Dagblaðið Vísir - DV - 09.02.1991, Qupperneq 43
LAUGARDAGUR 9. FEBRÚAR 1991.
DV
Vísnaþáttur
Skáld er
kvaddi snemma
Vísnaþáttur
Þegar sá er þessum þætti stýrir var
ungur maöur á árunum fyrir 1940
og var farinn að láta til sín heyra
meö ljóð sín á opinberum vettvangi
hlaut athygli hans ósjálfrátt að
beinast að jafnöldrunum sem efn-
ilegir þóttu. Meðal þeirra var
bóndasonur á Draghálsi í Borgar-
firði sem Pétur hét Beinteinsson.
Hann var raunar nokkru eldri en
þeir, sem helst bar á í okkar hópi,
fæddur 1906, og hafði lokið prófi á
bændaskóla, kannski hlédrægari
en sumir okkar hinna. En tveir vin-
sælustu útvarpsmennirnir okkar á
þeirri tíð og síðar, Vilhjálmur Þ.
og Jón Eyþórsson lásu upp eftir
hann kvæði í útvarpið og vinsælt
tímarit birti efni eftir hann. Sú saga
gekk staflaust að þótt foreldrar
hans væru fátækir ættu þeir þvi
láni að fagna að í barnahópi þeirra
yxu upp mörg skáldaefni. Það þótti
lukka á þeirri tíð.
En bhku hafði brugðið á loft, Pét-
ur, sem ætlaði sér að verða nýtur
maður, bæði sem skáld og bóndi,
hafði nú veikst af berklum og lá á
Vífilsstöðum. Sá er þetta ritar var
um þetta leyti orðinn ritstjóri og
lesendur vildu frétta af þessu unga
skáldi. Ég gerði mér ferð til hælis-
ins, hafði frétt að Pétri væri heldur
að skána. En því miður, enn gat
brugðið til beggja vona. Þótt hann
tæki komu minni af fullri háttvisi
fór ég erindisleysu en að sjálfsögðu
var mér þessi ferð minnisstæð.
Berklaveikin var að vísu heldur á
undanhaldi á þessum árum en þó
ekki með öllu sigruð. Pétur hafði
háð sitt stríð í nokkur ár, hatnað
um stund, en síðan harðnaði hríðin
uns yfir lauk.
Tvær bækur komu út eftir Pétur.
Vinir hans og frændlið stóð að út-
gáfu þeirra. Hann féll sjálfur frá
2. ág. 1942. Vinur hans og sveit-
ungi, Jón Helgason ritstjóri og síð-
ar kunnur rithöfundur, valdi efni
í fyrri bókina. Hún kom út 1951.
Seinni bókin kom 1985, bróðir hans,
Sveinbjörn, skáld og allsherjar-
goði, valdi efni í hana. Mikið mun
óbirt.
í formála fyrir fyrri bókinni birti
Jón Helgason eftirfarandi fjórar
vísur Péturs. Þær lýsa ugg hans
sem ekki reyndist ástæðulaus.
Ef þetta eitt, að þrá og dreyma
er það, sem býðst og koma skal,
þá vil ég biöja guð að geyma
minn gamla, kæra bemskudal.
Hann bauð mér eins og barni í
vonum
þann besta feng, sem lífið á.
Nú blikar ástin yfir honum
sem óbyrjunnar dæmda þrá.
Svo þannig fór um þennan vinn-
ing. N
í þögn og myrkri lífið dvín.
Þar vakir alein endurminning,
sem ýfir brunasárin mín.
Nú þrýtur mig að þrá og deyma,
svo það er ljóst, hvað koma skal.
Ég bið því mína gröf að geyma
minn gamla, kæra bernskudal.
Jón Helgason bætti við: „í honum
blandast saman á eftirtektarverðan
hátt gamalt og nýtt. Hann var fram-
faramaður um allt sem að haldi
mátti koma til styrktar þeirri stétt
sem hann var kominna af... Mað-
ur í hærra lagi, grannur, dökkur á
hár, augun skær,... alvörugefinn,
fáskiptinn, lá lágt rómur, en mikill
þungi í orðum hans.“
Úr bókum Péturs tek ég eftirfar-
andi vísur án þess að tilgreina nán-
ar hvort þær eru þar stakar eða
úr kvæðum:
1.
Einum lífið ástar gaf,
öðrum ljóð á munni.
Báðir njóta ylsins af
endurminningunni.
Hljóðu kvöldin sefa sorg,
sólir niður stara.
Góðu völdin tímans torg
töfrakliði fara.
3.
Mamma, ég hef margt að tjá,
minningarnar skína
líkt og sólarsindur á
sorgargöngu mína.
4.
Dauðabróður geislaglans
glapti, og hljóð mér barst frá
runni.
Var það óður andvarans
eða Ijóð af þrastar munni?
5.
Ég hef oft um æviskeið
átt við rammagaldur,
hef þó staulast hálfa leið
heim á sjötugsaldur.
6.
Geislasindur sunnan fer,
svalir vindar norðan anda.
Dyggð og synd í sálu mér
sömu lyndisþáttum blanda.
7.
Að láta kvíðann bak sitt beygja
er banasök og erfðasmán,
því eins og flestar sagnir segja
er sigurvissan ferðalán.
8.
Hví ættum við aö glúpna og gráta,
ef ganga manns um dauðans hlið
er aðeins þögul eðhsgáta
sem öllum ber að glíma við?
9.
Og aldrei hafa harmatölur
að hetju þeirri manninn gert,
sem leggur allt sitt afl í sölur
þess eina, sem er nokkurs vert.
10.
Hlýrnisbrár viö sólarsýn
sindri og tárum skarta.
Mun þá árið eiga sín
ástasár við hjarta?
11.
Kemur vetur, húm og hel
hauðurs feta leiðir,
krapahret og hríðarél
hrannarsetrið greiðir.
12.
Grösin hýða í banabað
bylgjur tíðahylsins.
Berast lýða eyrum að
ómar hríðarbylsins.
13.
Loftið skeiða skýin grá,
skuggar leiðir fanga,
hríðin breiðir blæju á
blárra heiða vanga.
14.
Skuggar drynja vítt um völl
veðra dynja sköllin
líkt og hrynji ofan öll
ísi brynjuð fjöllin.
15.
Hvergi vægin Ránar röst
rífur, fægir drangann.
Hávær Ægis iðuköst
ymja daginn langan.
16..
Úti kyrrt, og allt er rótt
eins og fyrr að líta.
En yfir Bláfjöll breiddi í nótt
blærinn línið hvíta.
Hér nemum við staðar.
Jón úr Vör
MVARAKEPPMN
F M 957 OG ÖLVER
ÞAÐ LEYNIST SÖNGVARI
í OKKUR ÖLLUM
...og nú er tœkifœrí til oð slá ígegn.
Mibvikudagirm 13. feb hefst KARAOKE SÖNGVARAKEPPNIN á útvarpsstöbinni FM
957 og veitmgahúsinu OLVERI í Giœsibœ. Allir geta verib meb sem náb hafa 18 ára
aldri. Glœsilegir vinningar eru í bobi og veitt verba sérstök aukaverblaun fyrir bestu
svibsframkomuna á úrslitakvöldinu.
VERÐLAUN
l. VERÐLAUN Fer& fyrir 2 til Glasgow á Karaoke keppni með ferðaskr.st. Alís. Pioneer hljómtaekiasamstæða frá Hljómbæ.
2. VERÐLAUN 21" Elektratec sjónvarpstæki frá Frístund.
3. VERÐLAUN Elektratec videótæki frá Frístund.
Skrábu þig til þátttöku og fábu nánari upplýsingar um keppnina á útvarpsstöbinni
FM 957 s: 64 2000 eba í ÖLVERI.
Ab hika er sama og tapa, vertu meb því þú átt möguleika.
FM#957
55
Veður
Á sunnudag verða suðaustan skúrir eða slydduél og
frostlaust sunnanlands og vestan en hægviðri, létt-
skýjað og vægt frost um norðan- og austanvert
landið.
Akureyri
Egilsstaðir
Hjarðarnes
Galtarviti
Keflavikurflugvöllur
Kirkjubæjarklaustur
Raufarhöfn
Reykjavik
Vestmannaeyjar
Bergen
Helsinki
Kaupmannahöfn
Ósló
Stokkhólmur
Þórshöfn
Amsterdam
Barcelona
Berlin
Feneyjar
Frankfurt
Glasgow
Hamborg
London
LosAngeles
Madrid
Malaga
Mallorca
Montreal
Nuuk
Paris
Róm
Valencia
Vin
Winnipeg
hálfskýjað
hálfskýjað
úrkoma
skýjað
skúr
haglél
skýjað
þokumóða
úrkoma
léttskýjað
þokumóða
snjókoma
skýjað
snjókoma
skúr
snjókoma
léttskýjað
snjókoma
þokumóða
snjókoma
snjókoma
mistur
snjókoma
þoka
skýjað
léttskýjað
skýjað
hálfskýjað
skýjað
heiðskirt
skýjað
léttskýjað
snjókoma
léttskýjað
2
4
4
6
4
2
2
4
5
2
-8
-3
-8
-4
3
-5
13
-6
0
1
-5
-3
12
8
15
14
0
-9
-5
13
12
-3
0
Gengið
Gengisskráning nr. 27. - 8. febr. 1991 kl. 9.15
Einingkl. 12.00 Kaup Sala Tollgengi
Dollar 53,670 53,830 54,690
Pund 106,763 107,081 107,354
Kan. dollar 46,301 46,439 47,027
Dönsk kr. 9,5711 9,5996 9,5553
Norsk kr. 9,4059 9.4339 9,4034
Sænsk kr. • 9,7992 9,8284 9,8416
Fi. mark 15,1290 15,1741 15,1896
Fra. franki 10,8227 10,8550 10,8260
Belg. franki 1,7905 1,7958 1,7858
Sviss. franki 43,2056 43,3344 43,4134
Holl. gyllini 32,7047 32,8022 32,6361
Þýskt mark 36,8423 36,9521 36,8023
it. líra 0,04903 0,04918 0,04896
Aust. sch. 5,2399 5,2556 5,2287
Port. escudo 0,4172 0,4184 0,4153
Spá. peseti 0,5865 0,5883 0,5855
Jap. yen 0,41956 0,42081 0,41355
irskt pund 97,934 98,226 98,073
SDR 78,0582 78,2909 78,4823
ECU 75,7445 75,9703 75,7921
Símsvari vegna gengisskráningar 623270.
Fiskmarkaðimir
Fiskmarkaður Hafnarfjarðar
8. febrúar seldust alls 49,813 tonn.
Magn í Verð í krónum
tonnum Meöal Lægsta Hæsta
Gellur 0,033 302,00 302,00 302,00
Kinnar 0,021 104,33 100,00 107,00
Smár þorskur 2,303 95,00 95,00 95,00
Steinbitur 0,115 77,45 63,00 82,00
Keila 0,261 52,00 52,00 52,00
Langa.ósl. 0.053 81,00 81,00 81,00
Steinbítur, ósl. 0,109 71,00 71,00 71,00
Langa 0,121 81,00 81,00 81,00
Keila.ósl. 1,573 50,00 50,00 50,00
Ýsa 4,669 141,03 118,00 149,00
Þorskur 40,029 114,53 110,00 119,00
Lúöa 0,191 358,12 320,00 370,00
Hrogn 0,330 255,79 230,00 285,00
Faxamarkaður
8. febrúar seldust alls 53,876 tonn.
Blandað 0,356 35,00 35,00 35,00
Gellur G,i01 318,79 305,00 325,00
Hrogn 0,474 223,13 115,00 295,00
Karfi 0,203 61,07 50,00 64,00
Keila 2,244 53,25 35,00 55,00
Langa 0,529 76,85 76,00 87,00
Lúða 0,315 345,63 330,00 380,00
Skata 0,063 245,00 245,00 245,00
Skarkoli 0,141 95,00 95,00 95,00
Steinbítur 0,555 76,00 76,00 76,00
Þorskur, sl. 32,009 109,20 98,00 114,00
Þorskur, ósl. 9,694 108,28 108,00 109,00
Ufsi 0,083 47,00 47,00 47,00
Undirmál. 2,905 90,75 89,00 92,00
Ýsa.sl. 4,204 136,12 89,00 152,00
Fiskmarkaður Suðurnesja
8. febrúar seldust alls 9,181 tonn.
Þorskur.dbl. 1,395 87,00 87,00 87,00
Þorskur, Ibl. 1,375 117,00 117,00 117,00
Þorskur, ósl. 4,532 105,01 64,00 118.00
Ýsa, ósl. 0,396 124,97 92,00 134,00
Ýsa, sl. 0,049 122,00 122,00 122,00
Hlýr/steinb. 0,087 61,00 61,00 61,00
Blandað 0,022 53,00 53,00 53,00
Skata 0,022 53,00 53,00 53,00
Lúða 0,016 445,00 445,00 445,00
Karfi 0,096 53,08 50,00 54,00
Skarkoli 0,093 89,91 88,00 94,00
Gellur 0,023 265,00 265,00 265,00
Steinbítur 0,064 63,00 63,00 63.00
Langa 0,298 75,71 73,00 76,00
Keila 0,288 43,79 36,00 48,00
Blálanga 0,424 85,00 85,00 85,00
MARGFELDI 145
PÖNTUNARSÍMI ■ 653900