Dagblaðið Vísir - DV - 13.04.1991, Blaðsíða 13

Dagblaðið Vísir - DV - 13.04.1991, Blaðsíða 13
LAUGARDAGUR 13. APRÍL 1991. 13 Sviðsljós Travolta í það heilaga? John Travolta og Kelly Preston tala um að gifta sig og eignast börn, en þau hafa nú verið saman i tæpt ár. Travolta bar upp bónorðið á Gstaad, frægu skíðasvæði i Sviss, á mið- nætti á gamlárskvöld. Ef marka má nýjustu fréttir má búast við því á hverri stundu að John Travolta gangi í það heilaga. Sú heppna? Jú, hún heitir Kelly Preston, 28 ára gömul og er ekki al- veg laus við að þekkja kvikmynda- bransann. Hún lék í myndinni „Space Camp“ og var áður gift með- leikara sínum í þeirri mynd, Kevin Gage. Travolta hefur hinsvegar aldrei verið kvæntur, en hans stóra ást í lífinu, leikkonan Diana Hyland, lést úr krabbameini árið 1977. Travolta og Kelly byrjuðu að vera saman síðasta sumar í Vancouver, þar sem hann var við tökur myndar- innar „Look Who’s Talking Too“ og hún lék í spennumyndinni „Run.“ Fjölskyldur parsins eru að sögn himinlifandi yfir þessu sambandi, því bæði eiga þau svo til vonlaus sambönd að baki. Móðir Kelly segir að Travolta verði hinn fullkomni tengdasonur og ástríkur og róman- tiskur eiginmaður. Hann gaf Kelly sex karata gulan og hvítan demants- hring þegar hann bað hennar á mið- nætti á gamlárskvöld. Þó Kelly hafi ekki borið hringinn nema í tæpa fjóra mánuði, er hún þegar farin að tala um barneignir. Hún segir að þau séu að æfa sig núna, en allt eins megi búast við að hún verði ólétt í eldhúsinu næstu tíu árin! Oflangt gengið Það hefur löngum verið vitað að Myndin til hægri er af Madonnu Marilyn Monroe á svipuðum slóð- Marilyn Monroe er átrúnaðargoð standandi á svölum hótels í París um við tökur myndarinnar „The poppstjörnunnar Madonnu, en er við tökur myndarinnar „Justify SevenYearItch“semgerðvarárið þettaekkifariðaðgangaútíöfgar? My Love.“ Til vinstri er mynd af 1955. Eða var það öfugt? Madonna og Marilyn Monroe, en hvor er hvaö? FRAMBJOÐENDURIREYKJAVIK SITJA FYRIR SVÖRUM virka daga frá kl. 16.30-18.00 að Laugavegi 17, 2. hæð, sími 622908 - 620277 Allir velkomnir VORDAGAR HJA TITAN HF 5. - 15. APRIL Opið: Mánud. - föstud. kl. 9 - 18 og laugard. - sunnud. kl. 10-17 COMBhCAMP TJALDVAGNAR Nýju COMPI CAMP tjaldvagnarnir eru komnir f sýningarsal okkar, afþvítilefni veitum við 4% afsláttaf staðfestum pöntunum fyrir 15. apríl. MJeanneau seglskútur sállinger) 1 1 gúmmíbátar TRAVSTVR OG GÓÐVR FÉIAGI ÍFERÐALAGIÐ TÍTANhf LÁGMÚLA 7 SÍMI 84077 M snekkjur áttcívitar

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.