Dagblaðið Vísir - DV - 27.05.1991, Side 16

Dagblaðið Vísir - DV - 27.05.1991, Side 16
16 MÁNUDAGUR 27. MAÍ1991. SMÁAUGLÝSINGASÍMINN FYRIR LANDSBYGGÐINA: 99-6272 DV GRÆNI SlMINN DV -talandi dæmi um þjónustu! Bíltæki Sáttasemjarar verðs og gæða ECD8000 - tækið með Öllu. Geislaspilari, 2x25 vatta magnari og útvarp með LW/MW/FM. Beinn útgangur fyrir kraftaukamagnara, aðskilinn bassi og „discant“, „Pre-fader“. Útvarp með 36 stöðva minni, sjálfvirkum stöðvaleitara, styrkstilli á bestu tíðni, langbylgju fyrir ferðalagið og sér umferðarrás „SDK“, með geislaspilara. Kr. 45.570,- stgr. r/-""_ - - ■ ^ — f * SA/tYO , L7* ” /S ^ J L sWTas h "sí 1 : / f W Imf. W MT $ <á Mtt G - ^ FX01 - útvarps- og segulbandstæki. Bíltæki sem sameinar allt það helsta og frábært verð, 2x7,5 W magnari með stillingu fyrir há- og lágtíðni, segulband sem spilar báðum megin, útvarp með sjálf- virkum stöðvaleitara, 36 stöðva minni og fallega upp- lýstu stjórnborði. Kr. 17.955,- stgr FX21 - bíltæki með 2x25 W magnara. Kraftmikill magnari með útgangi fyrir fjóra hátalara, „Fader“, aðskildum bassa og „discant“, útgangi fyrir „Sub-Woofer“, segulband sem spilar beggja vegna með Dolby B, útvarp með 36 stöðva minni, sjálfvirk leitun á mesta styrk, innbyggt í sleða „Quick release“ o.fl. o.fl. Kr. 25.935,- stgr. FX31 - 100 vatta tækið. 4x25 W magnari með aðskildum bassa og „discant“, beinum útgangi fyrir annan kraftmagnara, „Fader“, útgangi fyrir „Sub-Woofer“, sjálfvirku“ Loudness“, segulbandi með Dolby B, lagaleitari, spilar beggja vegna, velur milli Cr02/metal og normal bands. Útvarp með 36 stöðva minni, sjálfvirkum leitara, SDK, mæli fyrir útsending- arstyrk, truflanaeyði og sjálfvirka leitun á bestu tíðni. Stafrænt og vel upplýst stjómborð, innbyggt í sleða o.fl. o.fl. Kr. 32.400,- stgr. Gunnar Ásgeirsson hf. Suöurlandsbraut 16 • Sími 680780 Menning Orðaleikir og útúrsnúningar Veruleikinn ómálaöur uppmálaöur útmálaöur gengur ekki upp ekkert frekar en kapallinn Mitt púsluspil er þúsund banabitar hvergi dansar ar nema í krossgátum Þannig farast ljóömælanda orð í ljóðinu Dægraleng- ing (bls. 16-17) í nýjustu ljóðabók Þórarins Eldjárns, Hin háfleyga moldvarpa. Endurspegla þessi orð að mörgu leyti önnur ljóð bókarinnar þar sem höfundur er upptekinn af að lýsa takmörkunum tungumálsins og baráttu mannsins við að skilgreina sjálfan sig og aöra. í einu ljóðinu á fætur öðru leikur hann sér að Bókmenntir Sigríður Albertsdóttir orðum og hinum ýihsu möguleikum tungumálsins þannig að útkoman verður oft bráðskemmtileg og smellin en stundum helst til flöt og kuldaleg. Best tekst höfundi upp í þeim Ijóðum þar sem hann lætur orða- leikina að mestu lönd og leið og leyfir tilfinningunum að flæða hreinum og tærum eins og t.a.m. í ljóðinu Mansöngur: Man ég man þig Man ég þig á mussutíð frelsið helsið man ég þig á larfatíð man ég þig á tuskutíð man ég þig á gljátíð og núþálegra fas hafði engin meðan sú var öldin Man ég man þig (bls. 26). Hér gætir vissrar hlýju sem kemst ómenguð tii skila því lýsingin er laus við þann hálfkæring sem er svo sterkt einkenni á ljóðum Þórarins. Svipaða sögu má segja um Bamið og baðvatnið: Of lengi lék barnið sér í baði Of lengi með önd úr plasti og gulan bát Of lengi streittist barnið á móti Of lengi uns það náðist hrollkalt upp úr Þá var það vissulega orðið hreint en horfði skelkað á soðnar gamalmennishendur sínar tvær og tæmar eins og tíu fölar rúsínur Bamið sá í hendi sér hve vort skeið er stutt það heyrði bernskuna ropþrúgast með baðvatninu niður um svelginn og hryllti sig í herðum (bls. 30). Hér lýsir höfundur því, með skemmtilegri og um leið einfaldri líkingu, hve breytilegt og afstætt lífið er og fléttar það einni af mörgum uppgötvunum bamsins um flókna og skelfilega tilvist. Ljóð í þessum anda em nokkur, en þó allt of fá. Ljóð þar sem dregnar eru upp einfaldar myndir sem segja meira en mörg orö, t.a.m. Hjá Yngvari ^fa, Hunang og blóð, Mynd Durers af nashymingnum, Storesamir em að hverfa og Speglar. Þrátt fyrir góða spretti geldur bókin þess hve oft höfundur fellur ofan í gryfiu orðaleikja og útúrsnún- inga því í mörgum ljóðum verður útkoman gjarnan sú að meira er lagt upp úr „skemmtilegri" niðurröðun orða en hugmyndunum að baki þeim. Orðin detta flöt niður í tilraunum sínum til að komast á blað, flækjast hvert um annað og neita að túlka tilfinningar ljóðmæl- enda. Höfundur virðist upptekinn af að koma aðalþem- um bókarinnar, einmanaleika, tilgangsleysi og fiar- lægð, til skila í gegnum þetta „orðaleysi" þar sem lagt er upp með sterka tilfinningu sem verður ekki túlkuð til enda. í ljóðinu Dægralenging (bls. 16-17), gefst fióð- mælandi upp á að lýsa upplifun sinni en í staðinn týn- ir hann sér í orðum sem segja í sjálfu sér ekkert en sýna samt vel hugarástand hans. Við hituöum naglann og áttum súpuna Átum súpuna og hittum naglann á höfuðiö Sifium í súpunni og fengum naglann í höfuðið Þórarinn Eldjárn. Djúpur diskur grynnist grunnur diskur dýpkar ekki Heit súpa kólnar köld súpa hitnar ekki (bls. 16-17). Svipað er uppi á teningnum í Ljóðabréfi úr sveitinni: Nú er hörgull á þér hér hjá mér... ... segir í upphafi ljóðsins en fyrr en varir tapar bréfritari tökum á sjálfum sér og eigin tilfinningum og missir sig út í botnlaust orðagjálfur sem lýsir síður en svo ást og óuppfylltri þrá en undirstrikar þeim mun betur hve orð eru lítils megnug: Eins og hamstur í hjóli sárfættur dansari áttavilltur spretthlaupari straujárn sem brennir eigin snúru Æ skal ég vera þér lóðbolti í tin þér diskur í drif deig þér í skál Ég vil leka því til þín hvað ég elska þig og kinoka mér við að kynoka þig (bls. 27). Ljóðmælandi reynir hvað hann getur að túlka ná- lægðina sem hann þráir, er mikið niðri fyrir en þvæl- ir sér út í endalausar líkingar sem eru óneitanlega skemmtilegar og sniðugar en skilja tilfinningamar eftir hjá bréfritara sem getur ekki betur. „Málleysi“ ljóömælenda er sterkt og áhrifamikið stíl- bragð en hitt er aftur verra ef það er ofnotað á þann hátt aö ein myndin tekur við af annarri í bók sem hefur aö geyma 40 ljóð. Þegar á heildina er litiö er hætt við lesandinn drukkni í oröunum, tapi áttum og gefist upp með Ijóðmælendum. Þórarinn Eldjárn, Hin háfleyga moldvarpa, Forlagið 1991

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.