Dagblaðið Vísir - DV - 24.05.1991, Síða 5
FÖST-UDAGUR 24. MAÍ 1991.
5
Viðskipti
Mjög gott verð erlendis
Síðustu daga hafa yflrmatsmenn
sjávarafurða setið á fundi. Fundar-
menn eru úr öllum landshlutum og
á fundurinn að efla samstarf
ríkismatsmanna. Þama verður rætt
um fræðslumál og það sem efst er á
baugi í fiskmatinu. Þeim er nokkur
vandi á höndum vegna þeirra
breyttu reglna sem lönd Evrópu-
bandalagsins hafa sett.
Mikil þörf er á því að menn kynnist
því vel hvað þar er á ferðinni en
fisksala hefur aukist mjög mikið til
ríkja EB.
Vonandi verða ekki sýndar myndir
af því þegar menn standa á bílpöllum
og ganga í fiskkösinni eins og gengið
sé á mykjuhaug. Það gengur misjafn-
lega að koma mönnum í skilning um
að það eru matvæli sem þeir eru með.
Bretland
Síðustu daga hafa eftirtalin skip
selt afla sinn í Bretlandi: Bv. Freyja
seldi í Grimsby 20. mai, alls 84 tonn.
Þorskur seldist á 173,64 kr. kg, ýsa á
150,38, nokkur kíló af karfa á 59,04
kr. kg, nokkur kíló af ufsa á 75,24 kr.
kg, koli á 105,79 og blandað 216,25 kr.
kg. Meðalverð 160,28 kr. kg.
17. maí var seldur fiskur úr gám-
um, alls 1.167 tonn. Þorskur seldist á
135,00 kr. kg, ýsa 135,95, ufsi 68,42,
karfi 75,79, koh 115,25, grálúöa 130,00
og blandað 92,62 kr. kg. Meðalverð
var 119,98 kr. kg.
Þýskaland
Eftirtalin skip hafa selt afla sinn
síðustu daga: Bv. Engey seldi í
Bremerhaven 21. maí. Þorskin- seld-
ist á 145,99 kr. kg, ýsa 198,45, ufsi
116,31, karfi 137,66, grálúða 106,18 og
blandaður afli 109,45 kr. kg.
Meðalverð var 118,95 kr. kg.
Bv. Rán seldi ° afla sinn í
Bremerhaven 22. maí, alls 172 tonn.
Karfi seldist á 120 kr. kg og ufsi 100,00
kr. kg. Einnig var selt úr gámum og
fékkst svipað verð fyrir þann fisk,
eða um 114 kr. kg að meðaltali.
Bv. Börkur seldi í Bretlandi en fyr-
ir aflann fékkst mjög gott verð, eða
160 kr. kg að meðaltali.
Rússneski fiskveiðiflotinn
Sj ávarútvegsráðherra
Sovétríkjanna gaf út tilkynningu 12.
mars um að ekki yrði um greiðslur
að ræða í erlendum gjaldeyri í er-
lendum höfnum. Skipin yrðu að selja
af afla sínum til þess að greiða fyrir
veitta þjónustu. Eins og fyrr segir
áttu skipin aö sjá um sig sjálf. Þann-
ig þurftu þau að selja mismikið af
aflanum til þess að greiða
kostnaðinn. Menn urðu fljótt varir
við að ef greiða þurfti háar upphæðir
Kaupfélagið Hvammstanga:
Hagnaður
þráttfyrir
gjaldþrot
viðskiptavina
Þórhallur Ásmuridsson, DV, Norðurl. vestra:
Sjö milljóna hagnaður varð af
rekstri Kaupfélags Vestur-Húnvetn-
inga á Hvammstanga á síðasta ári.
Er það nokkur bati frá árinu á undan
en þá var útkoman rétt ofan við núll-
ið. Félagið kom út með 21 milljón
króna í vaxtatekjur sem sýnir betur
en nokkuð annað sterka eiginfjár-
stöðu og hvað skuldir eru litlar.
Samt töpuðust einar 13 milljónir
vegna gjaldþrota viðskiptaaðila.
Gunnar V. Sigurðsson kaupfélags-
stjóri segir ytri aðstæður til reksturs
hafa verið mjög góðar á síðasta ári,
gengisstefnu hagstæða og lækkun
verðbólgunnar komið til góða. Engra
róttækra breytinga væri að vænta
hvað þetta ár varðaði. „Við göngum
ekki með neina stórveldisdrauma, en
munum reyna að hlúa að því sem
fyrir er hjá okkur“, sagði Gunnar.
og mikinn afla þurfti að selja gat
komið fyrir að verðið lækkaði veru-
lega og þótti fiskimönnum þetta
afleitt. Stéttarfélag þeirra mótmælti
strax þessu fyrirkomulagi en það bar
ekki árangur.
Eins og fyrr segir leist sjómönnum
ekki á fyrirkomulagið svo þeir gripu
til þess ráðs að senda nefnd til Gorba-
tsjovs með áskorun um aö breyta
umræddri reglugerð. Samkomulag
varð um að fiskveiðiflotinn, sem
stundaði veiðar á fjarlægum miðum,
Fiskmarkaðurinn
Ingólfur Stefánsson
fengi til ráðstöfunar 40 milljónir
rúblna til að greiða í erlendum höfn-
um þá þjónustu sem skipin þurftu
að fá og 40 milljónir rúblna til
matvælakaupa og fiskveiðileyfa-
kaupa innan landhelgi ríkja sem
selja leyfi til veiða. Fiskveiðarnar
voru settar á hsta með þremur
mikilvægustu málum í landinu en
þar koma á undan landbúnaður og
kjarnorka.
Auglýsingaskattur
Álasund: Lögð hefur verið fram til-
laga um að taka gjald af veiddum
sem er flutningsmaður tihögunnar,
er formaður útflutningsráðs. Segir
hann að tillögunni hafi verið vel tek-
ið og þessu fyrirkomulag verði komið
á áður en hann láti af störfum. Menn
eru sammála um að þetta gjald gefi
200 milljónir norskra króna ef af
verður. Samtök sjómanna og fisk-
fiski sem svarar 15 norskum aurum ^ /verkenda hafa samþykkt gjaldið.
kílóið eða um 140 íslenskum kr. kg. " Talað er um að Jann komist á spjöld
Peningana skal nota til að greiða útgerðarsögunnar fari svo að gjaldið
kostnað við kynningu og auglýsingar komist á.
á fiskafurðum erlendis. Jann Holst, Tom Rasmundsen, Fiskaren
S^c^orecH S^CRorecH S/joKyrecH^ ^CRorecH ^J^crorech S^c^orecH^ ^CKnecH B<4c;oTecH^j^ororecH B^c^orecH ^
^CROTeCH
Hágæða tölvur - einstakt verð
Dæmi um verð:
286 AT20 MHz
386 SX 16 MHz
Kr. 117.800.
Kr. 139.514,-
Innifalið í verði: Virðisaukaskattur,
Super VGA litaskjár, 40 Mb harður diskur og MS-DOS 4,01.
Greiðsluskilmálar til allt að 30 mánaða
Acrotech
Einfaldlega betri tölvur og betra verð
Balti hf., Ármúla 1, sími (91) 82555
0
0
0
0
0
^crorecH E>3o;orecH recH E^crorech S^c^orecH S^loxnecHB^owrecH S^orerecHB^ogorecH B^ctonecH 5