Dagblaðið Vísir - DV - 09.02.1991, Qupperneq 5

Dagblaðið Vísir - DV - 09.02.1991, Qupperneq 5
LAUGARDAGUR 9. FEBRÚAR 1991. .5 Fréttir Frumvarpsdrög um nýskipan lyfjamála: Lyfjakostnaður lækki um 5 til 10 prósent Guðmundur Bjarnason heilbrigð- isráðherra kynnti á blaðamanna- fundi í gær nýtt frumvarp til lyfja- laga sem hann hyggst leggja fram á Alþingi á næstunni. í frumvarpinu er lagt til að stofnuð verði lyfjastofn- un ríkisins er annist stjórn lyfjamála í umboði ráðherra en sérstök stjórn beri rekstrarlega ábyrgð á stofnun- inni. Lyfjastofnuninni er ætlað að hafa yfirsýn yfir fjár- og lyfjastreymi á markaðinum og hafa sérstakt eftirlit með verði og verðmyndun á lyfjum. Lagt er til að starfsemi Lyfsölusjóðs og Lyfjaverðlagsnefndar verði lögð niður og að lyfjamáladeild ráðuneyt- isins, Lyfjaeftirht ríkisins og Lyfla- nefnd sameinist í nýju stofnuninni. í frumvarpinu er lítið hróflað við lyfjaheildsölukerfinu en aftur á móti lagt til að lyfjastofnunin annist útboð og samninga vegna lyfjakaupa í heildsölu. Er stofnuninni ætlað að semja um verð, afhendingu, birgða- hald og dreifingu til þeirra aðila sem afhenda lyf til neytenda. Að sögn Guðmundar Bjarnasonar mun lyfjastofnunin leita að sem hag- stæðustum kjörum á lyfjum á al- þjóðlegum markaði og kaupa þau þar sem þau bjóðast ódýrust. Hann segir einkaleyfi umboðsmanna á tiltekn- um vörumerkjum ekki vera neina hindrun í þessu sambandi. Hann seg- ir einnig að þeim lyfjategundum fari Qölgandi sem ekki eru varin með einkaleyfum einstakra framleið- enda; eftirlíkingalyfjum fari fjölg- andi og að meðal framleiðenda sé mikil verðsamkeppni. í frumvarpinu er gert ráð fyrir að apótekurum og öðrum lyfjadreifend- um verði greidd ákveðin þóknun fyr- ir dreifinguna í stað þess álagningar- kerfis sem nú er. Meö þessu er talið að draga megi úr því beina sambandi sem er milli lyflaverðs og afkomu apóteka, bæta hag litlu apótekanna úti á landsbyggðinni og draga úr hagnaði hinna stærri. Guðmundur segir að hugmyndin sé að þóknunin verði aö hluta til fast afgreiðslugjald, sem allir lyfsalar fái, en að hluta til lág og stiglækkandi álagning. Hann segir að ákvörðun þóknunar verði samningsatriði milli Tryggingastofnunar og lyfjadreif- enda, eins og tíðkast hjá öðrum heil- brigðisstéttum, og rísi ágreiningur verði úr honum skorið í gerðardómi. Auk þessa gera frumvarpsdrögin ráö fyrir að ráðherra geti heimilað sjúkrahúsum og heilsugæslustöðv- um að annast afhendingu lyfja til almennings. Hvað varðar útfærslu á þessu kvað Guðmundur engar ákvarðanir hafa verið teknar. Aðspurður kvaðst Guðmundur bú- ast við að þessi nýskipan lyfjamála gæti leitt til 5 til 10 prósent sparnað- ar fyrir ríkissjóð. Hann kvað hins vegar enga tölulega úttekt hafa verið gerða á hugsanlegum sparnaði vegna þessa hér á landi en sagði að í öðrum löndum, þar sem þéssi leið hefði ver- ið farin, hefði náðst allt að 15 prósent sparnaður. Þess má geta að á síðasta ári var lyQakostnaður ríkisins hátt í fimm milljarðar. Gangi væntingar ráð- herrans eftir má því búast við að útgjöld ríkisins vegna þessa lækki um250til500milljóniráári. -kaa <n> VERÐBRÉFAMARKAÐUR FJÁRFESTINGARFÉLAGSINS HF HAFNARSTRÆTI 7, 101 REYKJAVÍK, S. (91) 28566 KRINGLUNNI 8-12, 103 REYKJAVÍK, S. (91) 689700 RÁÐHÚSTORGI 3. 600 AKUREYRI S. (96) 11100 íifLÍF Sameinaða líftryggingarfélagið hf Kringlunni 5 • 103 Reykjavík Sími 91-692500 Með Lífsvemd slærð þú tvær flugur í einu höggi. Þú getur hlíft ástvinum þínum við fjárhagslegum skakkaföllum, en um leið ávaxtað þitt pund og safhað í varasjóð sem getur komið að 'drjúgum notum síðar á Kfsleiðinni. Því Lífsvemd er hvort tveggja líftrygging og hentug leið til spamaðar. Þú kýst þér líftryggingu sem nemur þremur milljónum króna, svo dæmi sé tekið. Sú upphæð óskert getur tryggt fjárhagsafkomu ástvina þinna við fráfall þitt. Jafnframt sparar þú ákveðna fjárhæð í hverjum mánuði. Tíminn vinnur með þér og líftryggingin lækkar með hverju ári en að sama skapi vex sjóðurinn þinn og dafnar. Að endingu áttu auk verðbóta þrjár milljónir í handraðanum, lífeyri sem þú getur sjálf ráðstafað að vild. Framtíðin er í þínum höndum. Ávinningurinn er öryggi, þitt eigið og þinna nánusm. Eignaraðilar Sameinaða líftryggingarfélagsins eru: © TRYGGINGAMIÐSTODIN HE AÐALSTRÆTI 6 1P1 REYKJAVÍK SIMI 91-26466 SJOVAuloALMENNAR Kringlunni 5, aími 91-692500

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.