Dagblaðið Vísir - DV - 24.05.1991, Page 3

Dagblaðið Vísir - DV - 24.05.1991, Page 3
FÖSTliJD&GlfR;24'. iM'AÍj 1991.[ 3S I>V Fréttir Skall í bakkann og rotaðist - segir Sigtryggur Jónsson sem bjargað var frá drukknun 1 sundlauginni á Akureyri Gylfi Kristjánsson, DV, Akureyii: „Ég tel mig alveg vita hvað þarna gerðist þar til ég skall með höfuðið í laugarbakkann en síðan vissi ég ekki Sigtryggur Jónsson á gjörgæslu- deild Fjórðungssjúkrahússins á Ak- ureyri í gær. DV-mynd gk Ránmorðið: fyrir að eyða ránsfé Sambýliskonur þeirra Guð- mundar Helga Svavarssonar og Snorra Snorrasonar, sem dæmd- ir hafa verið fyrir að ræna bens- instöð Esso við Stóragerði og bana Þorsteini Guðnasyni bens- ínafgreiðslumanni að morgni 24. apríl í fyrra, voru dæmdar í 4 og 6 mánaða skilorösbundið fangelsi i sakadóml Sambýliskonurnar voru ákærðar fyrir hylmingu og fyrir að hafa tekiö þátt í að eyða ráns- fénu sama dag og næstu daga á eftir. Önnur sambýliskvennanna neitaði i upphafi allri vitneskju um atburðínn í Stóragerði en við- urkenndi síðar fyrir dómi að hafa vitað af fyrirætlunum Guðmund- ar Helga og Snorra um að ræna bensínstööina. Viðurkenndi hún að hún og meöákærða hefðu tekiö þátt í að eyöa því fé sem Guö- mundur Helgi og Snorri rændu umræddan morgun, þrátt fyrir að heirni hafi þá verið ljóst að þeir hefðu banað afgreiðslu- manninum. Þau fiögur hefðu öll farið saman út þennan sama dag, keypt sér föt í verslun í bænum og síðan haldið í Kringluna, stein- snar frá bensínstöðinni, þar sem keyptur var meiri fatnaöur. Síð- an borðuöu þau saman á veit- ingastaö í Kringlunni. Hin sambýliskonan vissi ekki af fyrirætlunum Guðmundar Helga og Snorra en tók þátt í aö eyða ránsfénu þá vitandi hvaö hafði gerst umræddan morgun. Ingibjörg Benediktsdóttir saka- dómari kvað upp dóminn. -hlh RAUTT LJOS RAUTT UÓS/ IFERÐAR af mér fyrr en ég vaknaði hér á sjúkrahúsinu á mánudaginn," segir Sigtryggur Jónsson, Reykvíkingur á fertugsaldri sem bjargaö var frá drukknun í sundlauginni á Akureyri síðastliðinn laugardag. „Ég fer ávallt í heitan pott áður en ég fer í sund til að mýkja vöðva og hita mig upp,“ sagði Sigtryggur í samtali við DV í gær. „í þessu tilfelli áttaði ég mig ekki á því að sundlaug- in hér á Akureyri snýr öfugt miðað viö það sem laugar gera yfirleitt. Ég taldi mig vera að fara niður í grynnri enda laugarinnar og hef ávallt þann háttinn á aö ég stekk út í laugina, held hendinni í bakkann, fóta mig og spyrni mér síðan frá bakkanum. Þetta ætlaði ég að gera en þar sem ég var í dýpri enda laugarinnar fót- aði ég mig ekki, rak höfuöið í laugar- bakkann og rotaðist. Þetta er það síð- asta sem ég man og svo vissi ég ekki af mér fyrr en um tveimur sólar- hringum síöar. Ég tel að þrjú atriði hafi ráðið mestu um þaö hversu vel tókst til. í fyrsta lagi skjót og góð viðbrögð Þor- steins Þorsteinssonar sundlaugar- varðar og Jóhanns Jónssonar sund- laugargests sem blés í mig hfi. I öðru lagi mjög góð viðbrögð og umönnun starfsfólksins á gjörgæsludeild sjúkrahússins. Og í þriðja lagi tel ég mig vera í mjög góðu líkamlegu formi enda syndi ég mjög mikið. Mig langar til þess í lokin að koma á framfæri þakklæti til þessara aðila, þeirra Þor- steins og Jóhanns og starfsfólksins á gjörgæsludeild sjúkrahússins."

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.