Dagblaðið Vísir - DV - 21.05.1991, Síða 5

Dagblaðið Vísir - DV - 21.05.1991, Síða 5
ÞRIÐJUDAGUR 21.. MAÍ 1991, Fréttir Dýrafjarðar- brúin mikil samgöngubót Reynir Tiaustascai, DV, Flateyri: Framkvæmdir viö Dýraíjarðarbrú eru nú að komast á lokastig. Búiö er aö hleypa umferð á brúnna og ók fyrsti bíllinn yfir þann 5. maí við hátíðlega athöfn. Að sögn Geirs Sigurðssonar, eftir- litsmanns Vegagerðarinnar með framkvæmdunum, verður formlega opnað fyrir umferð 1. nóvember n.k. Hann sagði að áætluð verklok við þverun Dýraíjarðar væru næsta sumar þegar sett verður klæðning á veginn. Heildarframkvæmdin sam- anstendur af brúnni, sem er um 120 metra löng, og 500 metra aðalfyll- ingu. Vegalagning við þverunina er alls um 4 kílómetrar. Kostnaður við verkið er um 300 milljónir króna. Aðalverktakar eru Klæðning hf. og Suðurverk hf. auk Vegagerðarinnar. Leiðin fyrir Dýraíjörð styttist um rúma 10 kílómetra sem segir þó ekki allt því í fjarðarbotninum er mikil ófærð að vetrinum og sjaldnast fært. Dýrfirðingar sjá því fram á gífurlega samgöngubót með þessari fram- kvæmd. Eftirlitsmaður Vegagerðarinnar tylgist með þegar mokað er að undirstöðum brúarinnar. Straumur i firðinum hefur verið meiri en reiknað var með og því þarf að styrkja undirstöðurnar. DV-mynd Reynir • • M Oruggasta aftursæti í heimi!M Volvo hannar sína bíla með öryggi allrar fjölskyldunnar í huga, þess vegna kaupa fjölskyldur Volvo. Með Volvo'940 og 960 heldur Volvo áfram að ryðja brautina í öryggismálum. Nú hefur Volvo fyrstur allra bifreiðaframleiðenda í heiminum komið fyrir innbyggðum barnabílstól í aftursæti. Auk þess hefur Volvo komið fyrir þriggja punkta öryggisbelti og höfuðpúða fyrir þriðja farþega í aftursæti. Þessi búnaður er ekki fáanlegur í nokkrum öðrum bifreiðum en Volvo 940 og 960 og því má með sanni segja að hér sé um að ræða öruggasta aftursæti í heimi. Það verður að teljast hálf einkennilegt að engum hafi dottið í hug að gera þetta fyrr, en það er aftur á móti ekki einkennilegt að það skuli fyrst vera Volvo! VOLVO - Bifreið sem þú getur treyst! FAXAFENI 8 • SIMI 91 - 68 58 70

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.