Dagblaðið Vísir - DV - 24.05.1991, Side 13

Dagblaðið Vísir - DV - 24.05.1991, Side 13
I-’jQSTUDAGUK 24, MA(:mi. 13 „Karólína virtist þreytt og sorgmædd og alls ekki hafa tekið gleði sína á ný eftir lát manns síns,“ sagði einn gestanna á sýningunni. ________Sviðsljós Karólína kemur framí sviðs- ljósið Karólína prinsessa af Mónakó kom í fyrsta sinn fram opinberlega, eftir lát manns hennar Stefano Casiraghi en hann lést í vélbátaslysi í október sl., á alþjóölega blómaskreytinga keppni sem haldin var í Mónakó 4. maí. Hún hefur breytt um hárgreiðslu og er nú orðin stuttklippt. Karólína mætti í þessa móttöku með föður sín- um, prins Rainier, klædd látlausri svartri dragt með stór svört sólgler- augu. Það hafði ekki verið tilkynnt um komu hennar og var það því mjög óvænt þegar hún birtist. Talið er aö hún hafi mætt til að heiðra minningu móður sinnar, prinsessu Grace, en blómaskreytingar voru eitt af áhugamálum hennar. Karólína er mjög vinsæl meðal þegna Mónakó. Það vakti því al- menna gleði er fréttist að hún hefði komið fram opinberlega á ný. Óvíst er hvort Karólína muni taka fullan þátt í opinberúm athöfnum hér eftir en það er þó talið ólíklegt því hún var mjög föl og virtist nibur- dregin. Garðar og gróðtir ii FYLGIR Miðvikudaginn 5. júni nk. mun annað aukablað um garða og gróður fylgja DV. Garðar og gróður I fékk mjög góðar viðtökur og hefur þvi verið ákveðið að gefa út Garða og gróður II með hollráðum um ýmislegt sem að gagni má koma við garðstörfin. Þeir auglýsendur, sem hafa áhuga á að auglýsa i þessu aukablaði, vinsamlega hafi samband við auglýsingadeild DV hið fyrsta i síma 27022. Athugið að skilafrestur auglýsinga er fyrir fimmtudaginn 30. maí. ATH.I Telefaxnúmer okkar er 27079. TEPPAÞURRHREINSUN SKÚFUR notar þurrhreinsikerfið HOST, sem yfir 100 teppaframleiðendur mæla sérstaklega með. HOST leysir upp, dregur og þerrar öll óhreinindi, alveg niður í botn teppisins. ÞAÐ RAUNVERULEGA DJÚPHREINSAR! Engin bleyta, teppið er tilbúið til notkunar strax að lokinni hreinsun. HOST-kerfið er sérlega hentugt þegar vandmeðfarin ullarteppi skulu h'reinsuð, þ.a.m. austurlenskar mottur. Sími 678812 REYNIÐ SKUFUR Símboði 984-50538 VIÐSKIPTIN Félagsstarf aldraðra í Reykjavík Yfirlits- og sölusýningar á munum, unnum í félags- starfinu, verða laugardaginn 25. maí, sunnudaginn 26. maí og mánudaginn 27. maí, ki. 14.00-17.00 alla dagana: á Aflagranda 40 í Bólstaðarhlíð 43 að Norðurbrún 1 Kaffisala verður á öllum stöðunum Félagsmálastofnun Reykjavíkurborgar GRÆNI SÍMINN FYRIR LANDSBYGGÐINA Við hjá DV höfum ákveðið að taka í notkun svokölluð GRÆN NÚMER sem er ný þjónusta hjá Pósti og síma. Ef þú, lesandi góður, hringir í þessi númer greiðir þú aðeins gjald fyrir staðarsímtal eða gjaldflokk 1. DV, sem er rétthafi GRÆNA NÚMERSINS, greiðir hins vegar langlínugjaldið. Það er því sama hvaðan af landinu þú hringir, þú munt ætíð bera lágmarkskostnað vegna.símtalsins. Þjónusta GRÆNA SlMANS verður eingöngu ætluð vegna áskriftar og smáauglýsinga. ÁSKRIFTARSIMINN: 99-6270 SMÁAUGLÝSINGASfMINN: 99-6272 ^ SÍMINN -talandi dæmi um þjónustu!

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.