Dagblaðið Vísir - DV - 09.04.1991, Side 12
12
ÞRIÐJUDAGUR 9. APRÍL 1991.
Spumingin
Gætir þú verið
án armbandsúrs?
Sigrún Halldórsdóttir kennari: Já,
svo sannarlega.
Skúli Hákonarson atvinnurekandi:
Já, ég gæti það alveg.
Ólöf Gestsdóttir húsm.: Nei alls ekki,
ég verð að geta fylgst með tímanum.
Hannes Jónsson iðnverkam.: Já, lík-
lega, ég myndi bara spyrja hvað
klukkan væri.
Pétur Ólafsson kennari: Nei, maður
verður að vita ’nvað tímanum líöur.
Benedikt Jónsson bílabóntæknir: Ég
hef verið án þess en þaö er ekki góð
tilfinning.
Lesendur
Rugluð eða afrugluð
frétl um Steingrím?
Magnús Sigurðsson skrifar:
í morgun (föstud. 5. apríl) vaknaði
ég eins og venjulega við útvarpsstöð-
ina Bylgjuna. Þar er við stjórn ein-
hver snjallasti útvarpsmaðurinn í
dag, Eiríkur Jónsson. Hann kom því
til skila til þjóðarinnar fljótlega upp
úr kl. 7 að í nýjasta tölubl. Frjálsrar
verslunar væri grein um að Stein-
grímur Hermannsson væri að hætta
afskiptum af pólitík, og það strax eft-
ir kosningar, 20. apríl. -Útvarpsmað-
urinn boðaði ritstjóra Frjálsrar
verslunar í hljóðstofu til að staðfesta
fréttina og sagðist mundu ná í Stein-
grím sjálfan í síma.
Hvort tveggja gekk eftir; ritstjórinn
mætti og Steingrímur svaraði sím-
leiðis. Steingrímur, sem sjaldan læt-
ur eftir viðmælendum sínum að æsa
sig upp, setti allt í einu á fulla ferð
og hjó ótt og títt að ritstjóra blaðsins
og sagði þetta vera eintómt rugl, jafn-
vel uppspuna og alla vega lymskuleg-
an áróður íhaldsins gegn sér.
Nú fór áhugi minn að vaxa. Þar
sem ég er dyggur lesandi Frjálsrar
verslunar vissi ég að blaðið hafði
komið út daginn áður. Ég vildi því
ná í mitt eintak. Síöar komst ég að
því að blaðið hafði verið sent daginn
áður til margra fjölmiðla, hér í borg-
inni, a.m.k. - En merkilegt nokk! -
enginn hafði haft rænu á að taka
þetta efni til umfjöllunar nema út-
varpsstöðin Bylgjan! Ég sá að DV var
þó fyrst allra blaðanna til að kanna
málið og mátti lesa stutt viðtal við
Steingrím á baksíðu þess.
Allt er þetta mál afar einkennilegt
TEKUR HALLDOR VIÐ AF STEIN-
GRÍMISTRAX EFTIR KOSNINGAR?
Snmkvæmí heimiidum
daiisíns muu Stfínjfrtm-
r Hcnuannsson íorsíct'
iráðhemi ráfigora að
fita ai' íorjstu í Fram-
[ikniu’fiokkaurn tifritx
itir kosntogttr þamt 20
.príl nk.
Áformin eru Aögd míð-
st víð það að HalWór Ás-
'ímasioa, varaíormaðtir
;?kksítts. vtifði ftjHtnii
ramsttimarilokksíns »
eíra stjórmtrmyndurair-
iðwðum aetn bljóta að
•/jasf strax að kttsníng-
ttn ittknura.
Forseíi ísiands kaiiar
'rmenn fiokkanna fyrir
ig að kosoingum lokn-
im, rteðir um þó möiíu-
rtka tHMtt eru ui* gefur
j'ðan tjmboð til sfjórnar-
nymitirair. Talíð vr að
ItétngrÍJnur muni lVla
iaiitióri að ieióa stjórn-
rnt> miumuviðr;vóur af
itóiíu Framsóknariiokks-
ms» liantt verður jiá jafn-
framt forsietisráðhorra-
éfnt fiokksins. e/ Fram-
sókr^^m^^iWtÁwrra^
Steinurimur. Hættír hann strax eftir
kosningar?
Halldór: Verður iiann gerður að fnr-J
manni f sumnr?
hatdið fjófíuna flokka
htjóni mtnjiaraii. Kn það
hefor ekki gengíð átaka-
iauht fyrir t*ig. Og rai cr
SteioKrimur orðinn
þreyttur.
fianij hefur verið íU-
hingismaður i ntor 20 ár
og gegnt ráðÍHimierab-
;ett» á anuan aratug.
Steíngrímur t-r cfiaust
sitja ertthvað áfram á AI-
Jjittgi cða dregur hatra «ig
aiveg í hlé frá stjórnraái-
uin?
Þeir, seitt til þekkja.
telja eitttt vi#t að Stein*
grímur hafi einhver við-
iíingscfni í hufta. Ifcr á
Jatuli eða efJeuóis. Hann
vr 60 áru að aldri.
Mikii áhersla hefur
j þessum titVjrmum lcyn
S nra tVam yíirkosnmgar til
; að veikja ckki suiðij
I; Frmvtsóknarftokksins
j kttsntngunum. cinkum |>J|
| « UcykjaneskjtinkenJ^
i .Mt-tto verða að muna ,
5 Steíngfímur Hoiratml
j son cr víusæíasti stjfjj
i málamaður á isiuil
• samkvnnvtt skoðatl
Fréttin um brotthvárf Steingríms úr stjórnmálum. - Snjallt áróðursbragd?
og skrýtið að öll flokksblöðin skuli
hafa þagað um málið. Mín skoðun
er sú að hér liggi fiskur undir steini.
Annaðhvort er að snjall heimildar-
maður viti betur en fréttamenn, sem
margir hverjir eru þó handgengnir
forsætisráðherra, og hafi komið
þessu á framfæri. - Eða þá að þetta
sé eitt af áróðursbrögðum Fram-
sóknarflokksins (og mjög snjallt ef
rétt er) til að fá fólk til að jesúsa sig
yfir óforskömmugheitum íhaldsins,
þannig að Steingrímur fái nú veru-
legt fylgi í sínu kjördæmi. - Hún er
skrýtin tík pólitíkin og þar er aldrei
allt sem sýnist. Og hvað sem öðru
líður virðist sem þessi frétt um Stein-
grím sé annaðhvort kolrugluð eða
afrugluð, nema hvort tveggja sé.
Einelti í Kópavogi
Móðir skrifar:
Ég á son sem er 12 ára og er í 7.
bekk í skóla í Kópavogi. Framan af
vetri gekk allt vel hjá honum. Hann
hefur góðar námsgáfur og er yfirleitt
fljótur að læra. Honum var boðið á
skólaball með kunningja sínum í
öðrum skóla í Kópavogi. Á leiðinni
var ráðist á hann og rifin utan af
honum fötin, sem hann hafði sjálfur
keypt sér í fyrsta sinn.
Hann varð sár og reiður en þorði
ekkert að gera því þessir drengir,
sem á hann réðust, voru allir eldri
en hann. Sonur minn reyndi að fjar-
lægja fötin og fela þau svo að ég sæi
þau ekki. Þegar ég var búin að fá að
vita alla málavöxtu fór ég ásamt syni
mínum heim til foreldra tveggja
þessara óróaseggja og talaði við þá.
Annar strákanna var settur í úti-
vistarstraff í viku. Sá var áður búinn
að vera í straffi. En hinn strákurinn
reif stólpamunn við mig og lét stór
orð falla. Ég sá fljótt að við þennan
gutta var lítið hægt að tala, og for-
eldrarnir sögðu ekki orð. Með það
fórum við sonur minn heim.
Þegar heim var komið sagði sonur
minn: Mamma, þú ert brjáluð að tala
við strákana, nú ráðast þeir á mig
fýrst ég klagaði og ég verð kallaður
mömmustrákur. Stærri strákurinn
safnar saman öllum vinum sínum
og þeir berja mig. Ég þori ekki út
eftir myrkur. - Eftir þetta hefur son-
ur minn ekki farið út eftir myrkur
og hrapað niður í árangri í skólan-
um. Satt að segja vill hann ekki
mæta í skólanum og hefur flest á
homum sér. Hann hefur beðið mig
um skó með stáltá, svo og grifflur
með göddum til að geta beitt og varið
sig, sparkað og lamið.
Það hafa líka bankað upp á hjá mér
guttar, þetta 13-14 ára, til að rukka
son minn um peninga en þeim hefur
ekki borið saman um fyrir hvað þeir
era að rukka hann. Þeir eru bara að
rukka fyrir einhvern strák úti í bæ,
segja þeir. - En þetta er lítið dæmi
úr þessu einelti sem nú er að verða
óþolandi víðá hér á landi.
Fjallkonan fríð og eftirspurnin
yrði þar með úr sögunni. Þá yrðu
þessir menn væntanlega ánægðir og
þá rættust fagrir draumar um álver
um allt land.
ísland gæti líka orðið kjörinn stað-
ur fyrir losun á hvers konar eiturúr-
gangi frá hinum kæru efnahags-
bandalagslöndum. Hugsum okkur
þann draum rætast að mega velta sér
upp úr allri dýrðinni! Fjallkonan
fríða ætti að gera orðið eftirsóknar-
verð í framtíðinni. Mikið happ það!
Þaö virðist svo að þjóðin ætli að
fljóta sofandi að feigðarósi með sí-
felldum stuðningi sínum við öfl sem
virðast alls ráðandi í samtryggðum
pólitískum klíkum. Hvers vegna ekki
ein allsherjarkjósendasamtök gegn
þessu ógeði?
Ég þekkti sómakæran og valin-
kunnan mannkostamann sem lenti á
sínum tíma inni á Alþingi sem vara-
maður. Hann hafði verið á lista hjá
Sjálfstæðisflokknum. Þegar þessi
maður kom heim eftir fárra ára setu
á Alþingi heyrði ég eftir honum haft
að þangað færi hann aldrei aftur.
Hvers skyldi hann hafa orðið
áskynja á þingi sem olli þessari
ákvörðun hans? Það væri fróðlegt
fyrir landsmenn að vita það.
Mikill hluti þingmanna virðist sjá
þau úrræði ein að fá erlent fjármagn
og ál til að rétta við efnahag þjóöar-
innar. En ekki dugir það tvennt. Nú
á að koma okkur, þessum fáu hræð-
um, undir járnhæl ofurvalds sem við
losnum aldrei undan. íslensk þjóð
Lengi enn má ofbjóða Fjallkonunni og nóg er landrýmið.
Guðni Daníelsson skrifar:
Það var Jón Sigurðsson sem barð-
ist mest fyrir sjálfstæði þjóðarinnar
á sínum tíma. í dag svífur fjöldi
ruglaðra ,jóna“ um sali Alþingis og
virðist þess albúinn að farga þessu
sjálfstæði.
Framboðsmálm:
Lélegur
JC-fundur
Árni Jónsson skrifar:
Fimmtudaginn 4. apríl sl. aug-
lýsti JC-hreyfingin í Reykjavík
fund í Háskólabíó með nokkrum
frambjóðendum framarlega á
listum stærstu stjórnmálaflokk-
anna. Mér fannst forvitnilegt að
fara þangað og sjá og heyra mál
manna. - En það hefði ég ekki átt
að gera. Þarna var ekki marg-
menni, svona i mesta lagi 40
manns í salnum og lítill áhugi og
engar fyrirspurnir úr sal.
Fundarstjórinn, sjónvarps-
stjóri Stöðvar 2, gerði það sem
hann gat til að halda uppí dampi,
en ekkert dugði. Enginn fram-
bjóðenda hafði neitt fram að færa
og enginn vildi spyrja. Um kvöld-
iö kom svo frétt af fundinum á
Stöð 2, og eins og eðlilegt var
sýndí fréttin ekki áheyrendur. -
Lélegur fundur og alveg mis-
hepnnaöur um framboðsmál.
Klókuríkosninga-
baráttunni
Reynir Guðm. hringdi:
Eg get ekki látið hjá líða að
minnast á hvemig forsætisráð-
herra skýtur andstæðingum sín-
um í kosningabaráttunni ref fyrir
rass. - Hann hefur nú komið fram
í sjónvarpi í tvígang í viðtali þar
sem hann er með merki flokks
sins í jakka- eða frakkahorni - X
B stóð þar skýrum stöfum.
Ég hélt að flokkarnir hefðu gert
samkomulag sín í milU um að
þeir kæmu ekki fram í sjónvarpi
með auglýsingar af einu eða öðru
tagi. En kannski á forsætisráð-
herra góða að á ljósvakamiðlun-
um, því það er ekki einleikið að
honum einum Uðist að koma
fram með barmmerki flokks síns.
Þótt Steingrímur eigi mörg góð
ráð uppi í erminni má ekki færa
þau í jakkabarminn ef um annað
hefur verið samiö.
Þeirsem ógna
þjóðarsátt
Einar Árnason ski’ifar:
Nú er mikið rætt um afleiðingar
launadeilu norðlensku sjómann-
anna sem varð tU þess að Útgerð-
arfélag Akureyringa samdi við
þá um hækkun á flskverði. Síðar
gerðu fleiri sjómenn kröfur sem
voru samþykktar aö mestu. Auð-
vitaö fara þessar kröfur svo aUan
hringinn. - Fiskverkafólk á þess-
um stöðum segir sem svo: Úr þvi
hægt var að semja um hækkun
tU sjómanna hví þá ekki viö okk-
ur líka? Þetta fólk hefur flest til
síns máls að mínu mati.
En þá bregður svo við að fariö
er að túlka samninga við sjómenn
þannig aö þeir séu nú eiginlega
partur af útgerðinni og því megi
líta á þá sem eins konar meðeig-
endur sem þá eru líklega bara að
skammta sér úr eigin vasa. - Og
þaö sem merkilegt er, að undir
þetta taka hinir „stóru" samn-
ingsaöilar vinnumarkaðarms,
VSÍ og ASÍ! - Ég held, að aUir
hljóti þó að sjá að ef einhverjir
eru að ógna hinni svoköUuðu
þjóðarsátt þá eru það þessir aöU-
ar sjálfir, burðarstólpar VSÍ, og
forystumenn ASÍ sem ekkert hafa
viljað vita af vinnudeUum síðan
vinstri stjórain sveik sig Um á
kjósendur.
Heimiráréttribraut
H.H. skrifar:
„Nátthrafn" Bylgjunnar, Heim-
ir Jónasson, er að mínu mati frá-
bær utvarpsmaður. Hann hefur
skemmtUegan húmor og spilar
öðruvísi lög í bland við þessa
nýbylgjutónlist - t.d. með Gencsis
og mörg æðisleg gömul lög, sem
maður hefur fengið að heyra hjá
honum. - Heimir, haltu áifram á
þessari beinu, réttu braut,