Dagblaðið Vísir - DV - 09.04.1991, Page 18
18
ÞRIÐJUDAGUR 9. APRÍL 1991.
Borðtennis:
Úrslit
• Ásdis Kristjánsdóttir, Vikingi,
sigraði i meyjaflokki.
DV-mynd Hson
Einliðaleikur
Sveinar, 13 ára og yngri:
1. Guðmundur Stephensen.Víkingi
2.IngiHeimisson..............HSÞ
3.-4. Tryggvi Jónsson....Víkingi
3.-4. Ingólfur Jónsson.......HSÞ
Meyjar, 13 ára
1. Ásdís Kristjánsdóttir.Víkingi
2. Sveinlaug Friðriksdóttir..HSÞ
3. -4. Margrét Stefánsdóttir.HSÞ
3.-4. SandraTómasdóttir......HSÞ
Piltar, 13-15 ára:
1. Sigurður Jónsson......Víkingi
2. Ólafur Stephensen.....Víkingi
3. -4. Ægir Jóhannsson......HSÞ
3.-4. DagurRúnarsson......UMSB
Stúlkur, 13-15 ára:
1. GuðmundaKristjánsd. ...Vfkingi
2. Margrét Guðmundsdóttir .Víkingi
3. -4. Eva Jósteinsdóttir.Víkingi
3.-4. Ella Helgadóttir.......HSÞ
Drengir, 15-17 ára:
1. Ársæll Aðalsteinsson..Víkingi
2. Hörður Birgisson.......UMSB
3. -4. Flólki Birgisson...UMSB
3.-4. Smári Einarsson...Stjarnan
Stúikur, 15-17 ára:
1. AðalbjörgBjörgvinsd...Víkingi
2. IngibjörgÁmadóttir....Víkingi
3. -4. Hekla Arnarsdóttir, Víkingi
3.-4. Hólmfríður Jónsdóttir..HSÞ
Tvíliðaleikur
Drengir, 13-15 ára:
1. Óiafur Stephensen og Ólafur
Eggertsson, Víkingi.
2. Ægir Jóhannsson og Gauti
Jónsson, HSÞ.
3. -4. Dagur Rúnarsson og Krist-
mundur Guðmundsson, UMSB.
Stúlkur, 17 ára og yngri:
1. AðalbjörgBjörgvinsdóttiroglgi-
björg Árnadóttir, Víkingi.
2. Sigríður Jónsdóttir og Rakel
Guðmundsdóttir, UMSB.
3. -4. Eva Jósteinsdóttir og Guð-
munda Kristjánsdóttir, Víkingi.
3.-4. Margrét Stefánsdóttir og
Elín Jónsdóttir, HSÞ.
Drengir, 15-17 ára:
Guðmundur Stephensen og Ársæll
Aðalsteinsson, Víkingi.
2. Sigurður Jónsson, Víkingi og
Höröur Birgisson, UMSB.
3. Flóki Ingvarsson og Ingólfur
Ingólfsson, Víkingi.
Tvenndarleikir
Unglingar, 17 ára og yngri:
1. Ársæll Aðalsteinsson og Aöal-
björg Björgvinsdóttir, Vikingi.
2. Ólafur Stephensen og Eva Jó-
steinsdóttir, Víkingi.
3. -4. Sigurður Jónsson og Guð-
munda Kristjánsdóttir, Víkingi.
3.-4. Ægir Jóhannsson og Margr-
ét Stefánsdóttir, HSÞ.
Liðakeppni unglinga
Stúlkur, 15-17 ára:
1. Sveit Víkings: Aðalbjörg Björg-
vinsdóttir og Ingibjörg Ámadóttir,
Víkingi.
Stúlkur, 13-15 ára:
1. A-liö Vikings: Guömunda
Kristjánsdóttir og Eva Jósteins-
dóttir, Víkingi.
Drengir, 17 ára og yngri:
B-lið Víkings: Guðmundur Steph-
ensen og Ólafur Eggertsson, Vík-
-Hson
íþróttir unglinga
Islandsmótið 1 borðtennis imglinga:
Aðalbjörg Björgvinsdóttir
sigraði í fimm greinum
- Víkingar sópuðu til sín öllum gullverðlaununum
áhuginn fyrir borðtennis hjá Víkingi
hafi aldrei verið jafnmikill og núna.
„Við æfum 3 sinnum í viku og stend-
ur hver æfing í 2 klukkustundir.
Núna eru 250 krakkar skráðir til
æfinga. Ég byijaði-að æfa borðtennis
þegar ég var 11 ára og hef tvisvar
orðið íslandsmeistari í einliðaleik
núna og svo í fyrra. Mér finnst ég
hafa tekið miklum framfórum núna
2 síðustu árin og vonandi heldur það
áfram. Þjálfarinn okkar, Kínverjinn
Huo Dao Ben, er frábær og á hann
mikinn þátt í þessum góða árangri
Víkings á íslandsmótinu," sagði Sig-
urður Jónsson.
Æðislegt á Grenivík
Það var fríður hópur 17 þátttakenda
frá Grenivík í íslandsmótinu að
þessu sinni. Ægir Jóhannsson varð
Islandsmeistari í 2. flokki karla á
dögunum.
„Ég lék úrslitaleikinn gegn Bimi
Jónssyni og vann 21-18,22-20. Ég hef
áöur orðið meistari í tvíliðaleik 13-15
ára,“ sagði Ægir.
Hólmfríður Björnsdóttir hefur einu
sinni orðið íslandsmeistari í flokka-
keppni. „Annars höfum við frekar
lítið æft að undanfórnu. Við spilum
bara enda höfum við veriö þjálfara-
laus þar til fyrir skömmu að við feng-
um Anders Garm, sem er danskur,
til að þjálfa okkur. Hann vinnur í
frystihúsinu - og er ágætur þjálfari.
Annars er æðislegt að búa á Greni-
vík. Hér er stutt í allt og gott að
stunda skíði og er ein skíöalyfta. Á
Grenivík á annar hver maður snjó-
þotu og er oft mikið um að vera í
brekkunum. Ég vildi hvergi annars
staðar eiga heima en í Grenivík,“
sagði Hólmfríöur Björnsdóttir. Allir
krakkarnir tóku undir þessi orð
Hólmfríðar.
Aðalbjörg, „maður mótsins“
Hin 16 ára Aðalbjörg Björgvinsdóttir,
Víkingi, sigraöi í flestum greinum á
íslandsmótinu, eða 5 alls, og er því
óumdeilanlega „maöur mótsins".
„Ég byijaði að æfa borðtennis fyrir
4 árum og finnst mér það alltaf jafn-
skemmtilegt - og þá ekki hvað síst
félagsskapurinn. Ég æfi núna 4-6
sinnum í viku og hef sett mér það
takmark að bæta mig. Minn stærsti
sigur til þessa er íslandsmeistaratit-
illinn í meistaraflokki um daginn,"
sagði Aðalbjörg.Hún bætti því þó viö
að áhugi stelpna á borðtennis mætti
vera meiri þótt hann hafi aukist aö
undanfórnu.
Með besta þjálfarann
Ólafur Stephensen, Víkingi, sigraöi í
tvíliðaleik 15 ára og yngri, ásamt
Ólafi Eggertssyni, Víkingi. Þeir fé-
lagar segjast æfa 3-4 sinnum í viku.
„Við erum með langbesta þjálfarann,
sem er kínverskur, og skiptir það
atriði mjög miklu máli og árangurinn
lætur ekki á sér standa," sögðu hinir
ungu og efnilegu spilarar. Uppá-
haldsleikmaður þeirra er Svíinn,
Eric Lind.
Guðmundur góður
Guðmundi Stephensen, hinum 8 ára
gamli Víkingi, fer stöðugt fram.
Hann varð fjórfaldur meistari að
þessu sinni sem er mjög athyglisvert
þegar aldur hans er hafður í huga.
Guömundur sýndi frábæra tækni á
þessu íslandsmóti og eru geröar
miklar vonir um hann í framtíöinni.
Hann leikur alltaf upp fyrir sig og á
þessu íslandsmóti til að mynda sigr-
aði hann í einliðaleik í flokki sveina,
13 ára og yngri, og í tvíliðaleik
drengja, 15-17 ára. Þessi árangur
hans verður að teljast athyglisverður
í meira lagi. -Hson
Það var líf og íjör í íþróttahúsinu
í Garðabæ um síðustu helgi því þar
fór fram íslandsmót yngri flokka í
borðtennis. Víkingar komu, sáu og
sigruðu reyndar í öllum greinum
mótsins en það að eitt og sama félag-
ið hreinsi svo rækilega til hefur aldr-
ei gerst áður á íslandsmóti í borð-
tennis. Það er ljóst á öllu að unglinga-
starfið hjá Víkingum virðist vera í
hinu besta lagi.
Aðalbjörg Björgvinsdóttir, Víkingi,
varö fimmfaldur meistari, Guö-
munda Kristjánsdóttir, Víkingi, og
hinn 8 ára Guðmundur Stephensen,
einnig úr Víkingi, urðu fjórfaldir ís-
landsmeistarar. Ársæll Aðalsteins-
son, Víkingi, sigraði í 3 greinum.
Engar fastar æfingar
Höröur Birgisson, UMSB, og Sigurð-
Umsjón:
Halldór Halldórsson
ur Jónsson, Víkingi, höfnuðu í 2.
sæti í tvíliðaleik, 15-17 ára. Hörður
er í Heiðarskóla í Borgarfirði.
„Áhuginn fyrir borðtennis er ekki
eins mikill og áður. Við erum 7 sem
keppum á þessu íslandsmóti en áður
voru þátttakendur mun fleiri frá
UMSB. Aðstaðan er kannski ekki
nógu góð hjá okkur því að við verð-
um að tæma skólastofurnar og er
ærinn tími sem fer til undirbúnings.
Við æfum svona 1-2 í viku og þá
einna helst rétt fyrir íslandsmótið.
Við höfum enga fasta æflngatíma,"
sagöi Hörður.
250 krakkar skráðir
Sigurður Jónsson, Víkingi, sem
hafnaöi í 2. sæti í tvíliðaleik, með
Herði Birgissyni, UMSB, segir að
• Hressir krakkar frá Grenivík. Aftari röð frá vinstri: Elin Þorsteinsdóttir og Elfa Rósa Helgadóttir. Fremri röð frá
vinstri: Ægir Jóhannsson, Hólmfríður Björnsdóttir og Gauti Valur Hauksson. DV-mynd Hson
• Sigurvegarar á íslandsmótinu i badminton: Frá vinstri: Siguróur Jónsson, Ólafur Stephensen, Ólafur Eggerts-
son, Guömundur Stephensen, Ársæll Aðalsteinsson, Aðalbjörg Björgvinsdóttir og Ingibjörg Árnadóttir. Allt eru
þetta krakkar úr Víkingi. DV-mynd Hson