Dagblaðið Vísir - DV - 02.02.1991, Síða 44
Hafir þú ábendingu eða vitneskju um frétt, hringdu Fyrir besta fréttaskotið í hverri viku greiðast 5.000
þá í síma 62-25-25. Fyrir hvert fréttaskot, sem birt- krónur. Fullrar nafnleyndar er gætt. Við tökum við
ist eða er notað i DV, greiðast 2.000 krónur. fréttaskotum allan sólarhringinn.
fíitstjórn - Auglýsingar - Áskrift - Dreifing: Sími 27022
LAUGARDAGUR 2. FEBRÚAR 1991.
Barði barn
með f lösku
Maöur um tvítugt sló sjö ára dreng
í höfuðiö meö gosflösku fyrir utan
íbúðahús við Skipasund um klukkan
hálfsex í gær. Drengurinn hlaut
áverka í andliti og á höföi og var
fluttur á slysadeild.
Drengurinn mun hafa verið gest-
komandi í hverfinu þegar hann kom
aö umræddu húsi og hitti manninn.
Ekki er vitað hvað manninum gekk
til en þó er vitað að hann vildi fá
drenginn eitthvaö með sér. Þegar
drengurinn neitaði óskum hans
skipti engum togum að maðurinn brá
kókflösku á loft og barði hann í höf-
uðiö. Vitni urðu að atburðinum. Ár-
ásarmanninum tókst að komast und-
an. Drengurinn mun ekki hafa verið
alvarlega slasaður. -ÓTT
Uppistand á Vellinum:
Grunsamleg
íþróttataska
Töluvert uppistand varð í mötu-
neyti hjá varnarliðinu á Keflavíkur-
flugvelli í vikunni þegar vart varð
við grunsamlega íþróttatösku í hillu
i húsinu. Enginn í húsinu kannaðist
við töskuna.
Allir sem voru inni í mötuneytinu,
jafnt gestir sem starfsmenn, voru
reknir út og kallaö á sprengjusér-
fræðing. Hann kom ekki á staðinn
fyrr en eftir drykklanga stund. Þegar
sérfræðingurinn gægðist varfærnis-
lega í töskuna komu aðeins svita-
blaut íþróttaföt í ljós. Einhver hafði
gleymt töskunni sinni þegar hann
var að fá sér hressingu eftir íþrótta-
æfingu. Taskan hafði staðið í um-
-ræddi hillu í um eina klukkustund
þegar kallað var á sprengjusérfræð-
inginn. -ÓTT
V^8MíV
> C 72177
SMIÐJUKAFFI
sm<m fRÍrr hum
0PNUM KL. 18 VIRKA DAGA^
OG KL. 12 UM HELGAR
'V
111 ALÞJÓÐA
LÍFTRYGGINGARFÉLAGIÐ
LÁGMÚLA 5 • REYKJAVlK • S. 681644
LOKI
Þennan mávskíri ég
Saddam!
Meirihlutinn styður
hemaðaraðgerðir
- og enn fleiri vilja stjómmálasamband Islands við Litháen
Yfírgnæfandi meirihiuti Islend-
inga vill viðurkenna Litháen og er
hlynntur Persaflóastriðinu sam-
kvæmt skoðanakönnun DV sem
var gerð nú fyrir helgina.
Þannig reyndust yflr 80 af hundr-
aði þeirra sem tóku afstöðu vilja
stjómmálasamband og sendiherra-
skipti við Litháen. Tveir af hverj-
um þremur þeirra sem tóku af-
stöðu segjast vera hlynntir hern-
aðaraðgerðum bandamanna við
Persaflóa.
Þessar niðurstöður eru óvenju-
afgerandi í skoðanakönnunum.
Eftir þær þurfa stjórnmálaforingj-
ar ekki að fara í grafgötur um hvað
landsmenn vilja.
Úrtakið í könnuninni var 600
manns og var jafnt skipt milli kynja
og jafht milli höfuöborgarsvæðis-
ins og landsbyggðarinnar. Könn-
unin var gerð á miðvikudags- og
fimmtudagskvöld.
Jón Baldvin Hannibalsson utan-
ríkisráðherra fagnaði þvi hversu'
undirtektir þjóðarinnar við sjálf-
stæöisbaráttu Litháa væru góðar
og sagði stutt í að formlegt stjóm-
málasamband við þá yrði tekið
upp. Kristin Einarsdóttir, Kvenna-
lista, sagði það viss vonbrigði hvað
íslendingar væru herskáir.
-HH
- Sjá nánar á bls. 2 og 7
Konan sem átti vanræktu hrossin í Hafnarfirði:
Eins dauði er annars brauð. Það hljóp á snærið hjá þessum einmana
mávi þegar hann náði að fanga önd sér til hádegisverðar.
DV-mynd Brynjar Gauli
Akærð fyrir slæma
meðferð hrossanna
Ríkissaksóknari hefur gefið út
ákæru á hendur konu sem varð upp-
vís að þvi að hafa vanrækt fjölda
hrossa sem hún hafði í hesthúsi í
Hafnarfirði síðastliðið sumar. í
ákæruskjali er þess krafist að konan
sæti refsingu samkvæmt dýravernd-
unarlögum. Máliö er komið til með-
ferðar hjá Sakadómi Reykjavíkur.
Brot á dýraverndunarlögum varða
sektum eða varðhaldi allt að einu
ári. Stórfellt eða ítrekað brot varðar
hins vegar fangelsi allt að tveimur
árum. Auk refsingar krefst ríkissak-
sóknaraembættið þess í ákæru að
konan verði dæmd til sviptingarrétt-
ar til að „eiga, nota, hafa í umráöum
sínum eða sýsla um dýr“.
Mál þetta kom upp í júní síöastliðn-
um. Forðagæslumaður og dýralækn-
ir fóru á staðinn þar sem dýrin voru
illa á sig komin. í niöurstöðum þeirra
kom meðal annars fram að fjögur
trippi væru rýr en þrjár hryssur
mjög illa á sig komnar. Hrossin höfðu
ekki fengið hey í marga daga, þau
voru veikburða og styggð kom að
þeim í nærveru ánnarra hrossa.
Umrædd kona hefur verið kærö
áöur fyrir slæma meðferð á dýrum.
í kjölfar lögreglurannsóknar og meö-
ferðar málsins í júní var ákveðnum
manni veitt umboð til að gæta hross-
anna að undangengnu samþykki
dýralæknis ogfógeta. Gæslumannin-
um var falið að fita hrossin og koma
þeim í góð liold aftur. Áður hafði
uppboði, sem átti að fara fram á dýr-
unum í Hafnarfirði, verið frestaö þar
sem fram komu afsöl hjá konunni
vegna sölu á umræddum hrossum
nokkru áður en málið kom upp.
Málsmeðferð hjá Sakadómi Reykja-
víkur vegna ákærunnar á hendur
konunni hefst væntanlega í þessum
mánuöi. -ÓTT
Veðrið á sunnudag og mánudag:
Éljagangur sunnanlands og vestan
Á sunnudag verður vestankaldi með éljum vestan- og suðvestanlands en úrkomulaust veröur annars staðar á landinu. Frost á bilinu 1-6 stig.
Á mánudag snýst í allhvassa eöa hvassa sunnanátt. É1 eða slydduél verða sunnan- og vestanlands en að mestu úrkomulaust annars staðar.
Hiti frá 1 stigi niöur í 4 stiga frost.