Dagblaðið Vísir - DV - 21.05.1991, Blaðsíða 20
Þ'áíÐJlÍÐA'GÚ'R1 S'l’.yMf'lWÍ.
0
Fréttir
„Það verður
algjör sprenging
hér í sumar“
- segir Baldvin H. Sigurðsson, hótelstjóri á Ólafsfirði
Gylfi Kiistjánsson, DV, Akureyii:
„Þaö má segja aö meö göngunum
í gegnum Múlann hafi opnast ný
þjóðleið um Noröurland og ég geri
ráð fyrir að hér veröi stööugur
straumur fólks í sumar. Það verður
algjör sprenging hér hvaö varðar
ferðamannastrauminn," segir
Baldvin H. Sigurðsson, hótelstjóri
á Hótel Ólafsflrði.
Baldvin segist fullviss um að í
sumar muni fólk leggja lykkju á
leið sína af hringveginum, aka um
Fljót og Lágheiöi og aka síöan um
göngin inn Eyjafjörð. „Við erum
að búa okkur undir mjög aukinn
straum ferðamanna hingað í sum-
ar, bæði viö hér á hótelinu og fleiri
aöilar í bænum. Við ætlum að bjóða
þessum ferðamönnum upp á eitt
og annað, ekki bara að það geti
fengið sér veitingar hér á hótelinu
á leið sinni heldur ætlum við að
sýna að það er eitt og annað aö sjá
og gera hér.
Við ætlum að vera búnir að koma
upp flotbryggju hér í vatninu og
Baldvin H. Sigurðsson, hótelstjóri
á Ólafsfirði. DV-mynd gk
leigja fólki bæði árabáta og „sæ-
ketti“. Menn gætu þá róiö út á vatn-
ið til veiða en í vatninu er hægt aö
veiða ýmsar tegundir fiska, s.s. lax,
silung, kola og þorsk, svo eitthvað
sé nefnt, og það hefur meira að
segja veiöst síld í vatninu.
Hér við bæinn eru frábærar
gönguleiðir, t.d. út á Kleifarnar þar
sem fyrsti vísir var að byggð í Ól-
afsfirði á sínum tíma. Það er líka
skemmtileg gönguleið upp gamla
veginn í Múlanum og það er óvíða
fallegra að fylgjast með miönætur-
sólinni en þar.
Við ætlum að bjóða fólki að fara
á sjó með trillukörlum og renna
fyrir fisk undir Hvanndalabjörgum
sem eru hæsta standberg á íslandi,
full af fugli. Annað sem ég get nefnt
er að hér er frábær sundlaug,
nyrsti 9 holu golfvöllur í heimi,
tennisvellir og áfram mætti telja.
Ferðafólki ætti því ekki að þurfa
að leiðast hér, svo mikið er víst.“
Á Hótel Ólafsfirði eru 11 tveggja
manna vistleg herbergi með baði,
setustofa með sjónvarpi og bar. Þá
verður lokið við byggingu sólskála
viö hótehð í vor svo unnt veröi að
anna þeirri miklu aðsókn ferða-
fólks sem Baldvin og fleiri Ólafs-
firðingar telja víst að muni eiga sér
stað.
«
HAFNARBAKKI
Höfðabakka 1, pósthólf 12460,132 Reykjavík, sími: 676855, fax: 673240
Útleiga og sala á gámum, vinnuskúmm, verkpöllum,
og dráttakerrum.
Gámar:
8, 20 og 40 feta þurrgámar, kæhgámar og einangraðir gámar til
leigu eða sölu. Hentugir sem geymsla til lengri eða skemmri tíma.
20 feta vinnuskúrar:
Einangraðir vinnuskúrar með fullkominni innréttingu og rafmagnstöflu
fyrir eins og þriggja fasa straum. Viðarklæddir með dúk á gólfum, : :
rafmagnshitun og þurrklósetti. Um er að ræða 20 feta gáma sem hafa ‘
verið innréttaðir og er auðvelt að tengja saman tvo eða fleiri gáma.
Einnig eru gámamir auðveldir í flutningum.
Sérlega hentug lausn fyrir byggingaaðila og verktaka.
Vinnupallar:
HB vinnupallar eru framleiddir úr áli og hannaðir þannig að
þeir eru mjög auðveldir í uppsetningu og meðförum. Efni og
frágangur er í mjög háum gæðastaðli og eru pallamir
viðurkenndir af Vinnueftirhti Ríkisins. Bjóðum einnig fótstignar
lyftur, sem geta náð yfir 9 metra hæð.
Dráttarkerrur:
Hafnarbakki hf. leigir út dráttarkerrur, bæði eins og tveggja
hásinga, með burðargetu allt að tveim tonnum.
13 V
Gísli Einarsson, úr bæjarráði, og Jensina Valdimarsdóttir, úr stjórn tónlistar-
félagsins, undirrita samning um húsnæðið. DV-myndir Sigurður
Akranes:
Tónlistarskólinn
fær nýtt húsnæði
Sigurður Svenissan, DV, Akranesi:
Það ríkti sannkölluð hátíðarstemn-
ing í berangurslegum húsakynnum
Tónhstarskóla Akraness á sumar-
daginn fyrsta þegar nýtt húsnæöi að
Þjóðbraut 13 var formlega afhent
Tónhstarfélagi Akraness. Bæjar-
stjóri, bæjarráð og stjórn félagsins
undirrituðu við það tækifæri verk-
samning, þar sem félaginu er faliö
að stjórna framkvæmdum við inn-
réttingu hússins.
Boðið var upp á mjög fjölbreytta
tónlistardagskrá í tilefni dagsins. Þar
gat að heyra einleik á hljóðfæri, jafnt
ungra sem aldinna, einsöng, kór-
söng, hljómsveitarflutning og fleira.
Andrea Gylfadóttir flutti nokkur
lög viö frábæran undirleik Flosa Ein-
arssonar. Langt er um liðið frá því
hún söng. á Akranesi en flutningi
hennar var forkunnarvel tekið.
Samhliða tónlistardagskránni var
Andrea Gylfadóttir söng sig inn í
hjörtu viðstaddra.
boðið upp á kafFi og ijúkandi heitar
nýbakaðar vöfflur.
Bændaskólinn á Hólum:
23 búfræðingar brautskráðir
Þórhallur Ásmundsson, DV, Sauðárkróki:
Bændaskólanum á Hólum var slitið
við hátíðlega athöfn að viðstöddu
fjölmenni í Hóladómkirkju 3.maí. 50
nemendur voru í skólanum i vetur
og voru 23 þeirra brautskráðir sem
búfræðingar. Tveir nemendur á bú-
fræðibraut náðu bestum árangri, þau
Valdimar Óskar Sigmarsson frá Sól-
heimum í Blönduhlíö og Ásdís Erla
Gísladóttir frá Hofsá í Svarfaðardal.
Hlutu þau einkunnina 8,9. Á sporð-
braut, eins og fiskeldisbrautin kall-
ast, varð Sigurdís Samúelsdóttir frá
Djúpadal á Baröaströnd efst.
Að venju var fjöldi viðurkenninga
afhentur fyrir góðan námsárangur í
vetur. Þær hlutu fyrir búfræði Ásdís
Erla Gísladóttir. Bústjóm, Valdimar
Óskar Sigmarsson. Fiskeldi Jón Odd-
ur Þórhahsson, Sauðárkróki. Jarð-
rækt, Ásdís Erla Gísladóttir. Búfjár-
rækt Valdimar Óskar Sigmarsson.
Bútækni á fiskeldisbraut Hermann
Jónsson frá Þorlákshöfn. Fiskeldi,
eldistækni og fiskirækt Sigurdís
Samúelsdóttir. Hrossarækt Bjarni
Jónsson frá Reykhólum.
Nýútskrifaðir búfræðingar úti fyrir dyrum Hóladómkirkju. Komnir út i vorið
að loknum skólasiitum. Á minni myndinni eru Ásdis Erla Gísladóttir og
Valdimar Óskar Sigmarsson sem voru efst og jöfn. DV-myndir Þórhallur