Dagblaðið Vísir - DV - 27.05.1991, Page 38

Dagblaðið Vísir - DV - 27.05.1991, Page 38
50 MÁNl|D4GtJR27,.IyIAÍ:1991. Afmæli Jóhann Kiesel Jóhann Kiesel stýrimaður, Bjarnar- hóli 2, Höfn í Homafirði, er fertugur ídag. Starfsferill Jóhann fæddist í Reykjavík og ólst þar upp til sjö ára aldurs en flutti þá til Bandaríkjanna þar sem hann átti heima næstu níu árin. Hann lauk farmannaprófi frá Stýri- mannaskólanum í Reykjavík 1974. Eftir að Jóhann kom aftur til íslands stundaði hann ýmis almenn störf. Hann stundaði sjómennsku á árun- um 1968-79, einkum frá Akranesi, fyrst sem háseti og síðan stýrimaður frá 1974. Þá var hann verslunar- stjóri í Reykjavík og á Homafirði á árunum 1980-89 en síðustu tvö árin hefur hann verið stýrimaður á Haf- ursey SF-36 frá Homafirði. Fjölskylda Jóhann hóf sambúð í september 1985 með Vigfúsínu Pálsdóttur, f. 22.8.1960 en hún er dóttir Páls Dag- bjartssonar, skipstjóra á Homafirði, og Guðrúnar Magnúsdóttur, hús- móðurþar. Sonur Jóhanns og Vigfúsínu er Jóhann Bergur, f. 12.10.1989. Stjúp- sonur Jóhanns er Páll, f. 26.2.1982. Börn frá fyrri hjónaböndum: Kristján Freyr, f. 27.12.1970, verka- maður á Akureyri en sambýhskona hans er Elma Halldórsdóttir og eiga þau eina dóttur, Rakel Önnu, f. 10.4. 1990; Pétur Ásbjörns, f. 2.10.1975, nemi á Akranesi; Elsa, f. 5.6.1983, búsettáAkranesi. Hálfsystir Jóhanns, sammæðra, er Áslaug Pétursdóttir, f. 30.4.1953, gjaldkeri í Reykjavík, gift Kort Ás- geirssyni verslunarstjóra og eiga þaufjögurbörn. Hálfsystkini Jóhanns, samfeðra, eru Helgi Kristján Sveinsson, f. 27.10.1953, verkamaður á Þingeyri og á hann eitt barn; Guðmundur Sigurður Sveinsson, f. 31.5.1955, netagerðameistari í Reykjavík, og á hann þijú börn; Sigríður Kristín Sveinsdóttir, f. 15.5.1957, húsmóðir á ísafirði, gift Páli Kristjánssyni húsasmíðameistara og eiga þau fjög- ur böm; Margrét Sveinsdóttir, f. 23.8.1958, verkakona á ísafirði og á hún eitt barn; Bjarni Jón Sveinsson, f. 19.6.1960, nemi á ísafirði; Berglind Sveinsdóttir, f. 20.4.1963, verkakona á ísafirði og á hún tvö börn; Svein- björg Sveinsdóttir, f. 14.7.1964, verkakona á ísafirði, og á hún tvö börn. Foreldrar Jóhanns: Sveinn Jó- hannsson, f. 13.2.1929, múrara- meistari í Reykjavík, og Elsa Bjömsdóttir Kiesel, f. 23.7.1933, d. 7.7.1974, húsmóðir. Jóhann var ætt- leiddur í febrúar 1958 af Charles Arthur Kiesel, f. 22.11.1931, d. 20.2. 1974, hermanni í bandaríska flug- hernum. Sveinn var sonur Jóhanns Bergs Guðnasonar, fyrrv. byggingafull- trúa á Akranesi, og Sigríðar Kristín- Jóhann Kiesel. ar Sigurðardóttur. Bróðir Sveins er Ríkharður, b. í Gröf í Miðdölum í Dalasýslu. Elsa var dóttir Einars Björns Vig- fússonar, verkamanns í Reykjavík og Áslaugar Sigurðardóttur. Systur Elsu eru tvær: Anna Björnsdóttir Johansen, búsett í Noregi, og íris Björnsdóttir, húsmóðir í Reykjavík. Snorri Steinþórsson Snorri Steinþórsson, forstöðumað- ur mötuneytis borgarskrifstofanna í Austurstræti 16 og leiðbeinandi við Hótel- og veitingaskóla íslands, til heimilis að Engjaseh 69, Reykjavík, erfertugurídag. Starfsferill Snorri fæddist í Reykjavík en ólst upp í Hafnarfiröi. Hann lauk gagn- fræðaprófi frá Flensborgarskólan- um í Hafnarfirði 1968. Sama áriö hóf hann nám í matreiðslu hjá Sigur- sæli Magnússyni veitingamanni og lauk sveinspróíl frá Hótel- og veit- ingaskóla íslands 1972 en meistara- réttindi öðlaðist hann 1976. Snorri starfaði hjá Flugfélagi ís- lands 1972-73, í Tjamarbúö í Odd- fellowhúsinu 1973-75 og hjá mat- stofu Miðfehs 1975-85. Snorri réð sig síðan th Reykjavíkurborgar 1986 og í kennslu hjá Hótel- og veitingaskól- anumsama ár. Snorri átti sæti í trúnaðarráði Fé- lags matreiðslumanna 1975-79, sat í stjóm félagsins og var gjaldkeri þess 1978-79 og situr í stjórn Lífeyrissjóðs matreiðslumanna frá 1979. Hann hefur verið félagi í Oddfehowstúk- unni Þormóði goða í Rvík frá 1981. Fjölskylda Snorri kvæntist 1.9.1973 Jónu Helgu Jónsdóttur, f. 7.9.1952, skrif- stofustjóra, en hún er dóttir Jóns J. Bárðarsonar, f. 12.5.1922, d. 21.4. 1981, kaupmanns í Reykjavík, og Erlu Sigurðardóttur, f. 1.11.1930, húsmóður. Dóttir Snorra og Jónu Helgu er Dröfn Ösp Snorradóttir, f. 9.12.1978. Bróðir Snorra er VUhjálmur Steinþórsson, f. 19.2.1945, sjómaður í Seattle í Bandaríkjunum, og á hann eina dóttur, Sigurrögnu Vil- hjálmsdóttur, sem er í sambúð með Inga Ó. Ingasyni og eiga þau eina dóttur. Systir Snorra var Dröfn Stein- þórsdóttir, f. 31.1.1944, d. 6.6.1959. Foreldrar Snorra vora Steinþór Hóseason, f. 6.6.1916, d. 4.6.1968, vélstjóri í Hafnarfirði, og Sig- urragna VUhjálmsdóttir, f. 20.6. 1915, d. 25.7.1960, húsmóðir. Foreldrar Steinþórs voru Hóseas Ámason og kona hans, Guðrún Þórðardóttir frá Hóli í Biskupstung- um. Foreldrar Sigurrögnu voru VU- hjálmur Tómasson frá Mjóafirði og Snorri Steinþórsson. Guðrún Sigmundsdóttir frá Uppsöl- um í Vestmannaeyjum. Eftir að móðir Snorra lést var hann mikið hjá foðursystur sinni og manni hennar en þau heita Þór- hildur Hóseasdóttir og Jóhannes N. Hallgrímsson, búsett í Hafnarfirði. Föðurbróðir Snorra var Helgi Hóse- asson prentari sem lést í fyrra. Snorri tekur á móti gestum á af- mæhsdaginn í FélagsheimUi Raf- magnsveitu Reykjavíkur við Raf- stöðvarveg mUli klukkan 18 og 20. Magnús Hafsteinsson Magnús Hafsteinsson blaðberi, Vatnsstíg 11 í Reykjavík, er fimm- cugurídag. Starfsferill Magnús er fæddur að Gunnsteins- stöðum í A-Húnavatnssýslu. Hann ólst upp í Langadal í A-Hún. Magnús lauk stúdentsprófi frá Menntaskólanum á Akureyri árið 1962. Hann fór síðan í Háskóla ís- lands og lauk prófi í forspjallsvís- indum 1964. Magnús starfaði hjá Skattstofu Reykjavíkur 1965. Hann hóf störf hjá Loftleiðum 1966 og starfaði hjá endurskoðunardeUd félagsins til ársins 1973. Hann starfaði síðan eitt ár á skrifstofu ByggingavörudeUdar SÍS. Síðan hefur Magnús unnið al- menna verkamannavinnu og síð- ustu árin sem blaðberi. Magnús hefur aö mestu verið bú- settur í Reykjavík frá 1962. Magnús er ógiftur og bamlaus. Hann átti fimm systkini og em fjögur þeirra á lífi. Þau em: Pétur Hafsteinsson, f. 13.3.1924, bóndi að Hólabæ í A-Hún. Maki hans er Gerð- ur Aðalbjörnsdóttir og eiga þau fjög- ur böm á hfi. Pétur er látinn. Margrét Hafsteinsdóttir, f. 25.9. 1933, sjúkraliði í Keflavík. Maki hennar er Kjartan Ásmundsson. Anna Hafsteinsdóttir, f. 9.1.1935, deildarhjúkrunarfr. á Landspítal- anum. Hún er búsett í Reykjavík, ógiftogbamlaus. Erla Hafsteinsdóttir, f. 25.2.1939, oddviti Bólstaðarhlíðarhrepps. Maki hennar er Friðrik Björnsson og eiga þau fimm böm. StefánHafsteinsson, 24.12.1943, verkstjóri á Blönduósi, ógiftur. Foreldrar Magnúsar em Haf- steinnPétursson, f. 1886, d. 1961, bóndi og oddviti, og Guðrún Bjöms- dóttir húsmóðir. Þau bjuggu lengst af á Gunnsteinsstöðum í A-Húna- vatnssýslu. Ætt Foreldrar Hafsteins vora Pétur Pét- ursson og Anna Magnúsdóttir. Magnús Hafsteinsson. Systkini hans voru Magnús Péturs- son, Margrét Pétursdóttir og Þor- valdurPétursson. Foreldrar Guðrúnar voru Bjöm Stefánsson og Sigurbjörg Péturs- dóttir. Systkini hennar voru Pétur Bjömsson, Einar Bjömssón, Anna Bjömsdóttir og Steingrímur Bjöms- son. GERUM GÖT Á EYRU HÁRGREIÐSLUSTOFAN KLAPPARSTfG SÍMI 13010 ,STÓRKOSTLEG ASKRIFTAR 'l • X sm* mm F afmælið 27. mai Rósa Sigfúsdóttir, Meistaravöllum ll.Reykjavík. Ingibjörg Steingrímsdóttir, Þórunnarstræti 97, Akureyri. Elín Guðmundsdóttir, Hamarsgötu 23, Fáskrúðsfirði, Haraldur Torfason, Hafnarbraut 16A, Höfn í Horna- firði. Jón Torfi Snæbjörnsson, Lónkoti, Hofshreppi. Esther Gunnarsson, Framnesvegi 12, Revkjavík. Ester Árnadóttir, Laugateigi 21, Reykjavík. Hólmfríður Garðarsdóttir, Vöhum, Reykdælahreppi. Einar Arnórsson, Langagerði 11, Reykjavík. Ásta Guðlaugsdóttir, Vogalandi 2, Reykjavik. Jóhannes Jóhannesson, Háteigsvegi 42, Reykjavík. Þórey Kristjánsdóttir. Heiðarbrún 98, Hveragerði. Guðbjörg Jónsdóttir, Austurvegi 12, ísafirði. 60 ára Lilja Jóelsdóttir, Hávegi 58, Siglufirði. Jóhanna Geirsdóttir, Norðurfehi 5, Reykjavík. Þórmundur Skúlason, Hlíðarbraut 1, Blönduósi. Hahdóra Þ. Ólafsdóttir. Rauðagerði 10, Reykjavík. Guðbjörg Sigurðardóttir, Bakka 2, Leirár-og Melahr. Kristín Hjálmarsdóttir, Stífluseli 4, Reykjavik. Þóra Ottósdóttir, Stiklum, Skútustaðahr. Námskeið og próf vegna löggildingar fasteigna- og skipasölu Fyrirhugað er að efna til námskeiðs og prófa vegna löggildingar fasteigna- og skipasala sem hefst í sept- ember nk. ef næg þátttaka fæst. Fyrirkomulag námskeiðs og prófa verður þannig: Námskeið Próf I. hluti september-desember 1991 janúar1992 II. hluti janúar-apríl 1992 maí 1992 III. hluti september-desember 1992 janúar1993 Kostnaður við að taka þátt í námskeiði er nú áætlað- ur kr. 120 þúsund fyrir hvern námskeiðshluta en verður ákveðinn þegar fjöldi þátttakenda liggur fyrir. Kostnaður við þátttöku í prófi er kr. 15.000. Þeir sem óska eftir að taka þátt í námskeiðinu og/eða gangast undir próf skulu tilkynna það til ritara próf- nefndar, Viðars Más Matthíassonar, hæstaréttarlög- manns, Borgartúni 24, 105 Reykjavík, fyrir 15. júní nk. Innritunargjald, kr. 5000, skal fylgja tilkynningu. Gjaldið er endurkræft ef námskeiðið fellur niður eða tilkynnandi fellur frá þátttöku áður en námskeiðið hefst. Nánari upplýsingar veitir dómsmálaráðuneytið, Arn- arhvoli, sími 609010. Reykjavík, 23. maí 1991. Prófnefnd löggiltra fasteignasala.

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.