Dagblaðið Vísir - DV - 14.03.1991, Blaðsíða 17
FIMMTUDAGUR 14. MARS 1991.
25
hér aðþrengdur af tveimur Stjörnumönnum,
sg Sigurði Bjarnasyni. DV-mynd Brynjar Gauti
lingum
[ilanogRoma
• Marco van Basten tryggði Hollend-
ingum nauman sigur á Möltubúum
með marki út vitaspyrnu.
íþróttir
Toppslagur 1. deildar að verða einvígi Vals og Víkings:
Valsmenn sigla
þöndum seglum
- mikil spenna þegar Valur tryggði sér mikilvægan sigur yfir Stjömunni, 20-24
Hraði, Kraftur og mikil spenna ein-
kenndu leik Vals og Stjörnunnar er
liðin mættust í úrslitakeppni 1. deild-
ar í Garðabæ í gærkvöldi. Valsmenn
sigruðu, 20-24. Leikur liðanna var
vel leikinn og bauð upp á allt það
besta í íslenskum handknattleik. Er
skammt var til leiksloka var staðan
jöfn, 20-20. Einar Þorvarðarson,
markvörður Vals, lokaði markinu og
lagði grunninn að sætum sigri.
Það var jafnræði meö liðunum í
fyrri hálíleik og staðan í leikhléi,
12-12. í síðari hálfleik náðu Garð-
bæingar yfirhöndinni, 16-13, en Vals-
menn voru ekki af baki dottnir og
af miklu harðfylgi náðu þeir að jafna,
16-16. Síðan var jafnt á ölium tölum
þar til staðan var 20-20, sem fyrr
sagöi. Stjörnumenn léku vel gegn Val
en ekkert lið leikur betur en and-
stæðingurinn leyfir. Leikmenn Vals
sýndu og sönnuðu að ekkert íslenskt
lið stenst þeim snúning þegar þeir
leika eins og þeir gerðu í gærkvöldi.
Góður leikur Stjörnumanna
þrátt fyrir ósigur
Stjörnumenn léku 6/0 vörn gegn Val
og varð vel ágengt. Leikmenn börð-
ust eins og þeir ættu lífið að leysa
og lögðu sig alla fram en andstæðing-
urinn var einfaldlega of sterkur.
Sóknarleikur liðsins var agaður allt
þar til fimm mínútur voru til leiks-
loka. Ótímabær skot og taugaveiklun
gerðu vonir Stjörnumanna að engu.
Sigurður Bjarnason lék vel en óagað-
ur leikur hans í lokin varð liðinu
dýrkeyptur. Axel Björnson var besti
leikmaður liðs síns og hefur vart
leikið betur fyrir lið sitt.
Valsmenn verða
vart stöðvaðir
Valsmenn sigla þöndum seglum að
íslandsmeistaratitli og verða vart
stöðvaðir. Sterkur varnarleikur
ásamt frábærri markvörslu lagði
grunninn að sigri Vals. Baráttuþrek
leikmanna var í hámarki og liðið
geislaði af leikgleði. Sóknarleikur
liðsins hikstaði á köflum en frábær-
lega útfærð hraðaupphlaup bættu
hann upp. Liðið leikur einfaldan en
árangursríkan handknattleik þar
sem hver einstaklingur hefur hlut-
verk. Hornamenn liðsins eru burðar-
ásar í sóknarleiknum og án þeirra
væri liðið fátækt. Jón Kristjánsson
lék afburðavel og Brynjar Harðarson
var drjúgur í restina.
Leikinn dæmdu Rögnvald Erlings-
son og Stefán Arnaldsson ágætlega.
• Mörk Stjörnunnar: Sigurður-
Bjarnason 5, Axel Björnson 5/1,
Magnús Sigurðsson 4/1, Patrekur
Jóhannesson 3, Hafsteinn Bragason
3, Hilmar Hjaltason 1.
• Mörk Vals: Brynjar Harðarson
7, Jón Kristjánsson 6, Valdimar
Grímsson 6/2, Jakob Sigurðsson 3,
Finnur Jóhannesson 2.
-GG
Útlending-
arnir unnu
Úrvalslið útlendingana í spánska handboltanum
höfðu betur gegn úrvalsliði Spánar í Zaragossa í
gærkvöldi. Útlendingamir skoruöu 30 mörk en
Spánverjarnir 25 eftir að staðan hafði verið 13-11
í leikhléi.
Þeir Geir Sveinsson og Alfreð Gíslason léku með
„útlendingahersveitinni" og áttu ágætan leik eins
og félagar þeirra. Alfreð skoraði 4 mörk í leiknum
en Geir 1 en markahæstur í hði útlendingana var
Júgóslavinn Portner með 6 mörk. í spánska hðinu
var Ruiz hjá Teka markahæstur með 5 mörk. -GH
• Alfreð Gislason.
Engar framlengingar á HM?
Svo gæti farið aö framlengingar verði aflagðar í leikjum liða í heims-
meistarakeppninni í knattspyrnu. Komin er fram tillaga þessa efhis
og er Svíinn Lars Arneson, sem situr i tækninefnd FIFA, sá sem fram
kom með hugmyndina. Hún verður rædd á fundi undirbúningsnefhd-
ar fyrir HM í Bandaríkjunum 3. maí nk, Gert er ráð fyrir í tillögunni
að gripið veröi til vítaspyrnukeppni strax eftir 90 mínútna leik.
Fleiri hugmyndir hafa koraið fram með það að markmiöi að gera
heirasraeistarakeppnina líflegri fyrir áhorfendur en eins og menn
muna voru margir leikir í síðustu keppni á Ítalíu frekar hægir og
viðburðasnauðir. Einnig hefur komið til tals að ef úrslitaleik lýkur
með jafntefli eftir 90 mínútui þá verði leikiö að nýju.
-SK
AIl England mótið í badminton:
Broddi stóð
ídanska
meistaranum
• Broddi Kristjánsson stóð
sig mjög vel á All England
stórmótinu í badminton,
sigraði þrjá andstæðinga
sína og veitti danska meist-
aranum nokkra keppni i
gær.
Broddi Kristjánsson, TBR, stóð sig mjög vel á AU England
stórmótinu í badminton sem nú stendur yflr. Broddi komst
í aðalkeppnina eftir sigur gegn Kanadamanni og tveimur
Dönum í undankeppninni og í gær lék hann gegn enn einum
Dananum og mátti þá játa sig sigraðan.
Broddi mætti danska meistaranum, Paul Erik Höje Larsen, sem er
með bestu badmintonleikurum heims í dag. Fyrri lota þeirra félaga
var ójöfn og tapaði Broddi henni, 5-15. í síðari lotunni stóð Broddi í
danska meistaranum og veitti honum verðuga keppni. Lauk lotunni
10-15 og þar með var Broddi úr leik. Danski meistarinn vann síðan
andstæðing sinn í næstu umferð og er kominn áfram í aðalkeppn-
inni. Frammistaða Brodda er glæsileg og sýnir svo ekki verður um
villst að íslenskir badmintonleikarar eiga fullt erindi á stórmót erlend-
is.
„Gamli“ maðurinn er enn í fínu formi
Morten Frost, frá Danmörku, sem íjórum sinnum hefur unnið All
England mótið, keppti í gær við Kerrin Harrison frá Nýja-Sjálandi og
sigraði örugglega, 15-3 og 15-3. FroSt verður 33 ára gamall í næsta
mánuði og á honum er greinilega engan bilbug að finna.
• Wu Wenkai, sem af mörgum er talinn sigurstrang-
legastur á All England mótinu að þessu sinni, vann
Danann Ib Fredriksen, sem sigraði á All England 1988,
15-9 og 15-4.
• Foo Kok Keong frá Malasíu, sem er þriðji á heims-
afrekalistanum, sigraði Danann Michael Sogaard
15-11 og 15-10.
-SK