Dagblaðið Vísir - DV - 11.06.1991, Qupperneq 28
28
ÞRIÐJUDAGUR 11. JÚNÍ 1991.
Afmæli
Gyða
Eyjólfsdóttir
Gyöa Eyjólfsdóttir, Háaleitisbraut i Jónssonblikksmíðameistari.
33,Reykjavík,verðursjötugámorg- Þauhjónintakaámótigestumí
un. húsnæðiAkoges, Sigtúni3,Reykja-
EiginmaðurhennarerGeorg | vík,áafmælisdaginnkl. 17-19.
i
Menning
Exúlterað og júbflerað
í menningarmiðstöð Hafnfirðinga, Hafnarborg, var
aldeilis sungið drottni til dýrðar sl. sunnudagskvöld.
Kantorinn á staðnum, Helgi Bragason organisti, hafði
safnað saman myndarlegu úrvah af kirkjumúsík Moz-
arts fyrir yfirstandandi listahátíð í Firöinum og gott
til þess að vita að slíkt falli ekki í grýttan jarðveg því
að salur Hafnarborgar var bókstaflega troðfullur.
Eini gallinn á þeirri njarðargjöf var að hinn líflegi
hljómburður Hafnarborgar dofnaði merkjanlega og
dró við það nokkuð úr æskilegum ómtíma, þó ekki til
stórskaða, enda heyrðist vel i öllun nema kannski fá-
liðaðri karladeild kórsins.
Flest voru verkin frá aðalkirkjutónUstarskeiði Moz-
arts fram að 1782 þegar hann þjónaði kirkjuhöfðingj-
unum í Salzburg, Schrattenbach erkibiskuRi og eftir-
manni hans á stólnum, Hieronymusi CoUoredo, sem
mun álíka vel þokkaður af tónsagnfræðingum og Sadd-
am Hussein er nú í Washington. Leiddist Úlfgangi
Amadeusi svo vistin að kirkjutónsköpun hans datt
nánast upp fyrir þegar hann fór að vinna sjálfstætt í
Vínarborg, til mikillar ánægju fyrir konsert-, sinfóníu-
og kammermúsíkunnendur æ síðan. Þykjast sumir
geta rakið bæði þetta áhugaleysi gagnvart andlegum
tóngreinum og sinnuleysi Austurríkiskeisara gagn-
vart snilhngnum unga til hins síðartalda erkiklerks,
með því að Colloredo var vandamaður Jóseps II. og
ku hafa borið pilti Ula söguna.
Hvað sem nú er hæft í þessu þá voru kirkjuverkin
á tónleikaskránni öll mjög áheyrileg og brá víöa fyrir
snUldarneista þó að vantaði eitthvað á þá dýpt er ein-
kennir sams konar verk höfuðsniUinga barokktímans
og gildir það reyndar um megnið af vínarklassísku
kirkjumúsíkinni: hún verkar dulítið eins og glamp-
andi skel utan um holrými.
„Exultate, jubilate" (Fagnið, gleðjist) er bravúra-
númer fyrir sólósópraninn. Aðalstjarna kvöldsins, Sig-
Tónlist
Ríkarður Örn Pálsson
ríður Gröndal, sýndi fáguð og sannfærandi tilþrif og
það svo áreynslulaust að flest tæknivandamál virtust
liðin tíð. Aðeins raddfegurð, mýkt og innlifun skiptu
máli.
í verkunum á eftir, Ave verum corpus, Sancta Mar-
ia, mater Dei, Laudate Dominum, Alma Dei Creatoris
og í lokanúmerinu - Krýningarmessunni í C-dúr (K
317) beindist athyglin aö kórnum sem átti marga fall-
ega spretti, dyggilega studdur af 17 manna kammer-
sveit úr Sinfóníuhljómsveit íslands. Þetta er fallegur
og vaxandi kór sem fylgir vel röggsömum stjórnanda
sínum og framlag einsöngvaranna, sem auk Sigríðar
voru Guöný Ámadóttir, Þorgeir J. Andrésson og Ragn-
ar Davíðsson, dró síður en svo úr ánægju hlustenda
af þessum skemmtilegu og hnökralitlu tónleikum.
Einsöngvarar og stjórnandi Mozart-tónleikanna, talið frá vinstri: Ragnar Davíðsson, Guðný Árnadóttir, Helgi
Bragason, Sigriður Gröndal og Þorgeir Andrésson.
Nauðungaruppboð
þríðja og síðasta
á eftirtöldum fasteignum:
Borgartún ÍB, þingl. eig. Eggert Þór
Sveinbjömsson, fer fram á eigninni
sjálfri fimmtud. 13. júní ’91 kl. 15.00.
Uppboðsbeiðendur eru Guðjón Ár-
mann Jónsson hdl. og Gjaldheimtan
í Reykjavík.
Miðstræti 3A, 3. hæð og rishæð, þingl.
eig. Guðni Kolbeinsson og Lilja Berg-
steinsd., fer fram á eigninni sjálfri
fimmtud. 13. júní ’91 kl. 15.30. Upp-
boðsbeiðendur eru Veðdeild Lands-
banka fslands og Gjaldheimtan í
Reykjavík.
Sörlaskjól 40, hluti, þingl. eig. Grund-
arkjör hf., fer fram á eigninni sjálfri
fimmtud. 13. júní ’91 kl. 16.30. Upp-
boðsbeiðendur eru Gjaldheimtan í
Reykjavík, Fjárheimtan hf., Eggert
B. Ólafsson hdl. og Veðdeild Lands- .
banka íslands.
B0RGARFÓGETAEMBÆTT1Ð í REYKJAVÍK
Aðalskipulag
Reykjavíkur 1990-2010
Tillaga að Aðalskipulagi Reykjavíkur 1990-2010,
greinargerð og landnotkunarkort auglýsist hér með
samkvæmt 17. og 18. gr. skipulagslaga nr. 19/1964.
Tillagan ásamt þemakortum og öðrum uppdráttum
og skýringarmyndum, sem tengjast aðalskipulaginu,
er almenningi til sýnis frá og með 13. júní til 31.
júlí 1991 hjá Borgarskipulagi Reykjavíkur, Borgar-
túni 3, 4. hæð, frá kl. 8.30-16.15 nema þriðjudaga
þá er sýningin opin til kl. 18.00. Starfsfólk Borgar-
skipulags svarar fyrirspurnum.
Athugasemdum eða ábendingum skal skila skriflega
til Borgarskipulags eigi síðar en kl. 16.00 8. ágúst
1991.
Þeir sem eigi gera athugasemdir innan tilskilins frests
teljast samþykkir tillögunni.
Fimmtudaginn 20. júní kl. 17.00 verður kynningar-
fundur þar sem starfsmenn Borgarskipulags og borg-
arverkfræðings kynna helstu þætti skipulagstillög-
unnar.
Myndgáta
Andlát
Jón Guðbjörnsson lést á Borgarspíta-
lanum 7. júní.
Finnbogi Þ. Þorbergsson frá Efri-
Miðvík, Hátúni 10, lést í Landspítal-
anum 9. júní.
Jónas Sigurðsson bifvélavirki, Sold-
otna, Alaska, lést 6. júní.
Sigurlaug Guðmundsdóttir, Sól-
heimum 32, lést á heimili sínu laug-
ardaginn 8. júní.
Bjarni Halldórsson bóndi, frá Neðri
Tungu, Hlíðarvegi 16, ísafirði, andað-
ist á heimili sínu sunnudaginn 9.
júní.
Kristín Guðmundsdóttir frá Gerðum
í Garði lést að kvöldi 7. júní.
Guðmundur Jóhannsson, Rituhólum
11, Reykjavík, lést í Landakotsspítala
aðfaranótt 9. júní.
Sigríður Ólafsdóttir, Kársnesbraut
76, Kópavogi, andaðist í Borgarspít-
alanum sunnudaginn 9. júní.
Pétur Sigurðsson frá Göröum andað-
ist á Hrafnistu, Reykjavík, 10. júní.
Hjörtur Þorsteinsson, Eyri í Kjós,
lést á heimili sínu sunnudaginn 9.
júní.
Ingigerður Eggertsdóttir, Egilsgötu
16, Reykjavík, lést 8. júní.
Erla Unnur Ólafsdóttir, frá Strönd í
Vestmannaeyjum, Álftamýri 20,
Reykjavík, lést í Vífilsstaðaspítala að
morgni 9. júni.
Jón Guðbjörnsson, Hátúni 6, lést í
Borgarspítalanum 7. júní.
Sigríður Jónsdóttir, Ferjubakka 16,
Reykjavík, er látin.
Hjörleifur Magnússon, fv. bæjarfóg-
etafulltrúi, Siglufiröi, lést í Borgar-
spítalanum laugardaginn 8. júní sl.
Jarðarfarir
Magnhildur Bender, Bólstaöarhlíð
46, lést á heimili sínu 8. júní sl. Jarð-
aríorin fer fram frá Fossvogskirkju
fóstudaginn 14. júní kl. 15.
Erna Ásgeirsdóttir, Neðstaleiti 2,
Reykjavík, sem andaðist í Landspít-
alanum 5. júní sl., verður jarðsungin
frá Fossvogskirkju fimmtudaginn 13.
júní kl. 13.30.
Karl Ásgrímur Ágústsson, Litla-
Garði, Akureyri, sem andaðist 6.
júní, verður jarðsunginn frá Akur-
eyrarkirkju fimmtudaginn 13. júní
kl. 13.30.
Tilkyimingar
Félag eldri borgara
Opið hús í Risinu, Hverfisgötu 105, í dag
frá kl. 13-17. Bridge og frjáls spila-
mennska. Sigvaldi stjómar dansi í kvöld
frá kl. 20-23.
Tónleikar
Óttablandin virðing
á Púlsinum
Ný hljómsveit, Óttablandln virðing, leik-
ur á veitingastaðnum Púlsinum í kvöld.
Hljómsveitin er skipuð úrvals tónlistar-
mönnum, en þeir eru: Hjörtur Howser,
sem leikur á hljómborð, Guðjón Berg-
mann söngvari, Kristján Eldjárn gitar-
leikari, Guðmundur Stefánsson trommu-
leikari og Bergur Heiðar bassaleikari.
Óttablandin virðing leikur tónlist ýmissa
höfunda frá ýmsum tímum í bland viö
sín eigin lög. Púlsinn verður opnaður kl.
22 en tónleikarnir hefjast kl. 22.35.
Tapaðfundið
Lyklar fundust
Þrír lyklar á kippu, einn bíllykil og tveir
húslyklar fundust í Nauthólsvik. Kippan
er merkt Stefáni. Upplýsingar í síma
33998.
Námskeið
Námskeið hjá Tón-
skóla FIH
i dag, 11. júní, mun John Clayton og Tón-
listarskóh FÍH gangast fyrir námskeiöi í
húsakynnum félagsins að Rauðagerði 27,
Reykjavík. Námskeiðinu er skipt í tvo
hluta. Fyrri hluti sem verður kl. 16-18
er einkum ætlaður raf- og kontrabassa-
leikurum en hþóðfæraleikarar sem leika
á önnur hljóðfæri eru velkomnir enda
fjallar John um tónlist í víðu samhengi
sem allir ættu að geta nýtt sér. Seinni
hluti námskeiðsins er frá kl. 20-22 og þá
mun John Clayton stjórna æfingu stór-
sveitar Tónlistarskóla FÍH og er öllum
sem vfija boðlð að fylgjast með æfing-
unni. Þátttökugjald er kr. 1500.