Dagblaðið Vísir - DV - 09.04.1991, Page 10

Dagblaðið Vísir - DV - 09.04.1991, Page 10
10 ÞRIÐJUDAGUR 9. APRÍL 1991. Utlönd Albanía: Kommúnistar bjóða samsteypustjórn Kommúnistar í Albaníu tryggðu sér tvo þriðju hluta þingsæta í seinni umferð fyrstu frjálsu kosninganna í landinu í yfir fjóra áratugi. Komm- únistar segja hins vegar að aðeins samsteypustjórn með þátttöku sér- fræðinga stjórnarandstöðunnar geti bundið enda á stjómmálakreppuna og leyst efnahagsvandann í landinu. Lokatölur eftir seinni umferðina, sem haldin var á sunnudaginn, sýna að Verkamannaflokkurinn, flokkur kommúnista, hlaut 168 þingsæti af 250. Getur hann því breytt stjórnar- skrá landsins án þess að þurfa að reiða sig á stuðning stjórnarand- stæðinga. Lýðræðisflokkurinn, sem myndaður var í desember síðastliðn- um, hlaut 75 þingsæti. Forsætisráðherra Albaniu, Fatos Nano, kvaðst í gær ætla að biðja sér- fræðinga stjórnarandstöðunnar um að taka sæti í samsteypustjórn. Nano var falið að mynda bráðabirgða- stjórn í febrúar í kjölfar óeirða i Tir- ana þegar þúsundir mótmælenda felldu risastóra styttu af fyrrum leiö- toga landsins, Enver Hoxha. Heim- ildarmenn í Tirana telja fullvíst að Nano verði falin myndun nýrrar stjórnar þegar þing verður sett. Forystumenn Lýðræðisflokksins útiloka enn stjórnarsamstarf með kommúnistum. Þeir segjast ætla aö taka sæti sín á þingi en halda áfram að rannsaka meint kosningaofbeldi kommúnista. Forystumennirnir segja Verkamannaílokkinn enn beita stalínískum aðferðum á hveijum degi, það er drepa fólk, skipuleggja pólitísk morð og hræða fólk. Eiga þeir þá meðal annars við þann at- burð þegar lögregla skaut til bana íjóra mótmælendur í Shkoder fyrir viku. Reuter Albanskir hermenn hvíla sig frá gæslustörfum við gríska sendiráðið I Tirana. Gæsla hefur verið við erlend sendiráð i höfuðborginni að undanförnu vegna þess fjölda sem reynir að fá vegabréfsáritun til Vesturlanda. Leiðtogar komm- únista segja að aðeins samsteypustjórn aeti levst kreppuna í landinu. Simamvnd Reuter Kitty Kelley stendur við skilti sem auglýsir bók hennar um Nancy Reagan. í bókinni er meðal annars greint frá ástarsambandi Nancy og söngvarans Frank Sinatra. Simamynd Reuter Ronald Reagan: Bókin um Nancy full af lygum Fyrrum forseti Bandarífíanna, Ronald Reagan, sagði í gær bók um ævi konu hans, Nancy, vera fulla af svívirðilegum og fáránlegum lygum en Bandaríkjamenn þustu samt í bókaverslanir til að verða sér úti um eintak. Fullyrðingar um að fyrrum forsetafrú þeirra hefði stjórnað landinu, staðið í ástarsambandi við Frank Sinatra og reykt maríhúana vöktu sem sé áhuga þeirra. Höfundur bókarinnar um Nancy, Kitty Kelley, sem hefur sérhæft sig í skrifum um frægt fólk, sagði Nancy Reagan hafa veriö valdamestu konu sem Bandaríkin hefðu nokkurn tíma átt. „Hún var í raun forseti okkar í átta ár,“ sagði Kelley við fréttamann Reuterfréttastofunnar. „Hún stjórn- aði landinu. Við ættum að vera henni þakklát því hún var góður forseti." Kelley segist standa við frásögn sína sem hún segir byggða á sam- tölum við yfir þúsund einstaklinga síðastliðin íjögur ár. Reuter MÓTVÆGIÐ ER Það vita allir sem horfðu á Ólaf Ragnar og Davíð í sjónvarpinu á sunnudag ALÞYÐUBANDALAGIÐ

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.