Dagblaðið Vísir - DV - 15.05.1991, Qupperneq 10

Dagblaðið Vísir - DV - 15.05.1991, Qupperneq 10
MHDVIKUDASUR .16’, iMA'í 4@9í • W Útlönd i>v Sévardnadze, fyrrum utanrikisráðherra Sovétríkjanna. Símamynd Reuter Sévardnadze næsti framkvæmdastjórí Sameinuðu þjóðanna? Fyrrum utanríkisráðherra Sovét- ríkjanna, Eduard Sévardnadze, hef- ur greint frá því að hann og fyrrum forseti Bandaríkjanna, Jimmy Cart- er, kunni að vinna saman að lausn svæöisbundinna deilumála. Minntist Sévardnadze í því sambandi sérstak- lega á átök Eþíópíu og skæruliða frá Erítreu. Sévardnadze sagði að hann og Carter hefðu rætt um möguleg sam- eiginleg verkefni pólitískrar stofnun- ar Carters í Atlanta í Bandaríkjunum og utanríkismálastofnunar þeirrar sem Sévardnadze er að setja á lagg- irnar í Moskvu. Sévardnadze er sem sé ekki hættur afskiptum af alþjóöastjórnmálum og deilum þó að hann hafi látið af emb- ætti utanríkisráðherra Sovétríkj- anna. Það gerði hann reyndar í eftir- minnilegri ræðu á sovéska fulltrúa- þinginu 20. desember síðastliðinn. Um leið varaði hann viö einræði í Sovétríkjunum. Menn eru nú farnir að velta því fyrir sér hvort Sévardnadze eigi eftir að vera enn meira í sviðsljósinu á alþjóðavettvangi. Ummæli hans í nýlegu viðtali við þýska blaðið Bild am Sonntag um að hann kunni að sækjast eftir embætti framkvæmda- stjóra Sameinuðu þjóðanna, SÞ, hafa vakið mikla athygh. Það var haft eftir Sévardnadze að hann myndi ekki skorast undan ef hann kæmi til álita sem næsti fram- kvæmdastjóri Sameinuðu þjóðanna, þaö er ef Javier Perez de Cuellar gefur ekki kost á sér að sitja fimm ár til viðbótar frá næstu áramótum. Perez de Cuellar tók_ við embætti framkvæmdastjóra Sameinuðu þjóð- anna l.janúar 1982 og hefur ýmsum þótt gæta einkenna þreytu hjá hon- um að undanförnu. Bent hefur verið á að nú geti Sé- vardnadze leyft sér að segja álit sitt á ýmsum málum. Það er til dæmis ekki langt síðan hann greindi frá því í viðtali við sovéskt vikublað að haustið 1989 hefðu sovéskir leiötogar verið undir miklum þrýstingi að beita valdi til að bæla niöur upp- reisnina gegn kommúnismanum. Sévardnadze ljóstraði því upp að þeim hefði verið fyrirskipað að beita sömu aðferðum og 1953,1956 og 1968. Átti hann þar við uppreisnina í Berl- ín, uppreisnina í Ungverjalandi og vorið í Prag þegar sovéskar hersveit- ir voru sendar gegn almenningi. Reuter og TT VIRÐISAUKASKATTUR Endurgreiðsla virðisaukaskatts til íbúðarbyggjenda Hvað er endurgreitt? Virðisaukaskattur af vinnu manna við íbúðarhúsnæði er endurgreiddur: • Byggjendur íbúðarhúsnæðis geta fengið endurgreiddan þann virðisaukaskatt sem þeir greiða vegna vinnu manna á þyggingarstað hússins. •Eigendur íbúðarhúsnæðis geta fengið endurgreiddan þann virðisaukaskatt sem þeir greiða vegna vinnu manna við viðhald og endurbætur íbúðarhúsnæðis síns. • Þeir sem framleiða íbúðarhús í verk- smiðju hér á landi geta fengið endur- greiddan hluta virðisaukaskatts af söluverði húsanna. Sérstaklega skal tekið fram að hvorki er endurgreiddur viröisaukaskattur vegna tækjavinnu né af efni sem notað er til byggingarframkvæmda. Endurgreiðslubeiðni Sækja skal um endurgreiðslu á sér- stökum eyðublöðum til skattstjóra í því umdæmi sem umsækjandi á lögheimili. Eyðublöðin eru: •RSK 10.17: Bygging íbúðarhúsnæðis til sölu eða leigu. •RSK 10.18: Bygging, endurbætur og viðhald íbúðarhúsnæðis til eigin nota. Athygli skal vakin á því að frumrit sölureiknings skal fylgja umsókn um endurgreiðslu virðisaukaskatts vegna endurbóta og viðhalds. Vegna ný- byggingar verður umsækjandi að geta lagt fram umbeðin gögn, t.d. sölu- reikninga þar sem skýrt kemur fram hver vinnuþátturinn er og að vinnan sé unnin á byggingarstað. Uppgjörstímabi! Hvert uppgjörstímabil ertveir mánuðir: janúar og febrúar, mars og apríl, mai og júní, júlí og ágúst, september og október, nóvember og desember. Skiladagur Endurgreiðslubeiðni skal berast skatt- stjóra fyrir 15. dag næsta mánaðar eftir að uppgjörstímabili lýkur. Hvenær er endurgreitt? Hafi beiðni um endurgreiðslu verið skilað á tilskildum tíma skal endur- greiðslan fara fram eigi síðar en 5. dag næsta mánaðar eftir skiladag vegna nýbygginga og eigi siðar en 20. dag næsta mánaðar eftir skiladag vegna endurbóta og viðhalds. RSK RÍKISSKATTSTJORI Ný kreppa í uppsigl- ingu í Júgóslavíu Ný kreppa virtist vera í uppsigl- ingu í Júgóslavíu í morgun vegna kjörs um nýjan ríkisforseta. Sam- kvæmt fyrirkomulagi því sem ríkir um forsetaskipti er búist viö að Kró- atínn Stipe Mesic taki við af Borisav Jovic sem er Serbi. Eins árs kjör- tímabil Jovics rennur út í dag. Ef Mesic nær kjöri yrði hann fyrsti for- setí júgóslavneska ríkjasambandsins sem ekki er kommúnisti. Til að ná kjöri þarf Mesic atkvæði að minnsta kosti fimm af átta fulltrú- um í forsætísráðinu. Júgóslavneskir embættísmenn segja aö Serbía, sem hefur þrjú atkvæði, og Svartfjalla- land kunni að greiöa atkvæði gegn honum. Mesic, sem hefur heitið því að breyta Júgóslavíu í bandalag full- valda ríkja, sagði á fundi með frétta- mönnum í gær að Króatía myndi segja sig úr júgóslavneska ríkjasam- bandinu ef hann næði ekki kjöri. Auk þess myndi stjómarskrárleg kreppa verða og hætta á hún yrði leyst meö aðferðum sem ekki væru í samræmi við stjómarskrána.Reuter Albanía: Þúsundir enn í útlegð Þekktur mannréttindaleiötogi í Albaníu, Arben Puto, sagði á fundi með fréttamönnum í Vín í gær að flestír pólitískir fangar í Albaníu hefðu veriö látnir lausir. Hann greindi þó frá því að enn væru þús- undir í útlegð innanlands. Enginn vissi í raun hversu margir þeir væru sem sendir heföu verið í útlegð, sak- aðir um glæpi gegn ríkinu. Puto, sem boðið hafði verið tíl Austurríkis af alþjóðamannréttinda- samtökum, sagði að þó svo að þeir sem fluttir hefðu verið frá borgum til afskekktra þorpa væru þar frjálsir ferða sinna gætu þeir ekki snúið heim þar sem þeir hefðu ekki fengið formlega endurhæfingu. Þess vegna gætu þeir ekki fengið leyfi frá staðar- yfirvöldum tíl að búa í bæjum og borgum. Vegna þrýstings frá mannréttinda- samtökum og fyrrum pólitískum fóngum hafa albönsk yfirvöld nú samþykkt að setja á laggirnar sér- staka nefnd til að kanna málið, aö því er Puto greindi frá í gær. Reuter Búist við afsögn Rocards Michel Rocard, forsætisráðherra Frakklands. Telkning Lurie Svo getur farið aö Michel Rocard, forsætisráðherra Frakklands, láti af embættí er stokkað veröur upp í stjórninni í þessari viku. Heimildar- menn innan stjórnarinnar greindu frá þessu í gær. í þinghúsinu var sá orðrómur á kreiki að Francois Mitterrand Frakklandsforseti, sem gagnrýnt hefur Rocard fyrir að hafa ekki tek- ist að draga úr atvinnuleysi, væri að undirbúa uppstokkun í stjórninni til þess að hleypa að yngri mönnum. Mitterrand hefur sagt að hann vilji að betur verði tekiö á ýmsum vanda- málum innanlands, eins og tíl dæmis auknum flutningi útlendinga til landsins. Vinsældir Mitterrands sjálfs hafa minnkað undanfarna tvo mánuði en þær höfðu aukist á meöan á Persa- flóastríðinu stóð. Mitterrand baö Rocard að mynda stjórn í júní 1988 í kjölfar sigurs í forsetakosningum. Reuter

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.