Dagblaðið Vísir - DV - 27.05.1991, Blaðsíða 2
2
MÁNUDAGUR 27. MAÍ 1991.
Fréttir
Rúta með 20 konum valt við Blönduvirkjun:
„Það var guðs mildi
að ekki fór verr“
Magnús Ólafssan, Sveinsstödum;
„Það var guðs mildi að ekki fór
verr,“ sagði Elín Pétursdóttir hjúkr-
unarfræðingur í samtali við DV. Elín
varð fyrst á slysstað þegar rúta með
20 kvenfélagskonum frá Blönduósi
valt við Blönduvirkjun um kl. 14.30
á laugardag. Rútan, sem var með
konurnar í skoðunarferð, var rétt
ókomin inn á stíflugarð Kolkustíflu
þegar hún mætti öðrum bíl Og þurfti
að víkja. Vegkanturinn lét undan og
bifreiðin valt á hliðina. 17 kvenn-
annna sem í rútunni voru meiddust
meira eða minna og þrjár þeírra voru
fluttar á sjúkrahús á Blönduósi og
Sauöárkróki og ein þeirra þaöan með
sjúkraflugi til Reykjavíkur. Elín
starfar hjá Hagvirki, sem annast
framkvæmdir á virkjunarsvæðinu,
og þar er einnig staðsettur sjúkrabíll
sem fór ásamt bílum frá Blönduósi
og Skagaströnd fyrstu ferðina með
slösuðu konumar til byggða en um
25 kílómetrar eru frá slysstaönum
ofan að Eiðsstöðum sem er efsti bær
í Blöndudal. Þaðan eru síðan um 30
kílómetrar á Blönduós.
„Rútan valt út í moldarbarð," sagði
Elín. „Tveimur bíllengdum lengra
var grjóturð. Það var mjög gott veður
þegar þetta gerðist þannig að það
má segja að þetta hafi farið betur en
á horfðist."
„Vegurinn er hár þarna eða um
þrír metrar og það leið því dágóð
stund áður en skriðið stöðvaðist en
þá kom högg á bílinn sem lagðist á
hliðina. Það brotnuðu margar rúður
og konurnar, sem sátu vinstra meg-
in, köstuðust ofan á okkur sem sát-
Húshitimarkostnaður:
Niðurgreiðsl-
urauknar
Ríkisstjómin hefur fallist á til-
lögur iðnaöarráðherra inn aukn-
ar niðurgreiðslur á orku til hús-
hitunar íbúðarhúsnæðis. Um leið
og niðurgreiðslurnar eru auknar
er viðmiðun þeirra breytt þannig
að f staö þess að greiða niður allt
að 40.000 kílóvattstundir á ári á
ibúð verður nú miðaö við 30.000
kílóvattstundir. Þetta er gert til
að tryggja eölilega hvatningu til
hagkvæmrar orkunotkunar.
í stefhuyfirlýsingu ríkisstjóm-
arinnar er rætt um að lífskjör í
landinu verði jöfnuð meðal ann-
ars með lækkun húshitunar-
kostnaðar, þar sem hann er hæst-
ur.
Iðnaðarráðherra telur aö
breyttar niðurgreiðslur ríkis-
sjóðs muni lækka hitunarkostn-
aö vísitölufjölskyldunnar á köldu
svæðunum miðaö við algengasta
húshitunartaxta lýá Rafmagn-
sveitum ríkisms. Kostnaðurinn
fari úr um það bil 90 þúsund
krónum á óri niður i 80 þúsund
krónur.
Þetta er fyrsti áfengi af þremur
sem fyrirhugaðir em á tveimur
árum samkvæmt tUlögum orku-
jöfhunamefndar.
Niöurgreiðslur hjá rafkyntum
hitaveitum munu hækka til sam-
ræmis viö hækkun níður-
greiðslna á beina rafhitun. Þá
mun iðnaðarróðuneytið iáta gera
úttekt á fiárhagsstööu jarð-
varmaveitna þar sem kostnaöur-
inn við hitun íbúðarhúsnæðis er
hærri en meö raíhitun. -S.dór
- þrjár konur fluttar á sjúkrahús
Margrét Ásmundsóttir á sjúkrahúsinu á Blönduósi. Hjá henni er Elínborg Guðmundsdóttir sem var einna elst
kvennanna í ferðinni. DV-mynd MÓ
um hægra megin. Konumar voru
mjög rólegar en þetta tók það langan
tíma að ég gat tekið af mér gleraugun
og náð góðu taki áður en bíllinn
valt,“ sagði Margrét Ásmundsdóttir,
ein kvennanna sem flutt var á
sjúkrahúsið á Blönduósi, í samtali
við DV.
Hjúkmnarfræðingur, sem var með
í fórinni, hóf hjálparstarf ásamt
hjúkrunarfræðingi sem er á virkjun-
arsvæðinu. Fljótlega kom síðan
læknir frá Blönduósi á staðinn.
Margrét vildi koma á framfæri
þökkum til allra sem aðstoðuðu á
slysstað og vildi lýsa sérstakri að-
dáun á bílstjóra rútunnar sem gerði
sitt til þess að halda henni á réttum
kili meðan kanturinn gaf sig.
„Það hefði getað farið verr ef við
hefðum lent á toppnum," sagði
Margrét að lokum.
-Pá/MÓ
Ráðstefna Bandalags íslenskra lelkfélaga:
Ráðuneytið skrópaði
- erum ofsareiðir, segir Haukur Ágústsson
„Eg er bæði sár og gramur, raunar
ofsareiður yfir þeirri lítilsvirðingu
sem menntamálaráðuneytiö sýnir
Bandalagi íslenskra leikfélaga með
því að fulltrúi þess afboðar komu
sína hingað með svo skömmum fyr-
irvara. Hingað er komiö fólk víös
vegar af landinu til þess að ræða um
stuðning hins opinbera við áhuga-
leikhús og hvers viö megum vænta
í framtíðinni en ráðuneytið hefur
engan til að senda þrátt fyrir gefin
loforð þar um,“ sagði Haukur Ág-
ústsson á Akureyri á ráðstefnu sem
Bandalag íslenskra leikfélaga hélt á
Blönduósi síðastliðinn sunnudag.
Á ráðstefnunni voru hátt á níunda
tug manna víða að af landinu og var
mikil hiti í mönnum vegna þess að
fulltrúi ráðuneytisins afboðaði komu
sína á laugardag. Ástæðan var sögð
sú að þessi fulltrúi þyrfti aö sækja
fund í Genf í Sviss.
„Við virðumst vera mun þróaðri í
ráðstefnuhaldi en þeir í Sviss,“ sagði
einn fulltrúinn á ráöstefnunni.
„Okkar var undirbúin og skipulögð
með margra vikna fyrirvara og fyrir
löngu var komið loforð um aö full-
trúi ráðuneytisins mætti hér. En þeir
í Sviss virðast boða til sinnar ráð-
stefnu með dags fyrirvara og þá hef-
ur hiö háa ráðuneyti engan annan
til að senda.“
Annar var illkvittnari og hélt að
ráðuneytismenn hefðu átt von á
meiri veisluhöldum í Sviss en a
Blönduósi.
Annar frummælandi á ráðstefn-
unni átti að vera Stefán Baldursson
þjóðleikhússtjóri sem átti að ræða
ujn stuðning Þjóðleikhússins við
áhugaleikfélögin en hann afboðaöi
einnig komu sína með dags fyrirvara
og bar við miklum önnum. Frum-
mælendur á ráðstefnunni voru því
heimamennimir Haukur Ágústsson,
Akureyri, Einar Njálsson, bæjar-
stjóri á Húsavík og fyrrverandi for-
maður Bandalagsins, og Valgarður
Hilmarsson, oddviti á Fremstagili og
stjórnarmaður Bandalags íslenskra
leikfélaga.
Steingrímur Hermannsson um söluna á Útvegsbankanum:
Kæmi ekki á óvart þó þrír
milljarðir féllu á ríkið
„Það kæmi ekki á óvart, eftir aö
salairá Útvegsbankanum hefur verið
gerð upp, að það féllu á ríkið hátt í
þrír milljarðar.“ Þessi orð lét Stein-
grímur Hermannsson falla á opnum
fundi Framsóknarflokksins sem
haldinn var í Keflavík í vikunni.
Steingrímur segir Jón Sigurðsson
viðskiptaráðherra ekki hafa lagt
fram fullnaðaruppgjör vegna sölu
bankans í síðustu ríkisstjóm, þó svo
að um það hafi margoft verið beöið.
Hann segist hins vegar byggja þetta
mat sitt á þeim tölum sem hafi verið
nefndar þegar þessi mál hafi verið
rædd.
„Lokauppgjörið fengum við ekki.
Ég nefndi það oftar en einu sinni við
hann að það þyrfti að leggja þetta
fullnaðaruppgjör fyrir ríkisstjómina
en það kom ekki. Reyndar tafðist
verkið eitthvað þar sem Bank^eftir-
litið þurfti að framkvæma visst end-
urmat á söluverðinu að beiöni kaup-
enda. En uppgjörið hlýtur að liggja
fyrir núna,“ segir Steingrímur.
-kaa
þeirra starfsmanna Þjóðleik-
hússins sem sagt hafði verið upp
störfum að uppsagnir þeirra
væru ógildar," segir Gísli Al-
freðsson þjóðleikhússtjóri. Á
fóstudag úrskurðaði mennta-
málaráöherra á gmndvelli um-
sagnar ríkislögmanns að Gísli
færi með húsbóndavaldið í Þjóð-
leikhúsinu til 1. september og
ákvarðanir á breytingum á
mannahaldi því í hans verka-
hríng.
- Þú hefur veriö gagnrýndur fyr-
ir að hafa ekki mótmælt uppsögn-
unum þegar þær voru til umræðu
í þjóðleikhúsráði, þaö hafi ekki
verið fyrr en búið var að segja
fólkinu upp aö-þú lést í þér heyra.
„Það er rétt, ég mótmælti þessu
ekki, enda lá það ekki á borðinu
hvað um væri að ræða. Það var
skýrt frá þvi að Stefán Baldurs-
son hefði í hyggju að gera
áherslubreytingar í mannahaldi
og hann myndi ræða ítarlega við
það fólk sem um væri að ræða.
Hann vildi ekki gefa upp hvaða
fólk þetta væri og eða hversu
margir. Ég sá ekki ástæðu frekar
heldur en þjóðleikhúsráð til að
mótmæla svo óljósum hlutum.
Ég áleit að það hlyti að koma í
Ijós hverjir þetta væru.
Þegar Stefán fór þess svo á leit
við mig að ég undirritaði þessi
uppsagnarbréf með honum án
þess að ég vissi hverjum ætti að
segja upp en hann hélt því leyndu
fyrir mér þá neitaði ég því. Það
voru mín fyrstu mótmæli. Á þjóð-
leikhúsráðsfundi tíu dögum síðar
mótmælti ég þessu. Það var búið
að senda út uppsagnimar til
jsessa fólks án þess að ég vissi
hverjum væri verið að segja upp
eða hversu margir það voru.“
- Mun þetta mál ekki valda sam-
starfsörðugleikum innan leik-
hússins á næsta ári?
„Það er alveg augljóst að leik-
húsið er komið í vanda vegna
þessa máls sem tekur Jangan tima
að leysa. Þaö verða miklir erfið-
leikar í Þjóðleikhúsinu út af þess-
um uppsögnum um langan tíma.“
-J.Mar
„Torfærumenn“
ölvaðirogmeð
óspektir
Gylfi Kristjánsson, DV, Akuieyri:
Óvenjumikil ölvun var á Akur-
eyrí í fyrrinótt og sagði varðstjóri
hjá lögreglunni að nóttin hefði
verið mjög erilsöm og mikið um
alls kyns leiðindi.
Hann sagði að mikið af því sem
lögreglan þurfti að hafa afskipti
af mætti rekja til torfærukeppni
sem haldin var í bænum á laugar-
dag. Ekki hefðu þó ökumennimir
sjálfir verið til vandræöa, þeir
hefðu ekki sést, en alls kyns lið
sem er í kríngum keppnina og
titlar sig sem aðstoöarmenn hefði
látið öllum illum látum.
Meðal annars var hópur þeirra
í bifreið sem ók niður umferöar-
Ijós viö Þórunnarstræti. Allir
sem voru í bifreiöinni voru undir
áhrifum áfengis og allir neituðu
að hafa ekiö. Þá lentu þessir
menn í ryskingum í bænum og
„voru víst að gera upp sakir í
sambandi viö keppnina", eins og
varðstjóri orðaði það. Eitthvað
var um rúðubrot í miöbænum og
það var komið fram á morgun
þegar lögreglan var að reyna að
fá þá til að róa sig niður á tjald-
stæðinu.
ölvaður maður féU í stigagangi
í húsi við Hjallalund og kvartaði
hann um sársauka í höfði.