Dagblaðið Vísir - DV - 02.02.1991, Síða 7
Fréttir
Hitaveita á köldum klaka
- enn er kvartað yíir heitavatnsleysi á höfuðborgarsvæðinu
HAFNARFJORÐUR:
8.-9. des.: kvartanir streyma
inn vegna skorts á heitu
vatni
A kortinu má sjá
hversu mikil bilanaA|
tíðnin er.
Enn berast Hitaveitu Reykjavíkur
daglega rúmlega 50 kvartanir vegna
heitavatnsleysis á höfuðborgarsvæð-
inu. Flestar kvartanirnar eða þriðj-
ungur þeirra er frá íbúum í Þing-
holtum og vesturbæ.
Flestar urðu kvartanirnar á milli
400 og 500 yfir helgina 8. til 9. desemb-
er en að meðaltali hafa Hitaveitunni
borist á milli 20 og 40 kvartanir á dag
undanfarin ár vegna bilana í keríinu.
Vandræðin byijuðu í haust þegar
kólna fór í veðri. Þá kom í ljós að
óvenjumikið var um stíflur í hita-
veitukerfinu á höfuðborgarsvæðinu.
Kvartanirnar voru svo margar að
starfsmenn bilanaþjónustu Hita-
veitu Reykjavíkur höfðu varla undan
að sinna þeim.
í október sagði Hreinn Frímanns-
son, yfirverkfræðingur hjá Hitaveit-
unni, í samtali við DV þegar hann
var spurður hvað ylli öllum þessum
kvörtunum fólks: „Yfirleitt er þetta
að meirihluta til ryð og eitthvað kem-
ur úr jarðhitasvæðum. Þetta er mun
verra í ár en vanalega... Okkur sýn-
ist að þetta fari minnkandi.“ En
ástandið skánaði ekki heldur þvert á
móti.
Fjögur alvarleg
skakkaföll
Á einungis tveimur mánuðum hef-
ur Hitaveitan orðið fyrir fjórum al-
varlegum skakkafóllum. Það fyrsta
kom upp snemma í desember þegar
þúsundir íþúa í Reykjavík, Hafnar-
firði, Kópavogi og Garðabæ urðu
heitavatnslausar svo að dögum
skiptií kjölfar útfellingar í heita-
vatnskerfinu eftir að Nesjavalla-
virkjun var tekin í notkun. Útfelling-
in orsakaði meðal annars þrýsting-
stap í Hafnarfjarðaræðinni auk þess
sem hún settist í rör og pípur og stífl-
aði inntök í hús.
Það var varla að íbúum þessara
bæjarfélaga væri orðið sæmilega
hlýtt þegar næsta áfall reið yfir þvi
í byrjun janúar kom gat á Reykja-
hlíðaræðina sem liggur í gegnum
Höfðabakkabrúna. Við það urðu 40
þúsund íbúar á höfuðborgarsvæðinu
heitavatnslausir í marga klukku-
tíma.
Þann 22. janúar sprungu svo heita-
vatnsleiðslur í nokkrum íbúðum í
austurbæ Kópavogs, svo og leiðslur
utanhúss, er þrýstingur á heita vatn-
inu jókst skyndilega og hlutust af
miklar skemmdir.
Þann 27. janúar varð svo fjórða
slysið er aðfærsluæð nálægt Stekkj-
arbakka fór í sundur með þeim af-
leiðingum að íbúar í Breiðholti 3
urðu heitavatnslausir í rúmlega hálf-
an sólarhring.
Engar skýringar
Sérfræðingar hjá Hitaveitunni
kunna engar skýringar á þessum
tíðu bilunum. „Það má kannski segja
að tilviljanir ráði því að það koma
upp svo margar bilanir á stuttum
tíma í hitaveitukerfinu. Það er Ijóst
að þær eru ekki nema að hluta til
afleiðingar útfellingarinnar sem
varð vart í kjölfar þess að Nesjavalla-
virkjun var tekin í gagnið. í meðalári
verða á milli 400 og 500 bilanir í kerf-
inu en ég veit ekki til að það hafi
orðiö jafnmargar stórar bilanir á svo
stuttum tíma sem raun ber vitni,“
segir Hreiníí Frímannsson, yfirverk-
fræðingur Hitaveitu Reykjavíkur.
„Við höfum að mestu ráðið bót á
þeirri útfellingu sem átti sér stað
þegar Nesjavallavatninu var blandað
saman við upphitað vatn Hitaveit-
unnar svo nú verður vart sáralítillar
útfellingar í kerfinu. Þessa dagana
er unnið að stöðugum prófunum þar
sem prófaðar eru mismunandi
blöndur af Nesjavallavatni og hita-
veituvatni til að finna út hvaða
blanda er best.
Það er ómögulegt að segja til um
hvað þessi tíðu slys hafa kostaö Hita-
veituna þvi það hefur ekki verið tek-
ið saman ennþá. Við vitum þó að á
síðasta ári eyddi Hitaveitan rúmum
100 milljónum króna í endurbætur
og til viðhalds á kerfinu," segir
Hreinn.
-J.Mar
'n
Kristín Einarsdóttir:
Vonbrigði
hvað íslend-
ingareru
herskáir
„Ég verð að játa að það eru mér
viss vonbrigði hvað íslendingar
eru herskáir í afstöðu sinni til
styrjaldarátakanna fyrir botni
Persaflóa. Ástæðan er efalaust
einhliða fréttaflutningur af þess-
um málum. Sjálf er ég þeirrar
skoðunar að það sé ekki réttlæt-
anlegt að fara í stríð til að leysa
deilumál. Engu að síður fordæmi
ég innrás íraka í Kúvæt en tel
einfaldlega að það sé engin lausn
fyrir bandamenn að beita vopna-
valdi,“ segir Kristín Einarsdóttir,
þingmaður Kvennalistans.
Kristín segir að sér komi ekki
á óvart hversu margir eru fylgj-
andi því að ísland taki upp stjórn-
málatengsl við Litháen með
sendiherraskiptum. Hún segir
það vera samdóma álit allra aö
styðja sem mest við bak Litháa í
sjálfstæðisbaráttu þeirra. Rök
gegn því hafi nánast ekki heyrst.
„Umrædd spurning er þó vill-
andi að því leyti að sendiherra-
skipti eru óframkvæmanleg þar
sem Litháen hefur ekki verið við-
urkennt sem sjálfstætt ríki. Það
er því hætt við að hún hafi kallað
fram nei-svör hjá því fólki sem
veit af þessu en styður þó sjálf-
stæðisbaráttu Litháa. íslendingar
eru þátttakendur í samfélagi
þjóðanna og því getum við ekki
gengið þvert á viðteknar reglur í
þessu sambandi. En ég er sann-
færð um að nánast allir íslend-
ingar vilji gera eins mikið og
hægt er til að rétta Litháum
hjálparhönd í baráttunni."
-kaa
Jón Baldvln Hannibalsson utanríkisráðherra:
Ánægður með undirtektirnar
- segir stutt í formlegt stjórnmálasamband við Litháen
„Mér þykir vænt um hversu undir-
tektir íslensku þjóðarinnar til sjálf-
stæðisbaráttu Litháa eru góðar. Það
er ánægjulegt að svona góður meiri-
hluti hennar skuli með þessum hætti
lýsa yfir samstöðu með baráttu
Éystrasaltsþjóða," segir Jón Baldvin
Hannibalsson utanríkisráðherra um
niðurstöðu skoðanakönnunar DV.
Jón Baldvin segir að undirbún-
ingnum að formlegu stjórnmálasam-
bandi landanna miði vel áfram. Hann
segir að í viðræðum sínum við for-
seta Litháens fyrir skömmu hafi þeir
orðið ásáttir um að bíða með hin
formlegu tengsl þar til náðst hefði
endanlegur milliríkjasamningur
milh Rússlands og Litháens, undir-
skrifaður af forsetum landanna og
staðfestur af þjóðþingum þeirra.
„Ég átti samtal við utanríkisráö-
herra Litháens í gærmorgun og hann
sagði að formenn samninganefnd-
anna væru búnir að ganga frá samn-
ingstextanum milli Rússa og Litháa
og að nú væri einungis eftir að skrifa
undir hann og staðfesta. Ég á því von
á að það styttist í að við ljúkum
smiðshögginu við okkar samkomu-
lag.
Hvað varðar afstöðu fólks til
stríðsátakanna fyrir botni Persaflóa
þá held ég að maður verði að hrósa
DV fyrir að hin herskáa ritstjórnar-
stefna blaðsins skuli endurspeglast
með þessum hætti í viðhorfum lands-
manna," sagði Jón Baldvin að lok-
um.
-kaa