Dagblaðið Vísir - DV - 15.05.1991, Qupperneq 19

Dagblaðið Vísir - DV - 15.05.1991, Qupperneq 19
18 MIÐVIKUDAGUR 15. MAI Í99L1 MÍÖVÍÍájÓAGI® iV.'íííAÍ 39 Iþróttir Iþróttir Sport- stúfar Einn leikur fór fram í úrslitakeppni NBA- deildarinnar 1 körfu- knattleik í fyrrinótt. Meistararnir í Detroit lögðu þá Boston að velli, 104-97, á heima- velli sínum. Staöan eftir flóra Ieiki er 2-2 og næsti leikur fer fram á heimavelli Boston. í>að lið sem fyrr vinnur fjóra leiki kemst áfram. Barcelona og Man. Utd leika i kvöld til úrslita . Úrslitaleikurinn í Evr- ópukeppni bikarhafa í // # knattspyrnu fer fram í ..... Rotterdam í Hollandi í kvöld. Þá eigast við Manchester United frá Englandi og Barcelona frá Spáni. Gary Pallister einn af lykilmönnum Man. Utd á við meiðsli að stríða, tognaöi á vööva í leik gegn Crystal Palace á laug- ardaginn, og líkumar að hann spili í kvöld eru 50%. Hins vegar er líklegt að Les Sealey leiki í marki United en hann meiddist illa á hné í úrslitaleik Man. Utd og Sheffield Wednesday í vor. Barcelona leikur án markvarðar- ins Zubizarreta og sóknarmanns- ins Amor sem báðir eru í leik- banni og ekki er enn vitaö hvort búlgarski markahrókurinn Christo Stoichkov geti leikið vegna meiðsla. Miklar varrúðaráðstafnir í Rotterdam vegna leiksins Það eru miklar varúðaráðstafan- ir að hálfu lögregluyfirvalda í Rotterdam vegna leiks Manch- ester United og Barcelona í kvöld og ekki færri en 1500 lögrelgú- menn verða við gæslu á leikvang- inum meðan á leiknum stendur. f kvöld leikur enskt lið í fyrsta sinn til úrslita á Evrópumótun- um í knattspymu eftir harmleik- inn mikla á Heysel leikvangnum i Belgíu. Þar létu 39 áhorfendur lífið þegar Liverpool og Juventus léku til úrslita árið 1985. Búist er við 20 þúsund stuðningmönnum Manchester United á leikinn og hefur íþróttamálaráðherra Breta beðið þá um að haga sér vel því komi til óláta má búast við að enskum liðum verði meinuð þátt- faka aftur á Evrópumótunum. Lewis og Johnson mætast á hlaupabrautinni 1. júlí —j Spretthlauparamir gte, Ben Johnson og Carl Lewis munu hittast á —* hlaupabrautinni á Grand Prix frjálsíþróttamóti 1. júlí næstkomandi og verður þaö í fyrsta sinn síðan á ólympíuleik- unum í Seoul árið 1988 sem þeir keppa hvor gegn öðrum. Þeir kappar munu keppa i 100 metra hlaupi og fer keppnin fram í Par- ís. A ólympíuleikunum í Seoul sigraði Johnson, hljóp á tímanum 9,79 sekúkndum sem var nýtt heimsmet en það var tekið af honum og hann dæmdur í keppn- isbann þegar í ljós kom að hann haföi neytt ólöglegra lyíja. Heimsmet Carl Lewis stendur því enn og er það 9,92 sekúndur, sett í sama hlaupi. Ben Johsnon segist hlakka mikið til að mæta Lewis og stefnir að því að sigra og bæta heimsmet Lewis. Sigur hjá Marseille í bikarkeppninni Marseílle er komiö i undanúrslit í frönsku bikarkeppninni i knatt- spymu eftir sigur á Nantes, 1-2, í 8 liöa úrslitunum í gær. Pierre Papin skoraði fyrra mark Mars- eille en Basile Boli þaö síöara í framleningu. Önnur úrslit urðu þau að Rodez sigraði Sochaux, 2-1, og Gueugnon sigraöi Niort, 1-0. KA á lu&sta tímabili? • Samstarfssamningur Knattspyrnusambands íslands og samtaka 1. deildar liða annars vegar og Samskipa h/f hins vegar var undirritaður í aðalstöðv- um Samskipa h/f á Kirkjusandi í gær. Á myndinni eru frá vinstri: Stefán Eiríksson frá Samskipum h/f, Eggert Magnússon, formaður KSÍ, og Halldór B. Jónsson, formaður samtaka 1. deildar liða. DV-mynd Brynjar Gauti Nú eru talsverðar líkur á að Sigurður Sveinsson handknattleiksmaður komi heim eftir keppnistímabilið á Spáni og leiki með íslensku félagi á næsta vetri. Samningur Sigurðar við Atletico Madrid rennur út eftir þetta keppnistímabil en þetta er annað tímabil hans hjá félaginu. Sigurður lék hér á landi árið 1989 og varð ís- landsmeistari með Val það ár. ,JÉg hef verið í viðræðum við forr- áðamenn Atletico Madrid en ekkert er komið á hreint ennþá með framtíð mína. Eins og staðan er í dag þá eru mestar líkur á að ég komi heim og mun þá leika með mina gamla félagi í Val eða ég held norður yfir heiöar og leik með KA,“ sagði Sigurður Sveinsson í samtali við DV í gær- kvöldi. Atletico Madrid hefur verið á hött- unum efdr Geralda sem leikur með Granollers og leikur hann í sömu stöðu og Sigurður. Geralda er einn aflykilmönnum Granollers þó svo að hann sé aðeins 23 ára gamall. Hann er mjög öfiug skytta og góður vamar- maður „Það er nokkuð ömggt að Geralda þessi gangi til liðs við Atletico Madrid og fari svo að hann komi til liðsins þá kem ég heim,“ sagði Sigurður. ■ Sigurdur Sveinsson. Höfum rætt þennan möguleika, segir Alfreð Eins og kunnugt er þá mun Alfreð Gíslason þjálfa og leika með KA næsta vetui’ eftir að hafa leikið 7 ár í atvinnuhandbolta. Alfreð var spurður hvort Sigurður Sveinsson væri á leið i KA. „Ég neita þvi ekki að við Sigurður höfum rætt þennan möguleika og hann er ævinlega velkominn til liðs við KA. Ég lifi í voninni um að Sig- urður komi heim til íslands og leiki með IíAog það y rði félaginu gífurleg- ur liðsstyrkur ef svo færi að hann kæmi,“ sagði Alfreð Gíslason í sam- tali viö DV. Alfreð kemur í byrjun júní og reiknar raeð að hefa æfmgar hjá KA um mánaðamótin júlí/ágúst. Alfreð mun leika með KA og hefur Friðjón Jónsson verið ráöinn aðstoðarmaður hans. Alfreö og félagar hans í Bid- asoa leika síðari úrslitaleik sinn gegn Milbertshofen í Evrópukeppni bikar- hafa í þýskalandi á mánudaginn. Bidasoa vann fyrri leikinn með 5 marka mun og er Alfreð bjartsýnn á að liðinu takist að vinna titilinn. -GH Hvað segja fulltrúar liðanna um Islandsmótið í knattspymu: Flestir búast við jöf nu og fjörugu móti - 80. íslandsmótið í knattspymu hefst á mánudaginn £ Fulltrúar 1. deildar lið- anna í knattspyrnu og skipafélagið Samskip komu saman til fundar í gær í tilefni af því aö íslandsmótið hefst á mánudaginn kemur, annan í hvítasunnu. í sumar mun 1. deildin bera nafnið Samskipadeildin en skipafélagiö mun í sumar verða aðal- stuðningsaðili deildarinnar. Fulltrúar liðanna eru varkárir Fulltrúar liðanna voru varkárir um gengi síns liðs i deildinni í súmar en það kom þó fram í máli þeirra allra að stefnan væri að gera sitt besta. Íslandsmótið í sumar er það 80. í röð- inni og er það hald margra að mótið í ár komi til með að verða jafnt og skemmtilegt. Liðin æfa mun mark- vissara en áður, enda mikið í húfi fyrir liðin aö ná sem bestum árangri. Fulltrúar eöa fyrirliðar hvers liðs héldu stutta tölu og spáöu í spilin um mótið í sumar. Sigurður Gústafsson, Víði: „Við erum ánægðir meö að vera komnir á nýjan leik í 1. deild. Það er að sjálfsögðu undir okkur sjálfum komið hvernig við stöndum okkur í deildinni í sumar. Við vitum þó að heimavöllurinn á eftir að verða okk- ar sterkasta vopn. Það verður spenn- andi að taka á móti KR-ingum í fyrsta leik en þeir hafa ekki riðiö feitum hesti frá fyrri viðureignum liðanna," sagði Sigurður Gústafsson, formaður knattspymudeildar Víöis, sem eru nýliðar í deildinni. Guðni Kjartansson, KR: „Við fórum út í alla leiki með það að leiðarljósi að sigra. Það verður eflaust hart barist um stigin í sumar og okkar bíður erfiður leikur í Garð- inum ef ég þekki nábúa mína rétt. Það er mín trú aö íslandsmótið í sumar verði skemmtilegt,“ sagði Guðni Kjartansson, þjálfari KR-inga, en þetta er fyrsta árið hans sem þjálf- ari liðsins. Hörður Hilmarsson, UBK: „Þaö er markmið okkar í sumar að leika góða og árangursríka knatt- spymu. Við teljum að viö höfum mannskap svo að það megi ganga eftir. Við höfum fengið til okkar nokkra sterka leikmenn og erum því alls óhræddir að takast á við hlutina í sumar," sagði Hörður Hilmarsson, þjálfari Breiðabliks, sem kom upp með Víði í 1. deild. Ásgeir Elíasson, Fram: „Það hefur gengið upp og ofan hjá okkur í vor en ég tel að þetta sé allt á réttri leið. Ég vona bara að við verð- um á toppnum á réttum tíma,“ sagði Ásgeir Elíasson, þjálfari íslands- meistara Fram. Steingrímur Birgisson, KA: „Við KA-menn erum ævinlega bjart- sýnir. Þó hefur þaö háð okkur hve mannskapurinn er dreifður á undir- búningstímabilinu en liðiö hefur ver- ið að pússast æ betur saman á síðustu dögum. Við ætlum að reyna að gera betur en á síðasta keppnistímabiii og hvort það tekst verður tíminn að leiða í ljós. Ég hef trú á fjörugum leik þeg- ar Eyjamenn koma í heimsókn til okkar á Akureyri,“ sagði Steingrímur Birgisson, fyrirliði KA-liðsins. Sigurlás Þorleifsson, ÍBV: „Við mætum þokkalega undirbúnir til leiks. Það hefur komið niður á undirbúningi okkar hve stór hluti liðsins dvelst yfir vetrartímann á Reykjavíkursvæðinu. Okkur hefur gengið misvel í leikjunum í vor en við eigum eftir að gera betur þegar á hólminn er komið. Það verður er- fitt að fylgja eftir árangrinum frá því í fyrra en markmiðið er aö leika opn- an og skemmtilegan bolta,“ sagði Sigurlás Þorleifsson, þjálfari og leik- maöur Eyjamanna. Jóhannes Atlason, Stjarnan: „Við vorum á fyrsta ári í 1. deild í fyrra og lentum í 5. sæti en það er mín skoðun að annað árið sé mun erfiðara. Auðvitað er takmarkið samt að gera betur í ár en í fyrra. Undirbúngurinn hefur verið nokkuð skrautlegur því að margir leikmenn hafa átt við meiösli að stríða og hefur þetta ástand óneitanlega komið niður á leik okkar,“ sagði Jóhannes Atla- son, þjálfari Stjömunnar. Guðmundur Kjartansson, Val: „Valsliðinu hefur vegnaö vel í vor- leikjunum en það er spurningin hvort það sé slæmur fyrirboöi eða ekki. Það hafa orðið litlar breytingar á liðinu hjá okkur og við væntum mikils af ungu strákunum sem hafa komið vel út í vorleikjunum. Við ósk- um öllum liðum góðs gengis á mótinu í sumar,“ sagði Guðmundur Kjart- ansson, formaður knattspyrnudeild- ar Vals. Logi Ólafsson, Víkingi: „Það hafa orðið töluverðar breyting- ar á liðinu en markmiðið er að gera betur en í fyrra. í vorleikjunum höf- um við leikiö vel í mörgum leikjum en miður í öðrum. Ég hlakka til leiks- ins gegn FH í fyrstu umferð og von- andi verða úrslit þar hagstæð okk- ur,“ sagði Logi Ólafsson, þjálfari Vík- ings. Ólafur Jóhannsson, FH: „Við komum sæmilega undirbúnir til leiks fyrir þetta íslandsmót. Okk- ur gekk ekki vel í fyrstu leikjunum í vor en þetta hefur verið að skána að undanfómu. Það veröur bara að koma í ljós hvernig okkur reiðir af á mótinu í sumar," sagöi Ólafur Jó- hannsson, þjálfari FH-liösins. -JKS • „Við Framarar vonumst til að verða á toppnum á réttum tíma,“ sagði Ásgeir Elíasson, þjálfari ís- landsmeistara Fram. • Hilmar Björnsson KR-ingur hefur hér betur í baráttu við Valsmennina Ágúst Gylfason og Jón S. Helgason í úrslitaleik liðanna á Reykjavíkurmótinu í knattspyrnu í gær. DV-mynd GS KR-ingar Reykjavíkur- meistarar 4. árið í röð - þegar liöið vann Val 1 úrslitum, 1-0, á gervigrasinu í Laugardal í gær KR-ingar fögnuðu sigri á Reykjavíkur- mótinu í knattspyrnu í fjórða skiptið í röð þegar félagið vann sigur á Val, 1-0, í úrslitaleik Reykjavíkurmótsins á gerv- igrasvellinum í Laugardal í gærkvöldi. Þetta er 30. Reykjavíkurmeistaratitill KR-inga frá upphafi. Sigur vesturbæjarliðsins var sann- gjarn. Staðan í leikhléi var staðan jöfn, O-O. Á fyrstu mínútu síðari hálfleiks skoraði Rafn Rafnsson, sem kom inn á sem varamaður í hálfleik fyrir bróöir sinn, Bjöm Rafnsson. Hann fékk stungu- sendingu inn fyrir vörn Vals og renndi knettinum framhjá Bjarna Sigurðssyni, markverði Vals. Þetta reyndist sigur- markið í leiknum en KR-ingar voru klaufar að skora ekki íleiri mörk því lið- ið fékk góð marktækifæri. Leikurinn var í heildina frekar bragð- daufur en leikmenn sýndu þó á köflum góða takta en báðum þessum liðum er spáð velgengni á íslandsmótinu sem hefstámánudaginnkemur. -Hson/GH Samskip hf. styrkja 1. deildina Knattspyrnusamband íslands og samtök 1. deildar liða í knattspyrnu annars vegar og Samskip hf. hins veg- ar skrifuðu í gær undir sarastarfs- samning vegna 1. deildar keppni ís- landsmótsins í knattspyrnu i sumar. Markmið samstarfs þessara aðila í fyrsta lagi er að auka áhuga, kynn- ingu, umfjöllun og þar með aösókn að leikjum islandsmótsins í sumar. í öðru lagi að Samskip hf. fái sem mesta kynningu, umfjöllun og auglýsinga- gildi í tengslum við samninginn. Samskip hf. munu greiða veglega fjárupphæð til félaganna tíu sem skipt- ist milli, þeirra eftir frammistöðu þeirra í mótinu. Það lið sem hreppir fyrsta sætið fær 500 þúsund krónur en liöið sem hafnar í 10. sæti fær í sinn hlut 300 þúsund krónur. Forráöamenn Samskipa hf. upplýstu á blaðamanna- fundinum í gær að stuðningur fyrir- tækisins viö deildina í sumar myndi nema nálagtfjórum milljónum króna. • Auk þessa munu Samskip hf. kynna deildina með ýmsum hætti og verð- launa meöal annars leikmann, þjálfara og dóma hvers mánaðar í samvmnu við íþróttadeild DV. Samskipadeildin og allt íslandsmótið verðar sett með formlegum hætti í Kaplakrika rétt fýrir leik FH og Víkings nk. mánudag, 20. maí, kl. 16. ->JKS Handknattleikur: Stjarnan leitar að sovéskum leikmanni - til að leika með félaginu á næsta keppnistímabili Svo gæti farið að handknattleikslið Stjörnunnar úr Garðabæ tefli fram sovéskum leikmanni í liði sínu á næsta keppnistímabili. Forráöa- menn Stjörnunnar settu sig í sam- band fyrir nokkru við sovéska hand- knattleikssambandið og báðu það um að reyna að útvega sér leikmann sem gæti leikið með liðinu á næsta keppn- istímabili. Stjörnumenn hafa ekkert heyrt frá Sovétmönnunum ennþá en þeir eru að svipast um eftir sterkum leik- manni sem gæti fyllt skarð Sigurðar Bjamasonar sem fyrir nokkru gerði samning við þýska félagið Groswall- stadt. Þá er nokkuð öruggt að Einar Einarsson, sem lék með Vogelpum- pen í Austurríki í vetur, kemur heim og klæðist Stjörnubúningnum að nýju. Skúli og Hafsteinn þurfa í uppskurð Svo gæti farið að Hafsteinn Braga- son, homamaðurinn knái, geti ekki leikið með Stjömumönnum fyrr en eftir áramót. Hafsteinn hefur átt við meiðsli að stríða í hné og aö öllum líkindum er hann með slitið kross- band sem þýðir aö hann verður frá í 6 mánuði. Þá hefur Skúli Gunn- steinsson fyrirliði átt við þrálát meiðsli að stríða í öxl og þarf senni- lega að gangast undir uppskurð. Eyjólfur Bragason mun þjálfa hð Stjörnunnar á næsta keppnistímabili eins og í vetur. -GH Aðgerðin á Guðmundi tókst vel í alla staði Kristján Bemburg, DV, Belgíu: Aðgerðin á Guðmundi Benedikts- syni drengjalandsliðsmanni í knatt- spymu tókst vel í alla staöi að sögn Dr. Martens, sem sá um aö fram- kvæma skurðagerðina á honum. Martens sagði í viðtali við blaða- mann DV að Guðmundur gæti farið að æfa eftir 6 mánuði. Krossband í hné Guðmundar var slitið og var grætt nýtt krossband úr trefjum í stað þess sem ónýtt var. Guðmundur var nokkuð hress þeg- ar blaðamaður DV ræddi við hann í gær. Hann hafði að vísu sofið illa nóttina eftir aðgerðina og kvaðst hafa fundið nokkuð til í fætinum sem er með öllu eðlilegt að sögn lækna. Hann fór á stjá í gærmorgun og var látinn framkvæma léttar æfingar sem Dr. Martens hefur samið og fær Guðmundur sérstakt æfingapró- gramm til að fara eftir. Reiknað er með að Guðmundur haldi heimleiðis til íslands um eða eftir næstu helgi en forráðamenn Ekeren í Belgíu hafa gert allt til aö Guðmundi liði sem best og þá hefur það komið sér vel fyrir Guðmund aö faðir hans hefur verið með honum til trausts og halds. Það er því ljóst að Guömundur leik- ur ekkert á íslandsmótinu í sumar og ekki er enn ljóst til hvaða félags Guðmundur heldur í haust. For- ráðamenn Ekeren gera sér góðar vonir um að hann komi til Belgíu þegar hann hefur náð sér af meiðsl- unum og gerist leikmaður með Eik- eren. • Guðmundur Benediktsson er einn efnilegasti knattspyrnumaður íslands. Nú er Ijóst að hann verður frá knattspyrnu næstu 6 mánuðina. KR spáð sigri á Islandsmótinu - KA og Víði spáð falli í árlegri spá forráðamanna 1. deildar liða Á fundinum, sem samtök 1. deildar það ár hreppti KA íslándsmeistara- l.KR 268 liðanna og Samskip h/f efndu til í titilinn í fyrsta skipti. 2.Fram 249 gær, var birt niðurstaða í hinni ár- í spánni að þessu sinni er KR- 3. Valur 243 legu spá um niðurröðun liðanna sem ingum spáð sigri en 23 ár eru síðan 4. Víkingur 174 formenn og fyrirliöar taka þátt í. Spá liðið vann síðast íslandsbikarinn. 5.ÍBV 156 þessi er þó meira til gamans gerð en Fram er spáð öðru sæti og Valsmönn- 6.FH 139 hún hefur þó oftast gengið eftir hvað um þriðja sætinu. Víði og KA er spáð 7. Stjaman 133 meistarana áhrærir þegar upp er falli í 2. deild. 8.Breiðablik 97 staðið á haustin. í þessari spá var mest hægt að fá 9.KA 88 Aðeins einu sinni gekk spáin ekki upp en 1989 var Fram spáð sigri en 290 stig. Niðurrööunin lítur annars þannig: 10. Víðir 48 -JKS 'j

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.