Dagblaðið Vísir - DV - 19.01.1991, Síða 47

Dagblaðið Vísir - DV - 19.01.1991, Síða 47
LAUGARDAGUR 19. JANÚAR 1991. íOLJi v .. 171 A i l I A i . > L i I A L; ».i 55 ^ Reykjavík fyrr og nú Ljósmynd: Pétur Brynjólfsson DV-mynd: Brynjar Gauti Skólapiltar á Hólavöllum Þeir sem fyrst hlóöu Skólavörð- una voru skólapiltar í Hólavalla- skóla árið 1793 en skólapiltar höfðu hlaðið vörðu og haldið henni árlega við norður af Skálholti áður en skólahaldið var flutt til Reykjavík- ur. Endurminningar Knud Zimsens borgarstjóra, Úr bæ í borg, hefjast reyndar á frásögn af þessari sögu- legu vörðuhleðslu á Skólavörðu- holtinu. Þar nefnir Zimsen ýmsa þá skólapilta sem líklega hafa lagt hönd á verkið og getur i leiðinni nokkurra afkomenda þeirra sem löngu síðar urðu þekktir í bæjarlíf- inu. Hann segir m.a.: „Ef við virð- um fyrir okkur skólapiltahópinn frá Hólavöllum, sem með aðgerð- um sínum vorið 1793 komu því til leiðar, að aðalsjónarhæð höfuð- staðarins hefur síðan heitið Skóla- vörðuholt og ein af elztu götum hans Skólavörðustígur, þá munum við komast að raun um, að á meðal þeirra eru ýmsir forfeður kunnra núlifandi Reykvíkinga. Þar er Eyjólfur Kolbeinsson lang- afi Thoru Friðriksson og Theodóru Thoroddsen. Guttormur Pálsson langafi Jóhannesar Gunnarssonar biskups í Landakoti. Hálfdán Odds- son langafi Ágústs H. Bjarnasonar prófessors. Grímur Pálsson langafi Ásgeirs Ásgeirssonar bankastjóra og Guttormur Þorsteinsson langa- langafi Jóns E. Vestdals og Jóhann- esar Björnssonar læknis.“ Árið 1805 var skólahaldið flutt til Bessastaða og naut varðan þá ekki lengur hins árlega viðhalds nem- enda. Varðan hrundi því á nokkr- um árum. Kriegers Minde Annar kaflinn í sögu Skólavörö- unnar hefst árið 1834 en þá rís ný varða á sama stað, ferhyrnt og mjókkaði eftir því sem ofar dró og sýnu stærri en sú fyrri. Utan á vörðunni voru tvö þrep og bekkir á þrepunum er vísuðu í vesturátt. I Annálum Reykjavíkur getur Jón Helgason biskup þess að Krie- ger stiftamtmaður hafl á eigin kostnað látið hlaða vörðuna og ryðja stig upp að henni sem síðar varö Skólavörðustígur. Var varöan þá í fyrstu nefnd Kriegers Minde en fljótlega festist þó aftur við hana gamla Skólavörðu-heitið sem hún hélt allar götur síðan. Þegar Árni Óla skrifaði sögu Skólavörðunnar árið 1946 var hann heldur vantrúaður á þetta örlæti stiftamtmannsins og taldi hitt rétt- ara sem hann segir að dr. Jón Þor- kelsson hafi haft eftir Geir Zoega kaupmanni, að kaupmenn í bæn- um hafi látið hlaða vörðuna, Krie- ger til heiðurs. Þessi varða, sem var bundin með trégrind að utan, þótti hin áhtleg- asta og samþykkti bæjarstjórn árið 1835 að sjá um viðhald hennar. Ekki tókst þó betur til með við- haldiö en svo aö trégrindin fúnaði og dag einn árið 1858 hrundi varðan í blíðskaparveðri. Bæjarfógeti tekur til sinna ráða Það var svo Ámi Thorsteinsson bæjarfógeti sem hóf þriðja kaflann í sögu Skólavörðunnar er hann árið 1868 fór þess á leit við bæj- arbúa að þeir endurreistu vörðuna og í þetta skipti miklu stærri og vandaðri en áöur. Árni vildi láta reisa alvöru útsýnisturn hlaðinn úr tilhöggnu grjóti. Bæjarfógetinn fékk heldur dræmar undirtektir hjá bæjarbú- um og bæjarstjórn svo hann tók sjálfur til óspilltra málanna og fékk Sverri Runólfsson steinsmið til að hlaða vörðuna en Sigurður Guð- mundsson málari mun hafa teikn- að hana. í vetrarbyrjun 1868 var útsýnis- turninn tilbúinn. Varðan var nú níu álnir á hvern kant og fimmtán álnir á hæð. í Þjóðólfi frá þessum- tíma segir m.a. í lýsingu á vörð- unni: „Loft er ofan til í miðri vörð- unni og bera gluggarnir birtu á milliloft þetta og er þangað gengið upp eftir hliðarstigum og eftir öðr- um stiga upp á yfirpallinn, er nem- ur við efstu veggbrún og í upp- gangsop á miðju lofti og er hetta yfir er upp undan má ganga og upp á loftriðið eða „sjónarpallinn" - því þaðan er næsta víðsýnt yfir allt - Umsjón: Kjartan Gunnar Kjartansson og er hún til varnar því að niður í húsið rigni eður framan í þá, er upp á pallinn ganga, en umhverfis hann allan efst á veggjunum og utan á ytri brún þeirra eru traust tré- verks-handrið til vamar þvi að menn geti hrotið ofan fyrir.“ Árni Thorsteinsson afhenti bæj- arstjórn Skólavörðuna og gat þess í leiðinni að hann vildi gjarnan fá meginhluta kostnaðarins endur- greiddan. Bæjarstjórn tók nú vel í málið en ekki er fullljóst hve mikiö Árni fékk endurgreitt af kostnaðin- um. Hins vegar lét bæjarstjórnin nú leggja nýjan og betri veg upp Skólavörðuholtið og suður í Öskju- hlíð. Skólavarðan þótti nú hin mesta bæjarprýði. Hún varð vinsæll út- sýnisstaður meðal bæjarbúa og reyndar það helsta sem þeir gátu státað af við ferðamenn þegar skemmtiferðaskipum tók að fjölga eftir aldamótin. Þá þótti hún ómiss- andi leiðarvísir fyrir ferðamenn á leið til Reykjavíkur og fiskimið fyr- ir sjómenn í Buktinni. En eftir því sem byggðin hækkaði og færðist ofar í Skólavörðuholtið fór sífellt minna fyrir reisn Skóla- vörðunnar. Auðvitað fór svo að lokum að ört vaxandi byggðin kaf- færði þetta fyrrverandi höfuðdjásn bæjarins sem áður hafði staðið á hæð fyrir utan bæinn og borið höf- uð og herðar yfir aðrar byggingar hans. Á þúsund ára afmæli Alþingis gáfu Bandaríkjamenn íslendingum styttu af Leifi heppna og var henni valinn staður rétt fyrir sunnan Skólavörðuna sem þá hafði verið í niðurníðslu um árabil. Styttan var afhjúpuð árið 1932 en árið áður þótti bæjarstjórn og sennilega flest- um öðrum tilhlýðilegt að binda endi á langa sögu Skólavörðunnar sem þá hafði augljóslega lokið sínu glæsilega hlutverki. Þeir Reykvíkingar sem muna Skólavörðuna eru komnir af létt- asta skeiði enda eru nú sextíu ár síöan hún var rifin. Það eru hins vegar tæp tvö hundruð ár síðan fyrsta Skólavarðan á samnefndu holti var hiaðinn. Þá hét Skóla- vörðuholtið Arnarhólsholt en þar höfðu staðið beitarhús frá bænum Arnarhól. Vedur •Á morgun verður suðaustlæg eða breytileg átt og dálítil snjókoma eða slydda sunnanlands en úrkomu- lítið og nokkuð bjart veður norðanlands. Hiti verður nálægt frostmarki. Akureyri snjóél 1 Egilsstaðir snjókoma 1 Hjarðarnes rigning 7 Galtarviti snjóél 1 Keflavíkurflugvöllur skýjað 0 Kirkjubæjarklaustur slydda 4 Raufarhöfn þokumóöa 3 Reykjavik snjókoma -1 Vestmannaeyjar snjókoma -1 Bergen skýjað 4 Helsinki heiðskírt 0 Kaupmannahöfn þokumóða 3 Osló þokumóða .-1 Stokkhólmur þokumóða -1 Þórshöfn alskýjað 7 Amsterdam mistur 3 Barcelona þokumóða 10 Feneyjar þokumóða 7 Frankfurt heiðskírt 0 Glasgow skýjað 7 Hamborg heiðskírt 1 London alskýjað 8 Lúxemborg hrimþoka -3 Madrid þokumóða 9 Malaga mistur 15 Mallorca þokumóða 12 Montreal snjóél -3 Nuuk léttskýjað -17 Paris heiðskirt 6 Róm heiðskírt 8 Valencia mistur 13 Vin mistur -1 Gengið Gengisskráning nr. 12. -18. janúar 1991 kl. 9.15 Einingkl. 12.00 Kaup Sala Tollgengi Dollar 55.280 55,440 55,880 Pund 106,621 106,930 106,004 Kan. dollar 47.777 47.915 48,104 Dönsk kr. 9,4909 9,5184 9,5236 Norsk kr. 9,3536 9,3807 9,3758 Sænsk kr. 9,7945 9,8228 9,7992 Fi. mark 15,1681 15,2120 15,2282 Fra.franki 10.7538 10,7849 10,8132 Belg. franki 1,7745 1,7796 1,7791 Sviss. franki 43,4591 43,5849 43,0757 Holl. gyllini 32.4137 32,5075 32,5926 Þýskt mark 36,5367 36.6424 36,7753 it. lira 0,04860 0,04874 0,04874 Aust. sch. 5,1924 5,2075 5,2266 Port. escudo 0,4086 0,4098 0,4122 Spá. peseti 0.5811 0,5828 0,5750 Jap. yen 0,41408 0,41528 0,41149 írskt pund 97,533 97,816 97,748 SDR 78,5999 78,8274 78.8774 ^CU 75,3439 75,5619 75.3821 Símsvari vegna gengisskráningar 623270. Fiskmarkaðimir Fiskmarkaður Hafnarfjarðar 18. janúar seldust alls 31,038 tonn. Magn í Verð í krónum tonnum Meðal Lægsta Hæsta Blandað 0,030 30,00 30,00 30,00 Keila 0,030 27,00 27,00 27,00 Smáýsa.ósl. 0,053 30,00 30,00 30,00 Koli 0,054 59,00 59,00 59,00 Rauðm/grál. 0,009 86,00 86,00 86,00 Smárþorskur 0,534 74,21 55,00 78,00 Langa 0,041 68,00 68,00 68,00 Smáþorskur, ósl 0.258 55,00 55,00 55,00 Steinbitur 0,174 65,43 60,00 68,00 Hrogn 0,042 252,38 100,00 300,00 Ýsa.ósl. 2,666 87,18 79,00 104,00 Ufsi, ósl. 0,050 33,00 33.00 33,00 Þorskur, ósl. 9,850 86,43 70,00 103,00 Steinbítur, ósl. 0,211 60,00 60,00 60,00 Langa, ósl. 0,210 58,00 58,00 58,00 Ýsa 3,024 106,07 1Q0.00 110,00 Þorskur 11,668 104,24 97,00 110,00 Lúða 0,308 308,74 290,00 310,00 Keila, ósl. 1,821 27,00 27,00 27,00 Faxamarkaður 18. janúar seldust alls 123,612 tonn. Blandað 0,122 49,00 49,00 49,00 Gellur 0,057 322,89 320,00 330,00 Hrogn 0,362 347,00 325,00 355,00 Karfi 23,727 42,59 30,00 43,00 Keila 1,645 46,26 37,00 46,00 Kinnar 0,099 124,34 115,00 140,00 Langa 7,664 66,70 49,00 69,00 Lifur 0,294 12,98 8,00 20.00 Lúða 0,487 320,15 280,00 400,00 Skata 0,157 125,00 125,00 125,00 Skarkoli 0.713 58,49 54,00 62,00 Sólkoli 0,028 75,00 75,00 75,00 Steinbítur 0,598 67,29 67,00 71,00 Þorskur, sl. 62,319 102,30 96,00 114,00 Þorskur, ósl. 13,290 88,56 69,00 99,00 Ufsi 1,824 43,53 42,00 53,00 Undirmál. 2,169 75,27 20,00 79,00 Ýsa, sl. 5,873 111,84 97,00 124,00 Ýsa, ósl. 2,183 83,65 65,00 99,00 Fiskmarkaður Suðurnesja 18. janúar seldust alls 66,700 tonn. Þorskur 37,370 97,87 85,00 125,00 Ýsa 0,174 90,00 90,00 90,00 Þorskur 4,243 99,63 92,00 119,00 Ýsa 6,759 92,16 74,00 99,00 Lýsa 0,088 25,00 25,00 25,00 Undirmál. 0,100 70,00 70,00 70,00 Steinbítur 0,351 46,69 20,00 64,00 Skata 0.300 85,00 85,00 85,00 Skötuselur 0,015 160,00 160,00 160,00 Blálanga 0,132 72,00 72,00 72,00 Ufsi 9,857 45,06 15,00 46,00 Lúða 0,225 410,00 400,00 415,00 Langa 2,622 72,54 59,00 76,00 Keila 1,710 31,97 5,00 40,00 Hlýri 0,250 56,40 40,00 69,00 Blandað 0,422 39,02 35,00 40,00 Hlýri/steinb. 0,173 59,00 59,00 59,00 Karfi 1,492 45,01 40,00 50,00 MARGFELDI 145 PÖNTUNARSÍMI • 653900

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.