Dagblaðið Vísir - DV - 21.05.1991, Side 25

Dagblaðið Vísir - DV - 21.05.1991, Side 25
MfflÍKffiASTSy&'-. ÍMISM Fréttir íþróttahús á Laugarbakka í V-Húnavatnssýslu: Völundur með lægstu tilboðin ÞórhaOux Ásmundsson, DV, NorðurL vestra: Völundur hf. í Reykjavík var með lægstu tilboð í byggingu íþróttahúss og kennsluhúsnæðis á Laugarbakka í V-Húnavatnssýslu, skammt frá Hvammstanga. Tilboðin byggjast á tvenns konar fyrirkomúlagi. I fyrsta lagi þaki sem borið er uppi af lím- trjám og í öðru lagi þaki með for- spenntum steypueiningum. Kostnað- aráætlun Bárðar Daníelssonar arki- tekts og verkfræðings hljóðaði upp á 1) 36.508 millj. króna og 2). 36.618 millj. króna. Sex aðilar buðu í verkið og voru tvö tilboðanna undir kostnaðaráætlun, bæði frá aðilum í Reykjavík. Völund- Lionsmenn afhenda Sjúkrahúsi Akraness blóðkornateljarann. Frá vinstri: Sigurður Ólafsson, forstjóri SA, Elías Rúnar Eliasson, ritari klúbbsins, Þor- geir Jósefsson, formaður klúbbsins, og Jón Jóhannsson, formaður stjórnar Áhaldakaupasjóðs. DV-mynd Sigurður Akranes: Milljónagjafir til sjúkrahússins Sigurður Sverrisscm, DV, Akranesi: Sjúkrahúsi Akraness hefur að und- anfömu borist hver stórgjöfm á fæt- ur annarri, samtals á 4 milljón króna. Lionsklúbbur Akraness afhenti sjúkrahúsinu nýjan blóökornatelj- ara ásamt tilheyrandi prentara i til- efni af 35 ára afmæli klúbbsins. Verð- mæti gjafarinnar kr.1.888.926 en þar sem virðisaukaskattur fékkst endur- greiddur var kostnaður kr. 1.517.210. Þá fékk sjúkrahúsið stórgjöf frá Sambandi borgfirskra kvenna, kr. 1.494.582, til tækjakaupa fyrir endur- hæfingadeildina. Jafnframt bárust kr. 300.000 frá öldruöum heiðurs- manni, Jóni Mýrdal Sigurðssyni. Selfoss: Kátir eldri borgarar eftir daglangt djamm Regína Thorareusen, DV, Selfossi: Eldri borgarar í Árnessýslu komu saman upp úr hádegi sunnu- daginn 5. maí á Hótel Selfossi. Þetta er í fjórða sinn sem þeir halda há- tíð sameiginlega og mættu um 250 manns. Einar Sigurjónsson, for- maður styrktarfélags EÚdraðra á Selfossi, kynnti skemmtiatriðin sem voru óvenjulega fjölbreytt. Þar söng kór eldri borgara á Sel- fossi undir stjóm Sigurveigar Hjaltested. Frú Emma Kolbeins úr Grímsnesinu flutti frumort ljóð. Séra Heimir Steinsson flutti kvæð- ið um Svein Dúfu. Stefán Jasonar- son sagði frá huldukonum í Ber- serkjahrauni á Snæfellsnesi. Val- garð Runólfsson sagði skemmtilega frá samtíðarskáldum sínum í Hveragerði. Hlín Pétursdóttir frá Eyrarbakka söng lög eftir Pál ísólfsson og Guðrún Guðfmnsdótt- ir, Stokkseyri, söng lög eftir Maríu Markan. Þrjú börn úr Þorlákshöfn önnuðust hljóðfæraleik undir stjórn Roberts Darling. Að lokum var stiginn dans. Haf- steinn Þorvaldsson stjórnaði en fyrir dansi léku Gísli Brynjólfsson og Theódór Kristjánsson frá Hveragerði af miklu fjöri. Þessi stóri hópur úr Árnessýslu bókstaf- lega yngdist upp við að vera þama um daginn og fram undir kvöld- mat. Nemendagarðar á Hólastað Þórhallur Asmundsson, DV, Sauöárkróki: Stefnt er að því að á næstu árum rísi nokkrar íbúðir í svokölluðum nemendagörðum Hólaskóla hér í Hjaltadal í Skagafirði. í skólaslita- ræöu Jóns Björnssonar skólastjóra kom fram að það hefði háð starfsemi skólans að ekki hefur verið hægt að veita fjölskyldufólki aðgang vegna húsnæöisskorts á Hólastað. Nemendagarðar Hólaskóla vom stofnaðir nú í vor og að þeim standa bændaskólinn, nemendafélag skól- ans og starfsmannafélag Hólastaðar. Skipulagsskrá félagsins, sem hefur að markmiði byggingu og rekstur leiguíbúða fyrir nemendur bænda- skólans, hefur verið samþykkt af ráðuneytum dómsmála, landbúnaö- ar og félagsmála. Vonir standa til að fyrstu tvær íbúðirnar verði teknar í notkun strax næsta haust en í bygg- ingu em tvær litlar íbúðir í parhúsi á Hólastað. ur hf. bauð 34.663 og 34.036 milljónir króna. Næstlægstur var Guðmundur Hjaltason með 35.750 og 36.302 millj- Ónir. Hæsta tilboðiö var frá hmmnr aðilum á Blönduósi, sem buðu 50.212 og 51.031 milljónir í verkin. Verið er að yfirfara tilboðin. Húsið skal vera fokhelt og frágangi þess lokið að utan í október í haust. Alhr hreppar V-Húnavatnssýslu standa að framkvæmdinni að Hvamms- tangahreppi undanskildum. Hagstæðu flugferóirnar okkar til London og Kaupmannahafnar njóta gífurlegra vinsælda - þegar meira en 5000 bókanir. Dagflug alla miðvikudaga frá 1. maí til 25. sept. Til Kaupmannahafnar árdegis (kl .08:00). Til London síðdegis fkl. 16:00). Fullbókað er í margar ferðir og fá sæti laus í flestar hinna. BROTTFARARDAGAR: 1.-8. MAÍ-25. SEPT VERÐ: 1 VIKAKR. 14.700 2 VIKURKR. 15.800 3 VIKURKR. 16.900 MAÍ 15.22. 29. JÚNÍ5.12.19.26. VERÐ: JÚLÍ3.10.17. 24.31. 1 VIKAKR. 16.900 ÁGÚST 7.14.21.28 2 VIKUR KR. 17.700 SEPT.4.11.18. 3 VIKURKR. 18.800 KR. 15,800 BROTTFARARDAGAR: 1.-8. MAÍ, 5. JÚNÍ, 25. SEPT. VERÐ: 1 VIKAKR. 15.800 2 VIKURKR. 16.900 3 VIKURKR. 17.700 MAÍ 15.22. 29. JÚNÍ12.19. 26. JÚLÍ3.10.17. 24.31. ÁGÚST 7.14.21.28. SEPT. 4.11.18. VERÐ: 1 VIKAKR. 17.400 2 VIKURKR. 17.900 3VIKUR KR. 18.900 egna stórsamninga okkar við hótel, sumarhús og bílaleigur njóta farþegar okkar ótrúlega hagstæðra samningsverða. f 2 * 8 Frá brottför fyrsta hópflugs sumarsins til Kaupmannahafnar. Guðbjörg Árnadóttir flugfreyja Atlantsflugs býður farþega velkomna um borð. Fólk á biðlista mætti með ferðatöskur á Keflavíkurflugvöll í von um að einhverjir farþegar tilkynntu forföll á síðustu stundu. íslensk, dönsk og bresk flugmálayfirvöld hafa vegna hagsmuna almennings veitt okkur leyfi fyrir þessum ódyru flugferðum í fimm mánuoi frá 1. maí. Sannkölluð kjarabót á tímum þjóðarsáttar og frjálsari- viðskipta í samgöngum Evrópuþjóða. — fi i inFERQiR =SOLRRFLUC Vesturgata 12, Símar 620066, 22100 og 15331 Ath. Úll vcrð cru staðgrclðsluvcrð mlðað við gcngi 1. fcbr. 91. Flugvallagjald og forfallatrygging ekki innifalin.

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.