Dagblaðið Vísir - DV - 02.02.1991, Page 15

Dagblaðið Vísir - DV - 02.02.1991, Page 15
LAUGARDAGUR 2. FEBRÚAR 1991. 15 Strí ðið í sj ónvarpinu „Stay with us,“ sagði þulurinn og ég hrökk upp í stólnum. Klukk- an var langt gengin í þrjú um nótt- ina og mér hafði runnið í brjóst, höfuðið sigið ofan í bringuna og langur vinnudagur tekið sinn toll. Ég hrökk upp og hvessti augun á skjáinn. „Stay with us,“ sagði þul- urinn og ég hækkaði tóninn í hon- um. Ný frétt úr Persaflóanum, ný skotárás á írak, nýr fréttamaður með nýja fréttaskýringu af nýjustu atburðum. Ég gat ekki misst af þessu. Ekki fyrir nokkurn mun. Sjónvarpið hafði gert mér þann óleik að hafa kvikmynd á dagskrá langt fram yfir miðnætti. Það voru sjö tímar liðnir frá því að síðustu fréttir höfðu veriö sagðar frá víg- stöðvunum. Þessi bið var óþolandi og satt að segja ekki nokkur þjón- usta við sjónvarpsáhorfendur að skrúfa fyrir beinar útsendingar frá CNN og Sky með innlendri dag- skrárgerð og ómerkilegum bíó- myndum þegar bardagarnir standa sem hæst. Maöur þarf að vaka fram eftir öllu og bíða eftir dagskrárlok- um. Rétt eins og gert sé hlé á stríðsátökum meðan íslensku sjón- varpstöðvarnar ljúka sér af! íslenskan tapar stríðinu Handhafar móðurmálsins hafa verið að rífast út af því að stríðs- fréttirnar séu ekki sagðar á ís- lensku. Ég tek algjörlega undir það, að sjónvarpsstöðvar á heimsmæli- kvarða eiga auðvitað að tala á því tungumáli sem flestir skilja, úr því þær eru á annað borð að ætlast til að við horfum á útsendinguna. Auk þess er hætta á því aö íslendingar týni niður móðurmálinu eftir að stríðinu lýkur og af því yrði meiri menningarskaði heldur en hinu að Saddam Hussein vinni stríðið. Gervihnattasjónvörpin stofna framtíð íslenskrar tungu í hættu og í raun og veru ætti að banna gervihnattasjónvörpum að senda út ótextað og það á að banna er- lendar útvarpsstöðvar sem heyrast á ensku og ég hef lengi haft áhyggj- ur af því að sjá krakkana mína lesa útlenda reyfara. Ég man eftir því í gamla daga í lagadeildinni að kröfurétturinn var kenndur á dönsku og gott ef ekki réttarfarið líka og það mátti þakka fyrir að laganemar skyldu standast þessi utanaðkomandi áhrif og tala íslensku við útskrift. Mistökin Uggja sennilega í því að kenna ensku og önnur óskyld tungumál. í grunnskólanum. Mis- tökin eru þau að íslendingar skilja önnur mál. Þar liggur hundurinn grafinn. Vetrarmaður hjáCNN Sem betur fer hefur íslenskunni vaxið ásmegin að undanfórnu og ber þar hæst að útvarpsstöðvarnar hafa haldið merkinu á lofti með prýðisgóðum þulum sem hafa spakmælin á hraðbergi og mál- vöndunina í fyrirrúmi. Einn sagði um daginn eitthvað á þessa leið: „Nú þurfið þið að tjúna upp tækin því hér kemur kreisí popplag sem þeir í bandinu hafa svingað í top ten.“ Svo græja þeir steróið og fíla lögin í botn og parkera sér í stúdíó- inu fram á bládaginn! til að pupull- inn geti hlustað frá „morgni til nætur"! Þeir vefjast ekki fyrir þeim málshættirnir og orðasamböndin og það er von að málverndarmenn vilji vernda ástkæra ylhýra málið og bægja frá okkur utanaðkomandi áhrifum þegar önnur eins mál- hreinsun á sér stað hjá því fólki sem starfar á öldum ljósvakans hér heima. Það verður þó að segja CNN til málsbóta að þar voru menn nærri búnir ná sér í vetrarmann, John Sweeney að nafni, frá Hofi í Vatns- dal, sem kann lýtalausa íslensku. Frá þeim manni var ítarlega sagt í Morgunblaðinu á sunnudaginn undir heitinu Jón Sveinsson. Það er ekki Mogganum að kenna þótt CNN hafl ekki ráðið réttan mann og allavega huggun í því að vita að John Sweeney gæti verið Jón Sveinsson ef Mogginn hefði ekki farið mannavillt. Svona munaði litlu aö CNN sendi út á islensku. Þulir í stíl „Stay with us,“ sagði ljóskan hjá Sky og drap tittlinga framan í mig þar sem ég drap sjálfur tittlinga framan í hana, aðframkominn eftir vökunætur. Hún endurtók í sjötta skipti nýjustu fregnir af viðbrögð- um ráðamanna í Washington við ræðu George Bush sem var fimm- tíu og tvisvar sinnum klappaður upp og þetta minnti mig á orðstír Stalíns þegar hann var upp á sitt besta. Það var hins vegar í tíð Stal- íns að menn klöppuðu fimmtíu og tvisvar sinnum í hvert skipti sem þeir klöppuöu og frá því segir í Gulagi Solsénítsyns að þegar búið var klappa í hálftíma í miðri ræðu Laugardags- pistill Ellert B. Schram Stalíns hné gömul kona meðvit- undarlaus niður og hætti að klappa í fallinu. Þá gátu hinir hætt að klappa og þá gat Stalín haldið áfram með ræðuna. Daginn eftir var gamla konan sótt heim og fang- elsuð fyrir þá sök að hafa móðgað foringjann með því að hætta klapp- inu á undan öðrum. Ekki hefur þess verið getið að neinn hafi verið fangelsaður fyrir að klappa ekki nógu oft fyrir Bush, enda er munurinn á honum og Saddam Hussein sá að sá síðar- nefndi skýtur þá til dauða sem mótmæla honum. Bush verður hins vegar að láta skjóta hermenn- ina sem eru með honum. Hvort tveggja gert í nafni réttlætisins. Það er alltaf verið að heyja stríð í þágu réttlætisins og ef það er ekki fóður- landið og kóngurinn þá er það frelsið og friðurinn sem barist er fyrir. Friðurinn er svo mikilvægur að hann kostar ekkert minna en heilagt stríð ef því er að skipta. „Stay with us,“ sagði fréttamað- urinn við hliðina á ljóskunni. Allt eftir formúlunni: Annars vegar undurfögur og kynæsandi kven- mannsstjarna, hins vegar traust- vekjandi, miðaldra fréttahaukur. Sjónvarp í lit! Þulir í stíl! Grætt á vopnabúri Hvað varð um Scud-eldflaugina sem þeir sáu yfir Vesturbakkan- um? Hvað varð um Tomahawk- sprengjuflaugina sem Kaninn sendi á Bagdad? Hvað féllu margir í gær? Strákarnir í vinnunni höfðu ver- ið að deila um það hvað Saddam Hussein ætti margar Scud-eld- flaugar og ég sagði bara si sona við þá: Spyrjið Rússana, spyrjið Þjóð- verjana. Rússarnir seldu írökum vopnin og Þjóðverjar framleiddu fyrir þá skothylkin og svo las ég það einhvers staðar að Belgar hefðu reist skotpallana og Banda- ríkjamenn hefðu selt tíu milljónir af jarðsprengjum til írak meðan þeir héldu að írakar væru vinir sínir. Sjálfsagt situr einhver millj- ónamæringur fyrir vestan og telur 'peningana sem hann fékk fyrir gróðann af því að styrkja vopna- búrið hjá Saddam Hussein. Gott ef hann er ekki heiðursmeðlimur í Góðgerðarklúbbnum! „Stay with us,“ sagði Sky og bað mig um að bíða spenntan eftir glænýjum fréttum af dularfullum flugferðum íraka til íran. Hermála- sérfræðingur frá Pentagon var fenginn til að gefa skýringar á þess- ,um liðsflutningum eða liðhlaupum (skrítið hlýtur það að vera að hafa atvinnu af því að vera sérfræðing- ur í stríði. Það er eins gott að ein- hver stríð séu háð svo þessir menn hafl eitthvað að gera í vinnunni!). Ekki þar fyrir að ég heyrði eitt- hvað nýtt hjá þessum manni í Pentagon. Á kafiistofunni eru margfaldir herfræðingar sem hafa pottþéttar skýringar á kænsku Saddams Hussein og vita upp á hár hvað hann er að gera með því að senda vélarnar úr landi. Auk þess tók ég strætó þennan sama dag og heyrði þar hjá tveimur strákum í aftasta sæti að þetta væru sjálfs- morðssveitir sem ættu að ráðast á flugmóðurskipin á flóanum. Eins dauði Já, ég fór í strætó, enda er ríkis- stjórnin búin að skora á almenning að taka þátt í stríðsrekstrinum með því að taka strætó og spara bensí- nið. Þeir eru jafnvel búnir að hækka bensínskattinn ennþá meira til að taka af allan vafa um að stríðið komi að gagni, eftir að hafa afneitað þátttöku sinni í stríð- inu. Hvað gera menn ekki fyrir bandamenn sína? Það skortir ekki sérfræðingana. Það er stríð í strætó og það er stríð yfir eldhúsborðinu og maður fer að velta því fyrir sér hvað fólk gat yfirleitt talað um áður en þetta stríð braust út. Ekki hefur maður heyrt aukatekið orð um ástandið í öðrum heimshlutum, nema hvað uppreisn var gerð í Sómalíu án þess að nokkrum kæmi það við og Rússarnir eru ýmist að koma eða fara i Litháen og eru um þessar mundir á leiðinni burt, eftir að þeir heyrðu um þingmannasendinefnd- ina frá íslandi. „Stay with us,“ segja Litháar við íslensku þingmennina og „stay with us“ segja sjálfstæðismenn við Guðmund H. Garðarsson og þetta sögðu þeir í Framsókn líka við Guömund G. sem tók meira mark á vinum sínum og fór. Vissi sem var að menn eiga ekki vini í stjórn- málaflokkum heldur bara viðhlæj- endur sem hætta að brosa framan í mann þegar tjaldið hefur fallið. „Stay with us,“ segja sjónvarps- stöðvarnar ofan úr gervihnöttun- um og vita sem er að stríðið við Persaflóa er besti framhaldsþáttur sem þær hafa komist yfir. Eins dauði er annars brauð. „Stay withus"! Sjónvarpið suðaði og ég hrökk upp með andfælum og fannst ég vera staddur á miðju jarðsprengju- svæðinu og komast hvorki aftur á bak né áfram. Þetta var hræðileg martröð og gott að vakna upp við það að vera bara áhorfandi heima í stofu og geta slökkt á stríðinu þegar einhver er drepinn. „Stay with us,“ segja stríðsfrétta- ritarar og halda vöku fyrir heilu þjóðunum. Svo segja þeir á Alþingi að íslendingar blandi sér ekki í stríðsreksturinn! Ég veit satt að segja ekki um nokkurn mann sem ekki lifir sig inn í þessi hernaðarátök. Veit allt um eldflaugar og gagnflaugar, flug- styrk og tölvubúnað íjarstýrðra skotvopna sem heyja þetta strið af mesta móð. Ekki veitir af. Ekki taka írakar þátt í þessu stríði, nema þá að liggja í leyni og bíða í vari eftir því að almenningsáhtið fyrir framan sjónvarpstækin fái leiða á þessu stríði og kalli bandamenn heim. Saddam Hussein veit greinilega hvernig hann á að vinna þetta stríð: með því að bíða átekta, með því að láta sprengjunum rigna yfir sig og þegna sína og eiga svo viðtöl við CNN-sjónvarpsstöðina í hléi. „Stay with us,“ segir Saddam Hussein og biðst innilega afsökunar á ónæðinu. „Stay with us,“ segir þulurinn við mig og hefur ekki hugmynd um það, þessi mannfjandi, að það er akkúrat það sem ég er búinn að gera frá því stríðið hófst. Hvað þarf ég að vaka margar nætur til að hann skilji það? Ellert B. Schram

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.