Dagblaðið Vísir - DV - 09.02.1991, Page 15

Dagblaðið Vísir - DV - 09.02.1991, Page 15
15 LAUGARDAGUR 9. FEBRÚAR 1991. I krafti valdsins Eg var aö horfa á hann Össur Skarphéðinsson í sjónvarpinu, daginn eftir prófkjörið í Alþýðu- flokknum. Hann var sigurreifur og glaðhlakkalegur eins og vera bar eftir að hafa náð kosningu í þriðja sæti á kratalistanum í Reykjavík. Þriðja sætið ætti að gefa honum þingsæti í alþingiskosningunum ef allt fer eftir bókinni. Þar með er Össur kominn til valda í pólitík- inni, sestur á þing og ekki lengur utangarðsmaður í Birtingu. Það er ástæða til að gleðjast. Eða hvað? Össur er ekki einn um það að sækjast eftir völdum. Völdin seiða til sín og eru aflið í stjórnmálunum, aflið í peningunum, ail metnaðar og framapots á hinum ýmsu svið- um þjóðlífsins. Jafnvel strax í framhaldsskólunum keppa menn um embætti og virðingarstöður af jafn miklu kappi eins og um for- setastól iýðveldisins sé að ræða. Og skal ekki gert lítið úr því. Heil- brigður metnaður er af hinu góða, forysta í félagsmálum þroskar ein- staklinginn og ábyrgð er liður í uppeldinu. En meðan skólalífið og skólafé- lögin eru eins konar æfingavöllur fyrir ungæðisiega útrás framans og kemur engu illu til leiðar, kárn- ar óneitaniega gamanið þegar þessi sama æska verður fullorðin og sækist eftir alvöruvöldum. Þar er enginn sandkassi til að leika sér í og þar er ekkert elsku mamma þeg- ar kjötkatlarnir eru annars vegar. Við horfum upp á ágætis fólk breyt- ast í hálfgerð villidýr, virðulega þingmenn berjast með klóm og kjafti fyrir sætum sínum og við- skiptaforkólfa svífast einskis gagn- vart keppinautum sínum. Þar er enginn annars bróðir í leik. Valdafíknin Allt er þetta valdanna vegna. Völd til að ráðskast meö annarra manna líf. Völd til að stjórna, völd til að segja fyrir verkum, drottna, ráða. Við þekkjum þetta úr íslands- sögunni þar sem hver kynslóð valdamanna og stjórnmálamanna hefur tekið við af annarri til að hafa vit fyrir þjóðinni. Við þekkjum þetta úr mannkynssögunni þar sem hver idealisminn hefur tekið við af öðrum til að hafa vit fyrir lýðnum. Konungarnir fengu vald sitt frá guði, keisararnir fengu vald sitt frá heimsveldinu, kommún- isminn fékk vald sitt frá öreigun- um. ■ I Islandi hafa stjórnmálaflokk- arnir lengst af litið á vöid sín til þess að hafa völdin af fólkinu. Allt frá ríkiseinokun til ráðningar minnstu embætta. Og enn erum við meira og minna við sama hey- garðshornið. Pólitíkusarnir vilja stjórna vöxtunum, lánunum, kvót- unum, bjórnum, hundunum og sjónvarpinu. Þeir vilja ráða út- flutningnum, samgöngunum, at- kvæðunum, tannréttingunum. Þeim er ekkert óviðkomandi enda líta þeir svo á að kjör þeirra til áhrifa jafngildi kosningu til yfir- ráða. Það eru ekki bara stjórnmála- mennirnir sem misnota vald sitt. Vald peninganna, eignanna og vopnanha seilist til vaxandi áhrifa. Peningarnir eru afl þeirra hluta sem gera skal, segja vísir menn og fara sínu fram í krafti þeirra. Þau völd eru lævís en að sama skapi lipur til þeirra freistinga sem fylgir völdunum. Og vopnunum. Völd eru vandi Valdafíknin fer ekki í maringrein- arálit. Hún herjar á stóra jafnt sem litla, feita sem granna. Á götu úti gengurðu fram á meinleysislegan mann í síðum frakka og látleysið uppmálað. Þessi sami maður er kannski að berjast um forstjóra- starf í ríkisstofnun. Þú hittir feit- laginn mann um fertugt, sem þú manst eftir úr barnaskóla og aldrei gerði flugu mein o‘g þér er sagt að hann gangi með þingmanninn í maganum. Háværi maðurinn á bjórkránni er kannski hreppstjóri að austan, maðurinn í næsta húsi er í framboði í þjónustuklúbbi, fjar- skyldur ættingi er orðinn forstjóri i fjárfestingarfélagi, pörupilturinn dubbaður upp Sem verkstjóri og stelpan, sem þú passaðir um árið, er allt í einu kosin formaður í mál- fundafélaginu. Allir eru að gera það gott í einu eða öðru valdapoti. Nú er ekki sanngjarnt að halda því fram að völd séu öll af hinu illa. Völd eru spennandi og ögrandi meðal annars af því að mörgú góðu er unnt að koma til leiðar í krafti þeirra. Völd eru virðing, völd eru vandi og í þeim felst ábyrgð sem einhver verður að axla. Það er stjórnlaust ríki þar sem enginn vildi taka á sig ábyrgðina og allir vísuðu henni á bug. Þess vegna er Össur og allir hinir frambjóðend- urnir og forstjórarnir nauðsynlegir einstaklingar, meðan þjóðfélagið Laugardags- pistill Ellert B. Schram gerir ráð fyrir að einhveijir gangi fram fyrir skjöldu og séu settir ofar öðrum. En um leið og ég segi að völd séu vandi þá er vandinn fólgin í því að misnota eþki vaidið. Ganga ekki valdafíkninni á hönd, fíknar- innar og valdanna vegna. Það er nefnilega heilmikið til í því forna spakmæli: mikil völd spilla mikið. Algjör völd spilla al- gjörlega. Hvað er það sem rekur fólk til framans? Óg hvers vegna hlýtur það frama? Hæfileikar segja sumir, stjörnumerkin segja aðrir. Og svo má ekki gleyma hégómanum, þessu yndislega snobbi sem tylhr mönnum á tá og vex þeim yfir höf- uð: Vertu formaður, segja félags- mennimir og þá er þér borgið. Vertu oddviti, segja bændurnir og þá kemstu í annála. Vertu eitthvað, segja foreldrarnir við börnin sín og þá hefur ræst úr þeim. Hégóminn er fólginn í ytra útliti, yfirborðinu. Hann er sýndar- mennskan, sjóbisnissinn, sigur- brosið þegar metorðin em í höfn og tildrið er komið á sinn stað. Hégóminn er klæðskerasaumað gervi fyrir litla karla htiha sanda og sæva og hann er haldreipi gagn- vart minnimáttarkennd. Hégóm- inn er besta sjálfsblekkingin, því þá getur maður falið sjálfan sig á bak við titla og metorð og áunnið sér ímynd, sem skyggir á smæðina. Geðsjúkur einræðisherra Ég hef verið hugsa um valdið, undanfarna daga, orsakir þess og afleiðingar, ekki síst í ljósi atburð- anna við Persaílóa. Þar hefur einn maður hrifsað til sín völd og þau völd hefur hann notfært sér til að hrinda af stað stríði. Hann hefur upp á eigin spýtur ógnað heims- byggðinni, spillt friðnum og leitt þjóð sína th slátrunar. Saddam Hussein ber ábyrgð á því stríði sem nú er háð við Persafló- ann. Hann einn tók um þaö ákvörð- un að innlima Kúvæt sem hérað undir sinni stjórn og það var hann einn sem stóð gegn Sameinuðu þjóðunum og áskorunum þeirra um friðsamlega lausn deilunnar. Þetta gerir hann í skjóli valdsins sem hann hefur tekið sér í írak. Saddam Hussein hefur aldrei veriö kosinn til forystu, honum hefur ekki verið falið alræðisvald og hann hefur ekki fengið umboð frá einum né neinum til landvinninga eða stríðsátaka. Samt er þessi mað- ur að setja allt á annan endann og telur sig hafa vald yfir lífi og dauða mhljóna manna. Ferhl Saddams Hussein er blóði drifinn. Hann gat sér fyrst orð fyr- ir morðtilraun á þáverandi hæst- ráðanda írak. Hann notaði öfga- flokk til að klifra til áhrifa í stjórn- málum og skaut síðén samheija sína til að útrýma samkeppni gegn sjálfum sér. Hann skýtur ennþá samherja sína til bana, ef þeir mót- mæla honum, hann beitir efna- vopnum og sinnepsgasi gegn Kúrd- um og lætur þjóð sína thbiðja sig með auðmýkt. Allt í krafti vald- anna. Því er haldið fram að Saddam Hussein sé phsykopat, geðsjúkur ofstækismaður. Margt bendir þó th að kænska hans sé meiri en geð- veikin og víst hefur hann haft vit á því að safna í vopnabúr sitt her- tólum og hergögnum með góðri aðstoð þeirra ríkja sem helst áttu að varast hann. Saddam Hussein hefur byggt upp fjórða stærsta og öflugasta her heimsins og það þarf engum að koma á óvart þótt sá her sé ekki yfirbugaður á einni nóttu. En í hvaða tilgangi skyldi þessi stríðsandi hvha yfir vötnum íraks? Hví skyldi fimmtán mhljón manna þjóð þurfa á mihjón manna her að halda? Ekki er það til varna því enginn hafði hótaö árásum á írak. Ekki er það til að vernda þjóðina gegn uppreisnaröflum því öll mót- spyrna hefur verið brotin á bak aftur. Nei, herstyrkur Saddams Hussein á sér aðeins eina skýringu og hana er að finna í hans eigin valdafíkn. Ná völdum, halda völd- um, auka völdin. Samviskulaus Saddam Hussein er ekki geðveik- ari en hver annar einræðisherra sem uppi er og uppi hefur verið í aldanna rás. Geðveiki þessara manna er fólgin í hégómanum, fíkninni, óstöðvandi þörf fyrir að drottna og ráða yfir öðrum. Sú geð- veiki virðist ekki eiga sér nein tak- mörk. Við getum rakið slóðina allt frá Genghis Kan, Alexander mikla, Rómarkeisurum, konungum og keisarum miðaldanna, Napóleon, Stalín, Hitler, Saddam Hussein. Fyrir utan þann aragrúa einræðis- herra af smærri gerðinni: Papa Doc, Ceausesco, Khomeni, Bo- kassa, Idi Amin, Hoxa, Suharto, Castro. Upptalningin er endalaus röð af valdasjúkum og geðbiluðum einstaklingum, sem hafa hrifsað til sín völd, kúgað þjóð sína og eldað grátt silfur viö nágrannaþjóðir og umheiminn. Virt mannréttindi einskis, drepið að vild og taliö sjálf- um sér trú um að eigin yfirráö væru þegnunum fyrir bestu. Hvað heyrum við ekki frá Bagdad þessa dagana? Er ekki Saddam Hussein að segja þjóð sinni og öör- um að hann sé að berjast fyrir foð- urlandið! Að framtíðin sé undir því komin að synir, feður og bræður grípi til vopna og deyi fyrir mál- staðinn! Að stríðið sé háð fyrir Ahah, múslima og hehl araba! Hvaðan kemur honum þessi vitn- eskja? Hver hefur ákveðið að írak sé vettvangur þessa hildarleiks? Eru foreldrar barnanna sem farast í sprengjuárásunum spurðir? Eru hermennimir spurðir? Hefur nokkur verið spurður nema þá aö Saddam Hussein hafi spurt sig sjálfan? Manni er það th efs. Ein- ræðisherrann í Bagdad hefur það ekki á samviskunni að hafa sam- visku. Það eitt er víst. Völd eru th ýmissa hluta brúkleg. Sjálfsagt sækjast flestir eftir þeim til að láta gott af sér leiða. Og sum- um tekst það. En við eigum samt að gæta okkar á valdamönnum, við gerum aldrei of mikið að því að skerða völd og skerða leiðina th þeirra. Það sannar sagan með öll- um þeim geðbiluðu einræðisherr- um sem hafa trónað á valdastólum sér og öðrum th tortímingar. Ellert B. Schram

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.