Dagblaðið Vísir - DV - 27.05.1991, Page 22
22
MÁNUDAGUR 27. MAÍ 1991.
Sviðsljós___________________
Stór, sænskfjölskylda:
Ellefta
bamiðá
leiðinni
Þau eru 33ja ára, sænsk hjón og
eiga nú von á ellefta barni sínu.
Móðirin, Mait Sjöberg, sagðist
reyndar ekki ætla aö eiga fleiri
börn þegar fyrsta barnið fæddist
fyrir þrettán árum. „Mér fannst
svo erfitt að fæða fyrsta barnið að
ég hét því að eiga ekki fleiri," segir
hún. „ En það fer ekki allt eins og
maður ætlar,“ bætir þessi margra
barna móðir við. Hún á von á ell-
efta barninu innan tíðar.
Mait var bara tvítug þegar hún
átti fyrsta barniö og fæðingin gekk
afar illa. Þó leið ekki nema um eitt
ár þangað til Mait sá stallsystur
sínar aka bamavögnum og langaði
þá í eitt nýfætt sjálfa. „Næsta fæð-
ingin gekk líka mjög vel,“ bætir
eiginmaðurinn Hasse inn í. í eina
skiptiö sem eitthvað hefur verið að
var þegar Veronica fæddist en þá
var naflastrengurinn svo stuttur
að hjartað hætti að slá í fæðingunni
en læknar gátu bjargað því.
Fjölskyldan flakkaði um tíma
milli leiguíbúða en hefur nú fundið
draumahúsið, sjö herbergja hús
þar sem er nægt pláss fyrir alla.
Heimilið er eins og barnaheimili
en þau hjálpast að við öll heimilis-
störfin. Þau vilja líka vera sem
minnst frá börnunum.
Elsta barnið er Mikael, 13 ára, en
yngstur er Jimmy sem er arsgam-
all. Þar á milli em: Daníel, 11 ára,
Tommy 10, Veronica 9, Marie og
Madeleine 7, Tobias 5, Dennis 3ja
og Mikaela 2ja ára.
Þau hjónin segja að líklegast
veröi væntanlegt barn þaö síðasta
en vilja þó ekki slá því föstu. „Fólk
heldur að við séum að eignast
svona mörg börn af trúarástæðum
en svo er ekki. Einnig halda marg-
ir aö það sé til aö geta fengið sem
mest út úr kerfinu en það verður
enginn ríkur á því að eiga mörg
böm. Við einfaldlega erum mjög
hrifm af bömum og viljum hafa
þau í kringum okkur," segja þau.
Það kostar mikla peninga að reka
svo stórt heimili. Á einum degi eru
drukknir tíu lítrar af mjólk, einn
pakki af smjöri hverfur ofan á
fimm heil brauð fyrir utan allt
álegg og matinn. Fyrir utaij matar-
kostnaðinn þarf að klæða allan
skarann og það þarf oft að halda
upp á afmæhsdaga. Fjölskyldan á
þó sína skemmtilegu daga og á
sumrin fer hún oft niður á strönd
en á veturna á skíði.
„Við erum hamingjusöm fjöl-
skylda og þökkum fyrir að ekkert
slæmt hafi hent okkur," segir hin
stolta móöir.
Þetta er engin smáfjölskylda, mamma, pabbi og tiu börn og það ellefta
á leiðinni.
\
NÝTT NÝTT NYTT
Bjóðum góða þjónustu,
undir fjögur augu,
á vœgu verði.
Litgreining og andlitsfórðun.
HcÁti^rbXotíii^
Nútíð, Faxafeni 14, 108 R.
Símar: 68 74 80 / 3 61 41
Sly Stallone er hér ásamt Jennifer Flavin og tískuhönnuðinum Karl Lagerfeld fyrir eina tiskusýninguna.
Sly Stallone
ástfanginn
Sly Stallone, sem er þekktastur fyr-
ir leik sinn í myndunum Rocky og
Rambo, er nú í París og þræðir tísku-
húsin. Það mun þó ekki vera vegna
þess að hann hafi tekið algjörum
hamskiptum og breyst úr því hörku-
tóh sem hann er þekktur fyrir í ein-
hverja „tískudrós" heldur er það ein
af sýningarstúlkunum sem hann elt-
ir á röndum.
Stallone, sem nú er fjörutíu og fjög-
urra ára, er ástfanginn af Jenrúfer
Flavin, sem er tuttugu og eins árs
sýningarstúlka.
Fjölmiölar í París segja að Jennifer
hafi veriö ráðin til að sýna hjá flest-
um stærstu sýningarhúsunum í Par-
ís vegna þess að Stallone hafði lofað
að mæta á hverja sýningu sem hún
kemur fram í og sýningarhúsin telja
að hann muni draga að marga sýn-
ingargesti.
En á meðan Stahone er í tískuhús-
unum í París eru lögfræðingar hans
að höfða meiðyrðamál í London gegn
tímaritinu „The Spectator“. Einn af
Ljósmyndarar og blaðamenn kepptust við að mynda og ná tali af Stailone
þegar hann mætti á tískusýningarnar. „Það hefur sjaldan verið eins vel
mætt á sýningu hjá okkur,“ sagði einn af aðstandendum Dior sýningarinnar.
blaðamönnum þess kahaði Stallone um hann, vegna þess að hann hefur
„aumingja“, í grein er hann ritaði aldrei gegnt herþjónustu.
Sll
'
-
WSM'&k
; ; : ’ ‘ ' ; :
Tom Crusie sem kvæntist Nicole Kidman í desember sl. var spurður fyrir stuttu hvort hann mælti með giftingum.
„Já, alveg tvímælalaust," sagði hann um leið og hann faðmaði konu sína. „Tvö hundruð prósent."