Dagblaðið Vísir - DV - 02.02.1991, Síða 5
LAUGARDAGUR 2. FEBRÚAR 1991.
Fréttir
nýja bensínið
Bíleigendur tóku vel við sér í gær
þegar 95 oktana bensínið kom á
markaöinn og var nokkur eftirspurn
eftir því. Tilkoma þessa bensíns var
ekki síst merkiieg vegna þess að olíu-
félögin hófu verðstríð - í fyrsta skipt-
ið.
Hjá Olís var opnaö klukkan 8 í
gærmorgun á lægsta verði með 95
oktana lítrann á 57,90. Skeljungur
opnaði á 58 krónum og Essó á 58,10
krónum.
Essó svaraði svo fyrir sig klukku-
stund síðar og lækkaði verðið um 30
aura og fór með það niður í 57,80
krónur á lítrann. Stóð það sem
lægsta verð það sem eftir lifði dags-
ins.
í frétt DV í gær um- verðstríðið
varð sú prentvilla að Essó heföi
lækkað sig niður í 57 krónur sléttar.
-JGH
Reykjanesbraut:
Tvítugur ökumaður var stöðvaður
á Reykjanesbraut í fyrradag eftir að
hafa ekið á ofsahraða á móts við
Vogastapa. Lögreglan mældi bifreiö
hans á 148 kílómetra hraða. Ökuþór-
inn var sviptur ökuréttindum tii
bráðabirgða þegar komið var meö
hann á lögreglustöðina.
Að sögn lögreglu er óvenjulegt að
svo mikill hraði mælist hjá bifreiðum
að vetrarlagi. -ÓTT
Innbrot á Hellissandi:
Fótspor í
gluggakarmi
Rúður voru brotnar í grunnskólan-
um á Hellissandi í fyrrinótt. Ein-
hverjir höfðu kastað steinum í þrjár
rúður með opnanlegum fögum. Fót-
spor fundust í gluggakarmi á einum
glugganum. Greinilegt var af um-
merkjum að farið hafði verið inn í
bygginguna. Engu var þó stolið.
Þetta er í annað skiptið á skömm-
um tíma sem skemmdarverk eru
unnin á skólanum. Um síðustu helgi
var hnefastórum steini kastað í rúðu
í anddyri skólans. Lögreglan hefur
málið í rannsókn og er talið að ungt
fólk hafi veriö aö verki. -ÓTT
Norðurlands-
mót í dorgveiði
Gylfi Kristjánsson, DV, Akureyri:
Ólafsijarðarvatn verður vettvang-
ur Norðurlandsmótsins í dorgveiði á
sunnudag, en kl. 11 þá um morgun-
inn byrja menn aö dýfa beitum sín-
um 'í vatnið niður um vakirnar.
Vitað er um talsverða þátttöku i
mótinu og mega keppendur eiga von
á hinum ýmsu tegundum fiska á
öngla sína. í vatninu er silungur og
lax og einnig aðrar „óæðri“ tegundir
fiska eins og þorskur, koli og fleiri.
Sem fyrr sagði hefst dorgiö kl. 11
en keppendur eiga að mæta klukku-
stundu fyrr á hótelið. Dorgveiðifélag
íslands, Dorgveiðifélagið í Ólafsfirði
óg Hótel Ólafsfjarðar standa að mót-
inu sem er liður í keppninni um ís-
landsmeistaratitilinn.
5
OSSUR SKARPHEÐINSSON
Á HIKIÁUST ERINDI í 3. SÆTIÐ
Á LISTA ALÞÝÐUFLOKKSINS.
Ossur hefur nýjar hugmyndir um það hvernig
bæta má lífskjör íslendinga. Hann er áræðinn og
kjarkmikill - í senn talsmaður markaðshyggju og
mannúðar.
Kjósum hanri hiklaust!
OPIÐ PROFKJOR ALÞYÐUFLOKKSINS I DAG OG A MORGUN
VERKSMIÐJUÚTSALA
ÁLAFOSS
Mosfellsbæ
Band, teppi, peysur, Fínull, skíðaúlpur og anorakar.
Opið daglega frá kl. 10.00 til 18.00, einnig sunnudaga.
Sendum í póstkröfu, sími 91-666303.