Dagblaðið Vísir - DV - 04.02.1991, Síða 5
MÁNUDAGUR 4. FEBRÚAR 1991.
Kauptu ný spariskírteini með skiptiuppbót
•
Nú býðst þér skiptiuppbót á nýjum spariskírteinum í stað spariskírteina í l.fl.D 1988, sem.eru á
lokagjalddaga 1. febrúar. Innlausnarverð þessa flokks er kr. 20.109,80 fyrir hvert 10.000 kr.
skírteini.
Til að fá skiptiuppbót á nýjum spariskírteinum þarftu einungis að kaupa ný spariskírteini
um leið og þú innleysir þau gömlu og þá færðu nýju skírteinin með 6,6% raunvöxtum, eða 0,6%
hærri raunvöxtum en bjóðast í almennri sölu. Lánstími skírteinanna er 5 eða 10 ár að eigin vali.
Þú færð ný spariskírteini með skiptiuppbót í Seðlabanka íslands og Þjónustumiðstöð ríkisverðbréfa.
Til þæginda fyrir þig getur þú hringt fyrst og pantað nýju skírteinin.
Þetta tilboð gildir aðeins til 22. febrúar. Njóttu öryggisins áfram og tryggðu þér ný spariskírteini
með skiptiuppbót sem fyrst.
RÍKISSJÓÐUR ÍSIANDS
ÞJÓNUSTUMIÐSTÖÐ
RÍKISVERÐBRÉFA
Kalkofnsvegi 1,150 Reykjavík
Sími 91-69 9600
Hverfisgötu 6,2. hæð, 101 Reykjavík
Sími 91-62 6040
N.
I
ts