Dagblaðið Vísir - DV - 14.03.1991, Qupperneq 2
2
FIMMTUDAGUR 14.-MARS 1991.
Fréttir
DV
Stórbruni hjá Magnúsi Ingvarssyni, bónda á Geldingalæk:
Hugsaði fyrst og fremst
um að koma skepnum út
- fjárhús og hlaða með 7 þúsund böggum af heyi eyðilagðist
„Ég hélt fyrst aö þaö væri sinubruni
úti þegar ég varð var við reyk fyrir
utan. Það voru aðeins 20 mínútur frá
því að ég var í útihúsunum þannig
aö mér datt ekki í hug að það væri
eldur þar. Við vorum að fara niöur
á Hellu. En þegar ég kom út á hlaö
sá maður að þetta var eitthvað stað-
bundnara en sinubruni. Reykurinn
kom beint úr fjárhúsunum og hlöð-
unni,“ sagöi Magnús Ingvarsson,
bóndi á Geldingalæk í Rangárvalla-
hreppi, í samtali við DV í gær.
Stórhruni varð í útihúsum á bæn-
um í fyrrakvöld og var unnið við
slökkvistörf þar til skömmu fyrir
hádegi í gær. Mikið tjón varð á úti-
húsum og heyi í eldsvoðanum.
„Ég hljóp beint í að hleypa því fé
út sem lokað var inni en konan
hringdi á slökkvilið. Það hafðist að
hleypa öllu út, um 360 fjár. Sumt af
þessu var í opnu húsi en um 100
komst ekki út sjálft. Þegar ég kom
út var kominn ótrúlega mikill eldur
miðað við hve stutt var frá því ég var
úti síðast. Ég hefði ekki getað trúað
því. Rjárhúsið var nær alelda og mik-
ill eldur kominn í hlöðuna líka.
Skömmu síðar var þakið allt rauð-
glóandi að utan. Mér leið ekki vel.
Ég hugsaði samt fyrst og fremst um
að koma skepnunum út. Þegar ég var
að skoða hvað eldurinn væri mikill
komu slökkviliðsmenn. Þeir voru
snöggir á staðinn - aðeins um 20
mínútur. Þaö tók nokkra tíma að
hefta útbreiðslu eldsins, þetta eru
stórar byggingar sem liggja saman.
Síðan stóð slökkvistarf fram eftir
nóttu og morgni því eldurinn bloss-
aði sífellt upp í heyinu í hlöðunni,"
sagði Magnús.
Hlaðan, sem er stærst útihúsanna,
Á Geldingalæk eru um 360 fjár sem tókst að bjarga frá eldhafinu sem
gaus upp í fjárhúsunum og hlöðunni á skammri stundu.
Eitt fjárhúsanna eyðilagðist algjörlega i eldsvoðanum. Slökkviliðsmönnum tókst að hefta útbreiðslu eldsins að
þvi leyti að tvö samliggjandi fjárhús skemmdust minna. Á myndinni virða Magnús og faðir hans, Ingvar Magnús-
son, fyrir sér eyðilegginguna.
og eitt fjárhúsanna á Geldingalæk
eyðilögöust alveg í eldinum. Um 7000
heybaggar voru í hlöðunni. Tvö fjár-
hús skemmdust minna en engin tæki
urðu eldinum að bráö. Magnús sagði
að ekki hefði verið búið aðmeta tjón-
iö í gær. Tahð er að kviknaöi hafi í
út frá rafmagni. Magnús ætlar að
gera við hluta af fjárhúsunum og
getur hann þá sett féð í hús aftur.
Útihúsin á Geldingalæk eru bruna-
tryggðenekkiheyið. -ÓTT
Verjandi Steingríms Njálssonar 1 Sakadómi Reykjavikur í gær:
Ekki hægt að ákæra mann endalaust
- Hæstiréttur hafnaöi ekki alfariö kröfu um gæslu, sagði saksóknari
Hallvarður Einvarðsson ríkissaksóknari, til hægri, flutti sóknarræðu í máli
Steingrims Njálssonar í sakadómi í gær. Ragnar Aðalsteinsson, skipaður
verjandi Steingríms, krafðist frávísunar ákærunnar.
Frávísunarkrafa vegna ákæru á
hendur Steingrími Njálssyni var tek-
in fyrir í Sakadómi Reykjavíkur í
gær. Ragnar Aöalsteinsson, skipaöur
verjandi í málinu, krafðist frávísun-
ar á ákærunni sem ríkissaksóknari
gaf nýlega út á hendur Steingrími.
í ákæru er þess krafist að maður-
inn skuli sæta öryggisgæslu í ljósi
þess að hann á við áfengissýki að
striða auk þess sem hann hefur kyn-
ferðislega hneigð til ungra drengja
og talið er að hann muni hefja afbrot
á ný. Steingrímur var staddur í Fær-
eyjum í gær og var því ekki viðstadd-
ur þinghaldið í Sakadómi.
Er ekki sakborningur,
sagði verjandinn
Verjandi Steingríms vakti athygli
fjölskipaðs dóms á því að skjólstæö-
ingur hans væri ekki sakbomingur,
eins og sagt er í ákæru - hann væri
ekki borinn sökum um refsiveröa
háttsemi. Ragnar sagði skilyrði því
í dómsalnum
Óttar H. Sveinsson
eKki vera fyrir hendi um að beita
lagaákvæði um aö svipta hann frelsi,
þar sem Steingrímur hefði ekki
framiö refsiverðan verknað undir
áhrifum áfengis:
„Þaö er ekki hægt að segja að mað-
urinn X hafi framið afbrot fullur fyr-
ir 20 árum og segja svo 40 árum
seinna að maðurinn sé drykkfelldur
af því hann hefur einhvern tíma ver-
ið þaö. Þessu lagaákvæði er aðeins
hægt að beita ef framið er afbrot
undir áhrifum áfengis. Þetta veit
ákæruvaldiö eins vel og verjand-
inn,“ sagði Ragnar.
Ekki hægt að
ákæra endalaust
Verjandinn sagði að aðstæður nú
til að krefjast öryggisgæslu yfir
Steingrími væru þær sömu og á síð-
asta ári. Hæstiréttur hafnaði þá
kröfu um gæslu yfir honum að lok-
inni fangelsisrefsingu á þeim for-
sendum aö ríkissaksóknari hefði
ekki tiltekið hvernig gæslunni skyldi
háttað.
„Það er ekki hægt að ákæra mann
endalaust og eyðileggja líf hans,“
sagði Ragnar. Verjandinn sagði að
lagaheimildir skorti til að svipta
skjólstæðing sinn frelsi. „Hann hefur
goldið keisaranum það sem keisar-
anum ber,“ sagði Ragnar.
Landbúnaðarráðherra
og sauðirnir
I lok ræðu sinnar gerði Ragnar
sakadómi grein fyrir tímafrekri
vinnu sinni í málinu og litlum fyrir-
vara með tilliti til málsvamarlauna.
Ragnar benti á að sakadómur mætti
að vissu leyti taka mið af nýútko-
minni gjaldskrá landbúnaðarráö-
herra, sem gerir ráð fyrir 50 prósent
hærri þóknun fyrir afgreiðslu mála,
ef sá sem bað um þjónustuna fær
hana á skömmum tíma. Amgrímur
ísberg dómsformaður svaraði því
hins vegar til að hlutverk sakadóms
væri nú eins og áður að skilja sauð-
ina frá höfrunum.
Hæstiréttur hafnaði ekki
efnislegri meðferð
Dómkröfur Hallvarðar Einvarðs-
sonar ríkissaksóknara em að frávís-
unarkröfu veijandans verði hafnaö
og máliö tekið til dómsmeðferðar. í
ræðu sinni sagðist Hallvarður mjög
ósammála verjanda. Varðandi það
að Hæstiréttur hefði fellt úr gildi
ákvæði sakadóms í nóvember um
öryggisgæslu yfir Steingrími sagði
Hallvarður:
„Samkvæmt mínum skilningi
hafnað Hæstiréttur ekki kröfunni
alfarið. Kröfunni var hins vegar vís-
að frá á þeim forsendum að ríkissak-
sóknari hefði ekki gert grein fyrir
meö hvaða hætti gæslan skyldi fara
fram. Hæstiréttur hafnaö því ekki
efnislegri meðferð málsins. Þetta
merkir því ekki að ekki megi ákæra
aftur,“ sagði Hallvarður.
Ríkissaksóknari sagðist hafa leitað
viðhorfa dómsmálaráðuneytisins
varðandi framkvæmd umræddrar
öryggisgæslu. Því væri búið að afla
nýrra gagna í máhnu frá því í nóv-
ember þegar Hæstiréttur kvað upp
dóm og hafnaði kröfu um slíkt. Hall-
varður sagði að í svari ráðuneytisins
frá í febrúar hefði komið fram að
ekki væru úrræði til vistunar manns
í öryggisgæslu væru ekki önnur en
í fangelsi. Ríkissaksóknari vék einn-
ig að hótunum Steingríms Njálssonr:
„Háttsemi þessa ógæfusama manns
er alvarlegt áhyggjuefni,1' sagði rík-
issaksóknari.
Seinheppinn afbrotamaður
Eftir ræðu Hallvarðs sagöi Ragnar
Aðalsteinsson að sömu upplýsingar
lægju fyrir í máhnu nú af hálfu
ákæruvaldsins og áður. Hann undir-
strikaði að skjólstæðingur sinn væri
ekki sökunautur og engar kærur
lægju fyrir á hendur honum. Ragnar
vakti ennfremur athygli á sein-
heppni Steingríms Njálssonar. Hann
var einu sinni dæmdur tvisvar fyrir
sama afbrotið, aleigan hans brann í
fangelsi og hann hefur líka fótbrotn-
að í fangelsi," sagði Ragnar. Niður-
staða í þessu máh mun Uggja fyrir í
Sakadómi Reykjavíkur á næstu dög-
um. Sakadómararnir sem skipa hinn
fjölskipaða dóm í málinu eru þeir
Amrímur ísberg, sem er dómsfor-
maöur, og meðdómaramir Helgi I.
Jónsson og Guðjón Marteinsson.
-ÓTT