöir (16) (The Cos-
by Show). Bandarískur gaman-
myndaflokkur um fyrirmyndarföð-
urinn Cliff Huxtable og fjölskyldu
hans. Þýðandi Guðni Kolbeinsson.
21.30 Fólkið í landinu. Með einleikar-
ann í blóðinu. Sonja B. Jónsdóttir
ræðir við Sigrúnu Eðvaldsdóttur
fiðluleikara. Dagskrárgerð Nýja
bíó. Framhald.
21.55 Prinsinn og betlarinn. (The
Prince and the Pauper). Bandarísk
bíómynd frá 1978, byggð á sam-
nefndri sögu eftir Mark Twain um
ungan prins og betlara sem hafa
hlutverkaskipti. Leikstjóri Richard
Fleischer. Aðalhlutverk Mark Lest-
er, Oliver Reed, Ernest Borgnine,
Raquel Welch og George C. Scott.
Þýðandi Guöni Kolbeinsson.
23.50 Verndararnir (Beskyddarna).
Sænsk sakamálamynd . um lög-
reglumanninn Roland Hassel. Að-
alhlutverk Lars-Erik Berenett. Þýð-
andi Þuríður Magnúsdóttir.
01.25 Útvarpsfréttir í dagskrárlok.
9.00 Með Afa. Afi og Pási eru hressir
og munu þeir sýna ykkur skemmti-
legar teiknimyndir og einnig segja
sögur og jafnvel syngja fyrir ykkur.
10.30 Biblíusögur Skemmtileg teikni-
mynd um skrítið hús.
10.55 Táningarnir í Hæðageröi Teikni-
mynd.
11.20 Herra Maggú. Teiknimynd fyrir
alla fjölskylduna.
11.25 Teiknimyndir., Úr smiðju Warn-
er-bræðra.
11.35 Tinna. Leikinn framhaldsþáttur
um hnátuna Tinnu.
12.00 Þau hæfustu lifa. Fræðandi þáttur
um dýralíf.
12.25 Adam: Sagan heldur áfram (Ad-
am: His Song Continues). Þessi
mynd er sjálfstætt framhald kvik-
myndarinnar Adam, sem Stöð 2
sýndi síðastliðið sumar, en þar var
sagt frá sannsögulegum atburði
um örvæntingarfulla leit foreldra
að syni sínum. Honum var rænt
er móðir hans var að versla í stór-
markaði. Þau leituöu meðal annars
á náðir leyniþjónustunnar en hún
veitti þeim enga hjálp. Að lokum
settu þau upp skrifstofu til hjálpar
foreldrum í sömu aðstöðu. Aðal-
hlutverk: Daniel J. Travanti, Jo-
Beth Williams. Leikstjóri:. Robert
Markowitz.
14.05 Ópera mánaðarins. Jenufa
Janacek skrifaði þessa dramatísku óperu
árið 1904 og var þetta fyrsta verk
hans sem naut einhverra vinsælda.
Hér er það flutt í Glyndebourne
leikhúsinu og er það í fyrsta skipti
sem uppfærsla verksins fer fram á
fjölunum þar. Hér segir frá ungri
tékkneskri alþýðustúlku sem verð-
ur barnshafandi eftir tilvonandi
eiginmann sinn. Stjúpmóðir henn-
ar er ekki sátt við ráðahaginn og
setur það skilyrði að ef tilvonandi
eiginmaðurinn snerti ekki áfengi í
eitt ár muni hún sætta sig við að
hann gangi að eiga fósturdóttur
hennar. Stúlkan verður að vonum.
skelfingu lostin, nú kemst leyndar-
mál hennar upp. Fósturmóðir
/ C >
jumir
spara sérleigubíl
adrír taka enga áhættu!
Eftir einn
-e/ aki neinn
UMFERÐAR
RAD
hennar kemur henni í felur og
Jenufa eignast barnið. Þegar eig-
inmannsefnið er boðað til Jenufu
neitar hann að sjá barnið og segist
vera trúlofaður annarri stúlku. í
örvæntingu sinni drekkir fóstur-
móðir Jenufu barninu til að bjarga
heiðri fjölskyldunnar. Jenufu segir
hún ekki satt en þegar lítill líkami
finnst í ánni kemur hið sanna í Ijós.
Aðalhlutverk: Anja Silja, Roberta
Alexander, Philip Langridge og
Mark Baker ásamt Sinfóníuhljóm-
sveit Lundúna. Stjórnandi:
Andrew Davis. Leikstjóri: Nikolaus
Lehnhoff. Sviðsetning: Tobias
Hoheisel. Ljósameistari: Wolfgang
Göbbel. 1989.
16.05 Hoover gegn Kennedy. Þriðji
hluti vandaðrar framhaldsmyndar
um rimmu Hoover við Kennedy-
bræðurna. Aðalhlutverk: Jack
Warden, Nicholas Campbell, Ro-
bert Pine, Heather Thomas og
LeLand Gantt. Leikstjóri: Michael
O'Herlihy. 1987.
17.00 Falcon Crest. Bandarískur fram-
haldsþáttur.
18.00 Popp og kók.
18.30 A la Carte. Nú ætlarSkúli Hansen
að matreiða hörpuskelfisk í beikoni
með kryddhrísgrjónum í forrétt og
kjúklingabringu með spínatpasta
og sveppasósu í aðalrétt.
19.19 19.19.
20.00 Morðgáta.
20.50 Fyndnar fjölskyldumyndir (Am-
erica's Funniest Home Videos.)
Sprenghlægilegur að vanda.
21.15 Tvídrangar (Twin Peaks). Það er
ekkert eins og það sýnist vera og
allir hafa eitthvað að fela. Missið
engan þátt úr.
22.05 í djörfum dansi (Dirty Dancing).
Myndin segir frá Baby sem er ung
stúlka. Hún kynnist danskennara
sem vantar dansfélaga. Þau fella
hugi saman og líf Baby gjörbreyt-
ist. Dansatriði myndarinnar eru frá-
bær og náin. Aðalhlutverk: Patrick
Swayze og Jennifer Grey. Leik-
stjóri: Emile Ardolino.
23.45 lllur ásetningur (Some Other
Spring). Bresk spennumynd sem
segir frá fráskilinni konu sem á sér
enga ósk heitari en að njóta sam-
vista við tólf ára dóttur sína. Þar
sem faðirinn hefur fengið umráða-
réttinn tekur hún barnið ófrjálsri
hendi og fer með það til Istanbúl.
Þar kynnist hún ungum manni sem
hún hænist að, en það á ekki af
henni að ganga því að hann reyn-
ist hættulegur hryðjuverkamaður.
Aðalhlutverk: Dinsdale Landen og
Jenny Seagrove. Stranglega
bönnuð börnum.
1.30 Morðin í Washington (Beauty
and Denise). Myndin greinir frá
tveimur ólíkum konum, annars
vegar Beauty sem er falleg fyrir-
sæta og hins vegar Denise, sem
er lögreglukona. Þegar Beauty
verður vitni að morði er Denise
fengin til að gæta hennar því að
morðinginn leggur Beauty í ein-
elti. Aðalhlutverk: David Carradine,
Julia Duffy og Dinah Manoff.
Bönnuð börnum.
3.05 Dagskrárlok.
Rás
FM 92,4/93,5
HELGARÚTVARPIÐ
6.45 Veðurfregnir. Bæn, séra Guð-
mundur Karl Ágústsson flytur.
7.00 Fréttir.
7.03 Á laugardagsmorgni. Morgun-
tónlist. Fréttir sagðar kl. 8.00, þá
lesin dagskrá og veðurfregnir
sagðar kl. 8.15. Að þeim loknum
verður haldið áfram að kynna
morgunlögin. Umsjón: Sigrún Sig-
urðardóttir.
9.00 Fréttir.
9.03 Spuni. Listasmiðja barnanna. Um-
sjón: Guðný Ragnarsdóttir og
Ánna Ingólfsdóttir. (Einnig útvarp-
að kl. 19.32 á sunnudagskvöldi.)
10.00 Fréttir.
10.10 Veðurfregnir.
10.25 Þingmál. Endurtekin frá föstu-
degi.
10.40 Fágæti.
11.00 Vikulok. Umsjón: Einar Karl Har-
aldsson.
12.00 Útvarpsdagbókin og dagskrá
laugardagsins.- •
12.20 Hádegisfréttir.
12.45 Veöurfregnir. Auglýsingar.
13.00 Rimsírams Guðmundar Andra
Thorssonar.
13.30 Sinna. Menningarmál í vikulok.
Umsjón: Þorgeir Ólafsson.
14.30 Átyllan. Staldrað við á írsku gisti-
húsi.
15.00 Slnfóníuhljómsveit íslands í 40
ár. (Endurteknir þættir frá 1990.)
16.00 Fréttir.
16.05 íslenskt mál. Guðrún Kvaran flyt-
ur. (Einnig útvarpað næsta mánu-
dag kl. 19.50.)
16.15 Veðurfregnir.
16.20 Útvarpsleikhús barnanna: „Æv-
intýrahafið'' eftir Enid Blyton.
Framhaldsleikrit í fjórum þáttum,
fjórði og lokaþáttur.
17.00 Leslampinn. Umsjón: Friðrik
Rafnsson.
17.50 Stélfjaðrir. Cleo Laine, Errol
Garner, Peggy Lee, Ella Fitzgerald,
Sonny Stitt, Sverre Indris Joner,
Mills Brothers og Bud Powell leika
og syngja.
18.35 Dánarfregnir. Auglýsingar.
18.45 Veöurfregnir. Auglýsingar.
19.00 Kvöldfréttir.
19.33 Ábætir. Ýmsir listamenn flytja lög
eftir Charles Williams, Vincent
Youmans, Charles Chaplin, Raoul
Moretti og fleiri.
20.00 Kotra. Sögur af starfsstéttum.
Umsjón: Signý Pálsdóttir. (Endur-
tekinn frá sunnudegi.)
21.00 Saumastofugleöi. Umsjón og
dansstjórn: Hermann Ragnar Stef-
ánsson.
22.00 Fréttir. Orð kvöldsins.
22.15 Veðurfregnir.
22.30 Úr söguskjóðunni. Umsjón:
Arndís Þorvaldsdóttir.
23.00 Laugardagsflétta. Svanhildur
Jakobsdóttir fær gest í létt spjall
með Ijúfum tónum, að þessu sinni
Heiðar Ástvaldsson danskennara.
(Áður útvarpað 20. október sl.)
24.00 Fréttir.
0.10 Stundarkorn í dúr og moll. Um-
sjón: Knútur R. Magnússon. (End-
urtekinn þáttur úr Tónlistarútvarpi
frá þriðjudagskvöldi kl. 21.10.)
1.00 Veöurfregnir.
1.10 Næturútvarp á báðum rásum til
morguns.
8.05 ístoppurinn. Umsjón: Óskar Páll
Sveinsson. (Endurtekinn þátturfrá
sunnudegi.)
9.03 Þetta lif. Þetta líf. Vangaveltur
Þorsteins J. Vilhjálmssonar í viku-
lokin.
12.20 Hádegisfréttir.
12.40 Helgarútgáfan. Helgarútvarp
Rásar 2 fyrir þá sem vilja vita og
vera með. Umsjón: Þorgeir Ást-
valdsson.
16.05 Söngur villiandarinnar. Þórður
Árnason leikur íslensk dægurlög
frá fyrri tíð. (Einnig útvarpað mið-
vikudag kl. 21.00.)
17.00 Með grátt í vöngum. Gestur Ein-
ar Jónasson sér um þáttinn. (Einn-
ig útvarpað í næturútvarpi aðfara-
nótt miðvikudags kl. 01.00.)
19.00 Kvöldfréttir.
19.32 Á tónleikum með Prefab Spro-
ut. Lifandi rokk. (Endurtekinn þátt-
ur frá þriðjudagskvöldi.)
20.30 Safnskífan: „Hair" frá 1979.
Kvöldtónar.
22.07 Gramm á fóninn. Umsjón: Mar-
grét Blöndal. (Einnig útvarpað kl.
02.05 aðfaranótt föstudags.)
0.10 Nóttin er ung. Umsjón: Glódís
Gunnarsdóttir. (Einnig útvarpað
aðfaranótt laugardags kl. 01.00.)
2.00 Næturútvarp á báðum rásum til
morguns.
NÆTURÚTVARPIÐ
2.00 Fréttir.
2.05 Nýjasta nýtt. Umsjón: Andrea
Jónsdóttir. (Endurtekinn þátturfrá
föstudagskvöldi.)
3.00 Næturtónar.
5.00 Fréttir af veðri, færð og flug-
samgöngum.
5.05 Tengja. Kristján Sigurjónsson
tengir saman lög úr ýmsum áttum.
(Frá Akureyri) (Endurtekið úrval
frá sunnudegi á Rás 2.)
6.00 Fréttir af veöri, færð og flug-
samgöngum. (Veðurfregnir kl.
6.45.) Kristján Sigurjónsson held-
ur áfram að tengja.
8.00 Hafþór Freyr Sigmundsson. Laug-
ardagsmorgunn að hætti hússins.
Afmæliskveðjur og óskalögin í
síma 611111. Tipparar vikunnar
spá leiki dagsins.
12.00 Fréttir.
12.10 Brot af því besta.Eiríkur Jónsson
og Jón Ársæll kynna það besta
úr sínum þáttum.
13.00 Haraldur Gíslason með laugardag-
inn í hendi sér.
15.30 íþróttaþáttur. Valtýr Björn leiðir
hlustendur í sannleikann um allt
sem er að gerast í íþróttaheiminum.
16.00 Haraldur Gíslason heldur áfram
með ryksuguna á fullu og opnar
nú símann og tekur óskalögin og
spjallar við hlustendur. 17.17SÍÖ-
degisfréttir.
18.00 Þráinn Brjánsson í kvöldmatnum.
22.00 Kristófer Helgason alveg á fullu á
næturvaktinni. Óskalögin og
kveðjurnar beint í æð og síminn
opinn, 611111.
3.00 Heimir Jónasson fylgir hlustend-
um inn í nóttina.
9.00 Arnar Albertsson spilar tónlist sem
skiptir máli, segir það sem skiptir
máli og fer ekki í grafgötur með
hlutina.
13.00Björn Sigurðsson. Það er laugar-
dagur og tiú er fylgst með enska
boltanum.
16.00 íslenski listinn. Bjarni Haukurleið-
ir hlustendur í allan sannleikann
um vinsælustu lögin.
18.00 Popp og kók.,
18.30 Ólöf Marín Úlfarsdóttir er fjall-
hress.
22.00 Jóhannes B. Skúlason og öll bestu
lögin.
3.00 Næturpopp til morguns.
FmI909
AÐALSTÖÐIN
9.00 Loksíns laugardagur. Umsjón Jó-
hannes Kristjánsson.
12.00 Hádegistónlistin á laugardegi.
Umsjón Randver Jensson.
13.00 Laugardagur í góðu lagi. Léttir
tónar á laugardegi, fróðleikur og
spjall.
15.00 Gullöldin. Umsjón Ásgeir Tómas-
son/Jón Þór Hannesson. Rykið
dustaö af gimsteinum gullaldarár-
anna.
17.00 Laugardagur í léttri sveiflu. Ljúfir
tónar á laugardegi. Flytjendur í
anda Aðalstöðvarinnar láta óspart
í sér heyra.
19.00 Ljúfir tónar á laugardegi. Umsjón
Randver Jensson.
22.00 Viltu með mér vaka? Umsjón
Halldór Backman. Hlustendurgeta
beðið um óskalögin I síma
62-60-60 - og við reynum bara
aftur ef það er á tali.
2.00 Nóttin er ung. Umsjón Randver
Jensson. Næturtónar Aðalstöðvar-
innar.
FM 104,8
12.00 FB. Létt músík til að vekja fólkið.
Græningjar við völdin.
14.00 MR. Haldið verður áfram með fjö-
rið frá deginum áður.
16.00 FG.Byrjað að undirbúa fólk fyrir
kvöldfjörið.
18.00 MH. Kvölmatartónlist.
20.00 MS. „The Party Zone". Umsjónar-
maður er Helgi Már Bjarnason úr
menntasetrinu viö Sund.
22.00 FÁ. Áframhaldandi fjör. Beggi
gerir allt vitlaust.
0.00 NæturvaktÚtrásar. FB. Þú hjálpar
til við lagavalið í gegnum síma
686365.
FM#957
9.00 Sverrir Hreiðarsson gleðileg jól
fyrir hlustendur.
12.00 Pepsi listinn— Vinsældarlisti ís-
lands.
14.00 Laugardagur fyrir alla. Blandaður
þáttur með þrautum og tónlist.
Stjórnendur Páll Sævar og Valgeir.
18.00 Jóhann Jóhannsson hitar upp fyrir
kvöldið.
22.00 Nætursprell. Ragnar Vilhjálmsson
stendur nætun/aktina.
3.00 Lúðvik Ásgeirsson.
ALFA
FM 102,9
10.00 Blönduð tónlist.
17.00 Hákon Möller.
19.00 Tónlist.
22.00 Ágúst Magnússon. Opinn sími
í 675320.
1.00 Dagskrárlok.
6.00 Elephant Boy.
6.30 The Flying Kiwi. Barnaefni.
7.00 Griniðjan. Barnaefni.
11.00 The Bionic Woman.
12.00 Beyond 2000. Nýjasta tækni og
vísindi.
13.00 Combat. Framhaldsmyndaflokk-
ur.
14.00 Fjölbragðaglima.
15.00 Cool Cube.
17.00 Chopper Squad.
18.00 Parker Lewis Can’t Lose.
18.30 The Addams Family.
19.00 Guys and Dolls.
19.30 In Living Color.
20.00 China Beach.
21.00 Designing Women.
21.30 Murphy Brown.
22.00 The Happening.
23.30 Monsters.Yfirlit.
0.00 Twist in The Tale.
0.30 Pages from Skytext.
EUROSPORT
★ 4 ★
7.30 Fun Factory. Barnaefni.
9.00 Surfing.
9.30 Mobil 1 Motor Sport News.
10.00 Saturday Alive;Skíði, tennis og
siglingar.
14.00 Snóker. Bein útsending frá Birm-
ingham.
18.00 Skíðaíþróttir.
19.00 Snóker. Bein útsending frá Birm-
ingham.
22.00 Fjölbragðaglima.
23.30 Hnefaleikar.
0.30 Skíöi. Heimsbikarmótið.
01.30 Heimsbikarmótiö á skíðum.
SCREENSPORT
8.00 Snóker.
10.00 US College Football.
12.00 Trukkakeppni.
14.00 NBA Körfuknattleikur.
16.00 Kraftíþróttir.
17.00 Sunkist Invitiational Athletics.
18.00 íþróttafréttir.
18.00 Íshokkí. Bein útsending og geta
aðrir liðir breyst.
21.00 Speedway. Svíþjóð og Ástralía.
22.00 Hestaíþróttir.
22.30 Kick hnefaleikar.
0.00 Sport En France.
0.30 NBA körfubolti.
2.30 Knattspyrna á Spáni.
3.00 US College Football.
5.00 Íshokkí.
Stöð 2 kl. 22.05:
í djörfum
dansi
í djörfum dansi
meö þeim Patrick
Swayze og Jennifer
Gray var ein vinsæl-
asta mynd ársins
1987. Fjallar kvik-
myndin um unga
stúlku sem fer meö
foreldrum sínum til
sumardvalar á
viröulegu hóteli.
Unga stúlkan er
ákaflega vernduö af
foreldrunum og veit
harla lítið um lífið og
tilveruna. Hún
kynnist nokkrum
krökkum sem vinna
viö hótelið og þar
með heimi sem henni
er algerlega fram-
andi. Ást og kynlíf
kemur til skjalanna
og þegar sumarleyfið
er á enda hefur hún öðlast mikla lífsreynslu. Helsti vinur
hennar er dansari sem kennir henni sitt af hverju í danslist-
inni.
Á sínum tíma hlaut myndin óskarsverðlaunin fyrir ein-
stakt lag en það var vinsæla lagið The Time of My Life.
Myndin fær tvær og hálfa stjörnu í kvikmyndahandbók
Maltins og er talin góð skemmtun.
Hjartaknúsarinn Patrick Swayze
fer með aðalhlutverk í mynd
kvöldsins á Stöð 2.
Sigrún Eðvaldsdóttirfiðluleikari segirfrá lifi sinu og starfi.
Sjónvarp kl. 21.30:
Fólkió í landinu
- Sigrún Eðvaldsdóttir
Glæsilegur árangur Sigr-
únar Eðvaldsdóttur fiðlu-
leikara í Síbehusarkeppn-
inni í desember sl. vakti
mikla athygli hérlendis og
erlendis. Sigrún er 24 ára
að aldri og hefur undanfarin
ár dvalið í Bandaríkjunum
en þangað fór hún í fram-
haldsnám að loknu prófi
hér. Sigrún hefur sinnt
starfi jafnframt námi þvi
hún hefur m.a. leikið með
Miami-kvartettinum. Hún
býr nú í Indianapolis. Sonja
B. Jónsdóttir hitti Sigrúnu
að máli þegar hún var hér í
jólaleyfi og spjölluðu þær
um ýmislegt.
-JJ
Rás 1 kl. 23.00:
Laugardagsflétta
Heiðar Astvaldsson danskennari
verður gestur Svanhildar Jakobs-
dóttur i Laugardagsfléttu.
A laugardögum,
frá kl. 23.00 til mið-
nættis, er Laugar-
dagsflétta Svanhild-
ar Jakobsdóttur á
dagskrá rásar 1 þar
sem hún fléttar sam-
an tali og tónum. í
þættinum er leikin
létt tónlist af ýmsu
tagi, auk þess sem
rabbað er við góða
gesti sem rifja upp
vinsæl lög frá
æskuárum sínum og
atburði sem tengjast
þeim.
Gestur Svanhildar
er Heiðar Ástvalds-
son danskennari og
ekki að vita nema
hlustendur geti tekiö
einn sndning við við-
tækið, líkt og í gamla
daga.