Dagblaðið Vísir - DV - 14.03.1991, Blaðsíða 3
FIMMTUDAGUR 14. MÁRS 1991.
3
Fréttir
Fulltrúar fiskvinnslufólks um atvinnuskort á Seyðisfirði:
Vandinn er
heimatilbúinn
Öllu ílskvinnslufólki á Seyöisfiröi
hefur verið sagt upp störfum og mjög
erfitt atvinnuástand ríkir þar nú.
Fulltrúar fiskvinnslufólks á staönum
gengu á fund Steingríms Hermanns-
sonar forsætisráðherra og Halldórs
Ásgrímssonar sjávarútvegsráðherra
með eitt hundrað undirskriftir fisk-
vinnslufólks þar sem farið er fram á
að ríkisstjórnin tryggi rekstur fisk-
vinnslu á staðnum.
Sigurbjörg Jónsdóttir, einn fulltrúa
fiskvinnslufólksins, segir að vandi
- Seyðfirðinga sé heimatilbúinn. „Við
höfum kvóta og tvo togara en annar
togarinn landar ekki heima. Hinn
togarinn hefur landað á Seyðisfirði
en hann á núna söluferðir í mars og
aprO. Hann verður aö nýta það til
að fá aftur sölu seinni part árs. Þann-
ig að við erum algerlega stopp á
meðan."
Sigurbjörg segir aö það eina sem
geti bjargað atvinnuástandinu núna
sé að kaupa fisk af mörkuðum í
Reykjavík. „En það gengur náttúr-
lega ekki til lengdar."
Fulltrúar fiskvinnslufólksins fóru
fram á það við ráðherrana að þeir
reyndu að ná sáttum á Seyðisfirði.
„Við getum ekki ætlast til að fá neina
aöra fyrirgreiðslu því að við erum
með það mikinn afla sem við eigum
að geta nýtt heima fyrir. En það er
tómt mál að tala um að heimamenn
reyni að ná sáttum viö útgerðar-
mennina vegna þess að þetta er orð-
inn svo mikill hnútur. Það er ekki
fyrir heimamenn að höggva á hann,“
segir Sigurbjörg.
-ns
Hendur eru oft á lofti í þinghúsinu þessa siðustu sólarhringana fyrir þinglok. Hér greiða atkvæði ráðherrarnir Jón
Sigurðsson, Jón Baldvin Hannibalsson og Steingrímur Hermannsson og Karl Steinar Guðnason alþingismaður.
DV-mynd BG
Líflegar umræður um vaxtamál á þingi:
Bros Friðriks æsti
forsætisráðherra
Umræöur um vaxtamál í samein-
uöu þingi í fyrrakvöld voru með líf-
legra móti þar sem framíköll, bjöllu-
hljómur og áminningar þingforseta
settu verulegan svip á umræðuna.
Þingmenn Sjálfstæðisflokksins
höfðu óskað eftir umræðum um
skýrslu þá sem Seðlabankinn gerði
um lánskjör og vexti að beiðni við-
skiptaráðherra. Jón Sigurðsson
fylgdi skýrslunni stuttlega úr hlaði
og eftir það urðu.rúmlega þriggja
klukkustunda langar umræður.
Forsætisráðherra ítrekaði
hneykslan sína á svari Seðlabankans
við ósk ríkisstjórnarinnar um tiUög-
ur frá bankanum um leiðir til vaxta-
lækkunar. Sagði hann hneyksli að
Seðlabankinn teldi raunvaxtamun
verðtryggðra og óverðtryggðra lána
„vera í himnalagi“. Sagðist hann
ætla að beita sér fyrir því að bréfi
Seðlabankans yrði svarað af fullri
festu.
Brosað „of hátt“
Bros Friðrik Sophussonar truflaði
forsætisráöherra í ræðustól og brást
hann reiður við. Af framíköllum að
ráða virtist þingmaðurinn brosa „of
hátt“ og greip þingforseti fram í
umræðuna þegar „svefngalsinn"
virtist ætla að taka yfirhöndina.
Geir Haarde lofaði ræðu viðskipta-
ráðherra og að hann skyldi ekki fara
niður „á sama plan og forsætisráð-
herra".
Fjármálaráðherra fullyrti að
Seðlabankinn væri orðinn kosninga-
skrifstofa fyrir Sjálfstæðisflokkinn.
Um skýrslu Seðlabankans sagði
Ólafur Ragnar:
„Það er ekkert rökrétt efnahagslegt
samhengi í því sem sagt er. Það er
búið að breyta Seðlabankanum í póli-
tíska stofnun. Fjármálaráðherra fær
ekkert nýtt úr textunum þaðan sem
eru ekki annað en hugmyndafræði-
leg predikun sem hefur ekkert meö
hagstjórn að gera.“
Vegna stööugra framíkalla og
glettilegra athugasemda sagði þing-
forseti:
„Það er gleðidagur í dag vegna 75
ára afmælisdags Alþýðusambands-
ins. Ég ætla þó að biöja þingmenn
um að hafa hemil á gleði sinni yfir
þessum merka atburði og leyfa
ræðumönnum að tala.“
Tvískinnungur í stjórninni
Friðrik Sophusson íjallaði um það
sem hann kallaði tvískinnunginn í
ríkisstjórninni þar sem menn töluðu
í kross um vaxtamál. Spurði hann
hvort Jón Sigurðsson ætlaði ekki að
taka þátt í umræðunum og sýna lags-
mönnum sínum í ríkisstjórn fram á
út á hvað hlutimir ganga, að vextir
réðust af ákveönum lögmálum.
Skildi hann lítt í „geðleysi ráöherra
að sitja undir skömmum samráð-
herra sinna eins og dæmdur mað-
ur“. Beindi hann orðum sínum til
frænda síns forsætisráðherrans og
skildi ekki í því hvernig hann léti
hafa sig í að ráðast á Seðlabankann
eins og bankinn væri einhver sauma-
klúbbskerling úti í bæ.
Steingrímur J. Sigfússon endaði
umræðurnar á að efast stórlega um
faglegt hæfi og hlutlægni Seðlabank-
ans.
„Mistök Seðlabankans frá nóvemb-
er til desember geta ekki flokkast
öðruvísi en sem meiriháttar van-
hæfni. Mistökin leiddu til vitlausra
ákvarðana bankanna um vexti sem
við nú súpum seyðið af.“
Að þessu loknu hófust loks umræð-
ur um álmáliö.
-hlh
Madonna svefnsófinn
er fallegur svefnsófi úr ljósri furu. Fæst
með mism. áklæði, rúmfataskúffa.
B 85x200 / B 110x200,
kr. 26.850,-
Akita Futon
er tvibreiður, skemmtilegur svefnsófi, fæst
með mísmunandí áklæðí, rúmfataskúffa.
B 90x195 / B 130x195,
kr. 53.800,-
Rimíni svefnsófinn
er með góðri springdýnu og yfirdýna er
úr 100% bómull, rúmfataskúffa.
B 85x200 / B 110x200,
kr. 47.850,-
Góð greiðslukjör
In
&
ÍLDSHÖFÐA 20 -112 RVÍK - SÍMI91-681Í9
FYRIR
FERMINGUNA
Svefnsófar í
öllum stærðum og
gerðum