Dagblaðið Vísir - DV - 21.05.1991, Side 27
39
Fréttir
Saltfiskverkun:
Færist í vöxt að menn f leflji
og pækilsalti úti á sjó
„Saltfiskvinnslan er ekki aö færast
út á sjó. Hins vegar hefur þaö fariö
vaxandi að menn fletji og pækilsalti
á hafi úti. Þaö eru ekki margir sem
stunda þetta enn sem komið er,“ seg-
ir Sigurður Haraldsson, aðstoðar-
framkvæmdastjóri Sölusambands ís-
lenskra flskframleiðenda.
Þeir sem hafa að undanförnu saltað
mest úti á sjó eru Þorbjörn í Grinda-
vík, Bylgjan í Vestmannaeyjum og
Borg í Hrísey.
„Ég held að aðalástæðan fyrir því
að menn salta um borð sé sú að kvót-
inn verður alltaf minni og minni og
menn leita leiða tfl að halda vinnunni
ATTU VON A BARNI?
Slitolía einstaklega góö og
fjölvirk, sérfræöiþjónusta.
ÞUMALÍNA
Leifsgötu 32 — Sími 12136
lengur yfir árið,“ segir Sigurður.
„Við söltum mikið úti á sjó af fiski
og höfum gert síðast liðin fjögur ár.
Ástæðan er sú að við erum með tog-
skip og afli þeirra hentar illa í salt
eftir að hann hefur legið í ís í viku
tfl tíu daga. Við látum því gera að
fiskinum og salta hann um leið og
hann kemur um borð. Þar með náum
við miklum mun hærra meðalverði
fyrir fiskinn heldur en með hinni
aðferðinni,“ segir Gunnar Tómasson
hjá Þorbimi hf. í Grindavík.
„Frystihúsin hafa fremur en Scdt-
flskverkunin getað nýtt sér afla tog-
skipa þó hann sé kannski búinn að
hggja í ís í allt að tíu daga en að okk-
ar mati er svo eamall fiskur íiio
hæfur í salt.
Skipstjórarnir hafa einnig talið
þetta kost að því leyti að þá geta þeir
verið lengur úti í einu.
Það hafa nokkrir bæst í þennan
hóp sem saltar um borð, netabátarn-
ir eru í auknum mæli farnir að gera
þetta,“ segir Gunnar.
-J.Mar
Sviösmynd úr leikritinu.
DV-mynd Ægir
Fáskrúðsfiörður:
Fjáröf lun skólans
Ægir Kristmsson, DV, Fáskrúðsfirði:
Leikhópur Grunnskóla Fáskrúðs-
fjarðar sýndi leikritið „Þú ert í blóma
lífsins, fiflið þitt“ eftir Davíð Þór
Jónsson, í leikstjórn Magnúsar Stef-
ánssonar í félagsheimflinu Skrúð,
Fáskrúðsfirði, 1. maí. sl. Leikendur
voru 21 og flestir þeiiTa með fleiri
en eitt hlutverk. Húsfylhr var á sýn-
ingunni og leikendum og leikstjóra
klappað lof í lófa í sýningarlok.
Davíð Þór ritaði leikritið í sam-
vinnu við unglingadefld Leikfélags
Hafnaríjarðar. Nemendur í 8., 9. og
10. bekk grunnskólans fóru með
hlutverkin, en sýningin var til íjár-
öflunar í ferðasjóð nemenda Grunn-
skóla Fáskrúðsfjarðar.
Akureyri:
Björgvinskvöld í
Minjasafninu
Gylfi Kristjánsson, DV, Akureyri:
„Björgvinskvöld", þar sem sungin
verða einsöngslög eftir Björgvin
Guðmundsson og lesið úr endur-
minningum hans, verða haldin í
Minjasafninu á Akureyri nk. mið-
vikudags- og fimmtudagskvöld og
hefst dagskráin kl. 20.30 bæði kvöld-
in.
Söngvararnir Þuríður Baldurs-
dóttir og Örn Viðar Birgisson syngja
einsöngslög eftir Björgvin við undir-
leik Guðjóns Pálssonar. Þráinn
Karlsson leikari les úr endurminn-
ingum Björgvins.
Björgvin Guðmundsson tónskáld
var fæddur árið 1891 og bjó og starf-
aði á Akureyri um 30 ára skeið. Á
þessum vordögum eru þvi liðin 100
ár frá fæðingu hans og heiðra Akur-
eyringar núnningu hans með marg-
víslegum hætti. I Minjasafninu eru
varðveittir ýmsir munir tónskálds-
ins og má þar nefna fyrsta orgelið
sem Björgvin eignaðist á unglings-
árum sínum er hann bjó á Rjúpna-
felli í Vopnafirði.
Söfnunarstórhátí5 á Hótel Islandi 26. maí
vegna Olympíuleika þroskaheftra.
Tökum hönduin saman og gerum þroskaheftum Islendingum í fyrsta sinn kost á að taka þátt í
Special Olympics, Olympíuleikum þroskaheftra, sem fram fara í Minneapolis 19.-27. júlí.
Þar verða 18 íslenskir íþróttamenn í hópi 6000 þroskaheftra keppenda frá 90 löndum.
Glæsilegasta skeinmtun ársins!
Landslið matreiðslumeistara, listamanna og skemmtikrafta.
Veislustjórar: Edda Andrésdóttir og Stefán Jón Hafstein.
Hótel ísland opnar kl. 18:00
Boðið verður uppá fordrykkinn "Gulldropa" og borðhald hefst kl: 19:00 stundvíslega.
Einstakur ólympíumatseðill:
Klúbhur matreiðslumeistara frá bestu veitingastöðum landsins kemur saman og töfrar fram
fjórréttaðan kvöldverð, sem á engan sinn líkan hér á landi:
Kofareykt laxarós með kavíar og fylltu eggi.
Jurtakrydd-grafinn lambavöðvi með heitri vinagrett sósu.
Olympíuhumar að hœtti Kanadamanna með sjávardýratríói.
Eldristaðir Gullmolar með ferskum ávöxtum, vanilluís og Sabayonsósu.
Maraþon skemmtidagskrá:
Helstu listamenn og gleðigjafar þjóðarinnar leggja sitt að mörkum án endurgjalds
til að gera kvöldið ógleymanlegt og bjóða upp á ótrúlega dagskrá:
Sigrún Hjálmtýsdóttir, Björgvin Halldórsson, Jónas Dagbjartsson og Jónas Þórir, Pálmi
Gunnarsson, Veislutríóið: Anna Guðný Guðmundsdóttir og Sigurður Ingvi Snorrason, Egill
Olafsson, Asa Hlín Svavarsdóttir og Jóhann G. Jóhannsson, Tríó Reykjavíkur: Guðný
Guðmundsdóttir, Gunnar Kvaran og Halldór Haraldsson, Reynir Jónasson, Savanna tríóið;
Björn G. Björnsson, Troels Bendtsen og Þórir Baldursson, Monika Abendroth og Gunnar
Kvaran, Þorsteinn Gauti Sigurðsson, Sigrún Eðvaldsdóttir, Sigríður Beinteinsdóttir og
Stjórnin, Ríó tríó; Ágúst Atlason, Helgi Pétursson, Ólafur Þórðarson og félagar, Helena
Jónsdóttir og Hrafn Friðbjörnsson frumflytja dans við "Nocturne" Gunnars Þórðarsonar,
Anna og Ragnar íslandsmeistarar í Suðuramerískum dönsum, Ómar Ragnarsson, fulltrúar
Spaugstofunnar og hver veit nema fleiri bætist í hópinn.
Sérstakir gestir:
Paul Anderson framkvíemdastjóri Evrópusamtaka Special Olympics, ráðherrar og fleiri
velunnarar þroskalieftra verða sérstakir gestir kvöldsins.
Dansleikur:
Að lokinni dagskrá verður stiginn dans við valda Vínartónlist til kl. 01:00.
Verð aðgöngumiða kr. 10.000
Miðinn er um leið viðurkenning fyrir veittan stuðning. Fordrykkur, kvöldverður og
skemmtidagskrá innifalið í miðaverði. Engin önnur fjársöfnun fer fram á hátíðinni.
Miðasala:
Miðasala og borðapantanir á skrifstofu Iþróttasambands Fatlaðra í síina 686301. Niðurröðun
borða ræðst af röð pantana.
Einstæður viðburður í íslensku samkvæmislífi!
Láttu þig ekki vanta!
BRIMB0RG
BÍLAGALLERÍ
Faxafeni 8
Sími 91-685870
Opiö virka daga 9-18.
BRIMBORGj Laugardaga 10-16.
Charade TS ’86, hvítur, 4 gíra, út-
varp, sílsabretti, ek. 86.000. Verð
370.000.
Charade CX ’89, Ijósblár, sjállsk.,
fallegur bill, ek. 30.000. Verð
680.000.
Toyota Tercel ’88, rauður, 5 gíra,
útv./segulb., ek. 74.000. Verð
780.000.
Subaru 1800 station '88, rauður, 5
gíra, vst„ útv./segulb., ek. 78.000.
Verð 990.000.
Suzuki Fox '88, Ijósblár, 5 gira,
útv./segulb., ek. 71.000. Verð
780.000.
Volvo 740 GL '87, hvítur, sjólfsk.,
vst., útv./segulb. o.fl., ek. 59.000.
Verð 1.280.000.
Volvo 245 GL '87, beige, 5 gíra,
vst., útv./seg., fallegur bíll, ek.
72.000. Verð 1.030.000.
Volvo 740 GLE '88, Iblár, sjálfsk.,
útv./segulb., plussáklæði, ek.
44.000. Verð 1.540.000.
Volvo 440 GLT ’89, blár, 5 gíra, vst.,
útv./segulb., álfelgur, ek. 34.000.
Einn eigandi. Verð 1.150.000.