Dagblaðið Vísir - DV - 02.02.1991, Blaðsíða 18
Veiðivon dv
Tumi Tómasson fiskifræðingur:
Er bjartsýnn á veiðina í
Miðfjarðará næstu árin
Þar sem mjög hlýtt hefur verið síðustu vikur getur ís á vötnum verið veikur
og eru veiðimenn beðnir að fara varlega. DV-mynd Guðmundur Stefán
Þrátt fyrir frekar dræma veiði í
Miðtjarðará síðasta sumar eru flski-
fræðingar og aðrir iþar um slóðir
bjartsýnir á næstu ár. Eða eins og
Tumi Tómasson fiskifræðingur seg-
ir:
„Seiðastofnar Miðíjaröaránna
voru kannaðir með rafveiðum í
ágúst, líkt og gert hefur verið á und-
anfornum árum. í kalda vorinu 1989
var mikiö um að seiði frestuðu sjó-
göngu um eitt ár, einkum framarlega
í ánum. Þetta var sérstaklega áber-
andi í Vesturá þar sem mikiö var um
seiði á fimmta ári framan Dalgeirs-
gerðis. Þetta er ein orsök þess hve
lítið veiddist framarlega í Vesturá sl.
sumar en lítið vatn átti líklega einnig
sinn þátt í að tefja göngu laxa fram
ána. Vorið og sumarið 1990 fram-
leiddi þetta svæði hins vegar mikið
af gönguseiðum. Neðar í Vesturá eru
gönguseiðin yngri, aöallega þriggja
og fjögurra ára.
í Núpsá er seiðavöxtur almennt
mun betri en víðast annars staðar í
Miðfjarðaránum."
Seinna segir Tumi: „Versandi veiði
hin síöari ár má fyrst og fremst rekja
til óhagstæðra umhverfisþátta, þ.e.
tíðarfars og sjávarskilyrða. Laxa-
stofninn í Miðfjarðaránum sýnir
engin merki um hnignum og þvert á
móti hefur ástand seiðastofnanna
ekki mælst betra um langt skeið.
Gönguseiðasleppingar hafa skilað
umtalsverðum árangri á undanfórn-
um árum og með þeim má að veru-
legu leyti hafa áhrif á hvar í ánni
laxinn veiðist. Þótt aldrei verði hægt
að tryggja laxveiði í norðlenskum ám
tel ég að ekki sé ástæða til annars
en að vera bjartsýnn um veiöina
næstu árin,“ segir Tumi Tómas-
son.
Þetta eru sannarlega ljósir punktar
fyrir veiðimenn sem ætla að renna
Veiðimaður gengur framhjá sjö
punda laxi í Núpsá í Miðfirði sem
hann hafði landað nokkrum áður.
Það verður gaman að sjá hvernig
veiðin verður þar um slóðir næstu
sumur. DV-mynd G.Bender
fyrir lax í Miðfjarðará næstu sumur.
Kannski verður góð veiði?
Opið hús hjá Stanga-
veiðifélagi Reykja-
víkurnæstuhelgi
Um næstu helgi verður Stanga-
veiðifélag Reykjavíkur með opiö hús
fyrir veiðimenn, svona rétt eftir árs-
hátíðina frægu. En svo verða opin
hús í mars, apríl og maí. Á þessu
opna húsi verður Jón „Skelíir" Ár-
sælsson með myndasýningu og verða
sýndar myndir víða af landinu.
Ólafur Skúlason
farinn að kenna
fiskeldi í Danmörku
Skjótt skipast verður í lofti í ís-
lenska íjármálaheiminum og fyrir
nokkru síðan var Laxalón tekiö til
gjaldþrotaskipta.
Veiðimenn hafa miklar áhyggjur
af þessu máli því ekkert er vitað
hvað verður um Hvammsvík í Kjós.
Þar sem Ólafur Skúlason hafði kom-
ið upp glæsilegum stað fyrir veiði-
menn og aöra með útvistardellu. En
þaö eru ekki alltaf jólin. Ólafur
Skúlason er núna kominn til Dan-
merkur og farinn að miðla Dönum
af reynslu sinni í fiskeldinu. En allt
er óráðið með Hvammsvík í Kjós, en
mikið hefur spurt um hana í fjár-
málageiranum.
-G.Bender
LAUGARDAGUR 2, EEBRÚAR. 1991.
Þjóðar-
spaug DV
„Læknir, maðurinn minn vill
endilega fá að vera viðstaddur
fæðinguna, hvað finnst þér eigin-
lega um það?“
„Ja, mér finnst nú að eigin-
mennimir eigi að vera viðstaddir
á slíkri hátiðarstundu,“ svaraði
læknirinn.
„Já, en honum og barnsfóðurn-
um kemur svo hrikalega illa sam-
an,“ svaraði konanþá, alveg mið-
ur sín.
Glefsa úr lögfræðitima:
„Hver er refsingin við tvikvæni
hér á landi?“ spurði kennarinn.
„Tvær tengdamömmur,“
heyrðist þá á aftasta bekk.
Bara að...
Gömul kona, sem var hið mesta
hörkutól, lá nú rúmfost í hárri
elli. Aldrei hafði þessari konu
orðið misdægurt ura ævina en
þama, sem hún lá í rúminu, virt-
ist sem æðsta stundin væri loks-
ins rannin upp. Var þvi sóttur
læknir til hennar svo að hægt
væri að lina þjáningar hennar.
Er læknirinn kemur að rúmi
gömlu konunnar segír hann:
„Hvað gengur að yður, kona
góð?“
„Það er ekkert að mér,“ svaraði
konan. „Ég er bara að deyja.“
Hvíldar-
þurfi
Maður nokkur komst svo að
orði við kunningja sinn:
„Konan min fór á Heilsuhæliö
í Hveragérði í gær, sér til hvíldar
og hressingar. Mér var svo sann-
arlega orðin þörf á því.“
Finnurþáfimmbreytmgai? 91
Ef þú reiknar verðið út frá hversu efnismikill kjóllinn er sérðu að hann Nafn:
er mjög ódýr...
Myndirnar tvær virðast við
fyrstu sýn eins en þegar betur
er að gáð kemur í ljós að á
myndinni til hægri hefur
fimm atriðum verið breytt.
Finnir þú þessi fimm atriði
skaltu merkja við þau með
krossi á hægri myndinni og
senda okkur hana ásamt nafni
þínu og heimilisfangi. Að
tveimur vikum liðnum birtum
við nöfn sigurvegara.
1. Sharp útvarpstæki með seg-
uibandi að verðmæti kr. 8.500.
2. Sharp útvarpstæki með seg-
uibandi að verðmæti kr. 8.500.
Vinningarnir koma frá versl-
uninni Hljómbæ, Hverfisgötu
103, Reykjavík.
Mer-kið umslagið með
lausninni:
Finnur þú fimm breytingar? 91
c/o DV, pósthólf 5380,
125 Reykjavík
Vinningshafar fyrir áttu-
gustu og níundu getraun
reyndust vera:
1. Kristin Eva Sigurðardóttir,
Selfossi I,
800 Selfoss
2. Sesselja Kristinsdóttir,
Blikabraut 3,
230 Keflavík
Vinningarnir verða
sendir heim.
Heimilisfang: