Dagblaðið Vísir - DV - 21.05.1991, Side 26

Dagblaðið Vísir - DV - 21.05.1991, Side 26
& ÞRIÐJUDAGUR 21. .\1AÍ 1991. LífsstíU DV Verðlag á nauðsynjavörum í Bandaríkjimum og á f slandi: Allt að sexfaldur FLOTEFNI Aðeins kr. 1,660.- 25 kg. cg> ALFABORG i Byggingarmarkaður Knarrarvogi 4 - Sími 686755 ! 5SS® i IIDSŒKl JAPAN VIDEOTÖKUVÉLAR 3 LUX ÞRAÐLAUS FJARSTÝRING Dagsetning Klukka * Titiltextun 3 LUX MEÐ ÞRÁÐLAUSRl FJARSTÝRINGU SEM GEFUR ÞÉR MÖGULEIKA Á AÐ AFSPILA BEINT VIÐ SJÓNVARPSTÆKIÐ ÞITT. MEÐ ALLRA BESTU MYNDGÆÐUM. - 3 LUX ÞVÐA ALLRA BESTU UÓSNÆMNI A MYNDBANDSVÉLUM A MARK- AÐNUM I DAG. ÞAÐ ER EKKI BARA NÓG AÐ TALA UM LINSUOPSTÆRÐ, HELDUR VERÐUR UÓSKUBBURINN AÐ VERA ÞETTA NÆMUR. - MACRO LINSA 8xZOOM - SJÁLFVIRKUR FOCUS - MYNDLEITUN I BÁÐAR ÁTTIR - SJALFVIRK UÓSSTÝRING - VINDHUÓÐNEMI - FADER - RAFHLAÐA/HLEÐSLUTÆKI/MILLI- STYKKI o.Il. - VEGUR AÐEINS l.l KG. SÉRTILBOÐ KR. 69.950,- stgr. Rétt verð KR. 90.400.- stgr. QB Afborgunarskilmálar [g] VÖNDUÐ VERSLUN hmöiaco FÁKAFEN 11 — SlMI 688005 I munur á verði - svipað verð á einstaka vöruflokkum Flestir eru sammála um að verðlag á nauðsynjavörum sé hátt hér á landi og telja allt of mikinn hluta teknanna fara í kaup á þeim. Margir vilja meina að verðlag sé jafnvel mörgum sinnum lægra í öðrum löndum og framfærslukostnaður því miklu lægri. Neytendasíðunni bárust upplýs- ingar um verðlag í smáþorpi í Illino- isfylki í Bandaríkjunum. Verð voru kannað í hverfaverslun af venjulegri stærð á ellefu vöruflokkum. Sé þetta verð borið saman við verðlag í ís- lenskum stórmarkaði, Hagkaup í þessu tilfelli, og hverfaversluninni Nóatúni 17 kemur margt athyglisvert í ljós. Flestum finnst verðlag lágt í Bandaríkjunum á nauðsynjavörum. En hversu miklu munar á einstökum vörum? Verðkönnun DV og saman- burður við Bandaríkin ætti að gefa einhverja mynd af því. í sumum tilfellum er verðmunur- inn gífurlegur og verð mun lægra í Bandarikjunum. í öðrum tilfellum er nánast sama verð en í einstaka tilfellum er íslenska verðið lægra. Greinilegt er af samanburðinum að framfærslukostnaðurinn viö kaup á nauðsynjavörum er miklu minni í Bandaríkjunum en á íslandi. Samanburðinn má sjá á töflunni hér til hliðar. Athygh vekur að gríð- arlegur munur er á verði á einstök- um vörum. Verð á svínalæri er hátt í þrisvar sinnum hærra hér á landi en í Bandaríkjunum. Kílóverð á ít- ölskum smábrauðum er 4-6 sinnum hærra hér á landi. Sambærilegur munur er á verði á paprikukryddi. Útreiknað kílóverð er 4-5 sinnum lægra í Bandaríkjunum. Sömu sögu er að segja af verði á sætum kartöfl- um. Á öðrum vöruflokkum munar minna. Mjólk er á helmingi lægra Neytendur verði í Bandaríkjunum og heldur meira munar á verði á osti í sneiðum. Greipsafi, vinber og greipávöxtur eru á nokkuð lægra verði vestanhafs en það kemur á óvart að hreinn app- elsínusafi er á lægra verði hér á landi en í Bandaríkjunum. Ef tölurnar eru lagðar saman fyrir ísland og Bandaríkin kemur í ljós að verðið á öllum ellefu vöruliðum í Hagkaup og Nóatúni er um og yfir 5 þúsund krónum. Sömu vöruliðir kosta hins vegar rétt rúmar 1900 krónur í Bandaríkjunum. Þessi sam- anburður er þó ekki með öllu raun- hæfur þar sem meðal annars er mið- að við kílóverð á paprikukryddi. Mjög fáir kaupa svo mikið í einu. Þar munar heilum 13-1500 krónum á verði. Eftir stendur þó að greinilegt er að verðlag er snöggtum lægra á flestum nauðsynjavörum í Banda- ríkjunum heldur en hér á landi. ÍS Vöruteqund VgrsluníUSA Haqkaup Nóatún17 Mjólk, 11 42 67 67 Ostur í sneiðum 17%, 1 kg 496 799 799 Appelsínusafi, 11 103 79 99 Greipsafi, 11 64 115 99 Vínber, 1 kg 200 299 260 Greip, 1 kg 106 115 99 Svínalæri, 1 kg 214 567 579 Sætar kartöflur, 1 kg 93 499 - ítölsk smábrauð, 1 kg 120 512 688 Gróðurmold, 6 kg 64 139 132 Paprikukrydd, 1 kg 402 1960 1735 Það kemur nokkuð á óvart að verð á hreinum appelsínusafa var lægra hér á landi en I Bandaríkjunum. Af hverjum bústað eru greiddar 5 til 12 þúsund krónur í fasteignagjöld, allt eftir stærð og aldri bústaðanna. DV-mynd e.j. Sumarbústaðaeigendur: Óánægðir með þjónustu sveitarfélaganna „Það hafa veriö stofnuð félög sum- arbústaðaeigenda sums staðar á landinu. Það sem menn eru nú að velta fyrir sér er að stofna ein heild- arsamtök sem myndu beita sér fyrir réttindamálum fólks sem á sumarbú- staði vítt og breitt um landið,“ segir Trausti Tómasson, sumarbústaða- eigandi í Rangárvallasýslu. Sumarbústaðaeigendur segjast greiða fasteignagjöld af eignum sín- um til viðkomandi sveitarfélaga án þess að fá nokkra þjónustu í staðinn. „Við borgum til þeirra beint en fáum ekkert til baka,“ segir Trausti. Nefna þeir sem dæmi að sveitarfé- lög sjái ekki um sorphirðu né að snjór sé hreinsaður af vegarslóðum til þeirra á vetrum. „Ég á 40 fermetra bústað og af hon- um greiði ég um 10 þúsund krónur í fasteignagjöld á ári. í þeim hreppum, þar sem bústaðir eru margir, er þetta mikil tekjulind. Sumarbústaðaeigendur verða sjálfir að leggja vegi að bústööum sínum og vatnslagnir og ef þeir vilja taka inn rafmagn kostar það hundr- uði þúsunda króna. Það er þó ekki þetta sem við erum helst aö kvarta yfir heldur það aö okkur finnst við eiga rétt á þjónustu frá sveitarfélög- unum í samræmi við þau gjöld sem við greiðum til þeirra. Þetta er víst löglegt en það er hálfsiðlaust," segir Trausti. „Við veitum sumarbústaðaeigend- um ýmsa þjónustu. Hreppurinn er til dæmis með á sínum snærum ruslagáma sem dreift er meöfram vegum í sveitinni og í þá getur fólk hent rusli sem við sjáum svo um að hirða,“ segir Þórir Þorgeisson, odd- viti í Laugardalshreppi. „Við sjáum einnig um brunavarnir fyrir sumarbústaðaeigendur þvi að ef svo illa fer að kviknar í einhverj- um bústað fórum við og slökkvum í honum. Hreppurinn hefur ekki ýkja miklar tekjur af fasteignagjöldum. í fyrra námu heildartekjurnar af þeim 5 milljónum króna. Inni í þeirri tölu eru greiðslur af öllum fasteignum í hreppnum," segir Þórir. „Við sjáum sumarbústaðaeigend- um fyrir brunavörnum en greiðum þar af leiðandi um 1200 þúsund krón- ur á ári til brunavarna Árnessýslu. Upphæðin er aö stórum hluta komin til vegna þess hversu margir sumar- bústaðir eru í hreppnum. Á þremur árum höfum við komið upp 7 sorpgámum vítt og breitt um sveitina og kostaði það um 700 þús- und krónur. Annar kostnaður hjá sveitarfélag- inu vegna sumarbústaðaeigenda er sundlaugin við Ljósafoss. Hún er rekin með tapi en viö höldum henni opinni fyrir þetta fólk. Auk þess má nefna að við höfum friðað þriðjunginn af öllu sumarbú- staðalandi sveitarinnar fyrir sauðfé. Ennfremur höfum við aðeins hjálpað til viö snjómokstur," segir Böðvar Pálsson, oddviti í Grímsneshreppi. í hreppnum eru 1.043 sumarbú- staðir á skrá og nú eru 200 til 300 í byggingu. Af hverjum bústað eru greiddar 5 til 12 þúsund krónur í fast- eignagjöld en verðið ræðst af stærð og aldri bústaðanna eins og annars staðar. Hreppurinn er einn sá tekjuhæsti á landinu með um 105 þúsund krónur á hvern íbúa. „Á móti kemur að við þurfum að borga í Jöfnunarsjóð sveitarfélaganna en þar sem tekjur hreppsins eru svo miklar erum við svipt öllum styrkjum úr sjóðnum. Við borgum í hann en fáum ekkert til baka,“ segir Böðvar. „Við viljum fyrir hvern mun hafa gott samstarf við það fólk sem á bú- staði hér og reynum því að koma á móts við þarfir þess eftir því sem við getum." -J.Mar

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.