Dagblaðið Vísir - DV - 24.05.1991, Side 2
Fréttir
FÖSTUDAGUR 24. MAÍ 1991.
DV
Skoðánakönnun DV um fylgi flokkanna:
Alþýðubandalagið tekur
mikið af krataf ylginu
Stjómarandstaðan hefur sótt í sig
veðriö samkvæmt skoðanakönnun,
sem DV gerði í gær- og fyrrakvöld.
Einkum er áberandi hvemig Alþýðu-
bandalagið hefur unnið mikið fylgi á
kostnað Alþýðuflokksins. Fram-
sóknarflokkurinn hefur einnig unn-
ið á.
Skekkjufrávik í könnuninni eru
3-4 prósentustig hjá flokkunum. Úr-
takið var 600 manns og var jafnt skipt
milli kynja og jafnt milli höfuðborg-
arsvæðisins og landsbyggðarinnar.
Spurt var: Hvaða lista mundir þú
kjósa ef þingkosningar fæm fram
nú?
Af öllu úrtakinu sögðust 7 prósent
mundu kjósa Alþýðuflokkinn. Fram-.
sókn sögðust 15,7 prósent úrtaksins
mundu kjósa. Sjálfstæðisflokkurinn
fær 28,7 prósent úrtaksins. Frjáls-
lynda nefna 0,2 prósent. Alþýðu-
bandalagið hlýtur 13,3 prósent af
úrtakinu. Öfgasinnaöa jafnaöar-
menn nefna 0,2 prósent. Kvennalist-
inn fær 6 prósent. 0,3 prósent nefna
Grænt framboð og 0,3 prósent Þ-lista,
llmmælifólks
íkönnuninni
„Ég var bölvað íhald þegar ég
var yngri en svo vitkaðist ég og
gerðist róttæk. Síöan þá hef ég
alltaf kosið Framsóknarflokkinn.
Það er ég viss um að þessir gaur-
ar, sem nú stjóma landinu,
myndu ekki hika við að seþa
landið andskotanum ef þeir teldu
sig græða á því. Ég bið til almætt-
isins að þeir fari frá sera fyrst,"
sagði eldri kona á Norðurlandi
vestra. „Ég myndi kjósa Alþýðu-
flokkinn. Þeir sem þar ráða ríkj-
um horfa til framtíðar,“ sagði
ungur maður f ReyKjavík. Karl í
Reykjavik kvaðst aldrei aftur
ætla að kjósa Sjálfstæöisflokkinn:
„Þeir vita ekki hvaö þeir em aö
gera fólkinu í landinu með því
að hækka vextina," sagði hann.
„Ég treysti því að Alþýðubanda-
iagiö hagi sér af ábyrgð í stjómar-
andstööunni. Geri flokkurinn það
mun ég styðja hann meö ráðum
og dáöum," sagöi kona á Akur-
eyri. „Þessir flokkar virðast allir
hafa það aö markmiði aö aflífa .
bændur. Ég veit svo sannarlega
ekki hvað ég á að gera,“ sagði
bóndi á Suðurlandi. -kaa
Hún er fallvölt gæfan í pólitíkinni. Nú rétt ríflega mánuði eftir síðustu alþing-
iskosningar leiðir skoðanakönnun DV í Ijós fylgishrun hjá Alþýðuflokki.
Þrátt fyrir lítilsháttar fylgisaukningu hjá Sjálfstæðisflokki dugar það ekki
ríkisstjórnarflokkunum til meirihlutafylgis hjá kjósendum. Stjórnarandstöðu-
flokkarnir, þó einkum Alþýðubandalagið, auka hins vegar fylgi sitt.
DV-mynd GVA
Þjóðarflokksins og Flokks mannsins. prósent vilja ekki svara.
25,8 prósent eru óákveðnir, og 2,5 Þetta þýðir að af þeim sem taka
Fylgi þingflokkanna
— miðað við þá sem tóku afstöðu í könnuninni —
Alþýflu- Framsóknar- Sjílfstæðls- Frjálslyndir Alþýflu- Kvennalisti
flokkur flokkur flokkur bandalag
afstöðu nefna 9,8 prósent Alþýðu-
flokkinn, sem er tap upp á 5,7 pró-
sentustig frá kosningunum. 21,9 pró-
sent segjast mundu kjósa Framsókn-
arflokkinn, sem er aukning um 3
prósentustig frá kosningunum. Sjálf-
stæðisflokkurinn fær 40 prósent, sem
er aukning um lítil 1,4 prósentustig.
Fijálslyndir hljóta 0,2 prósent, sem
er minnkun um eitt prósentustig.
Alþýðubandalagið hlýtur 18,6 pró-
sent, mikla aukningu, upp á 4,2 pró-
sentustig. Öfgasinnaðir jafnaðar-
menn hljóta 0,2 prósent, höfðu 0,3
prósent í kosningunum. Kvennalist-
inn fær nú 8,4 prósent, sem er aukn-
ing um 0,1 prósentustig frá kosning-
unum. Grænt framboð fær 0,3 pró-
sent, sama og í kosningunum, og Þ-
listinn fær 0,3 prósent, sem er minnk-
un um 1,5 prósentustig.
Ef þingsætunum 63 er skipt í beinu
hlutfalli við fylgi samkvæmt þessari
könnun, fengi Alþýöuflokkurinn 6
og tapaði 4. Framsókn hlyti 14, ynni
einn. Sjálfstæðisflokkurinn fengi 26
sem fyrr. Alþýðubandalagið fengi 12
í staö 9. Kvennalistinn fengi 5 sem
fyrr.
-HH
Niðurstöður skoðanakönnunarinnar urðu þessar (í %):
Alþýðuflokkur 7,0
Framsóknarf lokku r 15,7
Sjálfstæðisflokkur 28,7
Frjálslyndir 0,2
Alþýðubandalag 13,3
Öfgas.jafnaðarmenn 0,2
Kvennalisti 6,0
Græntframboð 0,3
Nisti 0,3
Óákveðnir 25,8
Svaraekki 2,5
Ef aðeins eru teknir þeir sem tóku afstöðu eru niðurstöðurnar þessar (í %):
kosn. nú
Alþýðuflokkur 15,5 9,8
Framsóknarflokkur 18,9 21,9
Sjálfstæðisflokkur 38,6 40,0
Fijálslyndir 1,2 0,2
Alþýóubandalag 14,4 18,6
Öfgasinnaðir jafnaðarmenn 0,3 0,2
Kvennalisti 8,3 8,4
Græntframboð 0.3 0,3
Þjóðfl.-R.manns. 1,8 0,3
Ef þingsætum er skipt i réttu hlutfalli við úrslit skoðanakönnunarinnar verða niðurstöður þessar:
kosn. nú
Alþýðuflokkur 10 6
Framsóknarflokkur 13 14
Sjálfstæðisflokkur - 26 26
Alþýðubandalag 9 12
Kvennalisti 5 5
Formaður EFTA í Vín um fjárfestingar útlendinga:
Fyrirvari Islands staðfestur
- Jón Baldvin vísar á bug fréttum um tvíhliða viðræður um sjávarútvegsmál íslendinga
Á ráðherrafundi EFTA í gær lýsti
Wolfgang Schussel, formaður EFTA,
því yfir að þaö væri sameiginlegur
skilningur hans og forseta EB að fyr-
irvari Islendinga gegn fjárfestingum
erlendra aðila í íslenskum sjávarút-
vegi væri varanlegur. Þetta rök-
studdi hann á þann veg að engin
andmæli hefðu komið fram gegn fyr-
irvaranum þegar Jón Baldvin
Hannibalsson lýsti honum á samn-
ingafundi EB og EFTA í Brussel
þann 13. maí síðastliðinn. Því væri
það skilningur beggja aöila að fyrir-
varinn væri samþykktur.
Að sögn Jóns Baldvins eru þetta
mestu tíðindin fram til þessa af fundi
utanríkisráðherra EFTA-landanna
sem fram fer í Vín. Hann segir EB
hafa verið ófáanlegt fram til þessa
að staðfesta þennan fyrirvara.
„Viðræðurnar hafa gengið dável
fram til þessa. Hins vegar hefur kom-
ið í ljós að það eru ýmsar tröllasögur
í gangi um að þær séu að fara út um
þúfur. Því fer þó fjarri og ef eitthvað
er þá ríkir nú aukin bjartsýni á að
þetta takist.“
Jón Baldvin vísar alfariö á bug
þeim sögusögnum að Norömenn og
jafnvel Islendingar hafi ákveðiö að
hefla tvíhliöa viðræöur viö EB um
sjávarútvegsmál. Hið rétta væri að á
mánudaginn hæfust viöræður milli
EFTA og framkvæmdastiómar EB
þar með aðalsamningamönnum ís-
lands og Noregs. „Hitt er þó ljóst,“
segir Jón Baldvin, „að í næstu viku
hefja Norðmenn sínar árlegu tvíhliða
viðræður við EB um endurskoðun á
þeim rammasamningi sem þeir hafa
haft við bandalagiö allt frá 1985. Þær
viðræður eiga ekkert skylt við EES-
viðræðumar.“
Aö sögn Jóns Baldvins hefur ekk-
ert EFTA-ríki enn sem komið er
hafnað þátttöku í þeim sjóði sem fyr-
irhugað er aö stofna tU að styrkja
fátækari lönd EB. Hins vegar hafi
Finnar lýst því yfir að þeir ættu í
erfiðleikum með aö borga mikið í
þennan sjóð þar sem þeir hafi tapað
um 12 prósentum af utanríkisvið-
skiptum sínum í kjölfar þess efna-
hagslega hrans sem átt hefur sér stað
í Sovétríkjunum.
Aðspurður segist Jón Baldvin telja
minni líkur en áður á að Sviss dragi
sig út úr viöræðunum um EES. Hins
vegar séu ýmis teikn á lofti sem bendi
til að þeir muni fyrr en seinna sækja
formlega um aðild að EB. Þetta seg-
ist hann meöal annars hafa merkt
af ræðu Jean-Pascal Delamuraz, ut-
anríkisráðherra Sviss, á ráðherra-
fundinum.
Jón Baldvin segist ekki geta útilok-
að að ísland kunni að hætta þátttöku
í viðræðunum um EES. Það muni
alfarið ráðast af því hvort kröfu EB
um aögang að auðlindum verði hafn-
að eða ekki.
„Afstaða íslands er skýr í þessu
máli og hana þekkja allir. Það ætti
að koma í ljós síðar í næsta mánuði
hvort af þátttöku okkar verður," seg-
ir Jón Baldvin.
-kaa