Dagblaðið Vísir - DV

Ulloq
Ataaseq assigiiaat ilaat
Tidligere udgivet som

Dagblaðið Vísir - DV - 09.04.1991, Qupperneq 9

Dagblaðið Vísir - DV - 09.04.1991, Qupperneq 9
ÞRIÐJUDAGUR 9. APRÍL 1991. 9 DV Útlönd Sovétríkin: Þing Georgíu lýsir yf ir sjálfstæði Þingið í sovéska lýðveldinu Georg- íu mun í dag samþykkja yfirlýsingu um sjálfstæði lýðveldisins frá Sovét- ríkjunum. Þetta er haft eftir frétta- mönnum í Tbilisi. Georgía verður þar með annað lýðveldi Sovétríkj- anna sem lýsir yfir fullu sjálfstæði á eftir Eystrasaltsríkinu Litháen. Gert er ráð fyrir að yfirgnæfandi meirihluti þingmanna í Georgíu samþykki sjálfstæðisyfirlýsinguna, að því er fréttamennirnir höfðu eftir embættismönnum Gamsakhurdia þingforseta. - Gamsakhurdia, sem er fyrrum andófsmaður og setið hefur í fang- elsi, er sonur eins þekktasta rithöf- undar Georgíu. Hann komst til valda í kosningum í október á síðasta ári þegar sjötíu ára stjórn kommúnista lauk. Fréttamenn segja að tengja megi sjálfstæðisyfirlýsinguiia því ástandi sem ríkir umhverfis héraðið Ossetíu. íbúar í Suður-Ossetíu vilja segja sig úr Georgíu og í átökum milli þeirra og Georgíumanna hafa að minnsta kosti fimmtíu látið lífið á þessu ári. Einnig er talið að sjálfstæðisyfirlýs- ingin tengist aðgerðum sovéska hersins í Tbilisi 9.apríl 1989 þegar tuttugu georgískir mótmælendur voru drepnir. Reuter Kennedy eltist nakinn við þjónustustúlkumar deildarþingmanni. Hann er að vísu ekki sakaður um nauðgun eins og einn frændi hans heldur á hann að hafa hlaupið hálfnakinn á eftir þjón- ustustúlkum á setri sínu í Flórída þá sömu nótt og konu var nauðgað þar. Lögreglan rannsakar nú nauðg- unina en almenningur fær aukinn áhuga á líferninu í húsinu. Patrick Kennedy, sonur Edwards, hefur opinberlega neitað að nokkuð sé hæft í sögunum sem gestirnir í húsinu hina sögulegu nótt eru að breiða út. Meðal gesta var Michelle nokkur Cassone, þjónustustúlka að atvinnu. Hún segist hafa haft Kennedy á hælunum um nóttina og átt’fótum fjör að launa. Patrick segir að stúlkan hafi verið drukkin og viti ekkert hvað hún er að segja. Casson segist ekki hafa orð- ið vitni að nauðgun í húsinu en hún hafi þó séð nakta konu á flótta þaðan. Reuter Nýjasta hneykslið innan Kennedy- fangsmeira og nú berast böndin æ fjölskyldunnar verður stöðugt um- oftar að Edward Kennedy öldunga- Edward Kennedy er enn flæktur i hneykslismál. Patrick, sonur hans, reynir að bera sakir af föður sínum en það virðist koma fyrir litið. Símamynd Reuter GRvCNI SÍMINN FYRIR LANDSBYGGÐINA Við hjá DV höfum ákveðið að taka í notkun svokölluð GRÆN NÚMER sem er ný þjónusta hjá Pósti og síma. Ef þú, lesandi góður, hringir í þessi númer greiðir þú aðeins gjald fyrir staðarsímtal eða gjaldflokk 1. DV, sem er rétthafi GRÆNA NÚMERSINS, greiðir hins vegar langlínugjaldið. Það er því sama hvaðan af landinu þú hringir, þú munt ætíð bera lágmarkskostnað vegna símtalsins. Þjónusta GRÆNA SlMANS verður eingöngu ætluð vegna áskriftar og smáauglýsinga. ÁSKRIFTARSÍMINN: 99-6270 SMÁAUGLÝSINGASlMINN: 99-6272 ea síminn tsa -talandi dæmi um þjónustu! Eyðnisjúkur læknir skar upp þúsund sjúklinga Um þúsund sjúklingar af bresku sjúkrahúsi fá senn vitneskju um að eyðnisjúkur læknir hafi skorið þá upp. Læknar á sjúkrahúsinu segja að likurnar á að sjúklingarnir hafi smitast séu að vísu litlar en samt er ekki hægt að útiloka að einhver þeirra gangi nú með eyðniveiruna. Bresk heilbrigðisyfirvöld hafa ákveðið að senda alla sjúklingana í eyönipróf og þeim verður veitt þjón- usta sálfræðings. Meðan umræddur læknir var við vinnu skar hann eink- um upp konur. Yfirvöld vilja hvorki segja hver hann er né hvar hann starfaði en þó er vitað að það var við sjúkrahús á Norður-Englandi. Upp komst að læknirinn væri eyðnisjúkur þann 6. mars. Eftir það hafa stjórnendur sjúkrahússins farið yfir skýrslur til að finna út hvaða sjúklinga læknirinn skar upp. Þeir verða látnir vita af stöðu mála á næstudögum. Reuter Slysavarnadeildin Ingólfur, Reykjavík Aðalfundur 1991 Fundurinn verður haldinn 18. apríl næstkomandi. Fundarstaður er skólaskipið Sæbjörg við Norðurgarð. Fundurinn hefst kl. 20.00 stundvíslega. Dagskrá fundarins mun liggja frammi á skrifstofu Slysavarnafélags íslands að Grandagarði 14, félögum til sýnis, viku fyrir aðalfund. Stjórn Slysavarnadeildarinnar Ingólfs SLYSAVARNAOEILDIN INGÓLFUR

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.