Dagblaðið Vísir - DV - 24.05.1991, Side 11
FÖSTUDAGUR 24. MAÍ 1991.
11
Utlönd
Veitingastaður
í miðbæ Kópavogs
"~"TT
32S
Sovétrikin hafa farið fram á gifurlega fjárhagsaðstoð frá Vesturlöndum til þess að geta komið efnahag landsins
á réttan kjöl. Teikning Lurie
Gorbatsjov biður Bandaríkin um lán:
Umbætur skilyrði fyrir láni
Tilbod vikunmr
Sérríbœtt krabbasúpa
Nautafillet með rauðvínssveppasósu,
grænmeti og bakaðri kartöflu.
Kr. 1.390
Einar Logi við píanóið um helgina.
Hringið, pantið og takið með heim.
Veisluþjónusta
Hamraborg 11 — sími 42166
\
George Bush Bandaríkjafórseti
hefur geíið sterkt í skyn að forsenda
þess að Bandaríkjamenn veiti Sovét-
ríkjunum lán og samþykki að Gor-
batsjov taki þátt i fundi iðnríkjanna
sjö í sumar sé að Sovétmenn sýni.
fram á áætlun um gagngerar umbæt-
ur í Sovétríkjunum.
„Ég er mjög spenntur að sjá hvað
Primakov hefur fram að færa,“ var
svar Bush þegar hann var spurður
hver væru skilyrði þess að Gorbat-
sjov fengi að sitja fundinn. Von er á
Jevgení Primakov, helsta ráðgjafa
Gorbatsjovs, til Washington í næstu
viku.
Sovétríkin hafa farið fram á 90
milljarða króna lán frá Bandaríkjun-
um til kaupa á korni þaðan og fyrr
í þessari viku fór Gorbatsjov fram á
sex þúsund milljarða styrk frá Vest-
urlöndum tilað rétta efnahag lands-
ins við.
Fyrirhugað er að halda árlegan
fund sjö helstu iðnríkja heims í Lon-
don í júlímánuði og hefur Gorbatsjov
að þessu sinni farið fram á að fá að
sitja fundinn til þess að ræða hugsan-
legt samstarf Sovétríkjanna og Vest-
urlanda.
Háttsettir bandarískir embættis-
menn segjast hika við að bjóða hon-
um á fundinn þar sem þeir vita ekki
hvort tilgangur hans sé eingöngu sá
að koma sér á framfæri til að sækja
um lán eða hvort honum er alvara
með að vilja rétta efnahag Sovétríkj-
annavið. Reuter
z u k i
S w i f t
SPARNEYTINN OG ÓDÝR í REKSTRI
1 Framdrif / sídrif (4x4)
1 Beinskiptur / sjálfskiptur
1 Eyðsla frá 4 I. á 100 km.
Til afgreiðslu strax.
Verð frá 688.000,- kr.
^SUZUKI
SUZUKIBÍLAR HF
SKEIFUNNI 17 - SlMI 685100
Sovéskir hermenn ráðast til atlögu á ný:
Landamæraverðir nið-
urlægðir og stöðvar
þeirra brenndar
Vopnaðir hermenn úr sérsveitum
sovéska innanríkisráðuneytisins,
svokallaðar Svarthúfur eða OMON,
réðust í gær á landamærastöðvar á
landamærum Lettlands og Litháens
og kveiktu í þeim.
Alls lögðu þeir eld að níu landa-
mærastöðvum en áður höföu þeir
neytt landamæraverðina til að af-
klæðast, barið þá og bundið síðan
nakta við næstu girðingu.
í sameiginlegu símskeyti, stíluðu á
Sovétforseta og innanríkis- og varn-
armálaráðuneyti Sovétríkjanna, for-
dæmdu ríkisstjórnir beggja land-
anna þennan atburð og kölluðu hann
árás „ræningja."
Atburðurinn er talinn geta ýft upp
fyrri deilur Eystrasaltsríkjanna við
Sovétstjórnina en Eistland, Lettland
og Litháen hafa lengi barist fyrir því
að fá sjálfstæði sitt á ný eftir að það
var tekið af þeim í seinni heimsstyrj-
öldinni.
Gorbatsjov hefur haldið því fram
að öllum fimmtán lýðveldum Sovét-
ríkjanna sé frjálst að fara úr ríkja-
sambandinu en setur það sem skil-
yrði að það gerist í samræmi við
fimm ára áætlun sovésku stjórnar-
skrárinnar. Ríkisstjórnir Eystra-
saltsríkjanna hafa hafnað þessu.
Reuter
Bretland:
Horf ur ekki góðar
fyrir John Major
í nýlegri skoðanakönnun, sem birt
var í Bretlandi í gær, kemur fram
að Verkamannaflokkurinn hefur enn
unnið verulega á og er nú með 44%
fylgi, þremur prósentum meira en í
síðasta mánuði.
íhaldsflokkurinn missti hins vegar
töluvert fylgi og nýtur nú einungis
trausts 36% landsmanna. Ef svipuð
úrslit kæmu út úr næstu þingkosn-
ingum ynni Verkamannaflokkurinn
öruggan sigur með a.m.k. fjörutíu og
eins sætis meirihluta á þingi.
íhaldsflokki Johns Major, forsætis-
ráðherra landsins, hefnist fyrir
slæman efnahag landsins og sívax-
andi áhyggjur fólks af stefnu ríkis-
stjórnarinnar í velferðarmálum. Af
þeim rúmlega sextán hundruð kjös-
endum, sem spurðir voru í síðustu
viku, sögðu 44% þeirra aö áhyggjur
af heilsugæslu í landinu og endur-
bætur á henni kæmu til með að hafa
áhrif á atkvæði sitt.
John Major verður að boða til
kosninga ekki síðar en um miðjan
júlí árið 1992 og hefur hann því nóg
að gera á þessum stutta tíma ef hann
ætlar að ávinna sér traust fólksins á
ný. Reuter
verðtraKr.v^
Ó .W •
Flísasýiiiiis* Ó.M. I»i1u>ai*iuiiai*
steudui* yfii* alla liclgma, þar sem
bodid vcrður upp á glæsilegt limal
gólf- og vcggflísa, ásanit kafii og
mcðlætír
|li
W CF.RAMICHE
fMARAZZI
PORŒLANOSA
CERAMICA
DEITERMANN .
Quality and Service ^ ftld *****
Laugardag: kl. 10-18
Sunnudag: kl. 10-16