Dagblaðið Vísir - DV - 09.04.1991, Side 1

Dagblaðið Vísir - DV - 09.04.1991, Side 1
Menntamálaráðuneytið dreifir 12 síðna kosningabækllngi í lit: Ný afrekaskrá Svavars kostar a aðra milljon - meðal annars dreift á framboðsfundum Alþýðubandalags - forsætisráðherra einnig með bækling - sjá bls. 2 —------ < T ♦ - 'AX ---------------------------------------------------------------------- ' Armenska konan á góð- um batavegi -sjábls.5 Úrslit Ford- keppninnar um helgina -sjábls.3 w & vfirlit ii<a urns.i ns^41)1 Hafskipsmál: Málflutning- ur í níu daga -sjábls.4 Kennedy eltistnakinn við þjónustu- stúlkur -sjábls.9 Utgefnir bæklingar frá ráðuneytunum, sem unnir eru af pólitískum starfsmönnum þeirra fyrir kosningar, verða alltaf fleiri. í kjölfar bæklings frá fjármála- ráðherra, heillar bókar frá samgönguráðherra, bæklings um LÍN og tveggja rándýrra auglýsingaherferða frá menntamálaráðherra hefur sá síðastnefndi sett afrekaskrá sína í umferð undir nafninu „Skilabréf ’91“. Forsætisráðherra lumar síðan á bæklingi um verk sín í tíð núverandi ríkisstjórnar. Saman- lagt nemur kostnaðurinn við þessa útgáfu, á kostnað skattborgaranna, vel á tólftu milljón króna. DV-mynd GVA Bein llna DV í kvöld: Steingrímur Hermannsson situr f yrir svörum Steingrímur Hermannsson. Steingrímur Hermannsson, for- maður Framsóknarflokksins, verður á beinni línu DV í kvöld. Steingrímur verður á ritstjórn DV klukkan 19.30-21.30 og mun þá svara fyrirspurnum lesenda sem hringa í síma 27022. Mikil þátttaka hefur verið á beinni línu DV þar sem lesendum býðst að leggja spurningar fyrir foringja stjórnmálaílokkanna. Brýnum við mjög fyrir lesendum að vera stuttorðir og gagnorðir þeg- ar þeir leggja spurningar fyrir Steingrím. Að öðrum kosti er hætta á að margir fyrirspyijendur komist ekki að. Mikilvægt er að hver hringjandi spyrji aðeins einnar spurningar í einum lið sem fjallað getur um stefnumál Framsóknar- flokksins og hræringarnar í pólit- íkinni í dag. Á beinni línu gefast oft tilefni til oröaskipta en hringj- endur eru vinsamlegast beðnir um að halda sig við spumingarnar. Steingrímur Hermannsson hefur leitt ríkisstjórn frá haustinu 1988 en frá kosningum 1987 til stjórnar- . slita 1988 var hann utanríkisráð- herra í stjórn Þorsteins Pálssonar. Auk forsætisráðuneytisins er sjáv- arútvegsráðuneyti og heilbrigðis- og tryggingaráðuneyti nú stjórnað af framsóknarráðherrum. Spurningar lesenda og svör Steingríms birtast í DV á morgun. -hlh

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.