Dagblaðið Vísir - DV - 21.05.1991, Page 44

Dagblaðið Vísir - DV - 21.05.1991, Page 44
F R ÉTTASKOTIÐ fiO • OC • OK Hafir þú ábendingu eða vitneskju um Fyrir besta fréttaskotið í hverri viku frétt, hringdu þá í síma 62-25-25. Fyrir greiðast 5.000 krónur. Fullrar nafn- hvert fréttaskot, sem birtist eða er notað leyndar er gætt. Við tökum við frétta- í DV, greiðast 2.000 krónur. skotum allan sólarhringinn. Ritstjórn - Auglýsingar - Áskrift - Dreifing; Sími 27022 Viðræður launþega og vinnuveitenda héldu áfram í morgun: Litlar líkur a samkomulagi „Um það er ekki deilt að við- nú enda væri kveðið á um það í Skal þeirri endurskoðun vera lokið skiptakjarabati upp á einhver pró- samningunum að þetta væri sam- fyrir 20. maí“. sent hefur átt sér stað. Eigi hins komulagsatriði. „Þettaerágreiningurumhvenær vegar að vera möguleiki að fram- í þeirri bókun sem samið var um og hve mikið eigi að greiða vegna lengja stööugleika samninga í við endurskoðun þjóðarsáttar- viðskiptakjarabatans. Það er okkar liaust þegar þjóðarsáttarsamning- samninganna 24. nóvember síðast- skoðun að það séu þessi 2,5%. Það arnir renna út þýðir ekki að taka liöinn og viðræðurnar nú byggja á verður hjakkað í því i dag. Þaö er þetta allt út núna. Ef svo væri gert segir: ómögulegt að segja hver verður verður ekkert eftir í haust Við „Vegna þeirrar sérstöku óvissu niðurstaða fundarins en það er værum að ávísa fyrirfram á það um þróun viðskiptakjara sem leitt fundaö meðan von er. Við vísum í efnahagslega svigrúm sem er til hefur af olíuverðshækkunum eru kjarasamninginn sem segir að taka samninga í haust. Mér er til efs að aðilar sammála um að taka við- eigi tillit til viðskiptakjara. Menn nokkur myndi þá samþykkja skiptakjörin til sérstakrar skoðun- gerðu þennan kjarasamning í samninga upp á kannski eítt til tvö ar í febrúar og í maimánuði. Hafi trausti þess að menn sýndu ekki prósent, en þannig yrði staöan ef þau þá batnað meö marktækum óbi]girniþegartilkastannakæmi,“ efnahagskjarabatinn yrði allur hætti umfram forsendur samning- sagði Karl Steinar Guðnason í greiddur út nú,“ sagði Þórarinn anna munu aðilar í sameiningu morgun. V. Þórarinsson, framkvæmdastjóri taka afstöðu til þess á hvern veg í morgun funduöu launanefndir Vinnuveitendasambandsins, í launafólki verði bættur sá við- BSRB og ASÍ í húsakynnum Al- morgun. skiptakjarabati sem verða kann þýðusambandsins. Sanmingafund- Hann sagðist ekki eiga von á umfram forsendur samninganna á ur fulltrúa ASÍ og VSÍ átti að hefj- neinum átökum vegna þessa máls síðari hluta samningstímabilsins. astklukkanll. -S.dór/pj ÞRIÐJUDAGUR 21. MAÍ 1991. Björgunarafrek 1 sundlauginni á Akureyri: Hættur að anda ogorðinnblár CJylfi Kristjánsson, DV, Akureyri: „Ég er í björgunarsveit hér á Akur- eyri, í deild sem sérhæfir sig í björg- un á sjó, og því vissi ég hvernig átti að bregðast við,“ segir tvítugur Ak- ureyringur, Jóhann Jónsson, en snarræði hans og kunnátta er talin öðru fremur hafa orðið til að bjarga karlinanni frá drukknun í sundlaug- inni á Akureyri á laugardag. Þorsteinn Þorsteinsson sundlaug- arvörður segir að þegar uppgötvaðist að maður lá líflaus við botn laugar- innar hafi starfsmaður þar stungið sér eftir manninum og komið með hann að bakkanum. Þegar maðurinn var dreginn upp á bakkann kom Jó- hann þar að en hann var gestur í lauginni. Jóhann tók strax til við að blása lífi í manninn sem sýndi fljót- lega lífsmark. „Maðurinn var með- vitundarlaus, hættur að anda og orð- inn blár en hann kom fljótt til, púls fannst strax eftir um það bil mínútu og svo fór hann að anda,“ segir Jó- hann. Sjúkrabifreið kom mjög fljótt á vettvang enda vegalengdir ekki mikl- ar. Farið var með manninn á sjúkra- húsið þar sem hann kom til meðvit- undar síðar um daginn. í morgun fengust þær upplýsingar á gjör- gæsludeild sjúkrahússins að maður- inn, sem er Reykvíkingur á fimm- tugsaldri, væri úr lífshættu og hon- um hði vel eftir atvikum. Tveir settir í varðhald „Það eina sem ég get sagt er að á fóstudag og laugardag voru úrskurð- aðir í varðhald tveir karlmenn til 19. júní vegna gruns um innflutning á miklu af hassi,“ sagði Björn Hall- dórsson, yfirmaður Fíkniefnadeild- ar, í samtali við DV. Björn vildi ekki segja hve mikið magnið væri en sagði að mennirnir hefðu ekki komið áður við sögu hjá Fíkniefnadeildinni. -pj Robert De Niro kom hér við hér á hvítasunnudag: „Hvar eru rauðu ljósin?“ Leikarinn heimsfrægi Robert De Niro millilenti einkaþotu sinni um klukkan ellefu á hvítasunnudag á Keflavíkurflugvelli á leið sinni frá kvikmyndahátíðinni í Cannes. Hann tók leigubifreið fyrir sig og fylgdarlið sitt og skrapp til Reykjavíkur. Leiðin lá fyrst á Hótel Holt og þar fékk De Niro sér humarsúpu og önd með appelsínusósu. Hann fékk sér franskt hvítvín, Chablis Grand Cru, með matnum og dreypti á staupi af Svarta dauða. í eftirrétt valdi hann sér kökur af kökuvagninum. Matreiðslumennirnir Guðmundur Guðmundsson og Eiríkur Ingi Frið- geirsson sáu um matseldina og fengu mikið hrós fyrir hjá leikaranum sem tók með sér í nesti eina súkkulaðit- ertu og humar í skel sem hann ætl- aði að narta í á leiðinni til New York. Þjónarnir fengu 100 dali í þjórfé og næst lá leiðin í stutta kynnisferð um Reykjavík. Fyrst var Leifsstyttan skoðuð og síðan ekið niður Lauga- veginn. Þegar Robert De Niro var _m..m_ LOKI Rauða Ijósið heillar þá fleiri en Ólaf Ragnar! sagt að Laugavegurinn væri aðal- verslunargata borgarinnar varð honum að orði: „Hvar eru rauðu ljós- in?“. Hann varð hissa þegar honum var sagt aö hér sæjust engin merki um starfsemi vændiskvenna. Eftir stutta skoðunarferð um bæ- inn var haldið beint upp á Keflavík- urflugvöll. Robert De Niro og fylgd- arlið ætluðu að bregða sér í Bláa lón- ið en ekkert varð úr því þar sem hann eyddi meiri tíma í Reykjavík en upphaflega var ráðgert. Á leiðinni til baka á Reykjanesbrautinni spurði hann leigubílstjórann hvort hann væri ekki til í að aka greiðar. „Ég vil aka hratt,“ sagði De Niro. í viðtali við blaðamann DV kom fram að De Niro þekkir vel til Jonna (Sigurjóns Sighvatssonar) og Propaganda Films. Hann sagðist hins vegar ekki hafa haft hugmynd um að Jonni væri íslendingur. De Niro hélt af landi brott ásamt fylgdarliði sínu um klukkan 16. ÍS/Ægir Már Veðriðámorgun: Skúrir vest- anlands en bjartfyrir austan Á morgun lítur út fyrir hæga vestan- og suðvestanátt á landinu. Skúrir verða um landið vestanvert en bjart veður að mestu austan til. Hiti á bilinu 4-8 stig á sunnanverðu landinu en 8-12 stig norðaustanlands. Robert De Niro var mjög ánægður með stutta dvöl sína hér á íslandi en myndin var tekin i Flugstöð Leifs Eiríks- sonar er leikarinn hélt af landi brott. DV-mynd Ægir Már

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.