Dagblaðið Vísir - DV - 02.02.1991, Blaðsíða 14

Dagblaðið Vísir - DV - 02.02.1991, Blaðsíða 14
14 LAUGARDAGUR 2. FEBRÚAR 1991. Útgáfufélag: FRJÁLS FJOLMIÐLUN HF. Stjórnarformaður og útgáfustjóri: SVEINN R. EYJÓLFSSON Framkvæmdastjóri og útgáfustjóri: HÖRÐUR EINARSSON Ritstjórar: JÓNAS KRISTJANSSON og ELLERT B. SCHRAM Aðstoðarritstjórar: HAUKUR HELGASON og ELlAS SNÆLAND JÖNSSON Fréttastjóri: JONAS HARALDSSON Auglýsingastjórar: PÁLL STEFÁNSSON og INGÖLFUR P. STEINSSON Ritstjórn, skrifstofur, auglýsingar, smáauglýsingar, blaðaafgreiðsla, áskrift, ÞVERHOLTI 11,105 RVÍK.SlMI (91 )27022 t FAX: (91 )27079 Setning, umbrot, mynda- og plötugerð: PRENTSMIÐJA FRJÁLSRAR FJÖLMIÐLUNAR HF„ ÞVERHOLTI 11 Prentun: ÁRVAKUR HF. - Áskriftarverð á mánuði 1100 kr. Verð í lausasölu virka daga 105 kr. - Helgarblað 130 kr. Mannréttindaeinkunn Bandaríkjastjórn hefur sent Þýzkalandsstjórn lista yfir rúmlega 100 þýzk fyrirtæki, sem hafa reynt að rjúfa bann Sameinuðu þjóðanna á viðskiptum við írak. Svip- aðir listar hafa borizt ýmsum öðrum ríkisstjórnum og sýna vel, hve erfitt er að hemja öfgamenn í kaupsýslu. Saddam Hussein varð ekki hjálparlaust að skrímsl- inu, sem hann er nú. Sovétríkin byggðu hann upp, þeg- ar Bandaríkin voru í bandalagi við keisarann í Persíu. Eftir valdatöku erkiklerka í Persíu varð Saddam Hus- sein að gæludýri Bandaríkjanna og Vestur-Evrópu. Töluverður hluti af áþján mannkyns stafar annars vegar af aðgerðum vopnasala á borð við Bofors í Sví- þjóð og aðgerðum misheppnaðra utanríkisfræðinga á borð við Kissinger í Bandaríkjunum. Slíkir aðilar hafa víðs vegar vakið upp drauga á borð við Saddam Hussein. Kalda stríðið milli austurs og vesturs hefur auðveldað Hfharðstjóra. Þeir hafa hallað sér að öðru heimsveldinu eða hótað að styðja sig við hitt. Þeir hafa teymt utanrík- isfræðinga og ríkisstjórnir heimsveldanna á asnaeyrun- um og komið sér upp ógrynni vopna í skjóli þeirra. Sumir harðstjórar eru ekki mikið skárri en Saddam Hussein. Dæmi um slíkan er Suharto Indónesíuforseti, sem er einn mesti íjöldamorðingi síðustu áratuga. Hann hefur blómstrað í skjóli Bandaríkjanna og nýtur meira að segja stjórnmálasambands við fjarlægt ísland. Suharto hefur stundað hliðstæða landvinninga og Saddam Hussein með öllu meiri m^nndrápum og heldur minni pyndingum. Að auki er hann sjálfur einn mesti stórþjófur síðustu áratuga, næst á eftir Marcosi Filipps- eyjaforseta, sem var amerískur skjólstæðingur. Nú hafa Sovétríkin horfið af velli heimsmálanna. Sovétstjórnin er önnum kafm við vonlausa viðleitni til að halda saman sjálfu ríkjasambandinu innan landa- mæranna og hefur enga orku aflögu til að etja kappi við Bandaríkjastjórn á alþjóðlegum vettvangi. Um þessar mundir er því aðeins eitt heimsveldi. Og á sama tíma sker einn harðstjórinn sig úr í landvinning- um og hroðalegu stjórnarfari. Þess vegna gat heimsveld- ið, sem eftir var, náð saman alþjóðlegu samkomulagi um að senda á vettvang fjölþjóðaher bandamanna. Þetta tækifæri þurfa stuðningsmenn stofnskrár og mannréttindasáttmála Sameinuðu þjóðanna að nota til að krefjast breyttra vinnubragða í samskiptum vesturs við ríki íslams og þriðja heimsins. Hér eftir verður að gera kröfur til þeirra, sem eru í bandalagi við vestrið. Hugmyndafræði stofnskrár og mannréttindasáttmála Sameinuðu þjóðanna hefur skyndilega sigrað í Austur- Evrópu. Hún hefur einnig skotið rótum utan hins vest- ræna menningarheims, svo sem í Japan, Indlandi og Botswana. Hún er ekkert vestrænt einkamál. Talsmenn harðstjóra íslams og þriðja heimsins hafa hnnulaust reynt að sannfæra Vesturlandabúa um, að vestrænt lýðræði henti ekki í þeirra menningarheimi. Harðstjórafræðingur Morgunblaðsins skrifaði árið 1973, að „hæfilegt einræði“ hentaði Grikkjum bezt! Staðreyndin er hins vegar sú, að lýðræði hentar al- menningi um allan heim, þar á meðal 1 svörtu Afríku og í löndum íslama. í stefnu utanríkisviðskipta og her- gagnaviðskipta við þriðja heiminn og heim íslams verða Vesturlönd nú að fara að gera mannréttindakröfur. Bezt væri að fela Amnesty og skyldum samtökum að mæla mannréttindi ríkja eftir einkunnaskala og haga samskiptum við ríkin með hliðsjón af einkunninni. Jónas Kristjánsson Fyrsta mannfallið í eyðimerkurorustu ásamt vopnahlésboði Landvarnaráöherra Frakklands, Jean-Pierre Chevenement, hefur sagt af sér vegna ágreinings viö stefnu Francois Mitterrands for- seta um fulla þátttöku fransks liðs í framkvæmd bandarísku hemað- aráætlunarinnar um alhhða og óheftan hernað gegn írak. Cheve- nement var frá upphafl tregur til að senda franskar sveitir á vett- vang, og úr því sem komið er vildi hann takmarka aðgeröir þeirra við árásir á írasksa hernámsliðið í Kúvæt. í afsagnarbréfinu leggur hann áherslu á að bandaríska yflr- herstjómin fari í aðgerðum sínum langt útfyrir heimildir í samþykkt- um Öryggisráðsins um að endur- heimta Kúvæt undan írökskum yflrráðum. í þessu máli er það Mitterrand, yfirboðari franska heraflans, sem ræður. Hann reyndi í lengstu lög að komast hjá ófriði og leitaði lausnar fram á síðustu stund með sendiboðum til Saddams Husseins, undir það síðasta í mikilli óþökk Bandaríkjastjómar. Úr því sem komið er vill Mitterrand svo að Frakkar dragi hvergi af sér í hem- aðinum með þeim herafla sem þeir leggja til, því þannig sé aðstaða Frakklands best tryggð til að hafa áhrif á gang stríðsins af hálfu fjöl- þjóðahersins og skipan mála að ófriði afstöðnum. Lokauppástungur Mitterrands fyrir friðslit fólu í sér að Saddam héti að láta her sinn yfirgefa Kúvæt en að því loknu opnaðist leið til að gera út um deilur í löndunum fyrir Miðjarðarhafsbotni og við Persaf- lóa við samningaborð, þar á meðal rúmra fjögurra áratuga ófriðar- ástand milh ísraels og arabaþjóða annarra en Egypta. Hugmynd, sem gengur í sömu átt, var meginefni fyrstu sameiginlegrar yfirlýsingar í manna minnum frá stjórnum Bandaríkjanna og Sovétríkjanna um málefni Austurlanda nær. í lok fundar í Washington sendu utanríkisráðherrarnir James Ba- ker og Alexander Bessmertnikh frá sér yfirlýsingu um að íraksfors^ta stæði til boða vopnahlé í stríðinu jafnskjótt og hann sendi frá sér skuldbindingu um að uppfylla ályktanir Öryggisráðsins um að íraksher hverfi frá Kúvæt skil- málalaust. Jafnframt lýstu þeir yfir að stjórnir Bandaríkjanna og Sov- étríkjanna vildu vinna saman að lausn mála sem ógna friði á svæð- inu, þar á meðal deilu ísraels og araba. Eftir á sendi talsmaður Bush for- seta frá sér yfirlýsingu um að þarna væri ekki um neina stefnu- breytingu að ræða af Bandaríkj- anna hálfu. Jafnframt var gefið til kynna að Baker hefði samþykkt yfirlýsingu þeirra utanríkisráð- herranna án þess aö bera endanlegt orðalag undir forsetann. Sé þarna um raunverulegan skoðanamun að ræða milli forseta og utanríkisráð- herra Bandaríkjanna, væri það í fyrsta skipti sem ágreinings verður vart milh þessara nánu samstarfs- manna og fornvina. Hitt fer ekki milli mála, segja fréttamenn í Washington, að æðstu menn þar vildu mikið til gefa að ekki þyrfti að koma til blóðugra bardaga landherja í eyðimörk Arabíu. Bush forseta og mönnum hans er vel ljóst að um leið og veru- Erlend tíöindi Magnús Torfi Ólafsson legt mannfali verður í bandaríska hðinu getur orðið skjót breyting á stuðningi almennings við stríðs- reksturinn. Dick Cheney landvamaráðherra, sem tahnn hefur verið herskáastur ráðamanna í Washington, hefur gefið í skyn að dragast muni allt fram undir lok febrúar að banda- ríski landherinn leggi til atlögu við íraksher. Tíminn þangað til yrði notaður til að reyna að gera sem mestan usla í íraksher á væntan- legum vígstöðvum með loftárásum. Viöhorfið, sem þarna ræður, hef- ur svo að sjálfsögðu eflst við at- burði vikunnar, þegar írösk her- sveit sótti allt að tvo tugi kílómetra inn í Saudi-Arabíu, tók þar mann- lausa olíuborg og hélt henni á ann- an sólarhring gegn sameiginlegri sókn bandarískra landgönguhða og hers Sauda. Fyrstu tölur stríösaðha um mannfall eru jafn óábyggilegar og vant er í styrjöldum, manntjón andstæðingsins ýkt en fjöður dreg- in yfir mannskaða í eigin hði. Það eina sem víst er aö þarna létu lífið fyrstu tugirnir úr Bandaríkjaher í eyðimörkinni. Bollaleggingar um að Saddam kunni að sjá sér fært að nota smá- vegis hernaðarávinning af þessu tagi til að uppfylla skilyrðið fyrir vopnahléi, heita brottför frá Kú- væt, hafa vart mikið til síns máls. Hann hefur frá öndverðu leitast við að gera sinn málstað að málstað araba gegn gömlum og nýjum drottnunarveldum í vestri. Því lengur sem hann þraukar með sinn gloppótta herbúnað í þriðja heims ríki gagnvart voldugri hemaðarvél Bandaríkjanna, studdri af fjöl- þjóðaher, þeim mun meiri hijóm- grunn fær sá boðskapur. Áhrif hans hafa síðustu daga komið berlega í ljós á ólíklegasta stað. Heittrúarmenn í íran, sem fyrir ekki alllöngu héldu Saddam Hussein réttdræpan trúníðing og háðu óhemju mannfrekt stríð við heri hans í átta ár, krefjast þess nú að íransstjórn gangi í lið með írak th að hrekja her vantrúaðra frá fjarlægum löndum brott úr ná- lægð við hinar helgu borgir og th að afstýra því að íslömsk bræðra- þjóð sé murkuð niður. Hashem Rafsanjani íransforseti hefur vísað þessum kröfum á bug sem sjálfsmorðsæði og stjóm hans virðist ná vaxandi tökum í landinu. En jafnframt fastheldni við hlut- leysi í stríðinu, hefur íransstjórn látið til sín taka á tveim sviöum. Reynt verður að hna stríðshörm- ungarnar í írak með matargjöfum og lyíjasendingum. Samtímis er leitað hófanna um vopnahlé í stríð- inu. í því skyni hafa verið kvaddar saman th funda viö æðstu menn í Teheran sendinefndir frá Alsír, Frakklandi og Jemen. Hugmyndin um vopnahlé áður en lengra er haldið á braut blóðsút- hehinga og eyðileggingar nær inn í raðir ríkjanna sem aö fjölþjóða- hemum standa. Nýverið brá Hosni Mubarak Egyptalandsforseti sér til Tripoli að hitta Gaddafi Líbýufor- seta. Þaðan hélt Mubarak rakleitt th Rijadh th fundar við Fadh, kon- ung Saudi-Arabíu. Að skilnaði létu þeir frá sér fara yfirlýsingu, sam- hljóða þeirri sem utanríkisráð- herrar Bandaríkjanna og Sovét- ríkjanna gáfu út í Washington. Saddam Hussein er boðið vopnahlé í stríðinu samstundis og hann heit- ir því að láta her sinn rýma Kúvæt. Ekki er líklegt að Arabíukonung- ur og Egyptalandsforseti vænti já- kvæðra undirtekta. En þeir verða að sýna vilja til að þyrma írak til að reyna að lægja ólguna meðal þegna sinna. Hosni Mubarak Egyptalandsforseti (t.v.) og Fadh, konungur Saudi-Arabíu, á fundi í Rijadh á fimmtudag. Símamynd Reuter

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.