Dagblaðið Vísir - DV - 14.03.1991, Blaðsíða 9
FIMMTUDAGUR 14. MARS 1991.
9
Utlönd
Serbneski stjórnarandstöðuleiðtoginn Vuk Draskovic kyssir mynd af náms-
manninum Branivoje Milinovic sem lét lífið í átökum mótmælenda við lög-
regluna í Belgrad siðastliðinn laugardag. Simamynd Reuter
HEIMASTJÓRNARSAMTÖKIN
Heimastjórn -
vörn og jafnrétti byggðanna
Helstu áhersluatriði í stefnu Heimastjórnarsamtakanna:
1. Sjálfstæði íslendinga í eigin fullvalda landi án erlendrar íhlutunar og án aðildar
að Evrópubandalaginu.
2. Aukið lýðræði og jafnrétti. Valddreifíng frá miðstýrðu kerfi til fólksins. Öflugar
heimastjórnir byggðanna sem tryggi öllum landsmönnum jafnan rétt til aukinna
lífsgæða.
3. Byggðum verði úthlutað kvótum í landbúnaði og sjávarútvegi. Auðlindir íslend-
inga í höndum landsmanna sjálfra. Fjölþætt atvinnuuppbygging íslenskrar fram-
leiðslu, en ekki risaálver. Hreint land án rányrkju og mengunar.
4. Mannréttindi, jöfnuð þegnanna, bætt réttarkerfi og aukið lýðræði. Lágmarks-
laun, 75 þús. á mánuði, að raungildi, verði tryggð með löggjöf. Sömu laun gildi
fyrir konur og karla.
5. Skattkerfi þjóðarinnar jafni kjör fólks og byggða. Löggjöf um hámarksvexti gegn
okri í lánaviðskiptum. Fjármagnstekjur verði skattlagðar. Skattþrep verði fleiri
en eitt og matarskattar verði afnumdir.
Belgrad í Júgóslavíu:
Námsmenn hætta
mótmælaaðgerðum
- innanríkisráðherra Serbíu segir af sér
Námsmenn í Belgrad, sem er höf-
uðborg bæði Júgóslavíu og Serbíu,
stærsta júgóslavneska lýðveldisins,
hættu í nótt mótmælum sínum sem
staðið hafa í fimm daga, að því er
sagði í júgóslavneskum fjölmiðlum í
morgun. Þá höíðu námsmenn fengið
kröfur sínar um afsagnir innanríkis-
ráðherra Serbíu og fimm stjórnenda
sjónvarpsins í Belgrad uppfylltar
sem og lausn hundruð mótmælenda
sem handteknir voru síðastliðinn
laugardag.
Stjórnarandstöðukiðtoginn Vuk
Draskovic var einn þeirra sem látinn
var laus. Hann hvatti í gær til afsagn-
ar allra ráðherra serbneska lýðveld-
isins og til að kosningar yrðu haldn-
ar í lok þessa árs.
En útvarpið í Zagreb sagði náms-
menn hafa bundið enda á mótmælin
að beiðni leiðtoga Lýðræðisflokks-
ins, Zoran Djindjic, og leikarans
Branislav Lecic. Þeir óttuðust að
yfirvöld myndu nota mótmælaað-
gerðirnar sem átyllu til að berja nið-
ur alla mótspyrnu með vopnavaldi.
Yflrvöld í Júgóslavíu halda í dag fund
með yfirmönnum hersins. Júgóslav-
neski herinn, þar sem serbneskir
kommúnistar eru hæstráðandi, hef-
ur lagt fram tillögur til að sporna
gegn upplausn ríkisins. Óttast marg-
ir stjómarandstæðingar að verið sé
að undirbúa herlög í öllu landinu.
Serbía og Svartfjallaland eru einu
lýðveldin í Júgóslavíu þar sem
kommúnistar eru enn við völd.
Reuter
6. Breyttar kosningareglur, aukið valfrelsi kjósenda að velja þingmenn og fulltrúa
í sveitarstjórnir. Tryggja þarf frjálsan og jafnan rétt stjórnmálaafla að ríkis-
fjölmiðlunum.
7. Stofnun fríhafnar og skattfrjáls svæðis við alþjóðaflugvelli í landinu, sem geri
Island að alþjóðlegri viðskiptamiðstöð. Utanríkisþjónustan verði endurskoðuð.
8. Raforka frá hinu hringtengda flutningskerfi Landsvirkjunar verði seld við sama
verði um land allt. Landsvirkjun verði að jöfnu eign allrar þjóðarinnar.
9. Byggðunum verði tryggð aðstaða til að geyma og ávaxta eigið aflafé, svo sem
lífeyrissjóði og sparifé íbúanna. Stefnt verði að jöfnum lífeyrisréttindum allra
landsmanna.
10. Húsnæðislánakerfið hafi hliðsjón af kjörum fólks og tryggi verðmæti í kaupum
og endursölu fasteigna. Félagslegt íbúðakerfi verði aukið og búseturéttur tryggð-
ur.
11. Æskan og menntun hennar er framtíð þjóðarinnar. Tryggja skal velferð og að-
stæður ungs fólks til heilbrigðs lífs svo sem á sviði íþrótta- og félagsstarfs.
12 ferðaskrifstofur kynna þjónustu sína og sumaráætlun fyrir árið ’91
FERÐAVEISLA ’91
Farklúbbur Félags íslenskra ferðaskrifstofa
efnir til ferðakynningar í Kringlunni í dag
imilriTi
Urval/Utsýn
Ferðamiðstöðin Veröld
Ferðaskrifstofa Reykjavíkur <9
Guðmundur Jónasson GJ
Flugferðir Sólarflug
Ferðaskrifstofan Saga scga
Allir KVIKK veitingastaðirnir í
Kringlunni veita handhafa Farkorts
eða Gullkorts Visa 20% afslátt í til-
efni dagsins.
Samvinnuferðir-Landsýn
^ Atlantik
Ferðaskrifstofan Alís
Ferðaskrifstofa stúdenta
Ratvís
Land og saga
FERÐASKRIFSTOFAN
Kynning verður opin föstudag kl.
10-19 og laugardag kl. 10-16.
írska þjóðlagahljómsveitin „The
Mulligans" lætur í sér heyra.
GREIÐSLUKORT MEÐ FRIÐINDUM