Dagblaðið Vísir - DV - 11.06.1991, Page 9
ÞRIÐJUDAGUR 11. JÚNÍ 1991.
9
dv Útlönd
Risaveldin:
Leiðtogafundur
líklega í júlí
Litlar líkur eru á því aö Bandaríkj-
unum og Sovétríkjunum takist aö
komast að samkomulagi um niöur-
skurð á langdrægum kjarnaflaugum
fyrr en á miðju sumri, að því er emb-
ættismenn í Hvíta húsinu sögðu í
gær. Þeir árétta þó að ekkert sam-
band sé á milli þeirra viðræðna og
beiðni Gorbatjovs Sovétforseta um
efnahagsaðstoð.
Vonir stóðu til að Bush Bandaríkja-
forseti og Gorbatsjov mundu undir-
rita svonefnt START-samkomulag
síðar í þessum mánuði en nú eru
meiri hkur á að það verði ekki fyrr
en seint í næsta mánuði, eftir fund
sjö helstu iðnríkja heimsins sem
fram fer í London dagana 15.-17. júlí.
Gorbatsjov' mun fara fram á aöstoð
leiðtoga ríkjanna sjö á fundinum.
„Það hefur aldrei verið sett sam-
band á milli þessara tveggja málefna
í neinum viðræðum," sagði Marlin
Fitzwater, talsmaður Bandaríkjafor-
seta, í gær um afvopnunarviðræð-
urnar og bágt efnahagsástand í Sov-
étríkjunum.
Fitzwater ítrekaði aö það mundi
engin áhrif hafa á viðræður Gorb-
atsjovs við leiðtoga iðnríkjanna sjö
þótt ekki tækist að komast að sam-
komulagi sem miðar að því að fækka
langdrægum kjarnaflaugum risa-
veldanna um þriðjung.
Bush hefur verið að velta vöngum
yfir ýmsum leiöum sem hann gæti
farið til að létta á efnahagskreppunni
í Sovétríkjunum. Gorbatsjov hefur
beðið stjómvöld í Washington um
eins og hálfs milljarðs- dollara lán til
matvælakaupa og Bush hefur íhugað
að veita Sovétmönnum viðskipta-
ívilnanir.
Reuter
ÍRLAND
Heillandi áfangastaður
á ótrúlega hagstæðu verði
FLUG AÐEINS FRÁ KR.
19800,-
Engin aukagjöld
GLÆSILEGIR GISTISTAÐIR
Veröld hefur tryggt sér glæsilega gistingu á írlandi fyrir farþega sína i sumar.
Stórkostleg náttúrufegurö og heillandi menning bíða þín á írlandi i sumar.
VERÐ FRÁ KR. ^ O C A TVÆR VIKUR * Verð m. v. hjón og 2 börn, 2-15 ára, 21. júní Brottför: 21.júni-5.júlí 19.júlí-2. ágúst og 16. ágúst (vikuferð)
fiBOHI osimiN
AUSTURSTR/ETI 17 - SÍMI 622200