Dagblaðið Vísir - DV - 09.04.1991, Blaðsíða 8
8
ÞRIÐJUDAGUR 9. APRÍL 1991.
SJÁLFSTJEDISFLOKKURIHN
UTANKJÖRSTAÐARKRIFSTOFA SJÁLFSTÆÐISFLOKKSINS
VALHÖLL, HÁALEITISBRAUT1, 3. HÆÐ.
SÍMAR: 679902 - 679903 - 679904
Utankjörfundaratkvæðagreiðsla fer fram hjá
borgarfógetanum í Reykjavík, Skógarhlíð
6, jarðhæð, alla daga kl. 10-12, 14-18 og
20-22 nema sunnudaga kl. 14-18.
Skrifstofan gefur upplýsingar um kjörskrá
og allt sem lýtur að kosningunum. Aðstoð
við kjörskrárkærur.
Sjálfstæðisfólk! Hafið samband við skrifstof-
una ef þið verðið ekki heima á kjördag, 20.
apríl nk.
Aðalfundur
1991
Aðalfundur Skeljungs hf. verður
haldinn föstudaginn 12. apríl 1991
í Átthagasal Hótel Sögu, Reykja-
vík, og hefst fundurinn kl. 16:00.
Dagskrá:
1-Venjuleg aðalfundarstörf skv. 16.
gr. samþykkta félagsins.
2. Tillaga um útgáfu jöfnunarhluta-
bréfa.
3. Tillaga um breytingu á 4. gr. sam-
þykkta félagsins.
4. Önnur mál, löglega upp borin.
Dagskrá, endanlegar tillögur og
reikningar félagsins munu liggja
frammi á aðalskrifstofu félagsins,
hluthöfum til sýnis, viku fyrir
aðalfund.
Aðgöngumiðar og fundargögn
verða afhent á aðalskrifstofu fé-
lagsins Suðurlandsbraut 4,
6. hæð, frá og með 8. apríl til
kl. 15:00 á fundardag, en eftir
það á fundarstað.
Skeljungurhf.
£ mkaumboð lyr*r Sheu- vorur á IsLvm*
Utlönd
Bandaríkj amenn varpa hj álpargögnum til Kúrda:
írakar fordæma
erlenda aðstoð
- Saddam Hussein traustur á valdastóli í Bagdad
Bandarískar herflugvélar hófu í
morgun aö varpa niður hjálpar-
gögnum til kúrdískra flóttamanna
viö landamæri íraks og Tyrklands.
Jafnframt hefur komið fram aö
Bandaríkjamenn hafa ekki í hyggju
að aðstoða flóttamenn í íran með
sama hætti. Hjálpargögnin eru tek-
in af birgðum hersins.
Aðstoð vð flóttamennina eykst
nú hröðum skrefum en margir eru
þegar látnir úr kulda, hungri og
vosbúð á flóttanum undan herliði
Saddams Hussein. Ríki Evrópu-
bandalagsins hafa ákveðið að
standa saman að aðstoð og komið
hefur fram hungmynd um að Sam-
einuðu þjóðirnar tryggi Kúrdum
griðland meðan átökin standa. Enn
er þó allt á huldu um hvernig
tryggja á öryggi Kúrda þar nema
með vopnavaldi.
Það eru Bretar sem hafa haft
frumkvæði varðandi griðlandið.
Evrópubandalagið hefur tekið und-
ir hugmyndina. Stjórn íraks hefur
á hinn bógin fordæmt öll afskipti
erlendra ríkja af málum Kúrda og
segir að um innanríkismál sé að
ræða. Stjórnin sendi frá sér sér-
staka ályktun um stuðning Banda-
ríkjamanna við Kúrda og fbrdæmdi
hann.
Þrátt fyrir að Bandaríkjamenn
hafi nú loks stutt Kúrda í verki og
Baker hafi komið í heimsókn þá er
ljóst að afskiptaleysi þeirra af átök-
unum í írak síðustu vikur hefur
James Baker gerði stuttan stans hjá kúrdísku flóttamönnunum í Tyrk-
landi áður en hann hélt til israels. Hér sést hann ræða við aldraðan
flóttamann frá Kúrdistan. Símamynd Reuter
orðið til að treysta Saddam Hussein
í sessi. Líkur á að herforingjar
Saddams steypi honum af stóli
verða nú að teljast hverfandi en
Bandaríkjastjóm hefur leynt og
ljóst vonast eftir hallarbyltingu í
Bagdad.
Fyrir rúmri viku lýsti George
Bush Bandaríkjaforseti því yfir að
Saddam ætti varla marga daga eftir
á valdastóli. Nú segja stjórnmála-
skýrendur að herforingarnir í liði
Saddams viti betur en aðrir að óró-
inn í írak muni aðeins aukast við
fall Saddams. Þeir rísi því ekki upp
gegn leiötoga sínum nema aðstæð-
ur breytist í grundvallaratriðum.
Reuter
Baker reynir enn að sætta í sraela og Palestínumenn:
Skilyrði beggja
enn illsættanleg
James Baker, utanríkisráðherra
Bandaríkjanna, ræðir í dag við ráða-
menn í ísrael og leiðtoga Palestínu-
manna í annarri ferö sinni til Mið-
Austurlanda. Bandaríkjastjórn von-
ast enn til að geta haft frumkvæði
að viðræðum milli stjórnar ísraels
og Palestínumanna um friðsamlega
lausn á deilumálum þeirra.
Sérfræðingar eru þó sammála um
að lítið hafi þokast í átt til samkomu-
lags frá lokum Persaflóastríðsins
þrátt fyrir óljósar yflrlýsingar af
beggja hálfu um friðarvilja. ísraels-
menn hafa gefið í skyn aö þeir gætu
fallist á friöarráðstefnu þar sem öll
deilumál í Mið-Austurlöndum yrðu
rædd.
Þá þykir það benda til aö stjórn
ísraels sé að slaka á í afstöðunni til
Palestínumanna þvi að í gær var því
lýst yfir að um þúsund Palestínu-
mönnum yrði sleppt úr fangelsum 1
ísrael. Þá lofaði stjórnin að gera sitt
til aö bæta úr efnahagsþrengingum
manna á herteknu svæðunum.
ísraelsmenn hafa ýmsa fyrirvara á
að mæta til friðarráðstefnu um Miö-
Austurlönd. Þar á meðal vilja þeir
koma á tvíhliða viðræðum milli ísra-
els og einstakra arabaríkja. Frels-
issamtök Palestínu, PLO, eru á móti
því að hafa þennan háttinn á og vilja
að efnt verði til einnar ráðstefnu þar
sem allir aöilar komi saman.
Þá eru ísraelsmenn enn andvígir
því aö PLO sendi fullltrúa til friöar-
ráðstefnu um Mið-Austurlönd. Þeir
hafa hins vegar gefið í skyn að þeir
geti talaö við aðra leiötoga Palestínu-
manna. Palestínumenn ætla hins
vegar í dag aö leggja áherslu á að
PLO veröi aðili að viöræðunum því
að samtökin séu í raun málsvari pál-
estínsku þjóðarinnar og því til ills
eins að útiloka þau frá viðræðunum.
Reuter
James Baker utanrikisráðherra er
enn kominn til ísraels í friðarför.
Teikning Lurie
BÍLDSHÖFÐA 20 -112 REYKJAVÍK - SÍMI91-681199 - FAX 91-673511