Dagblaðið Vísir - DV - 21.05.1991, Page 4
ÞRIÐlftíÍAGuMi'ffiffiðfííí
Fréttir
Kvartað yf ir hækkuðum
farmgjöldum Flugleiða
- svar samgönguráðuneytis var ljósrit af bréfum forstjóra Flugleiða
„Þetta er í raun ekkert svar frá
samgönguráðuneytinu heldur fáum
við ljósrit af bréfum frá forstjóra
Flugleiða," segir Stefán Guðjónsson,
viðskiptafræðingur hjá Félagi ís-
lenskra stórkaupmanna.
Samgönguráðuneytið hefur sýnt
furðuleg vinnubrögð í máli því þegar
fjórtán innflytjendur kvörtuðu í febrú-
ar síöastliðnum til samgönguráðuneyt-
isins og héldu því fram að farmgjöld
Flugleiða í íraktflutningum hefðu
hækkað um tugi prósenta og þjónustu-
gjöld hefðu hækkað enn meira.
Félag stórkaupmanna gerði í kjöl-
farið könnun meðal - félagsmanna
sinna og komst að niðurstöðu sem
staðfesti kvörtun fjórtán-menning-
anna í meginatriðum. Félagið gerði
síðan fyrirspum hinn 4. mars í bréfi
til samgönguráðuneytsins um hækk-
anir á gjaldskrá Flugleiða í fraktflugi
á síðasta ári.
Könnun stórkaupmanna
leiddi stórhækkun í Ijós
„Við gerðum lauslega könnun hjá
félagsmönnum okkar um það hvern-
ig þessi mál stæðu. Sú könnun benti
til þess að frakttaxtar hefðu hækkað
verulega eða um allt að 37 prósent.
Þá benti könnun okkar til þess að
hækkun á afgreiðslugjöldum Flug-
leiöa, eins og fyrir akstur, hefðu
hækkað enn meira eða um allt að 60
prósent.“
Stefán segir ennfremur að stjóm
Félags íslenskra stórkaupmanna
hafi ekki fundað um þetta svar sam-
gönguráðuneytisins.
Þjónustugjöld í fraktflugi
hafa hækkað um 59 prósent
„Það er varla hægt að segja að við
höfum fengiö beint svar við bréfmu,
við höfum fengið ljósrit af bréfum frá
forstjóra Flugleiða. í svarinu segir
hann að afgreiðslugjöldin hafi hækk-
að um 59 prósent og farmgjöldin um
22 prósent í hæsta lagi.“
Halldór Kristjánsson, skrifstofu-
stjóri samgönguráðuneytisins, segir
aö ráðuneytið hafi ekki svarað flórt-
án-menningunum heldur látið duga
í svari forstjóra Flugleiða, Sigurðar
Helgasonar, segir að félagið hafi
hækkað farmgjöld í fraktflugi um
mest 22 prósent og þjónustugjöld
um 59 prósent.
að svara Félagi íslenskra stórkaupa-
manna í kjölfar þeirrar fyrirspurnar.
- Var erindi Félags íslenskra stór-
kaupmanna þaö sama og fjórtán-
menninganna?
„Það var mjög svipað. Við tókum
það því sérstaklega fyrir.“
- Hver var niðurstaöa ráðuneytis-
ins í málinu gagnvart Félagi ís-
lenskra stórkaupmanna?
„Ég tel viturlegra að þú hafi bara
beint samband við félagið og fáir svar
okkar. Við vorum að svara félaginu."
Hvers vegna sendið þið
svar forstjóra Flugleiða?
- Nú þurfa Flugleiðir að sækja um
samþykki samgönguráðuneytisins
til að hækka gjaldskrár. Þið hafiö þar
með nákvæmar upplýsingar um
hækkun gjaldskrárinnar. Hvers
vegna svarið þið stórkaupmönnum
með því að senda þeim greinargerð
Flugleiða?
„Þetta mál var tekið í flugeftirlits-
nefndinni sem ráðuneytið hefur
komið á fót til að fjalla um svona
mál. Niðurstaða nefndarinnar var sú
aö bréf forstjóra Flugleiða yrði sent
Félagi íslenskra stórkaupmanna sem
svar ráðuneytisins."
- Ég fæ ekki botn í þetta. Það koma
menn til ykkar í samgönguráðuneyt-
inu og kvarta um farmgjöld Flug-
leiða. Hvers vegna svarið þið ekki
mönnunum beint? Er ekki óeðlilegt
að þið látið forstjóra Flugleiða, sem
á hlut að deilumálinu, svara fyrir
hönd hins opinbera?
„Við svörum þessum aðilum, sér-
staklega félaginu sem við teljum að
sé málsvari þessara manna.“
- En hvers vegna látið þið Flug-
leiðir svara þegar þið hafið gjald-
skrár Flugleiða hjá ykkur?
„Það má segja að það hafi verið
fyrst með stofnun flugeftirlitsnefnd-
ar í byijun síðasta árs sem ráðuneyt-
ið fór almennt að skoða þessi mál að
einhverju ráði. Þessi nefnd hefur
skoðað kvartanir vegna farmgjalda.
Fyrst og fremst hefur nefndin þó
skoðað hækkanir á fargjöldum. Þetta
erindi stórkaupmanna var tekið fyrir
í nefndinni og sent ráðuneytinu með
bréfi sem við sendum síðan aftur til
stórkaupmanna.“ -JGH
Séra Vigfús Þór Árnason tekur hér fyrstu skóflustungu að Grafarvogskirkju
i Reykjavík um hvítasunnuhelgina. Stefnt er að þvi að taka fyrsta hluta kirkj-
unnar í notkun árið 1994. DV-mynd GVA
Um 1500 unglingar í Logalandi:
„Lítið eyðilagt í hús-
inu og lítið slegist“
„Þetta gekk allt saman mjög vel.
Það var lítið eyðilagt í húsinu og lítið
slegist. Starfsmenn stóðu sig frábær-
lega í að kæfa öll svoleiðis mál í fæð-
ingu,“ sagði Magnús Magnússon í
Birkihlíð, forsvarsmaður Ung-
mennafélags Reykdæla sem rekur
Logaland.
„Inn á þessa tvo dansleikina borg-
uðu sig um 1700, rúmlega 700 á fyrra
ballið og um 1000 á sunnudagskvöld-
ið. Það var hvergi leyft að tjalda enda
stóð það aldrei til að það yrði neitt
meiriháttar samkomuhald hér, þetta
voru bara venjuleg sumarböll. Á
svæöinu var mun fleira en þeir sem
borguðu sig inn, kannski um 1500
manns hvort kvöldið.
Þetta gekk vel á sunnudagskvöldið.
Krakkarnir voru betur uppfrædd um
það að þetta væri ekkert annað en
ball. Þá komu þau án tjalda og tiltölu-
'légá fáir sem urðu eftir sem stranda-
glópar. Það var meira um það á fóstu-
daginn. Bæði var að það voru yngri
krakkár á fóstudeginum og verr
drukknir. Þeir höfðu tjaldað hérna
hjá húsinu. Þegar mest var var þetta
um 100 manns en þetta leystist smám
saman á laugardeginum. Það var tal-
að við krakkana sem voru búnir að
tjalda og þeir tóku flestir upp sín tjöld
og restin á sunnudegi." -pj
Heiftin
á heilsubælinu
Enn magnast ófriðurinn kring-
um rekstur heilsuhælisins í Hvera-
gerði. Vistfólk á hælinu er farið að
nöldra og telur að öll þessi átök
hafl slæm áhrif á andlega og líkam-
lega heilsu sína. Fram til þessa
hefur þó enginn orðið til þess að
ásaka dvalargesti opinberlega um
að hafa kveikt þann ófriöareld sem
þarna logar. Þeir hafa verið ljúfir
sem lömb og borgað orðalaust alla
reikninga sem að þeim hafa verið
réttir á hælinu, hvort heldur verið
var að rukka aukadaggjöld ellegar
meðul. Það er því ekki með góðu
móti hægt að kenna sjúklingunum
um hvemig komið er. En af fréttum
að dæma ganga margir með verð-
andi magasár vegna heilsuhælis
náttúrulækningamanna.
Meðlimur fyrrverandi stjómar
Náttúrulækningafélagsins reiddist
af því að hann fékk ekki að sjá
ráðningarsamning framkvæmda-
stjórans og kærði hælisreksturinn
til heilbrigðisráðuneytisins. Þá
reiddist stjórnin og hætti að boða
stjómarmanninn á fundi. Þeir í
heilbrigðisráðuneytinu urðu illir
yfir þessum látum í náttúrulækn-
ingamönnum og fleygöu málinu í
Ríkisendurskoðun. Þegar hér var
komið sögu vom læknar hælisins
orðnir öskuillir yfir því aö verið
væri að lækna fólk þarna á hælinu
með alls konar grösum og baunum
í stað þess að gefa því almennilegar
mixtúrur og töflur. Þeir sögðu því
upp í fússi en í Læknafélaginu urðu
menn afar reiöir yfir því að aðrir
væru að lækna fólk en læknar. Því
auglýsti Læknafélagið að hver sá
læknir, sem sækti um vinnu á
heilsuhælinu, skyldi hafa verra af.
Sögðu læknar að þarna væri stund-
að alls konar kukl sem læknar ættu
ekki að koma nálægt. Enda væri
vitavonlaust að nokkur fengi bata
við einu eða neinu hjá hælisfúskur-
um. Var nefnt sem dæmi að akfeitt
fólk kæmi þarna í megrun í nokkr-
ar vikur á kostnað þjóðfélagsins og
færi svo í burtu slank og elegant.
En svo væri þetta fólk komið aftur
eftir árið alveg jafnfeitt og í upp-
hafi. Þetta varð til þess að forsvars-
menn hælisins þrútnuðu af bræði.
Helltu úr skálum reiði sinnar yfir
lækna sem gerðu allt hvað þeir
gætu til að sölsa undir sig heilsu-
hælið. Aldrei skyldi þetta vígi
heilsubótar falla í hendur þeirra
sem einir teldu sig geta líknað og
læknað en kynnu ekkert til nátt-
úrulækninga. Hjúkmnarstjóri
hælisins varð svo reið að hún hótar
læknum málsókn hvar sem til
þeirra næst. Mitt í því aö hæhsfólk
stóð í hávaðarifrildi við læknana
skellti Ríkisendurskoðun skýrslu
sinni á borðið og finnur að hinu
og þessu í rekstrinum.
Framkvæmdastjórinn talar of
mikiö í símann og er alltaf úti að
aka á rándýrum bíl. Starfsfólkið er
betur launað en gengur og gerist á
hælum og spítulum. Þá em sjúkl-
ingar látnir borga aukadaggjöld og
líka rukkaðir um peninga fyrir
meðul. Þetta sé ólöglegt því fólkið
eigi ekki að borga eitt né neitt sjálft.
Ríkið eigi að borga allt saman. Svo
segir Ríkisendurskoðun líka að
hælismenn kunni ekki að færa
bókhald. Þess vegna sé rekstrar-
halli í fyrra talinn vera 36 milljónir
en efþeir færðu bókhaldið öðruvísi
hefði gróðinn orðið 52 milljónir.
Má af þessu sjá að það getur skipt
sköpum í afkomu fyrirtækja að
kunna að færa bókhald. Fram-
kvæmdastjóri hælisins sagðist
raunar hafa séö þetta allt saman
fyrir og löngu vitað að hitt og þetta
mætti betur fara í rekstrinum og
því þyrfti Ríkisendurskoðun ekk-
ert að vera aö gera sig breiða. Svo
héldu náttúrulækningamenn
landsfund um helgina og ræddu
hvað gera skyldi í stöðunni. Með
einhveiju móti þyrfti að kippa
málunum í lag. Menn veltu vöng-
um yfir þessu og lausn virtist ekki
liggja á lausu þegar einhverjum
datt það snjallræði í hug að reka
bara allt starfsfólkið á heilsuhæl-
inu. Þar með væri málið leyst eða
svoleiðis. Þetta var samþykkt með
lófataki. Fóra fundarmenn svo til
síns heima eftir að hafa þegiö veit-
ingar í formi gulrótar og blávatns.
En Sighvatur handleggsbrotni varð
hinn reiðasti þá hann spurði tíðind-
in og viröist nú allt stefna í að heift-
in magnist enn á ný meðal heilsu-
verndarmanna.
Dagfari