Dagblaðið Vísir - DV - 27.05.1991, Síða 24
36
Fréttir
Framkvæmdir stöðvaðar
við Fljótsdalsvirkjun
Wíimili
. .•■... •/
•m
Munninn að aðkomugöngunum að stöðvarhúsi Fljótsdalsvirkjunar. Framkvæmdum hefur nú verið frestað um sinn.
DV-myndir Sigrún
Strandir:
Grásleppan f arin að gef a sig
Regína Thorarensen, DV, Gjögri:
Að sögn Ásbjörn Þorgrímssonar,
Djúpuvík hefur verið reytings grá-
sleppuveiði að undanfórnu. Hann
var búinn að fá 30 tunnur af fullverk-
uðum hrognum 21. maí. Hann rær á
6 tonna báti, Báru, og eru þeir 2-3 á
veiðum saman með geysimörg net.
Lýður Hallbergsson á Skagaströnd
kemur tii Djúpuvíkur á vorin og fisk-
ar þar yfir sumartímann. Hann er
meö 20 tonna dekkbát og er búinn
að fá 60 tunnur. Þórður Magnússon,
sem kemur frá Akranesi, er búinn
að fá 10 tunnur. Talsvert var um bil-
anir á bát hans svo hann tók það ráð
aö taka ráðskonu sína meö sér á sjó-
inn og þá fór það að lagast.
Allir þessir grásleppukarlar verka
sín hrogn sjálfir. Verðið er um 40
þúsund krónur fyrir tunnuna en
verða 36 þúsund þegar búiö er að
draga frá kostnaö og koma tunnun-
um til Reykjavíkur.
Þrir Færeyingar kenndu heimamönnum að fara með borinn sem leigður
var frá Færeyjum. Þeir eru á myndinni ásamt manni frá Klæðningu hf. i
Kópavogi.
Sigrún Björgviiisdóttir, DV, Egilsstööum:
Framkvæmdum við gerð aðkomu-
ganga að stöðvarhúsi Fljótsdcdsvirkj-
unar hefur nú verið frestað og verður
ekki aöhafst þar meir að sinni, að
sögn Hreggviðs M. Jónssonar, eftir-
litsmanns Landsvirkjunar á staðn-
um.
„Þegar séð varð að samningar um
byggingu álvers myndu ekki verða
til lykta leiddar í sumar var fram-
kvæmdum hætt, nema hvað göngin
verða klædd innan með steinsteypu
eftir því sem það efni, sem til er á
staðnum, endist,“ sagöi Hreggviður.
Tæki verða flutt til síns heima en
þarna var bor sem leigður var frá
Færeyjum og lofthreinsibúnaður og
fleira frá Danmörku.
Upphaflega voru göngin boðin út í
þrennu lagi í nóvember -100 metrar,
500 metrar og 1000 metrar. Sameign-
arfélagið Fljót sf., bauð í 100 metrana
og fékk það verk. Fjögur fyrirtæki
mynda Fljót sf„ Hojgaard og Shultz
í Danmörku með 70% eignaraðild,
Gunnar og Guðmundur sf„ Klæðn-
ing hf. og Ármannsfell sf.
Undirbúningur hófst um áramót
en sprengingar við sjálf göngin hóf-
ust um miðjan febrúar. Þegar komn-
ir voru 100 metrar var ákveðið að
halda áfram og ef til vill ljúka við 500
metrana. Þegar komnir voru 50
metrar i viöbót var verkið stöðvað
og ljóst er að ekki verður meira unn-
ið þarna í sumar. Þó verða göngin
klædd eins og efni á staðnum hrekk-
ur til. Einnig verður unnið áfram við
vegalagningu uppi á heiðinni.
Stykkishólmur:
Vöruflutningar
tilogfrá
Reykjavik
Ingibjörg Hinriksdóttir, DV, Stykkishólmi:
Jóhann Rafnsson hefur hafið vöru-
flutninga á leiðinni Stykkishólmur-
Reykjavíkur-Stykkishólmur. Hann
festi nýlega kaup á vöruflutningabif-
reið og hóf reglubundinn akstur 2.
maí sl. Ferðir verða þrisvar í viku.
í Reykjavík leggur hann upp frá
Vöruleiðum, Skútuvogi 13, en í
Stykkishólmi hefur hann engan sér-
stakan viðkomustað en ekur heim
með vörurnar. Jóhann sagði í viðtali
við DV að hann mundi kappkosta að
veita sem besta þjónustu.
RENAULT
Bilaumboðiö hf
Krokhalsi 1, simi 686633, Reykjavik.
•rcr a kostuni
RENAULT
NEVADA 4x4
... fjórhjóladrifínn
skutbíll
í fullri stærð
Framdrif, afturdrif og læst mis-
munadrif að aftan gerir Renault
Nevada að cinstökum fcrðabíl við
allar aðstæður, Renault Nevada
er búinn 2000 cc 120 ha. vél með
bcinni innspýtingu, lúxusinnrétt-
ingu, 5 gíra gírkassa, fjölstillanleg-
um sætum, rafdrifnum rúðum,
fjarstýrðum samlæsingum, vökva-
stýri, farangursgrind og farang-
urshillu.
Vcrö frá kr. 1.539.000,-
SOLARHLOÐUR
fyrir sumarbústaði
Allar stærðir á mjög hagstæðu
verði. 4 W - 12 W og 51 W.
POLAR
EINHOLTI 6, SÍMI 618401