Dagblaðið Vísir - DV - 09.02.1991, Qupperneq 4

Dagblaðið Vísir - DV - 09.02.1991, Qupperneq 4
4 í'LAirG'ARDA'GtUR 9..FEBRÚARJI991. Fréttir____________________________________________________________________ Tveir menn ákærðir fyrir „stórfelldan undandrátt á bifreiðaskatti“: Stendur ekki steinn yf ir steini í ákærunni og eftirlitsmaður ökumæla stjórnaði rannsókn, segir annar verjandinn Annar þessara ökumæla er löglegur en hinn ólöglegur. Ógerningur er að greina tegundirnar hverja frá annarri nema að hluta mælana í sundur og telja tannhjólin inni í þeim. DV-mynd Hanna Málflutningur fór fram í Sakadómi Reykjavíkur í gær vegna máls tveggja manna sem ákæröir eru fyrir að hafa vísvitandi sett ólöglegan öku- mæli í vöruflutningabfl annars þeirra. í ákæruskjali segir aö öku- mælirinn hafi stórlega vantalið ekn- ar vegalengdir og mennirnir því stuðlað að stórfelldum undandrætti á bifreiðaskatti. Fyrir dómi hefur komið fram hjá sérfræðingum að lögregla og ákæru- vald gerðu þau mistök að álíta að um væri að ræða svokallaðan AZ 1 mæli í dómsálnmn Óttar Sveinsson en ekki af tegundinni AZ 2. Eigi að síöur er lögleg tegund AZ 5. Fram hefur komið að ógerningur er að greina ökumælategundirnar í sund- ur nema með því að hluta mælana niður og telja tannhjól. Nokkur hundruð mælar af tegundinni AZ 5 hafa verið fluttir til landsins en 15-20 AZ 2 mælar. Þeir síöarnefndu hafa verið teknir úr umferð eftir því sem kostur hefur verið. Mál þetta snýst um hvort þeir ákærðu gerðu sér grein fyrir því að þeir settu ranga tegund af mæh í umræddan vörubíl. Veijendur mannanna segja meðal annars að þetta mál hafi verið „upp- hlaup“ eftirlitsmanns ökumæla og lögreglu, ákæruna vera á brauðfót- um og dellu að hluta tfl. Guðjón Marteinsson sakadómari er dómari í málinu. Varð var við misræmi Málsatvik voru að eigandi vöru- bílsins, sem er Scania með tengi- vagni, fór í ágúst 1987 tfl fyrirtækis sem annaðist ísetningu og þjónustu á þungaskattsmælum í bifreiöar. Ákveðið var að settur yrði notaður ökumælir í bílinn sem til var á lager fyrirtækisins. Mælirinn var síðan innsiglaður. Nokkru síðar varð eig- andinn var við misræmi á milli þungaskattsmælisins og ekinna kíló- metra á hraðamæli bílsins. Maðurinn fór tvisvar til löggiltra aðila og hað um að misræmið yrði leiðrétt. Ekkert fannst þó sem benti til að nokkuð væri að. í seinna skipt- ið var farið beint til Bifreiðaeftirhts- ins. Þegar eftirlitsmaður kom auga á misræmi bað hann um að ekin yrði ákveðin vegalengd tfl að kanna hvort mælarnir pössuðu saman. Eftir þá ferð var mælirinn þó innsiglaður. Nokkru síðar fór eigandinn tfl bíla- umboðsins en þar var ákveðið að snúa ofan af hraðamælinum til sam- ræmis við ökumæli ef vera skyldi að orsakir misræmisins fyndust. Skömmu síðar stöðvaði eftirlitsmað- ur ökumæla á vegum ijármálaráðu- neytis umrædda vörubifreið og kom skekkjan þá enn fram. í framhaldinu voru eigandi bflsins og sá sem setti mælinn í bílinn kærð- ir og úrskurðaðir í gæsluvarðhald. Húsrannsókn var framkvæmd og hald lagt á bókhald. Mönnunum var sleppt eftir tveggja daga varðhald. Mistök lögreglu og ákæruvalds? Hjá lögreglu og ákæruvaldi var tal- ið að umræddur ökumælir hefði ver- ið af gerðinni AZ 1 enda haföi eftir- litsmaður ökumæla sagt svo til um. Mennimir tveir hafa hins vegar báð- ir borið að þeir hefðu talið í góðri trú að hér væri um að ræða mæli af gerð- inni AZ 5. Fyrir dómi kom hins vegar fram hjá sérfræðingum að þarna hefði verið um að ræða mæli af gerð- inni AZ 2. Tegundirnar eru nákvæm- lega eins í útliti og ekki hægt að kom- ast að því um hvaða tegund um ræð- ir nema hluta þá í sundur. Lögreglan lagði fram útreikninga til ákæruvaldsins um gífurlegar fjár- hæðir sem hún-áætlaði aö sviknir hefðu verið undan þungaskatti. Þeir útreikningar voru þó ekki teknir með í ákæru. Eigandi vöruflutninga- bílsins hefur lagt fram gögn sem sýna að hann hefur greitt ríkissjóði það sem hann telur að upp á vanti. Eftirlitsmaður stjórnaði lögreglurannsókn Bjarni Ásgeirsson hdl., veijandi eiganda bílsins, sagði við málflutning í sakadómi í gær að skjólstæðingur sinn hefði borið að umræddur eftir- htsmaður hefði lagt hann í einelti og hefði haft uppi yfirlýsingar um að klekkja á honum - því mætti ætla _að það væri háð geðþóttaákvörðun- um_ eftirlitsmanna hvort eigendur bifreiða væru sektaðir eða kærðir - enda hefði öðru en hliðstæðu máli verið sleppt. Með tilliti til viðleitni eiganda bíls- ins um að leiðrétta ofangreint mis- ræmi, sagði Bjarni að hann hefði aldrei reynt að leyna neinu, allra síst vegna ökumælisins. Verjandinn benti á þá reginvillu hjá lögreglu, og þar með ákæruvaldi, að telja að hér hefði verið um að ræða mæli af gerð- inni AZ 1. Hann sagði rannsóknina hafa verið illa gerða og að eftirlits- maðurinn hefði fengið að stjórna henni að miklu leyti. Verjandinn sagði skjólstæðing sinn hafa fengið löggiltan aðila til að leiðrétta skekkj- urnar og því væri sannað að allan vilja til ætlaðs brots hefði vantað. Einnig benti hann á að RLR hefði staðfest að innsigli hefði verið óroflð. Bjarni sagði að ekki stæði steinn yflr steini í ákærunni og taldi heppilegra að efnislegur sýknudómur yröi upp kveðinn í stað kröfu um frávísun. Ákæra á brauðfótum Hilmar Ingumundarson hrl., verj- andi mannsins sem setti ökumælinn í bílinn, sagði að um upphlaup hefði verið að ræða hjá ofangreindum eft- irlitsmanni og lögreglu. Ákæruna sagði hann vera á brauðfótum og að hluta til dellu. Hann sagði að skjól- stæðingur sinn hefði orðið fyrir slæmri reynslu er hann fór alsaklaus í gæsluvarðhald. „Það leikur enginn vafi á að mennirnir töldu sig í góðri trú vera að setja réttan mæli í bíl- inn,“ sagði Hilmar. Hann átaldi rannsókn málsins og benti á að eftir- litsmaður ökumæla hefði á tímabili tekið umræddan mæli inn í eigin bíl - hann hefði ekki farið í.bfl rann- sóknarlögreglunnar. Hilmar sagði að hugsanlegt væri að hinn opinberi starfsmaður hefði þar skipt á mælum og þannig „lætt því inn hjá lögreglu og ákæruvaldi" að um ólöglegan mæli væri að ræða - þess vegna hefði verið ákært. Hann undirstrikaði einnig að það væri algjörlega rangt í ákæruskjali að sannað væri að mönnunum hefði verið „fullkunnugt um að ökumælir og mælisdrif hefði verið ranglega útbúið“. Lögmenn beggja mannanna krefj- ast sýknu og að allur málskostnaður verði greiddur úr ríkissjóði þar með talin málsvarnarlaun. Hugsanlegt að draga þurfi úr þorskveiðum • *¥*•% • 71*^ nj • X!! -.1 «v* „Ef þorskgangan frá Grænlandi tfl aö veidd veröi 240 þúsund tonn mjög lítil á þessu ári þar sem ár- bregst er nokkuö ljóst aö það verð- af þorski fyrstu átta mánuöi ársins gangamir frá 1986 og 1987 hafi ver- ur að draga úr veiðum. íslenskir og byggðust tiliögur stofnunarinn- ið mjög lélegír. fiskifræðingar munu funda með ár á því að þorskganga frá Græn- „Við höfum verið aö vonast eftir starfsfélögum sínum frá Dan- landi myndi skila sér. að seiði, sem rak héðan til Græn- mörku og Þýskalandi þann 20. Mjög treg veiði hefur verið þaö lands áríð 1984, muni koma til febrúar næstkomandi og upp úr því sem af er vetrarvertiðinni. Fiski- hrygningar upp að landinu í ár. Það ættu máhn að skýrast,“ segir Björn fræðíngar segja að það þurfi ekki sem af er vertíðinni hafa veiðst hér Ævar Steinarsson fiskifræðingur. að koma á óvart, þeir hafi veriö við land þrír þorskar, sem merktir Hafrannsóknastofnun hefur lagt búnir að spá því aö þorskveiði yrði voru við Grænland fyrir einu og hálfu ári, en það er mjög vafasamt að draga nokkrar ályktanir af því eöa slá því fóstu aö Grænlands- gangan sé að koma upp aö landinu enda er það alveg í það fyrsta að hún ætti að vera komin. Við fylgj- umst grannt með þessu og vonumst til að sjómenn láti okkur vita verði þeir varir við merkta þorska," seg- irBjörnÆvar -Jí.Mar Þrátt fyrir slæmár gæftir og heldur rýran afla hefur nokkuð borist á land af stórum þorski af línubátum á Breiðafirði. Enginn þó eins föngu- legur og sá sem áhöfnin á Þorsteini SH fékk á dögunum. Það var gol- þorskur af bestu gerð, 52 kíló að þyngd og lengdin 167 sentimetrar. Hann fór i vinnslu hjá Saltfisk- svinnslunni Nesver á Rifi. Það er umboðsmaður DV í Neshreppi utan Ennis, Lilja Guðmundsdóttir, sem stendur hjá þorskinum stóra en hor- aður erhann. DV-mynd Stefán Þór Hellissandi Brunamálastjóri: Brunamála- stof nun átti ekki aðhafaeftirlit með Krossanes- verksmiðjunni Gylfi Kristjánsson, DV, Akureyri: „Það er rangt að Brunamálastofn- un hafi átt aö hafa eldvarnareftirlit með Krossanesverksmiðjunni,“ seg- ir Bergsteinn Gizurarson bruna- málastjóri, en haft var eftir Tómasi Búa Böðvarssyni slökkviliðsstjóra á Akureyri í DV í gær að Brunamála- stofnun hefði átt að annast slíkt eftir- lit með verksmiðjunni á Akureyri „Samkvæmt lögum um bruna- varnir og brunamál frá 1982 segir að sveitarfélög: „.. .skuli halda uppi brunavörnum, þ.m.t. eldvarnareftir- lit í samræmi við kröfur sem nánar skal kveðið á um í reglugerð um brunavarnir og brunamál. Kostnað- ur greiðist úr sveitarsjóði...“ Aftur á móti ber að senda teikning- ar að stærra atvinnuhúsnæði til Brunamálastofnunar til samþykkt- ar, og það var gert í þessu tilfelli. Hinsvegar var ekki farið eftir þeim tekningum og þeim breytt,“ segir brunamálastjóri, og hann bætti því við að hann hafi alltaf haft mikið álit á Tómasi Búa Böðvarssyni slökkvfliðsstjóra á Akureyri og að eldvarnareftirlit þar væri í góðum höndum. „En það segir sig sjálft að ef stórhruni verður, þá er eitthvað sem hefur brugðist," sagði Berg- steinn. Akranes: Kennarar á skólabekk Sigurður Sverrisson, DV, Akranesú Hópur kennara úr Brekkubæjar- skóla á Akranesi og grunnskólanum i Borgarnesi hóf fyrir stuttu nám á fjóröu og jafnframt síðustu önn svo- kallaðs starfsleikninámskeiðs. Alls er um að ræða 24 kennara Brekk- ubæjarskóla og 12 frá Borgamesi. Við upphaf lokaannar námskeiðs- ins var efnt til tveggja daga fyrir- lestrahrinu hér á Akranesi í síðustu viku. Á meðal þess sem kennarar hlýddu á voru fjölmargir fyrirlestrar um efni tengt skólamálum.

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.