Dagblaðið Vísir - DV - 27.05.1991, Qupperneq 3
MÁNUDAGUR 27. MAÍ1991.
Fréttir
Könnim Sameinuðu þjóðanna á meðalaldri þjóða:
íslendingar langlífastir í Evrópu
Japanir lifa lengst allra þjóða sam-
kvæmt nýjum tölum frá Sameinuðu
þjóðunum. íslendingar eru í öðru
sæti og eru því langlífastir í Evrópu.
Meðalaldur virðist fylgja efnahag
enda er meðalaldur hæstur í iðnríkj-
unum. Lífslíkur við fæðingu eru tals-
vert lægri í Austur-Evrópu eða um
Meðalaldur nokkurra þjóða
79
77
7||
73
a lí
69
67
65
77,8
5 Q
CQ
^ c o
< => V)
íslenski’ bankar
gætu keypt er-
lenda banka
- segirValurValsson
„Eg var spurður að því á lands-
þingi JC um hvítasunnuhelginga
hvort íslenskir bankar myndu hasla
sér völl erlendis í framtíðinni. Ég
jánkaði því og sagði að mér þætti það
líklegt," segir Valur Valsson, banka-
stjóri fslandsbanka.
„íslenskar bankastofnanir gætu til
að mynda keypt sig inn í erlenda
banka eða eitthvað slíkt. Þetta gæti
haft allnokkurt gildi fyrir viðskipta-
vini bankanna og þess vegna er ekki
fjarri lagi að velta þesaji fyrir sér.
Við gætum greitt fyrir ýmiss konar
þörfum hjá viðskiptavinum okkar í
sambandi við lán, millifærslur og
annað slíkt sem þeir þurfa að sækja
til erlendra banka.
íslandsbandi myndi væntanlega
vera í þeim hópi sem hugsaði sér til
hreyfmgs einhvern tímann á -næst-
unni í þessum efnum. Annars er
þessi hugmynd bara á umræðustigi
núna og hún er ekki komin á neinn
rekspöl.“
-J.Mar
Þetta farartæki piltanna er greinilega tveggja manna, sparneytið og meng-
ar ekki. Sem sagt æskilegt séð frá sjónarhóli umhverfisverndar. Það er
þó betra að fara ekki of geyst á þessum grip. DV-mynd GVA
Stykkishólmur:
Viðræður um sölu hótelsins
„Það er rétt að staðið hefur til að
bærinn selji hlut sinn í Hótel Stykk-
ishólmi. Við höfum verið í viðræðum
við ýmsa aðila vegna þessa en það
hefur ekki náðst samkomulag enn.
Það gæti þó orðiö af þessu í sumar,“
sagði Sturla Böðvarsson, bæjarstjóri
í Stykkishólmi.
Orörómur hefur verið á kreiki í
Stykkishólmi um að Þjóðverjar séu
að kaupa hlut bæjarins í hótelinu.
Sturla segir að það sé alrangt. Engar
viðræður hafi átt sér stað við útlend-
inga.
Stykkishólmsbær á 77 prósent í
Hótel Stykkishólmi.
-S.dór
og yfir 70 ár.
Japanskar konur ná hæstum með-
alaldri eða 82,5 árum en japanskir
karlmenn lifa að jafnaði sex árum
skemur. Samsvarandi tölur fyrir ís-
land eru 80,2 ár fyrir konur en 73,2
ár fyrir karlmenn.
Þó íslendingar séu langlífasta þjóð
í Evrópu eru hvorki íslenskar konur
né karlar hin langlífustu. Meðalald-
ur kvenna er hæstur, 81,3 ár, í Frakk-
landi og Sviss. Hollenskar og sænsk-
ar konur verða einnig eldri en þær
íslensku. Meðalaldur karla er hins
vegar hæstur, 74,3 ár, í Grikklandi.
Karlmenn í Sovétríkjun hafa lægstan
meðalaldur í álfunni eða 64,7 ár en í
Rúmeníu eru lakastar lífslíkur
kvenna eða 72,7 ár.
í skýrslu SÞ kemur fram að malar-
ía er sá sjúkdómur sem dregur flesta
til dauða eða allt að tvær milljónir
árlega. Að kveikja sér í sígarettu er
þó líklega það hættulegasta sem
maður getur gert. í þróuðu löndun-
um deyja árlega 800.000 manns vegna
reykinga. Ungveijar eru þunglynd-
astir alla þjóða þar sem 40 sjálfsmorð
eru á hverja 100.000 íbúa.
í Guatemala verða aðeins 1,5
dauðaslys í umferðinni á hverja
100.000 íbúa. Samsvarandi tölur eru
18,3 í Sovétríkjunum og 18,7 í Banda-
ríkjunum en vissulega eru mismarg-
ir bílar í löndunum. En hættulegast
er þó að keyra í Kúvæt. Þar verða
34,9 dauðaslys' í umferðinni á hverja
100.000 íbúa.
-pj
ÞU ÞARF EKKI AÐ
FAR/
V7
vNNAÐ
KASPER
kr. 3.330,-
UNDINE ADRIA
kr. 5.790,- kr. 3.690,-
r
-i■ 'f
p' ‘*$■■■...“1 .
■-'"■'■ ' - r~.>
ADRIA
kr. 3.690,-
MILAN
kr. 6.240,-
PISA
kr. 6.960,-
RIVA DALTON BOLOGNA
kr. 4.770,- kr. 2.880,- kr. 14.580,
VANTAR ÞIG STOLA I DAG?
Eldhússtólar og önnur húsgögn í miklu úrvali
í stœrstu húsgagnaverslun landsins
■hr
2
BfLDSHÖFÐA 20 -112 REYKJAVÍK - SÍ MI91-681199 - FAX 91-673511